Morgunblaðið - 21.02.1985, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 21.02.1985, Qupperneq 2
2 MORGUNBLADIÐ, FIMMTUDAGUR 21. FEBRÚAR 1985 Kristján Ragnarsson, formaður LIU, um olíuhækkunina: Kaldar kveðjur þegar flotinn er á leið í land Skipin skipta aftur yfir á gasolíuna „OKKUR finnst það heldur kaldar kveðjur að fá þessa hækkun þegar flotinn er á leið í land. Hún lagar stöðuna áreiðanlega ekki,“ sagði Kristján Ragn- arsson, formaður LÍÚ, þegar álits hans var leitað á 3,7% hækkun gasolíu og 13,5% hækkun svartolíu sem verðlagsráð heimilaði í gær. Kristján sagði að hækkun gas- olíulítrans um 40 aura skiptist í tvennt. 20 aurar væru vegna inn- kaupanna, þ.e. vegna breytingar á dollar, og 20 aurar vegna aukinna greiðslna á innkaupajöfnunar- reikning. Hækkun svartolíunnar um 1.400 kr. hvert tonn skiptist í fjóra þætti. 500 kr. væru vegna innkaupanna, 150 kr. vegna hækk- unar verðjöfnunargjalds, 730 krónur vegna aukinna greiðslna á innkaupajöfnunarreikning og 20 kr. vegna hækkunar landsútsvars Innanlandsflug: Fargjöld hækka um 9 % VERÐLAGSRÁÐ ákvað á fundi sínum í gær að heimila 12% hækkun á töxtum leigubifreiða. Jafnframt heimilaði ráðið 12% hækkun á töxtum vinnuvéla og 9% hækkun á far- og farmgjöldum í innanlandsfluginu. vegna verðhækkunarinnar. Sagði Kristján að engin hækkun hefði verið leyfð á álagningu olíufélag- anna og væri það út af fyrir sig jákvætt. Sagði Kristján að fyrir ári hefði gasolían verið 50—60% dýrari en svartolían og hefði mörgum skip- um verið breytt til að nota svart- olíuna á undanförnum árum. Eftir þessa hækkun nú væri svartolían orðin jafn dýr gasolíunni að teknu tilliti til eðlisþyngdar olíunnar. „Það er ekki lengur neinn ávinn- ingur að nota svartolíuna og blasir því við að fiskiskipin muni skipta aftur yfir á gasolíuna," sagði Kristján. Þá sagði hann að olíuverðs- hækkunin kostaði útgerðina 160 milljónir á ári. Kostnaðarauki út- gerðarinnar vegna gasolíuverðs- hækkunarinnar væri 50 milljónir en 110 milljónir vegna hækkunar svartolíunnar. Þórður Ásgeirsson, forstjóri Olíuverslunar lslands hf., sagði í gær að þessi verðhækkun væri langt frá því að vera fullnægjandi. Það væri algerlega óviðunandi að ekki hefði fengist leiðrétting álagningarinnar. Við síðustu verð- ákvörðun, í nóvember sl., hefði álagningin verið skert um nálægt því 'á. Á bak við þá skerðingu hefðu staðið rök sem engan veginn stæðust. Búið hefði verið að gera verðlagsyfirvöldum það ljóst og hefði það því komið mjög á óvart að hún skildi ekki hafa verið lag- færð aftur. „Álagningin er það lág að við erum að selja oiíuna með miklu tapi og því höldum við ekki lengi áfram,“ sagði Þórður. Sagði hann að með þessu væri verið að yfir- færa peninga í stórum stíl frá olíufélögunum til útgerðarinnar. Því sagði hann að olíufélögin gætu ekki unað, eitthvað yrði að gera en engar ákvarðanir hefðu verið teknar í því efni. Sagði hann að helst kæmi til greina að hætta að selja olíu nema gegn staðgreiðslu, afnema þann vaxtalausa 1—2 mánaða greiðslufrest sem útgerð- in hefði, og dagvaxtareikna út- tektina strax. Morgunblaðiö/ Árni Sæberg Síðustu daga hefur enginn verið atvinnulaus {Garði, en heimamenn óttast að þaö kunni að breytast til hins verra. Dökkt útlit í atvinnumálum í Garði: Geir Hallgrímsson, utanrikisráðherra: íslendingur verði ráðinn til starfa í höfuðstöðvum NATO „VIÐ HÖFUM áhuga á því að fslendingur verði ráðinn til starfa í höfuðstöðvum Atlantshafsbandalagsins í Brussel, í þeirri deild er fjallar um hermál og undirbýr fundi hermálanefndar þannig að við getum fylgst með þeim áætlunum sem farið er í gegnum frá einum tíma til annars, og varða ísland," sagði Geir Hallgrímsson utanríkisráðherra í samtali við blm. Mbl. í g»r. ,Ég hef minnst á þetta mál í utanríkismálanefnd og þar fékk þessi hugmynd góðar undirtekt- ir,“ sagði Geir, „og ég hef þess- vegna verið að undirbúa þetta mál frekar, m.a. í viðræðum við Carrington lávarð í desember sl. og vonast ég því til að þetta geti brátt komist í framkvæmd." Utanríkisráðherra sagði að ekki væri alveg ljóst hvaða menntunar- eða reynsluskilyrði yrðu sett varðandi ráðningu í þessa stöðu, en hann sagðist vonast til þess að unnt yrði að fá mann til starfans sem teldist hæfur. Aðspurður um hver bæri kostnaðinn af veru slíks starfsmanns i Brussel, sagði Geir: „Væntanlega fellur kostn- aðurinn á okkur, en það mun vera venja að hvert land kosti þá menn sem þeir láta í té til starfa á þessu sviði." „Fari sem horfir verður ástandið hér skelfilegtu — segir Finnbogi Björnsson oddviti Gerdahrepps „ÞAÐ MÁ segja að hér sé allt að lenda í kaldakoli. Mörg fyrirtæki eru að hætta, ýmist tímabundið eða fyrir fullt og allt. Tveir togarar hafa verið seldir í burtu og sá þriðji er að fara. Stærstu fiskvinnslufyrirtækin eru hætt eða að hætta. Önnur fyrirtæki hér hafa ekki fengið eðlilega bankafyrirgreiðslu í marga mánuði. Fari svo sem nú horfir verður skelfílegt ástand hér þegar kemur fram á vorið.“ Finnbogi Björnsson fram- kvæmdastjóri, oddviti Gerða- hrepps, lýsti ástandinu í sinni heimabyggð á þennan hátt þegar blm. Morgunblaðsins hitti hann og fleiri frammámenn í Garðinum að máli í gær. Segja má, að ástandið í Garðinum lýsi í hnotskurn nýlegri þróun í atvinnumálum fiskverkun- arfólks á Suðurnesjum. Fisk- vinnslufyrirtækjum í Gerðahreppi hefur fækkað um nærri helming á síðustu 2—3 árum og með sölu togaranna minnkar kvóti byggð- arlagsins verulega. „Bátarnir hafa getað nýtt sér kvóta togaranna á meðan þeir hafa verið til dæmis á rækju yfir sumartímann en nú sýnist manni að margir bátar verði búnir með sinn kvóta í vertíðarlok í vor,“ sagði Finnbogi. „Ég held að við sjáum núna aðeins brot af þeim vanda, sem við eigum eftir að standa frammi fyrir í ár. Strax í vor er fyrirsjáanlegt að hér verði veruleg vandamál á ferðinni.“ En þótt ástand og horfur í Garði séu ekki góðar sem stendur og at- vinnutækifærum þar hafi fækkað um nærri hundrað á undanförnum mánuðum, var enginn á atvinnu- leysisskrá þar sl. föstudag, í fyrsta skipti síðan í nóvember sl., að sögn Ellerts Eiríkssonar, sveitarstjóra. „Ástæðan er sú,“ sagði hann, „að þegar hér er allt í fullum gangi höfum við ekki nægilegt vinnuafl og höfum reglulega þurft að flytja hingað fólk frá Keflavík og Njarð- vík. Atvinnuleysið í Garðinum hefur bitnað á íbúum nágranna- byggðarlaganna. Þetta á eftir að breytast mjög hratt til hins verra þegar áhrif sjómannaverkfallsins fara að koma í ljós.“ Jón Hjálmarsson, formaður Verkalýðs- og sjómannafélags Gerðahrepps, sagði ástandið leggjast illa í heimamenn ef ekki kæmi til viðbótarkvóti eða breytt afstaða yfirvalda. „Það er búið að ganga fyrir bankastjóra allra bankanna, þingmenn kjördæmis- ins og ráðherra, en alls staðar er komið að lokuðum dyrum,“ sagði hann í samtali við blaðamann Mbl. „Ef þetta væri ekki á Suður- nesjum væri löngu búið að bjarga málunum. Við erum furðu lostnir yfir þvl, að bankarnir neita fyrir- tækjum hér um eðlilega fyrir- greiðslu, svo þau geta ekki einu sinni veðsett afurðir sínar.“ Sjá ennfremur forystugrein. Umræður á þingi um Seðlabankahúsið: „Albert, þú verður víttur fyrir þessi orð“ — sagði Eyjólfur Konráð Jónsson. Þingforseti stillti til friðar Á FUNDI efri deildar Alþingis í gær kom til haröorðra orðaskipta milli flokksbræðranna Eyjólfs Konráðs Jónssonar (S) og Alberts Guðmunds- sonar fjármálaráðherra þegar Eyjólfur Konráð mælti fyrir þingsálykt- unartillögu sinni, Eiðs Guðnasonar (A) og Stefáns Benediktssonar (BJ) um könnun á æskilegri nýtingu Seðlabankahússins. Eyjólfur Konráð sagði m.a. í ræðu sinni að Seðlabankabygg- ingin væri auðvitað bara „symbol" fyrir þá röngu stefnu sem verið hefði við lýði. Er Albert Guðmundsson, fjár- málaráðherra sté í pontu og svaraði Eyjólfi Konráð, sagði hann m.a.: „Það er auðvelt að tala hér og setja á höggstokk einn hæfasta mann þjóðarinn- ar.“ Eyjólfur kallaði þá frammí: „Ég gerði það ekki.“ Albert hélt áfram: „Þú hefur gert það með þessari tillögu." Eyjólfur Konráð kallar þá aftur frammí: „Albert. Þú verður víttur fyrir þessi orð.“ Albert hélt áfram: „Það er hans verk sem hér er sett á höggstokk og á að skera hér frá hans stofnun sem honum hefur verið treyst fyrir." Er hér var komið sögu, greip forseti deild- arinnar, Salome Þorkelsdóttir inn í orðskak þingmannanna og sagði: „Ég vil biðja háttvirta þingmenn að gæta orða sinna í vali hér.“ Albert svarar forset- anum með þessum orðum: „Hvað er það sem forseti er að víta hjá mér í ræðustól?" Og forseti svar- ar: „Aðeins að biðja hæstvirtan ráðherra að gæta orða sinna.“ Enn heldur ráðherrann áfram og spyr: „Hvað er það í orðum mín- um?“ Og forseti svarar: „Það var höggstokkurinn." Albert spyr: „Já, hvað með það. Er það ekki gott íslenskt orð? Er það einhver misnotkun á orðinu? Það er ver- ið að skera hérna fólk í Seðla- bankanum. Ævistarf manns sem hefur verið að byggja upp Seðla- bankann, frá vöggu, og máske til grafar, því mér heyrist það eigi að taka upp lögin og gera hann að þeirri stofnun sem hann var þegar hann var sagður vera í skúffu hjá Landsbanka íslands." Sjá nánar á þingsíftu, bls. 34. Eskifjörður; Seinheppinn innbrotsþjófur Eskifirði, 20. febrúar. HANN var heldur seinheppinn sá eða sú sem braust inn í Félagsheim- ilið Valhöll síðastliðna nótt. Virðist svo sem löngunin hafí verið mest í að tala í síma. f kringum símann var allt þakið sígarettustubbum og nóg virðist hann hafa haft af sígarettum, því hann skildi eftir fjóra pakka hjá símanum. Og ekki nóg með það heldur skildi hann líka eftir lyklana sína og viö lyklakippuna var áföst mynd af kvenmanni, svo eftirleikur- inn ætti að vera auðveldur fyrir löe- reglu. Ekki skemmdi hann neitt nema hurðina sem hann fór inn um, en það var bráðabirgðahurð svo skað- inn er lítill, utan að trúlega verður símareikningurinn eitthvað hærri, en annars hefði orðið. Lögreglan er að rannsaka málið. — Ævar.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.