Morgunblaðið - 21.02.1985, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 21.02.1985, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 21. FEBRÚAR 1985 35 Stórstúka íslands: Krefst kappræðna í sjónvarpssal STORSTÚKA íslands hefur sent formanni útvarpsráðs eftirfarandi bréf: Saltskip til Stykkishólms ^ StykkLshólmi, 15. febrúar. f MORGUN kom til Stykkishólms flutningaskipið Suðurland og var það með salt til fyrirtækjanna hér. Fiskvinnslustöðin Þórsnes fékk 25 lestir og Sæborg 150 lestir. Netaveiði er hér enn ekki hafin, enda ekki enn búið að afgreiða kvótakerfið til bátanna hér og er sagt að það sé alltaf á leiðinni. Þá er líka annað og það er að menn bíða hér eftir því að lausn fáist í sjómannadeiluna. Árni „Þar sem ríkisfjölmiðlarnir út- varp og sjónvarp virðast hafa tekið upp þá stefnu að styðja nær ein- göngu málstað áfengisauð- magnsins, krefst Stórstúka ís- lands kappræðna í sjónvarpssal um áfengisbölið og bjórinn við flutningsmenn bjórfrumvarpsins á alþingi. Stjórnandi verði Ómar Ragn- arsson. Þátttakendur verði tveir frá hvorum aðila. Frá Stórstúku íslands Hilmar Jónsson og sr. Björn Jónsson, til vara Kristinn Vilhjálmsson. Frá bjórfrum- varpsmönnum Jón Baldvin Hannibalsson og Jón Magnús- son, til vara Ellert B. Schram. Við óskum eftir að umræðurn- ar fari fram sem fyrst. (Fréttatilkynning.) Sex manna hópur hjúkrunarfólks fer til Eþíópíu A FÖSTUDAG fer sex manna hópur hjúkrunarfólks áleiðis til Eþíópíu til starfa á vegum Hjálp- arstofnunar kirkjunnar. í hópn- um er 1 læknir, 4 hjúkrunar- fræðingar og 1 hjálparsveitar- maður. Fólkið fer til starfa í fæðugjafarstöðvum í norður- hluta Eþíópíu, þar sem það mun vinna að skipulagningu og við almenn lækningastörf. Hópurinn, sem fer utan á föstudag, fær til afnota bifreið, sem Hjálparstofnunin fékk að gjöf, og send var héðan til lands- ins. Með hópnum fer Árni Gunn- arsson, sem mun halda áfram að skipuleggja hjálparstarfið og þau samvinnuverkefni, sem nú eru i undirbúningi og flokkast undir þróunarhjálp. í hópnum sem fer á föstudag eru eftirtaldir: Þórhallur B. Ólafsson, læknir, Bóthildur Sveinsdóttir, hjúkrunarfræðing- ur, Jóhanna Guðlaugsdóttir, hjúkrunarfræðingur, Hildur Nilsen, hjúkrunarfræðingur og ljósmóðir, Ragnhildur Rós Ind- riðadóttir, hjúkrunarfræðingur og Hreinn Skagfjörð Pálsson, hj álparsveitarmaður. ÁSDÍS Sigurþórsdóttir opnar í dag sýningu á verkum sínum í Gallerf Borg í Reykjavík. Ásdís stundadi nám við Mynd- lista- og handíöaskóla íslands 1974—1976 og 1978—1980, er hún brautskráðist úr grafíkdeild skól- ans. Hún hefur tekið þátt í samsýn- ingum, m.a. með félögum sínum í íslenskri grafík, en þetta er önnur einkasýning hennar. Sú fyrsta var árið 1982 í Gallerí Langbrók. Blaðamaður Morgunblaðsins ræddi við Ásdísi, er hún var að hengja myndir sínar upp fyrir sýninguna. Hún var fyrst spurð, hvort hér væru eingöngu um nýj- ar myndir að ræða. „Já, þessar myndir eru allar Asdís Sigurþórsdóttir. Morgunbladið/Bjarni „Hef alls ekki sagt skilið við grafíkina“ málaðar 1984 og 1985. Þetta eru olíumálverk sem máluð eru á þrykktan grunn, en auk þess eru hér litlar myndir. Þær vann ég á þann hátt að ég notaði sáldþrykk undir. Á það málaði ég með olíu- litum og límdi á það bréf, efnis- búta, tölur og ýmislegt fleira. Mér fannst mjög skemmtilegt að vinna þessar myndir." Þú útskrifaðist úr grafíkdeild Myndlista- og handíðaskólans, en hér eru einungis olíumálverk. Hefur þú sagt skilið við grafík- ina?. „Nei, en ég var orðin svolítið þrúguð af henni. Hún krefst mik- illar nákvæmni og þolinmæði og auk þess er maður mjög lengi að vinna hverja mynd. Mér fannst ég vera orðin dálítið bundin. Það — segir Asdís Sigur- þórsdóttir, sem opnar í dag sýningu á verkum sínum í Gallerí Borg er mér því mikil hvíld að snúa mér að málverkinu í svolítinn tíma. Það veitir mér visst frelsi. En ég hef alls ekki sagt skilið við grafíkina, því mér finnst hún alltaf mjög áhugaverð. Hér nota ég t.d. þrykktan grunn í myndirn- ar og grafíkin verður alltaf í upp- áhaldi hjá mér. Mér finnst einnig að nú sé ég fyrst að ná tökum á þeirri tækni. Þetta er í fyrsta skipti sem ég sýni eingöngu mál- aðar myndir. Áður hef ég haft þær með á sýningum." Ásdís býr á Hólmavík. Hún var spurð að því hvernig það væri fyrir listamann að búa fjarri höf- uðborginni. „Mér finnst það mjög gott. Ég kem oft suður og get því fylgst eitthvað með. En á vissan hátt einangrast maður þarna. Það er gott að því leyti að maður heldur frekar sínum séreinkennum. Annars held ég að það sé hollt að verða fyrir einhverjum utanað- komandi áhrifum, svo framarlega sem manni tekst að halda þessum einkennum sínum." .Sýning Ásdísar stendur til 5. mars nk. og er opin frá kl. 12—18 virka daga, en kl. 14—18 um helg- Fossvogs- og Réttarholtsskóli: Fræðslufundur foreldra- og kennarafélaga Anna Guðmundsdóttir Ægir Jónsson O' Rangt farið með nöfn INNLENT ÞAU mistök áttu sér stað í blaðinu í gær að farið var rangt með nöfn sem komu með fyrirspurnir á hverfafundi borgarstjóra sem haldinn var í Átthagasal Hótel sögu síðastliöinn sunnudag. Hér birtast myndirnar af þeim aftur og nöfn þeirra eru Ánna Guðmundsdóttir og Ægir Jónsson, en ekki Laufey Bjarnadóttir og Sigurður Steinþórsson, eins og sagði í myndatexta með frásögn af fundinum. Biðst Morgunblaðið velvirð- ingar á þessum mistökum. SAMEIGINLEGUR fræðslufundur foreldra- og kennarafélaga í Foss- vogs- og Réttarholtsskóla verður haldinn 21. febrúar kl 20:30 í Foss- vogsskóla. Gestir fundarins verða Salome Þorkelsdóttir, alþingismaður, og Hrólfur Kjartansson, deildar- stjóri. Þau munu ræða um sam- felldan skóladag, tengsl heimila og skóla auk starfs foreldra- og kennarafélaga. Salome Þorkelsdóttir er for- maður vinnuhóps, sem mennta- málaráðherra skipaði á síðasta ári um þessi mál en Hrólfur Kjart- ansson á einnig sæti í hópnum. Vinnuhópurinn skilaði nýlega áfangaskýrslu með margvíslegum tillögum til breytinga og úrbóta. Á fundinum í Fossvogsskóla verður ítarlega fjallað um þessi mál og hvernig unnt sé að hrinda í fram- kvæmd þeim tillögum, sem hæfa aðstæðum i þessum skólahverfum. (tr frétutilkjrnninga) Rauði kross íslands Hjúkrunarfræðingur farinn til Thailands RAUÐI kross íslands hefur sent á sínum vegum Kristínu Ingólfsdóttur, hjúkrunarfræðing, til sex mánaða dvalar í Thailandi. Hún mun starfa í sjúkrahúsi Alþjóðaráðs Rauöa kross- ins í Khao-I-Dang, sem er skammt frá landamærum Thailands og Kampútseu. Þar er nú mikil þörf hjúkrunarfólks og annarra hjálpar- liða vegna stórsóknar Víctnama að landamærunum. Kristín hefur áður starfað á þessum slóðum á vegum Rauða krossins. Allmargir íslenskir hjúkrunarfræðingar hafa unnið þar undanfarin ár og verður þetta í fimmtánda skiptið, sem íslensk- ur hjúkrunarfræðingur kemur til starfa í Khao-I-Dang á vegum RKÍ. Árið 1981 dvaldi Kristín um sex mánaða skeið við líknarstörf í Kenya á vegum RKl. Þess má geta að auk mikillar reynslu af störfum erlendis hefur Kristín sótt nám- skeið RKÍ fyrir sendifulltrúa, bæði sem nemandi og leiðbein- andi. (FrétUiilkynning) Kristín Ingólfsdóttir, hjúkrunar- fræðingur. Charlie Chaplin heiðraður á kvikmyndadögum Menningarstofnun Banda- ríkjanna vekur athygli á kvik- myndadögum, sem haldnir verða í húsnæði stofnunarinnar á Neshaga 16, á næstu dögum. Stofnunin hyggst með þessum hætti heiðra Charlie Chaplin, einn af merkustu mönnum kvikmynda- listarinnar. Fimm af helstu kvikmyndum hans verða sýndar á þremur kvöldum. Hrafn Gunn- laugsson, kvikmyndaleikstjóri, mun kynna Chaplin og verk hans við upphaf hverrar sýningar. Fyrsta sýningin verður fimmtu- dagskvöldið 21. febrúar. Þá verða sýndar tvær myndir „The Kid“ gerð árið 1921 og „The Gold Rush“ (Gullæðið, gerð árið 1925). Önnur sýning verður 26. febrúar, þá verða sýndar „The Circus“ gerð árið 1928 og „City Lights" (Borg- arljós) gerð árið 1931. Kvik- myndadögunum lýkur 28. febrúar með sýningu á „Limelight" gerð 1952. Sýningarnar hefjast öll kvöld kl. 20.30 og eru allir, sem áhuga hafa velkomnir. (í r fréttatilkynningu.)
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.