Morgunblaðið - 22.02.1985, Side 3
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 22. FEBRÚAR 1985
3
Afmælismót Skáksambandsins:
Larsen óstödvandi
Þrjú alþjóðleg skákmót hér á næstunni
„Ég er mjög ánægöur með tafl-
mennsku mína hér í Reykjavík.
Vissulega átti ég von á að sigra í
mótinu, en ég bjóst ekki við svona
öruggri forustu," sagði Bent Lar-
sen eftir sigur sinn gegn sovéska
stórmeistaranum Arthur Jusupov í
8. umferð afmælismóts Skáksam-
bands íslands. „Ég náði frum-
kvæðinu eftir að Jusupov lék d4,“
sagði Larsen ennfremur. A morgun
verður skák mótsins, þegar Bent
Larsen mætir Boris Spassky við
skákborðið. I>að er Ijóst að áhorf-
endur munu fjölmenna að Hótel
Loftleiðum, eins og þeir raunar
gerðu í gærkvöldi.
En lítum fyrst á úrslit 8. um-
ferðar:
Karl Þorsteins — Van der Wiel
Jóhann Hjartarson — Boris Spassky
Margeir Pétursson — Jón L. Árnason
Bent Larsen — Arthur Jusupov
Helgi Ólafsson — Vlastimil Hort
Curt Hansen — Guðmundur Sigurjóns. bið
Þrjár biðskákir voru tefldar í
gær. Karl og Hort gerðu jafn-
tefli, Jóhann og Hansen skildu
jafnir, svo og Spassky og Jusu-
pov. Margeir Pétursson á góðar
o-i
o-i
biö
1-0
Vi-V,
vinningslíkur gegn Jóni L., en
skák Guðmundar og Hansen er
jafnteflisleg.
I»rjú alþjóðamót á næstunni
Þrjú alþjóðleg skákmót verða
haldin á næstunni á vegum Jó-
hanns Þóris Jónssonar. Hið
fyrsta verður á Húsavík dagana
15.—27. marz, næsta í Borgar-
nesi 23. apríl til 5 maí og þriðja í
Vestmannaeyjum 21. maí til 3.
júní. „Ekki hefur endanlega ver-
ið gengið frá þátttakendum og
verið er að vinna að því. Hugsan-
lega koma skákmenn eins og
Lombardy og Kudrin frá Banda-
ríkjunum, Jansa og Smejkal frá
Tékkóslóvakíu og verið er að
vinna að því að fá sovéska þátt-
takendur," sagði Jóhann Þórir í
samtali við Mbl. í gærkvöldi.
„Með þessu vil ég sýna fram á,
að hægt er að halda alþjóðleg
mót úti á landi ekki síður en í
Reykjavík og jafnframt gefa
ungum skákmönnum okkar kost
á að næla sér í titla — það er
Morgunbladið/Júlíus
Bent Larsen, mætir Boris Spassky í skák umferðarinnar í dag.
mikilsvert," sagði Jóhann enn-
fremur.
Helgi og Jóhann
til Danmerkur
Jóhann Hjartarson og Helgi
ólafsson munu taka þátt i
sterku skákmóti í Danmörku,
sem hefst 2. mars. Mótið verður í
11. styrkleikaflokki og meðal
keppenda verða stórmeist-
ararnir Smyslov og Rasojov frá
Sovétríkjunum, Karlsen frá Sví-
þjóð, Larsen frá Danmörku og
Pinter frá Ungverjalandi.
Að lokum skulum við líta á
stöðuna í afmælismóti Skáksam-
bandsins:
1. Bent Larsen 6%
2. Boris Spassky 5 'k
3. Margeir 4 'k og biðskák
4. Van der Wiel 4 'h.
5. Guðmundur 4 og biðskák
6. Arthur Jusupov 3‘k
7. -8. Helgi og Hort 3'k
9.—lO.Jóhann og Karl 3
11. Jón L. 2'k og biðskák.
12. Hansen 1 'k og biðskák.
Fjórir skákmenn hafa enn
ekki unnið skák á mótinu, þar
ber fyrstan að nefna tékkneska
stórmeistarann Hort, þá Helga
Ólafsson og Jón L. sem hafa ver-
ið þekktir fyrir djarfa tafl-
mennsku, en ekki náð að sýna
sitt rétta andlit á mótinu og loks
heimsmeistara unglinga, Curt
Hansen.
— HH.
Spasskylagði Jóhann
Skák
Bragi Kristjánsson
Hvítt: Jóhann Hjartarson
Svart: Boris Spassky
Katalónsk-byrjun
1. d4 — Rf6, 2. c4 — e6, 3. Rf3 —
d5, 4. g3 — Bg4+, 5. Bd2 — Be7,
6. Bg2 - O—O, 7. 0—0 — Rbd7,
8. Dc2 — c6, 9. b3 — Re4, 10. Bf4
Biskupinn stendur illa á f4, því
svartur vinnur leik í framhald-
inu með g7-g5. Betra hefði verið
að leika 10. Be3 ásamt Rc3 eða
Rd2.
10. — f5
Nú kemur upp lík staða og í
grjótgarðsafbrigði hollenskrar
varnar.
11. Rc3 — g5!
Spassky teflir til sóknar, því
hann verður að vinna ef hann
ætlar að ná Larsen.
12. Be3 — Bf6,
Svartur hefur auga með
e5-reitnum.
13. Hadl — De7, 14. h3
Til greina kom að reyna 14.
Rel ásamt f2-f3.
14. — b6
Svartur verður að koma bisk-
upi sínum á c8 í spilið áður en
hann lætur til skarar skríða.
15. Rxe4
Jóhann finnur enga haldgóða
áætlun, enda er staðan orðin erf-
ið.
15. — dxe4, 16. Rel — Bb7, 17.
Dcl — c5, 18. Rc2 — cxd4, 19.
Bxd4 — Re5!
Ekki er gott að leika 19. — e5
vegna 20. Bc3 með hótuninni R-
b4-d5.
Jóhann varð að reyna að
sprengja upp sterka peðaslöðu
svarts á miðborðinu með 20. f3
o.s.frv.
20. — Dg7, 21. Hd2 — f4, 22. Hfdl
— e3!
Eftir þennan sterka leik er
hvítur varnarlaus.
23. Bxb7 — Dxb7, 24. fxe3 — fxg3,
25. Dd6 — Df7!, 26. Hfl
Ekki 26. Bxe5 — Bxe5, 27.
Dxe5 - Df2+, 28. Khl - Dh2
mát.
26. — Had8, 27. Db4
Hvítur gat reynt að halda
áfram vonlausri baráttu með 27.
Bxe5 — Hxd6, o.s.frv.
27. — Dh5
og Jóhann gafst upp því hann
er með gjörtapaða stöðu eftir 28.
Kg2 — g4, 29. Hhl — Bh4, ásamt
30. — Hf2+ o.s.frv.
Spassky hefur teflt þessa skák
einfalt og sterkt en Jóhann fann
enga góða áætlun og tapaði mót-
spyrnulítið. Þessi skák ætti að
verða Spassky gott veganesti í
spennandi uppgjör hans við Bent
Larsen í 9. umferð í kvöld.
Rivieran er frægasli sumardvalarstadur allra líma. irvalsstaöirnir Juan-les-Pins og
St. Laurent du Var eru smábæir í ekta Rivierustíl meö badströndum, bátahöfnum,
veitingahúsum, listasöfnum og úrvals íbúðahótelum. Örskammt undan eru staðir sem
alla ferðalanga dreymir um að heimsækja s.s. spilavítið í Monaco, pálmaströndin í
Nice, veilingahúsið Colombe d'Or í St. Paul, ilmvatnsborgin Grasse, Grimaldisafnið í
Antibes, filmstjörnuborgin Cannes og Brigitte Bardot í St. Torpez.
Þólt Rivieran sé umvafin stjörnuljóma er hún langtum ódýrari dvalarstaður en ætla
mætti. Þar er t.d. auðvelt aö finna veitingahús með þríréttuðum matseðli fyrir 200
krónur og verðlag í matvörumörkuðum er með ólíkindum hagstætt, En það er líka
hægt að fara með sumarhýruna á einu kvöldi í spilavíti eða í stuttri verslunarferð um
hátískumerkjaverslanir í Cannes.
Nú þegar er uppselt í I. ferðina til Rivierunnar en aðrar brottfarir eru: 14/6, 3/7, 24/7,
14/8, 4/9.
Eerðalilhögun: Beint leiguflug til Marseilles, u.þ.b. 2ja klst, akstur í bílaleigubíl eða
rútu til áfangastaða í Juan-les-Pins og St. Laurent.
Dvalarlími: 2 vikur. Verð frá kr. 30.300.-
Barnaafsláttur: 30—90%, 15 ára tá 50% afslátt í tilefni 15 ára afmælis Úrvals.
Rivieran, — langlum ódýrari en gíeðin segja til um.
FERÐASKRIFSTOFAN ÚRVAL
Ferðaskrifstofan Crval við AusturvöJI, sími (91J-26900.