Morgunblaðið - 21.02.1985, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 21.02.1985, Blaðsíða 18
18 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 21. FEBRÚAR 1985 Innileyt þakklæti sendi ég til allra þeirra sem ylöddu mig meö heimsóknum, gjöfum, skeytum og símhringingum á 70 ára afmæli mínu 20. janúar. GuÖ blessi ykkur öll. Hanna Joensen, Engjahrauni 31, Þorlákshöfn. 1 15 80 AJIir með Steindóri! jejjqipuas jjgjæis jbhv Rauöi kross Islands efnir til námskeiðs fyrir fólk sem hefur hug á að taka að sér hjálparstörf erlendis á vegum félags- ins. Námskeiðið verður haldið í Munaðarnesi dagana 8.—14. apríl nk. Umsækjendur þurfa að uppfylla skilyrði sem sett eru af Alþjóða Rauða krossinum og RKÍ og eru m.a.: 1. Lágmarksaldur 25 ár. 2. Góð menntun. 3. Góð enskukunnátta. 4. Gott heilsufar. 5. Reglusemi. 6. Nauðsynlegt er að geta farið til starfa með stuttum fyrirvara ef til kemur. Leiðbeinendur á námskeiðinu verða frá Alþjóða- sambandi Rauða krossfélaga, Alþjóðaráði Rauða krossins og Rauða krossi íslands. Kennsla fer fram á ensku. Umsóknareyðublöð fást á skrifstofu RKÍ að Nóa- túni 21. Þar eru einnig gefnar nánari upplýsingar, sími 26722. Námskeiöið er ókeypis en fæðis- og húsnæöis- kostnaður er kr. 3.000 sem þátttakendur greiöa sjálfir. Umsóknir ber að skila fyrir 8. mars nk. MÍR tilkynnir: m> Opiö hús — feröa- kynning Opiö hús verður í félagsheimili MÍR aö Vatnsstíg 10 laugardaginn 23. febrúar nk. kl. 14—16. Þar veröur skýrt frá Sovéskum dögum í lok apríl, byrjun maí í vor og efnt til feröakynningar. Kynnt veröur sérstaklega hópferö MÍR til Sovétríkjanna næsta sumar, en fyrirhuguö er 26 daga ferö MÍR-félaga þangaö í júlí og ágúst. Verður m.a. farið til Austur-Síberíu aö Baikalvatni og allt austur til borgarinnar Khabarovsk, heimsóttar fornar borgir í Miö-Asíu (m.a. Samarkand) og dvalist á sólarströnd viö Svartahaf, auk nokkurra daga dvalar í Moskvu. Aðgangur aö opnu húsi og feröakynningu MÍR er öllum heimill. MÍR Cfcg* baðíngsduft. (Rvfk 2 191 Y « M \ verzluninni LIVERPOOL, Reykjavik. * Myndin er af korti er verzlun Th. Thorsteinssonar gaf út og miðlaði viðskiptamönnum sínum. Kortið er fengið að láni úr safni Benedikts S. Þórarinssonar kaupmanns. Eins og fram kemur, er það frá árinu 1914 og er reikningur til Benedikts. Sá er ritar undir reikninginn er Magnús Tómasson. Hann tók upp Kjaransnafnið skömmu síðar. Fróðlegt er að bera saman vöruverð frá þ?ssu ári og það sem nú gildir. Á góðum degi í Grófinni eftir Pétur Pétursson Á dögunum var greint frá því að gamalt hús í miðbæ Reykjavíkur væri senn á förum af fornum grunni og ætti að rýma fyrir há- timbraðri nútímahöll. Á mynd, sem birtist með fréttinni, varð ljóst að hér er um að ræða Liv- erpool við Vesturgötu. Fátt er nú orðið í Reykjavík sem minnir á umsvif þau og atvinnurekstur er jafnan tengdust verslunarfyrir- tæki Th. Thorsteinssonar, eiganda Liverpool. Leikfangaverslunin á Laugavegi geymir þó enn nafnið á skilti sínu. Við þáttaskil er verða ber Versl- unarmannafélagi Reykjavíkur að minnast fyrsta formanns síns, Th. Thorsteinssonar, og gangast fyrir því að eigi fari forgörðum neitt jjað er tengist sögu hússins og frumherja margra er þar störf- uðu. Th. Thorsteinsson var einn hinn umsvifamesti í flokki atvinnurek- enda hér í bæ á seinni hluta 19. aldar og allt fram á þriðja áratug hinnar tuttugustu. Auk verslunar- og útgerðarfyrirtækja er hann rak af stórhug og kappi lét hann sig varða félgsmál káupsýslu- og verslunarmanna. Hann var kjör- inn fyrsti formaður Verslunar- mannafélags Reykjavíkur er það var stofnað í janúarmánuði 1891. Þá má segja að Th.Th. hafi í versl- un sinni þjálfað og komið til þroska fjölda ungra verslunar- manna, er áttu eftir að setja svip á bæinn, hefjast til áhrifa í kaup- sýslustétt og veita frægum versl- unum forstöðu. Má nefna Harald Árnason, Egil Jacobsen, Magnús Kjaran og Sigurjón Pétursson úr flokki kaupmanna. Þá má ei gleyma afgreiðslustúlkum er kunnar voru að kurteisi og lipurð, og stunduðu störf sín af kost- gæfni. Meðal þeirra voru Guðrún Arnadóttir, sem margur man síð- ar frá Haraldarbúð, og einnig Guðrún Hafliðadóttir, er lengi starfaði í Vöruhúsinu. í Liverpool var verslað með „allt milli himins og jarðar" má segja. Margur Reykvíkingur minnist enn í dag lipurðar starfsfólksins og snyrtimennsku. Það var t.d. til- NÝ SÖLUSKRIFSIOFA FYRIR SIGLUHARÐARHCS Höfum opnað nýja söluskriístoíu fyrir Sigluíjarðarhús 1 Hamraborg 12, Kópavogi. Símanúmerið er 641177. Jaíníramt mun Verkírœðiþjónusta Guðmundar Óskarssonar, Laugavegi 18, annast sölu Sigluíjarðarhúsa til 1. maí nk. HÚSEININGAR HF SIGLUFTRÐI
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.