Morgunblaðið - 21.02.1985, Qupperneq 17

Morgunblaðið - 21.02.1985, Qupperneq 17
17 Þessi upptalning er auðvitað á engan hátt tæmandi en sýnir á ótvíræðan hátt hversu tengsl fast- eignasölu og fasteignasala eiga að vera náin. Hvort fasteignasalinn hefur að formi til starfstöð á öðrum stað innan lögsagnarumdæmis en fast- eignasalan er starfrækt skiptir auðvitað engu meginmáli. Það sem máli skiptir eru tengsl fasteigna- salans og þess fyrirtækis sem hann veitir eða á að veita forstöðu. Ég er þeirrar skoðunar að heim- ilt sé að reka fasteignasölu í ýmsu formi. Starfsemin sem slík geti t.d. verið í formi sameignarfélags eða hlutafélags. Ytra form rekstr- arins skipti ekki máli í því sam- bandi sem hér um ræðir. Það er jafnframt ljóst að fast- eignasala er heimilt að ráða sér aðstoðarmenn og fá þeim í hendur ýmis störf við fasteignasölu, t.d. söfnun tilboða, enda sé skilyrðinu um forstöðu fasteignasalans full- naegt. Ég er hins vegar þeirrar skoð- unar svo dæmi sé tekið að sé fast- eignasala rekin með þeim hætti að fasteignasalinn hafi starfstöð á öðrum stað innan lögsagnarum- dæmis en fasteignasalan, fast- eignasalan sé rekin sem einka- firma annars en fasteignasalans eða af félagi sem að öllu eða mestu leyti er í eigu annars en fasteigna- salans, sé fasteignasalinn ekki í fyrirsvari fyrir fasteignasölunni skv. framangreindu en þiggi hins vegar laun, sem launþegi eða sjálfstæður verktaki fyrir að ljá fasteignasölunni afnot af nafni sínu. sé fasteignasalan ólögmæt í skilningi 1. 47/1938 og slíkur rekstur jafnframt til þess fallinn að villa um fyrir viðskiptamönn- MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 21. FEBRÚAR 1985 um fasteignasölunnar í skilningi 1. 56/1978. Um mörkin uppávið ber að var- ast alhæfingar en þau sjónarmið sem leggja ber til grundvallar við matið eru að mínu áliti tiltölulega skýr og hvorki langsótt né óhald- bær svo orðalag Hafþórs Inga Jónssonar sé notaö. Þau sjónarmið leiða til þeirrar niðurstöðu álits- gerðarinnar sem að framan er rakin. Ég vona að menn skilji að í stuttri blaðagrein er engan veginn mögulegt að gera margþættu lögfræðilegu efni nægilega grein- argóð skil og taki viljann fyrir verkið. Ummæli Hafþórs Inga Jónssonar voru hins vegar með þeim hætti að ómögulegt var að láta þeim ósvarað. Það er löngu tímabært að setja hér á landi ný lög um fasteigna- sölu. Núgildandi lög eru í grund- vallaratriðum frá 1938 og ætti hverjum manni að vera ljóst að við svo búið má ekki lengur standa enda eru lögin í veigamiklum at- riðum ófullnægjandi, t.d. að því er ýmsa þætti í störfum og starfs- háttum fasteignasala varðar. Ég veit að þrátt fyrir ólíkar skoðanir okkar Hafþórs Inga Jónssonar á túlkun þeirra ákvæða í 1. 47/1938 sem hér hafa verið gerð að umtalsefni erum við sam- mála um nauðsyn gagngerðrar endurskoðunar á lagaákvæðum um fasteignasölu og reyndar hef ég ástæðu til að ætla að við séum í aðalatriðum sammála um hvað betur megi fara. Virðingarfyllst, Þórður S. Gunnarsson er hæsta- réttarlögmaður í Reykjarík. Sigurgeir í Eyjum tók myndina af Chevrolet árgerð 1929 þegar slökkviliðsmenn í Eyjum gangsettu gripinn fyrir nokkrum dögum í fyrsta sinn í 13 ár. Við stýrið eru Óli Auðberg Valtýsson 2. varaslökkviliðsstjóri, þá Elías Baldvinsson slökkviliðsstjóri og Ragnar Baldvinsson 1. varaslökkviliðsstjóri. 55 ára slökkviliðsbfll gangfær í Eyjum Bæjarráð Vestmannaeyja hef- ur samþykkt að láta gera kostn- aðaráætlun fyrir viðgerð á elzta slökkvibíl Eyjanna, Chevrolet árgerð 1929 sem bæjarsjóður Vestmannaeyja flutti inn á sín- um tíma og kostaði um 5 þús. kr. en tímakaup verkamanna var þá um 1 kr. Talið er að Erlendur Halldórsson í Hafnarfirði hafi smíðað yfir bílinn, en nú er byrj- að að reyna að ná saman hlutum sem vantar á þennan 55 ára gamla bíl: Fyrir stuttu gang- settu slökkviliðsmenn í Eyjum ’29-árgerðina og fór hann í gang eins og ekkert væri. Þór Magn- ússon þjóðminjavörður hefur lagt mikið kapp á að bíllinn verði varðveittur og hann gerður upp.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.