Morgunblaðið - 21.02.1985, Blaðsíða 47

Morgunblaðið - 21.02.1985, Blaðsíða 47
47 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 21. FEBRÚAR 1985 Foreldrar Þórunnar voru Þor- steinn Árnason frkvæmdastjóri vélstjórafélags Islands og heiðurs- félagi þess. Auk þess gegndi hann margskonar trúnaðarstörfum, m.a. tjónaskoðun á skipum, og kynntist ég þessum heiðursmanni allvel þegar ég starfaði í Héðni hf. Kona hans var Ásta Jónsdóttir frá Eiðsstöðum einn sannasti vestur- bæingur sem ég hef kynnst. Hún hafði skemmtilegan metnað sem innborinn og gamall vesturbæing- ur og náði sá metnaður niður að Dómkirkju, sem var henni eins- konar helgitákn. Hún var mikil sjálfstæðiskona og talaði um póli- tík af trúarhita. Vorum við Frið- rik stundum að smáglettast við hana um pólitíkina og var þá oft glatt á hjalla. Þótt Þórunn væri kona dagfars- prúð gat hún verið mjög föst á sinni skoðun. Hjartalag hennar var þó þannig, að hún mátti ekk- ert aumt sjá án þess að reyna að rétta hjálparhönd. Hún sótti ýmsa góða eðliskosti til foreldra sinna og þótti mjög vænt um vestur- bæinn, þar sem hún bjó svo til alla ævina. Á síðasta áratug hefir fyrirtæki þeirra hjóna, Innkaup hf., sífellt aukið umsvif sín. Er það nú í hópi stærri innflutningsfyrirtækja og er um þessar mundir að mestu lokið myndarlegri byggingu yfir starfsemina. Þórunn var stjórn- arformaður þessa fyrirtækis. Aldrei finnum við betur til van- máttar okkar og smæðar en þegar við stöndum augliti til auglitis við dauðann. Þórunn var kona trúuð, þótt hún flíkaði því lítt, og sannfærð um að jarðvistin væri aðeins áfangi á lengri vegferð. Vona ég nú að henni verði að trú sinni og heilla stjarna lýsi braut hennar á æðri tilverustigum. Það er með miklum söknuði sem við hjónin kveðjum okkar kæru vinkonu í dag. Við sendum eigin- manni, systkinum og öðrum henn- ar nánustu innilegar samúðar- kveðjur. Guðmundur Guðmundarson Mig langar að kveðja mágkonu mína, Þórunni, með nokkrum fá- tæklegum orðum, enda kemur margt í hugann er ég minnist þess hve hlýlega hún tók á móti mér, þegar ég kom fyrst í fjölskylduna fyrir tæpum átján árum, þá til- tölulega ókunnug íslensku fjöl- skyldulífi, en hún var sú fyrsta sem ég kynntist í fjölskyldu mannsins míns. Ég fann ávallt hve sterkum vin- áttuböndum hún umvafði alla þá mörgu sem henni þótti vænt um og aldrei heyrði ég hana hallmæla nokkrum manni, heldur dró hun alltaf það fagra fram, bæði um menn og málefni, enda bar heimili hennar vott um fegurð og smekk- vísi á allan hátt. Alltaf var jafn gott að heim- sækja Þórunni og Friðrik og deila með þeim samverustundum, hvort heldur var í sorg eða gleði. Nú þegar söknuðurinn er mest- ur við fráfall Þórunnar, veit ég að tíminn græðir öll sár með Guðs hjálp. Að lokum votta ég svila mínum, Friðriki Jörgensen, og allri fjöl- skyldunni dýpstu samúð mína. Guð blessi minningu elsku mág- konu minnar, Þórunnar S. Þor- steinsdóttur. ('hristel Elskuleg og góö vinkona mín er látin. Þann 12. febrúar lést á gjör- gæsludeild Landspítalans Þórunn Sólveig Þorsteinsdóttir. Foreldrar Þórunnar voru þau hjónin Ásta Jónsdóttir og Þor- steinn Árnason, sem lengst af bjuggu vestur á Túngötu hér í bæ. Þórunni eða Tótu eins og ég kallaði hana, auðnaðist ekki hár aldur. Hún var aðeins 57 ára göm- ul er hún lést, en hún fæddist 24. desember 1927. Okkar kynni hófust, þegar við vorum 16 ára gamlar og unnum báðar í kvikmyndahúsum. Þórunn vann við miðasölu í Gamla Bíói en ég við sælgætissölu í Nýja Bíói. Við bundumst órjúfanlegum vináttuböndum, sem héldust alla tíð, og á ég um hana Ijúfar endur- minningar, sem seint gleymast. Ég minnist sérstaklega ógleym- anlegrar ferðar, sem við fórum norður í land. Við vorum átta saman ung og lífsglöð og gaman- mál, sem oft hafa verið rifjuð upp síðan, byrjuðu strax í Hvalfirði. Þetta var samstilltur hópur, sem var ákveðinn í að gera ferðina sem besta. Við sváfum í tjöldum og höfðum meðferðis eldunartæki og annan viðleguútbúnað, við kynntumst landinu okkar og nutum lífsins. Þórunn var vel gefin og greind kona. Hún var ljóðelsk og einkum hafði hún miklar mætur á þjóð- skáldinu okkar Davíð Stefánssyni. Einnig unni hún góðri tónlist og öðrum fögrum listum. Eftirlifandi eiginmanni sínum Friðriki Jörgensen giftist Þórunn 18. október 1947 og bjuggu þau fyrstu hjúskaparár sín á Skeggja- götu, því næst Tómasarhaga og síðustu árin á Ægisíðu. Á öllum þessum stöðum var heimili þeirra yndislega fallegt og smekkvísin og myndarskapurinn í fyrirrúmi. Ég kveð mína hjartans góðu vinkonu með söknuði og þakklæti fyrir tryggðina öll árin, sem við áttum saman. Við hjónin vottum eiginmanni, systkinum og öðrum aðstandend- um okkar innilegustu samúð. Guð blessi vinkonu mína. Anna Kr. Linnet Ingiveig Egjólfs■ dóttir - Minning VEGNA mistaka við birtingu þessar- ar minningargreinar í Morgunblað- inu í gær birtir blaðiö greinina hér aftur í heild og eru hlutaðeigandi beðnir velvirðingar á þessum mis- tökum. Fædd 31. júlí 1902 Dáin 12. febrúar 1985 Á morgna, þegar árla upp stá, eins á kvöldin, þá hvílast á, gef ég mitt líf og líka önd, ljúfi Jesú, í þína hönd. (Hallgrímur Pétursson) Árin líða hvert af öðru og fyrr en varir er ævin öll. Við eignumst ástvini og eigum með þeim dýr- mætustu stundir lífs okkar, en skyndilega er þeim svipt burtu og tjaldið dregið fyrir. Eftir er djúp- ur söknuður og löngun til að fá að njóta lengur allra þeirra ljúfu stunda, sem við áttum saman, en við vitum að við getum aðeins not- ið þeirra í minningunni. I fyrsta sinn skynja ég þessar tilfinningar, við lát ömmu minnar, Ingiveigar, hugur minn er fullur trega og saknaðar, en jafnframt þakklætis yfir að fá að minnast hér ástvinar, sem var mér svo kær. Við, bræður mínir og ég, vorum svo heppin að geta verið öllum stundum með ömmu, þar sem við ólumst upp í sama húsi og hún. Ingiveig Eyjólfsdóttir fæddist 31. júlí 1902 í Keflavík. Foreldrar hennar voru Lilja Friðriksdóttir og Eyjólfur Guðlaugsson, báta- smiður, er síðast bjuggu á Kötlu- hóli í Leiru í Gerðahreppi. Amma var næstyngst átta barna þeirra hjóna, en nöfn þeirra eru: Guðmundur, Steinunn Björg, ólafur, Sigurbjörn, en eftirlifandi eiginkona hans er Guðlaug Jóns- dóttir, sem dvelur á Hrafnistu i Hafnarfirði, Guðrún, María Guð- björg og Margrét Rannveig. Eftir lifa tvær systur: Steinunn Björg, er dvelur á Kumbaravogi, Stokks- eyri, og Guðrún, sem dvelur á Sól- vangi í Hafnarfirði. Amma fluttist til Reykjavíkur, þar sem hún kynntist afa mínum, Þórarni Björnssyni póstfulltrúa, og gengu þau í hjónaband árið 1927. Þórarinn fæddist 8. október árið 1900 á Svartagili í Norðurárdal, sonur hjónanna Halldóru Þórð- ardóttur og Björns Guðmundsson- ar, húsasmiðs og organista. Þau hjónin eignuðust þrjú börn, þau Gunnar, Þórarin og Þórdísi. Eru þau öll látin. Afi og amma bjuggu fyrstu hjúskaparár sín á Njálsgötu 2, Reykjavík. Oft var glatt á hjalla á því menningarheimili, þar sem tónlistin var í hávegum höfð. Björn Guðmundsson hafði lært orgelleik og léku öll börn hans á hljóðfæri. Þórarinn afi minn nam fiðluleik og lék m.a. um tíma með Hljómsveit Reykjavíkur og var hann jafnframt einn af tólf stofn- endum Tónlistarfélagsins í Reykjavík. Árið 1938 fluttust Ingiveig og Þórarinn á Karlagötu 11, Reykja- vík og bjuggu þar síðan góðu búi. Þau eignuðust eina dóttur, Eddu, gifta Gunnari Friðjónssyni og eiga þau þrjú börn. Mér auðnaðist ekki að kynnast afa mínum en hann dó árið 1959 langt fyrir aldur fram. Þau hjónin voru ákaflega samrýnd, bæði unnendur fagurra lista og máttu ekki vamm sitt vita í neinu. Ingiveig var tíguleg kona, í með- allagi há, grönn og beinvaxin með fallegt hrokkið hár. Hún bjó yfir mikilli skapfestu og innri ró og aldrei heyrði ég hana hallmæla nokkrum manni. Hún var hógvær í allri framkomu og henni var snyrtimennskan í blóð borin, enda bar heimili hennar ljósan vott um það. Hún var mikil hannyrðakona og ákaflega vinnusöm. Þær stundir sem ég átti með ömmu eru mér dýrmætar. Ég minnist þess er ég lítil stúlka sat í kjöltu hennar og las yfir með henni kvöldbænirnar mínar og það var eins og streymdi frá henni svo mikill friður og hlýja. Hugsun hennar var ætíð bundin því að gleðja aðra. Síðustu þrjú ár ævi sinnar átti amma við vanheilsu að stríða og dvaldist þann tíma á öldrunar- lækningadeild Landspítalans, Há- túni lOb, þriðju hæð, þar sem hún naut frábærrar hjúkrunar og að- hlynningar. Hún var okkur systkinunum allt í senn, elskandi amma, besti vinur og hjálparhella. Ég sendi ömmu- systrum mínum bestu kveðjur. Ömmu minni þakka ég sam- fylgdina á lífsins braut, hvíldin var henni kærkomin. Blessuð sé minning hennar. „Hvort heldur lifí hér eða dey, hjartað mitt við því kvíðir ei, glaður því mína gef ég önd, Guð sannleikans, í þína hönd.“ (Hallgrímur Pétursson) Ingiveig Gunnarsdóttir t Eiginmaður minn, HJORTUR HJARTARSON kaupmaður, Espigerði 4, verður jarösunginn frá Dómkirkjunni föstudaginn 22. febrúar kl. 10.30. Ásta L. Björnsdóttir. t Þökkum innilega auðsýnda samúö og vinarhug við andlát og útför móður okkar, tengdamóöur og ömmir, SVANHILDAR ÁRNADÓTTUR. Vilborg Guöbergsdóttir, Svava Guöbergsdóttir, Jóhanna Guðbergsdóttir, Davlð Guöbergsson, Jóna Guöbergsdóttir, Kristín Guöbergsdóttir, tengdabörn og barnabörn. t Okkar innilgustu þakkir fyrir auösýnda samúð og vinarhug viö andlát og jaröarför móöur minnar, tengdamóöur og ömmu, KRISTÍNAR HELGADÓTTUR, Hjaröahaga 42. Helgi Loftson, Frlöa Loftson, Anna Kristln Helgadóttir. t Viö þökkum innilega öllum þeim, sem sýndu okkur hlýhug og hjálpsemi viö andlát og jaröarför móöur okkar, tengdamóöur, ömmu, langömmu og langalangömmu, ÞÓRUNNAR EINARSDÓTTUR frá Stóru-Vatnsleysu. Sérstakar þakkir færum viö starfsfólki á Sjúkrahúsi Keflavikur fyrir frábæra umönnun. Börn og tengdabörn. t Þökkum af öllu hjarta þeim fjölmörgu sem veittu okkur styrk, samúö og ómetanlega hjálp viö andlát og útför eiginmanns mins, föður okkar, tengdafööur og afa, GUÐJÓNSPÉTURSSONAR frá Kirkjubæ, Vestmannaeyjum, Heimahaga 3, Seifossi. Einnig þökkum viö allar þær mörgu samúöarkveöjur sem okkur hafa borist. Dagrföur Finnsdóttir, Pátur Guöjónsson, Sveinbjörn Guöjónsson, Hallveig Guöjónsdóttir, tengdabörn og barnabörn. t Innilegar þakkir fyrir auösýnda samúö og vinarhug viö andlát og útför fööur okkar, tengdaföður, afa og langafa, SIGURÐAR ÁSMUNDSSONAR, (áöur Melgeröi 3, Rvík.) Guödís Siguröardóttir, Ása Siguröardóttir, Sveinn Klemensson, Ragna Siguröardóttir, Baldur Sveinsson, Halldór Sigurösson, Guörún Pálsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. t Innilegar þakkir færum viö öllum þeim sem sýndu okkur samúö og hlýhug viö andlát og útför ÚLFARS PÁLS MÖRK. Eirika Inga Þórðardóttir, Hans Samúelsson og börn. t Þökkum af alhug samúð og vinsemd við andlát og útför móöur okkar, ÓLAFAR BALDVINSDÓTTUR, Kársnesbraut 63, Kópavogi, og þeim er vottuöu minningu hennar viröingu. Sérstakar þakkir til starfsfólks á hjúkrunarheimilinu Sunnuhliö. Adam Þorgeirsson, Hrafnhildur Þorgeirsdóttir, Hjördfs Þorgeirsdóttir, Arnar Þorgeirsson.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.