Morgunblaðið - 22.02.1985, Síða 26
26
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 22. FEBRÚAR 1985
Gervihjartaþeginn
braggast vel þrátt
fyrir smálasleika
IiOuisville, Kentucky, 21. febrúar. AP.
ÞAÐ hefur verið mikil uppörvun Haydon hefur braggast eftir að-
fyrir William Schröder, fyrri gervi- gerðina. Hafa fjölskyldur þeirra
hjartaþegann, hversu fljótt Murray þegar tengst sterkum vináttubönd-
um, að sögn eins af ættingjum
Haydons, og taldi hann það eiga
eftir að verða heilsu beggja sjúkl-
inganna lyftistöng.
Læknar sögðu í dag, fimmtu-
dag, að Haydon yrðu gefin ró-
andi lyf, svo að hann næði að
hvílast, en hann hefur fundið til
lasleika út frá nýrum.
„Hann varð þreyttur í gær-
kvöldi, af því að hann sat svo
lengi uppi,“ sagði dr. Allan M.
Lansing, yfirlæknir á Humana-
sjúkrahúsinu.
Dr. William C. Devries, sem
annaðist hjartaaðgerðirnar á
báðum mönnunum, hætti við að
láta Schröder fara í gönguferð
utanhúss á þriðjudag vegna
ágengni sjónvarpsfólks.
í gær sagði Lansing, að
Schröder hefði náð sér verulega
á strik og yrði e.t.v. nógu hress
til þess að fara af spítalanum í
næstu viku.
Sex ára fang-
elsi fyrir röng
læknisvottorð
Moskvu, 21. febrúar. AP.
LÆKNIR nokkur í borginni
Sverdlovsk í Úralfjöllum í Sovét-
ríkjunum hefur verið dæmdur í
sex ára fangelsi fyrir að láta
verkamenn, sem ekkert amaði
að, fá vottorð um að þeir væru
veikir, svo að þeir þyrftu ekki að
sinna daglaunavinnu sinni og
gætu starfað annars staðar.
Það var blaðið Sovietskaya
Russya, sem greindi frá þessu í
dag. Blaðið nefndi dæmi um
tvo verkamenn, sem keypt
hefðu slík vottorð frá læknin-
um, sem heitir V. Bratislavski.
Sagði blaðið að þeir hefðu
framvísað vottorðinu hjá
verkalýðsfélagi sínu og fengið
greidda veikindapeninga.
Burma:
Atlaga gegn eitur-
lyfjabröskurum
Bangkok, 21. febr. AP.
í FRÉTTDM sem borizt hafa frá Burma segir að 2.400 hermenn stjórnarinn-
ar í Rangoon, búnir eldflaugum og skriðdrekum hafi ráðist á Khun Sa í
austur Burma fyrr í þessum mánuði og drepið marga af mönnum Kingping,
sem er alræmdur eiturlyfjasali í Burma. Aftur á móti tókst ekki að grípa
höfuðpaurinn.
í Khun Sa er framleitt mikið af
eiturlyfjum og er auk þess flutt
þangað mikið magn úr öðrum
landshlutum og síðan sjá liðs-
menn Kingpins um að koma því
áfram. Eins og frá var sagt í grein
í Mbl. á fimmtudag voru löndin
Burma, Laos og Kambódía lengi
kölluð Gullni þríhyrningurinn og
þaðan kom meirihluti allra eitur-
lyfja Suðaustur-Asíu. Að vísu
tókst að klekkja á samtökunum
fyrir um áratug, en þau virðast nú
vera farin að láta til sín taka á ný.
í fréttum sem eru þó ekki stað-
festar segir að ríkisstjórnin í
Rangoon hafi gert fleiri atlögur að
„eiturlyfjastöðvum" í landinu og
muni herða enn aðgerðir sínar á
næstunni til að reyna að uppræta
smyglið.
Grænlenski þjóðfáninn
Þaiinig lítur þjóðfáni Grænlendinga út, rauður og hvítur með hringlaga sólartákni. Fáninn verður dreginn að
húni í fyrsta sinn 21. júní nk., á sumarsólhvörfum, en það er þjóðhátíðardagur Grænlendinga.
TreholtsmáliÖ:
Verjendur með nýjar
kröfur á elleftu stundu
Ostó, 21. febrúar. AP.
VERJENDUR Arnes Treholt, sem
grunaður er um að hafa njósnað
fyrir Sovétmenn frá árinu 1974,
hafa allt í einu krafist þess, að þrír
nýir sérfræðingar verði skipaðir til
að leggja mat á ýmis ákæruatrið-
anna. Var skýrt frá þessu í Osló í
dag.
Jon Lyng, einn þriggja verj-
enda Treholts, sagði, að þeir
krefðust þess, að þremur nýjum
mönnum yrði bætt við, mönnum,
sem hefðu „sérþekkingu á ýms-
um ákæruatriðanna". Lögfræð-
ingar sóknarinnar hafa hins veg-
ar brugðist ókvæða við þessari
kröfu. Lasse Qvigstad, saksókn-
ari, sagði, að nú þegar hefðu fjór-
ir menn verið skipaðir dómurun-
um til halds og trausts, menn,
sem hefðu sérþekkingu á póli-
tískum og hernaðarlegum mál-
efnum, málefnum utanríkisþjón-
ustunnar og lögfræðilegum mál-
efnum, og að þess vegna væri
Arne Treholt
krafa verjendanna „mjög óeðli-
leg“.
„Krafa varnarinnar minnir
helst á skyndiárás. Hún kemur
ekki aðeins á óvart heldur er það
með öllu óverjandi að koma fram
með hana fimm dögum áður en
réttarhöldin hefjast," sagði
Lasse.
Réttarhöldin hefjast nk.
mánudag en ekki hefur verið
skýrt frá ákæruatriðum, aðeins
vísað til lagagreina, sem Treholt
er sakaður um að hafa brotið
með framferði sínu. Sérfræð-
ingarnir fjórir verða bæði sækj-
endum og verjendum til ráðu-
neytis en þeir eru hershöfðingi,
lagaprófessor og tveir háttsettir
menn í utanríkisþjónustunni.
Mennirnir þrír, sem verjendur
vilja fá, eru allir sérfræðingar í
stjórnmálafræði. Búist er við, að
dómstóll í Osló skeri úr um kröf-
una á morgun, föstudag.
Mótmæli gegn klerkastjórninni
° ° J AP/Simamynd
Um þessar mundir eru liðin sex ár frá því klerkastjórnin í íran komst til valda og hefur þess verið minnst með
miklum hátíðarhöldum þar. Andstæðingar stjórnarinnar eriendis hafa einnig minnst afmælisins — með öðrum
hætti þó. Þessi mynd var tekin í Bonn í fyrri viku þegar hundruð félaga í Mujahedin Kalq, andspyrnuhreyfingu
íranskra útlaga, efndu til mótmælagöngu, þar sem böfð voru uppi vígorð gegn stjórn Khomeinis.
Bandaríkin:
Hagvöxtur á 3. árs-
fjórðungi 1984 mun
meiri en spár sögðu
Wa«hington, 21. febrúar. AP.
HAGVÖXTUR í Bandaríkjunum var mjög mikill á síðasta ársfjórðungi
1984, og mun meiri en upphaflega var haldið, að því er talsmaður stjórn-
arinnar sagði í dag, fimmtudag.
Samkvæmt upplýsingum
viðskiptaráðuneytisins óx heild-
arþjóðarframleiðsla, sem er
breiðasti mælikvarðinn á efna-
hagsástandið, um 4,9 % á tíma-
bilinu október/desember.
Þessi tala er meira en 2%
hærri en áætlun sagði fyrir um,
en hún var gerð í desember fyrir
lok tímabilsins og hljóðaði upp á
2,8%.
í janúar sl. var spá þessi
endurskoðuð og hækkaði þá í
3,9%. í dag hækkaði hún sem sé
aftur, í 4,9% eins og fyrr sagði,
vegna fyllri upplýsinga sem
fengist hafa síðan um efna-
hagsstarfsemina á fyrrnefndu
tímabili.
Hagvaxtartölur ársins 1984 í
heild hafa einnig hækkað við
endurskoðunina, sem greint var
frá í dag, í 6,9% úr 6,8%, sem
spáð var. Stendur það því óhagg-
að, að á árinu 1984 hefur orðið
mesti hagvöxtur í meira en þrjá
áratugi, eða frá því á árinu 1951,
er hagvöxtur varð 8,3%.
Fram kemur einnig, að þrátt
fyrir þennan mikla hagvöxt,
hélst verðbólga í svipuðu horfi
1984 og árið áður, nam 3,8%. Var
það aðeins hærra en spáin hljóð-
aði upp á í janúar.