Morgunblaðið - 22.02.1985, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 22. FKBRUAR 1986
25
Svíþjóð:
Unnt að bjarga lífí
500 kvenna ár hvert
- með almennri og reglubundinni brjostaskoðun
Stokkhólmi, 21. febrúar. Frá frétUritara Mbl.
UNNT væri að bjarga lífi 500
sænskra kvenna á iri hverju, ef allar
konur ættu kost á að gangast undir
reglubundnar brjóstaskoðanir ásamt
meöfylgjandi röntgenmyndatökum.
Þetta kom fram í síðustu viku,
þegar sænska heilbrigðisstofnunin
kynnti niðurstöður umfangsmestu
rannsóknar af þessu tæi, sem
fram hefur farið í veröldinni.
Fram kom, að unnt væri að
lækka dánartíðni af völdum
brjóstakrabbameins hjá konum á
aldrinum 40—69 ára um 30%, ef
skoðanir yrðu almennar og reglu-
bundnar og færu fram ár hvert
eða a.m.k. annað hvert ár. Hjá
konum á aldrinum 50—69 ára yrði
árangurinn enn meiri. Meðal
þeirra gæti dánartalan lækkað um
40%.
Ár hvert deyja um 1.600 konur í
Svíþjóð af völdum brjóstakrabba.
Komið hefur fram sú gagnrýni á
reglubundnar skoðanir með rönt-
genmyndatökum, að þær gætu
haft geislunarhættu í för með sér.
Hefur einn krabbameinssérfræð-
inganna sagt af því tilefni, að
áhættan væri jafnmikil og þegar
ekið væri í bifreið 20 km vega-
lengd.
Bandaríkin:
AIDS-sjúkdómur kost-
ar yfír hálfan milljarð
dollara á þessu ári
Boston, Bandaríkjunum, 21. febrúar. AP.
Sjúkrakostnaður vegna AIDS—sjúklinga mun fara langt yfir hálfan
milljarð dollara (um 21 milljarð ísl. króna) á þessu ári, og verður
ríkissjóður að hlaupa undir bagga og standa undir kostnaðinum, að því
er segir í skýrslu, sem vísindamenn sendu frá sér í dag.
Telja þeir, að a.m.k. 400.000
manns í Bandaríkjunum einum
hafi nú þegar smitast af AIDS-
veirunni, en sjúkdómurinn er svo
nýr, að ekki er vitað hversu hátt
hlutfall þeirra muni sýkjast.
Nýlegar rannsóknir sýna, að
smitið breiðist hratt út meðal
kynvillinga í bandarískum borg-
um öðrum en New York og San
Francisco, þar sem sjúkdómsins
varð fyrst vart.
Fram kemur í skýrslu vísinda-
mannanna, sem birtist í tímarit-
inu The New England Journal of
Medicine, að AIDS-sjúkdómurinn
hafi greinst hjá um 8.000 manns
frá 1981 og sérfræðingar spái því,
að í það minnsta jafnmargir finn-
ist með þennan sjúkdóm á næsta
ári einu saman.
Bent er á, að sjúkrahúskostnað-
ur vegna AIDS-sjúklinga sé að
meðaltali 42.000 dollarar
(1.764.000 ísl kr.) á hvern einstakl-
ing. Á þessu ári mun kostnaður
vegna nýgreindra sjúkdómstilfella
nema um 336 milljónum dollara.
Nýtt blóðpróf, sem gera á mögu-
legt að velja úr blóðgjafa, án þess
að hætta stafi af vegna AIDS-
sjúkdómsins, mun að auki kosta
um 100 milljónir dollara á ári.
„Það er þvi ekki fjarri lagi að
ætla, að AIDS-sjúkdómurinn
muni kosta þjóðfélag okkar yfir
hálfan milljarð dollara á þessu
ári,“ segir í grein vísindamann-
anna í fyrrnefndu tímariti.
„Við erum að kljást við raun-
verulegan og óhemjuskæðan óvin,
mannlegt böl, sem við höfum aldr-
ei kynnst áður,“ sagði annar vís-
indamannanna í fréttaviðtali.
„Það er eins gott að við tökum á
öllu sem við eigum hvað sem líður
þjóðfélagslegum eða kynferðisleg-
um skoðunum okkar.“
Sfmunynd/AP
CHAPLIN-SÝNING í LONDON — Annette Chaplin,
26 ára gömul, og Christopher, bróðir hennar, sem er 23 ára gamall, eru
hér með nýiustu vaxmyndina af foður sínum í vaxmyndasafni Madame
Tussauds. I London stendur nú yfir Chaplin-sýning, sem sett var upp
með aðstoð David Robinson en bók hans um ævi Chaplins: „Chaplin, líf
hans og list“, kemur út 4. mars nk.
Finnland:
Dómar fyrir heróínsmygl
llelsinki, 21. febrúar. AP.
TVEIR Svíar voru í dag dæmdir til
langrar fangelsisvistar fyrir að hafa
reynt að smygla hreinu heróíni til
Svíþjóðar um flugvöllinn í Helsinki.
Skýrði finnska fréttastofan SIT frá
þessu í dag.
Sven Olof Hansson var dæmdur
í átta ára fangelsi og vinkona
hans, Christina Eva Linderholm,
fékk sjö og hálfs árs fangelsi fyrir
að hafa reynt að smygla 250 gr. af
hreinu heróíni frá Indlandi til Sví-
þjóðar um Helsinkiflugvöll. Við
skyndiskoðun tollvarða í janúar sl.
reyndust þau bæði vera með heró-
ín uppi í sér, innan i verju, og við
nánari athugun á sjúkrahúsi kom
í ljós, að Eva hafði gleypt 245 gr.
af heróíni í verjum.
Auk fangelsisdómsins voru þau
hjúin dæmd til að greiða eina
milljón finnskra marka í sekt.
r rétt að öllu“
— segir flugmaður Formósu-þotunnar
San Francisco, Bandaríkjunum, 21. febrúar. AP.
FLUGMAÐURINN, sem kom Jumboþotu China Airlines áleiðis,
þrátt fyrir að ilugvélin hrapaði tíu kílómetra á aðeins tveimur
mínútum, sagði, að hann hefði farið „rétt að öllu“, en frá því var
sagt í fréttum, að verið væri að kanna, hvort „mannleg yfirsjón"
heföi valdið hrapinu.
í gær sögðust embættismenn
þakka Ming Yuen Hoo, hversu
örugglega hann hefði komið í
veg fyrir, að þotan færi alla leið
niður, þegar hún tók stóru dýf-
una um 800 km norðvestur af
San Francisco. Hefði þotan
hrapað í 36 sekúndur til viðbót-
ar, hefði hún skollið í sjóinn á
Kyrrahafi, en vélin var á leið frá
Tapei á Formósu til Los Angeles.
Rannsóknarnefnd flugslysa
telur það taka nokkurn tíma að
kanna öll gögn í málinu, að sögn
talsmanns hennar, Bob Buck-
horns, í gær.
Bandaríska útvarpsstöðin
NBC skýrði frá því í gær, eftir
heimildum í Washington, að vél-
in kynni að hafa ofrisið, er hún
kom inn í vindsveipinn, vegna
þess að sjálfstýringin hefði fyrir
vangá verið skilin eftir í sam-
bandi.
Bráðabirgðaathugun á flug-
rita vélarinnar bendir til að
flugmaðurinn hafi aukið vélar-
aflið, þegar flugvélin ofreis.
Sagði í frétt NBC, að þessi skyn-
dilega aðgerð gæti hafa valdið
því að drapst á fyrsta hreyflin-
um.
Þegar vélin hafi svo tekið
stóru dýfuna, kunni að hafa
drepist á hinum hreyflunum
þremur vegna þess hve óreglu-
legt loftstreymið var í gegnum
þá, sagði NBC.
Ho, sem er 55 ára gamall og
hefur verið atvinnuflugmaður í
30 ár, neitaði því, að hann hefði
sett hjólabúnaðinn niður, þegar
vélin hrapaði. Þegar hann var
spurður, hvort um yfirsjón
flugmanns hefði verið að ræða,
sagði hann: „Ég fór rétt að öllu.“
Irland:
Ótti yÖ hryðju-
verk í kjölfar
upptöku fjárs
Dyfíinni, 21. febrúar. AP.
Leyniþjónustur Breta og
Bandaríkjamanna gegndu
höfuöhlutverki viö að fínna
hina leynilegu bankainni-
stæðu írska lýðveldishersins
(IRA), sem lögregluyfírvöld á
írlandi lögöu hald á í gær, að
því er haft var eftir ónafn-
greindum embættismanni í
Dyflinni í dag.
Peningarnir, sem eru að upp-
hæð 1,75 millj. sterlingspunda
(jafnvirði um 65 millj. ísl. króna),
voru geymdir í útibúi írlands-
banka skammt fyrir utan Dyfl-
inni. Er talið að um sé að ræða
megnið af reiðufé því, sem IRA á í
írska lýðveldinu.
Háttsettur foringi í lögreglunni
á Norður-írlandi kvaðst í gær
óttast, að IRA yki hryðjuverk í
kjölfar þessarar fjárupptöku,
einkum mannrán og bankarán.
Annar foringi lögreglunnar í Ulst-
er hrósaði stjórnvöldum á írlandi
og sagði, að þau hefðu greitt IRA
þungt högg, sem samtökin yrðu
lengi að ná sér eftir.
Stjórnvöld á írlandi lögðu hald
á fé IRA með tilvísan til sérstakra
neyðarlaga, sem afgreidd voru í
neðri deild írska þingsins og öld-
ungadeildinni á þriðjudag. Eru
þau viðbót við lög um öryggi ríkis-
ins og gilda í þrjá mánuði í senn.
Samkvæmt þeim verða bankar og
aðrar fjármálastofnanir að af-
henda ríkinu allt það fé, sem talið
er að sé í eigu IRA eða annarra
hryðjuverkasamtaka. Haft er eftir
góðum heimildum í Dyflinni og
Belfast, að IRA hafi verið búin að
ráðstafa fénu, sem hald var lagt á,
til mikilla vopnakaupa.
Meirihluti fjárins, sem geymt
var í bankanum, er talið vera
lausnarfé, sem IRA hefur kúgað
út úr aðstandendum manna, sem
samtökin hafa rænt, og svokallað
verndarfé, en þá er átt við, að
fyrirtæki greiði skatt til glæpa-
manna gegn því að vera látin í
friði.
■ ■I ^
\f/
ERLENT,
GENGI
GJALDMIÐLA
Dollarinn
hækkar við-
stöðulaust
London, 21. febrúar. AP.
BANDARÍSKI dollarinn heldur
viðstöóulaust áfram að hækka og
varð gengi hans hærra í dag en
nokkru sinni áður gagnvart gjald-
miðlum Bretlands, Frakklands og ít-
alíu. Var þetta þriðji dagurinn í röð,
sem gengi dollarans hækkar. Gull-
verð lækkaði hins vegar og fór niður
fyrir 300 dollara únsan.
í kauphöllinni í London fengust
í dag 1.0830 dollarar fyrir pundið
(1.0870). Gengi dollarans var ann-
ars það, að fyrir hvern dollar
fengust 3.3485 vestur-þýzk mörk
(3.3280), 2.8450 svissneskir frank-
ar (2.8167), 10.2425 franskir frank-
ar (10.1675), 3.7975 hollenzk gyll-
ini (3.7685), 2.083.00 ítalskar lírur
(2.057.62), 1.37025 kandaískir doll-
arar (1.3500) og 261.475 jen
(261.00).