Morgunblaðið - 13.02.1985, Side 55
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 13. FEBRÚAR 1985
55
Ólíkur
smekkur
Þessari mynd var smellt
af af þeim systrum Karól-
ínu og Stefaníu Mónakó-
prinsessum á göngu í Par-
ís á dögunum. Augljóst er
að fatasmekkur þeirra fór
ekki saman i þetta sinn.
Karólína, sem er átta ár-
um eldri en Stefanía,
kann því greinilega vel að
draga fram glæsileikann í
fari sínu við minnsta til-
efni en Stefanía nennir
því sjáanlega ekki nema
af og til.
Bryndís Sverrisdóttir og Sólveig Georgsdóttir.
— Á hvaða söfn farið þið helst
með nemendur?
Þjóðminjasafnið, Ásgrímssafn,
Ásmundarsafn, Listasafn Einars
Jónssonar og stundum í Árbæinn.
Stundum koma nemar utan af
landi og fara þá í heimsóknir á
fleira en eitt safn, því við þjónum
öllu landinu, ekki einungis höfuð-
borgarsvæðinu.
— Er þetta skemmtilegt starf?
Já, mjög svo. Það er gaman að
sjá hve börnin njóta þess oft að
fara á söfnin þegar búið er að
skipuleggja heimsóknirnar vel og
þau fá tækifæri til að spreyta sig á
einhverju eins og t.d. gátunum.
Okkar starf er að reyna að vekja
áhuga þeirra á söfnunum og
kenna þeim í leiðinni að meta
gamla gripi og þjóðlífsþætti og
þegar það dæmi gengur upp þá er
þetta virkilega spennandi og
skemmtilegt.
Verður það
opinbert?
Imars næstkomandi verður
■ frumsýnd í Lundúnum
kvikmyndin „Falling in Love“ með
Meryl Streep og Robert DeNiro í
aðalhlutverkum. Bæði eiga þau
lofsamlegan leikferil að baki og
eins og kunnugt er léku þau sam-
an í Óskarsverðlaunamyndinni
„The Deer Hunter". Þau Streep
DeNiro eiga það sameiginlegt að
flíka ekki einkamálum sínum, en
eitthvað er i deiglunni.
{ stuttu máli fjallar „Falling in
Love“ um gifta konu sem verður
af giftum manni, án þess að hún bein-
lfnis vilji það, og þá togstreitu sem
fylgir málum sem þessum.
Leikstjóri myndarinnar, Ulu Gros-
bard, hafði f fyrstu efasemdir um
handritið að myndinni. En smátt og
smátt heillaðist hann. Hann segir um
þau DeNiro og Streep: „Þau njóta þess
að leika saman, það er galdurinn við
myndina. Þau treysta hvort öðru full-
komlega og vildu reyna nýja hluti. í
myndinni eru blæbrigði sem undir
venjulegum kringumstæðum er ekki
hægt að kalla fram hjá leikurum. Þau
elska hvort annað og þeim tekst að
leiða það besta fram hvort í öðru.“
Drottningar-
bollur
Það eru margir magarnir sem
þarf að metta í konungshöll-
inni sænsku og þykir hér farið lýð-
ræðislega að. Litlu ríkisarfarnir
þau Viktoria, Carl Philip og Magd-
alena lágu ekki á liði sínu um jólin
og fóru að baka.
Viktoria, sem þegar er komin
með drottningarlega takta, sá um
að ekkert færi úrskeiðis og tókst
verkið prýðilega. Ef marka má
einbeitnina sem skín úr fasi Vikt-
oríu ætti henni að takast hlutverk
sitt í framtíðinni jafn glæsilega.
DURAN-DURAN armbandsúr
Úrið er með Duran-Duran áletrun, leöuról og sýnir
klukkutímann, mínútur, sekúndur, mánaðardag og
dagsetningu. Úrinu fylgir einnig litmynd af
hljómsveitinni.
Verða til afgreiðslu í marz.
Pantanir óskast strax.
Vinsamlegast sendið mér í póstkröfu . .. stk.
Duran-Duran popp-úr á kr. 390,- stk.
Nafn: ..................................
Heimili: ...............................
Póststöð: ...........................'•.
Sendið til: ............................
PÓSTVAL, Pósthólf 9133,129 Rvk.
BRÚÐARKJÓLAR
FRÁ
LAURA ASHLEY
Laugavegi 99, sími 16646.