Morgunblaðið - 21.02.1985, Síða 22

Morgunblaðið - 21.02.1985, Síða 22
22 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 21. FEBRÚAR 1985 Islenzkt skáld, sem orkti á þýzku Dr. Melittu Urbancic minnst Eftir dr. Fritz Naschitz, rœðismann í Israel í TÍMARITINU „Island Berichte“ eða Fréttir frá íslandi, sem er gefið út af íslendingafélaginu í Hamborg í samvinnu við Germaníu í Rcykja- vík, birtist fyrir nokkru grein um dr. Melittu Urbancic og þrjú ljóð hennar; eftir dr. Fritz Naschitz, raeðismann íslands í ísrael. Greinin fer hér á eftir. Ljóðin þýddi úr þýzku Helgi Hálfdanarson. „Fyrir nokkru lést í Reykjavík dr. Melitta Urbanic á 82. aldurs- ári, óvenjuleg kona, listhneigð, fjölgáfuð, fjölmenntuð og hrif- næm í lund. Hún var af hinni þekktu þýzk-bæheimsku Mauthn- er-ætt stóriðjuhölda, stundaði nám og lauk doktorsprófi frá Háskólanum í Heidelberg. Hún lék sem gestaleikkona við leik- hús í fremstu röð í Þýzkalandi og orti ljóð, sem fjölluðu flest um tilveruna á þunglyndislegan, ljóðrænan hátt í meitluðu máli og í hnitmiðuðu formi. Hún gift- ist dr. Victor Urbanic, tónlistar- fræðingi, en þau yfirgáfu Mið- Evrópulönd, augliti til auglitis við við kynþáttaofsóknastefnu nazismans og settust að á hinu lýðræðissinnaða og fjarlæga ís- landi, sem þau tengdust böndum, sem entust þeim til æviloka. Skömmu eftir komuna til ís- lands var Viktori falin tónlistar- stjórn Sinfóníuhljómsveitarinn- ar í Reykjavík, og hélt hann um tónsprotann á þeim vettvangi með markverðum árangri í mörg Eylendan Upp af glóð og ís yzt við Ránar band heimi horfið rís hátt hið nýja land. Handan fjalla fljótt fölnar dagsins rós; borin blakkri nótt braga norðurljós. Sú er gæfa sönn sem í vetrar byl finnur feigðar hrönn falla á klettaþil. ár. Melitta fékkst við tungu- málakennslu — ensku, frönsku og þýzku — og helgaði krafta sína uppeldi fjögurra barna þeirra, auk þess sem hún tók þátt í menningarlífinu í hinu nýja heimalandi þeirra sögu- eynni dulúðugu. Við fjölskrúð- uga, skapandi iðju sína bætti hún að auki leiðsögu ferða- manna svo og býflugnarækt, sem fram til þessa var óþekkt á ís- landi, án þess þó að vanrækja fagurfrægileg hugðarefni sín i staðinn. Annasamir lífshættir og aðrar orsakir leiddu til þess, að heilsu Melittu fór um síðir hnignandi, unz hún lézt eftir langvarandi vanheilsu. Ég vil ljúka þessum eftirmæl- um með nokkrum sýnishornum úr verkum hinnar látnu róman- tísku skáldkonu, sem orti svo hugljúft um ísland, þannig að líkja má við ljósbrot gimsteins, sem endurkastar ljósgeisla, magnaðan innri birtu mikillar sálar, sem þannig fær tjáningu. Yzt í einsemd rís yfir Ránar band fólgið funa og ís fyrirheitsins land. Börn íslands Þau kenna sig við kjörnöfn feðra sinna og kallast þeirra dóttir eða son, í trúu hjarta hollan metnað finna og helga störf sín kynslóðanna von. Og einlæg karlmanns blíða er barnsins lyndi; þótt borin sé á herðum erlend flík, er heimalandið örlög þess og yndi, og engin veröld finnst svo gæðarík. Hver athöfn þess rann upp af föður starfi, og allt sem gæfan hverfir þeim í vil, öll synd og blessun bjó í fengnum arfi; ný braut að marki stefnir upphafs til. Hver bautasteinn er endir allra ferða; í eining renna nöfn, sem halda vörð um þjóðar sál, og allir aðeins verða börn íslands, helguð sinni fósturjörð. Hinzta kveðja til vina Feigðarvöldum féllist kraftur fyrir trú sem kallað hefði mig til lífs og ykkar aftur; engin himinsæld mig tefði. Varðeldur ungskáta undir stjórn Ólafs Sigurðssonar varðeldsstjóra. Skátafélagið Hraunbúar 60 ára SKÁTAFÉLAGIÐ Hraunbúar held- ur upp á 60 ára afmæli sitt um þess- ar mundir, en það var stofnað 22. febrúar 1925 og hét þá SkáUfélag Hafnarfjarðar. Félagið mun minnast þessara tímamóta með margvíslegum hætti. Þann 22. febrúar munu skátar fara í blysför að Víðistaða- kirkju, sem er í byggingu ekki langt frá skátaheimilinu Hraun- byrgi. Sóknarpresturinn mun ann- ast helgistund í fokheldri kirkj- unni upplýstri af kertum og blys- um skátanna. Síðan verður haldin kvöldvaka í Víðistaðaskóla, sem lýkur með flugeldasýningu. Skátaball, sem fjallarekkaflokk- urinn „Trail 11“ sér um, verður laugardagskvöldið 23. febrúar, en hátiðarhöldunum lýkur sunnudag- inn 24. febrúar með síðdegiskaffi- drykkju í félagsmiðstöð bæjarins. Þangað verður vinum og velunn- urum boðið ásamt fyrirmönnum bæjarfélagsins og nærliggjandi sveitarfélaga auk þess sem allir skátar, eldri og yngri, eru vel- komnir. Vormót skátafélagsins verður að venju haldið í Krísuvík og að þessu sinni verður það dagana 24.-27. maí. Þetta verður 45. vormótið og verður þess minnst með margra daga hátið. Saga Skátafélags Hafnarfjarð- ar, seinna Skátafélagsins Hraunbúa, er lítillega rakin i „Sögu Hafnarfjarðar” eftir Ásgeir Guðmundsson. Þar segir frá stofnun félagsins og hvenær nafni þess var breytt. Einnig kemur fram að félagið lauk við að byggja útileguskála við Kleifarvatn 1946 og stendur hann enn. Félagið eignaðist sitt fyrsta Hraunbyrgi árið 1947. Hjálparsveit skáta í Hafnarfirði er sérdeild innan skátafélagsins, rekin með sérfjárhag. Er þetta elsta hjálparsveit skáta starfandi í landinu. Félagsskapur eldri skáta, Skt. Georgs gildi, var stofnaður 1963, en það er félagsskapur eldri skáta og velunnara hreyfingarinnar. Á þessum 60 ára ferli hafa 20 manns setið í embætti félagsfor- ingja Hraunbúa. Núverandi fé- lagsforingi er Sigurður Baldvins- son. Eiríkur Jóhannesson var lengi félagsforingi eða í 9 ár sam- (í.'r rréiutilkynningu.) Wim Wenders snýr aftur Kvíkmyndir t Árni Þórarinsson París, Texas Háskólabíó: ★ ★ ★ ★ Frönsk-þýsk. Árgerð 1984. Handrit: Sam Sheppard í úrvinnslu L.M. Kit Carson. Leikstjóri: Wim Wenders. Aðalhlutverk: Harry Dean Stanton, Dean Stockwell, Hunter Carson, Nastassia Kinski, Aurore Clément. „Hvers vegna í ósköpunum ertu með ljósmynd á þér af auðri lóð í París, Texas?“ spyr Walt (Dean Stockwell) Travis (Harry Dean Stanton) eldri bróður sinn. „Ég keypti hana,“ svarar Trav- is. „Keyptirðu í alvöru þessa ljósmynd af auðri lóð?“ „Ég keypti lóðina." Á slíkum lágum og lúmsum samtalsnótum er ofinn sá fallegi filmuvefnaður sem heitir Parls, Texas; hann er ofinn úr samtöl- unum að hætti leikritaskáldsins Sam Sheppard sem mjólkar hversdagsleikann með svo spenntu afli að hann nálgast súrrealisma ekki síður en real- isma; hann er ofinn úr þeim tæra hlédræga stíl sem Wim Wenders leikstjóri laðar fram hjá fyrsta flokks leikhópi sínum; hann er ofinn úr þeim ágenga lofsöng til amerísks umhverfis sem Robby Múller skráir eins og myndljóð á tökuvél sína; hann er ofinn úr því angurværa plokki sem Ry Cooder veitir úr gítarnum sínum inn á hljóðrásina. Þannig ríma þættir myndarinnar saman og yrkja ein- hverja áhrifamestu, ánægju- legustu og skemmtilegustu kvikmynd sem hingað hefur bor- ist svo mánuðum skiptir. Það var sannarlega kominn tími til að Wim Wenders kæmi undir sig fótunum í Bandaríkjun- um. Þessi efnilegasti leikstjóri Þjóðverja lenti í óvæntum og löngum þrengingum þegar hann hugðist vinna að list sinni innan þeirrar kvikmyndamenningar im J Faðir og sonur ná saman á ný — Harry Dean Stanton og Hunter Carson sýna fallegan samleik í París, Texas. tilbrigði við einkaspæjarahefðina í farteskinu. Hammett þurfum við að fá að sjá hér á tjaldi en ekki bara á myndbandi. Með Par- ís, Texas hefur Wim Wenders aft- ur náð fullum tökum á list sinni, og megi það verða varanlegt. Þennan nýja óð sinn til Amer- íku setur Wenders fram í gam- alkunnu formi „road movie“, þjóðvegamyndar, þar sem sögu- hetjur eru á ófyrirsjáanlegum ferðalögum um Hraðbrautir Lífs- ins en eru í rauninni alltaf á leið- inni heim; þær eru að leita að uppruna sinum. Aðalpersónan i Paris, Texas, hinn rótlausi flæk- ingur Travis er í einkar eftir- minnilegum upphafskafla mynd- arinnar vafrandi um víðfeðma eyðimörk í Texas, að því er virðist á leiðinni eitthvað út í buskann, bara eitthvað út í bláinn. Hann er í rykugum tvíhnepptum jakkaföt- um með snyrtilega hnýtt bindi en af augum hans má ráða að hann er að fjara út i flestum skilningi. Hann hnigur niður i litlu hjól- hýsaþorpi í eyðimörkinni. Hann mælir ekki orð frá munni fyrr en eftir langan akstur áleiðis heim Travis á (lótta undan og I leit að sjálfum sér. sem hann hefur dáð og tekið mið af alla tíð, — fyrst i „Lísu í borg- unum“ sem hann gerði í heima- landi sínu, Vestur-Þýskalandi, „Ameríska vininum" sem hann gerði með aðra löppina vestra og svo „Hammett“ sem hann gerði með báða fætur innan veldis Francis Coppola og slapp þaðan kalinn á hjarta en með hnýsilegt

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.