Morgunblaðið - 22.02.1985, Síða 27
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 22. FEBRÚAR 1985
27
Hjartaþeginn sem
ól barn, lézt í gær
Su Diego, 21. rebráar. AP.
TUTTUGU og fjögurra ára gömul
kona Betsy Sneith, sem komst í
heimsfréttir á sl. hausti, þegar hún
fyrst hjartaþega fæddi barn, lézt í
gær af kransæöastíflu.
Betsy Sneith fæddi barn sitt
fjórum árum eftir að nýtt hjarta
hafði verið grætt í hana. Læknar
sögðu þá, að fengi hún ekki nýtt
hjarta ætti hún aðeins eftir tvo
mánuði ólifaða. Það vakti síðan
mikla athygli er frá því var greint
um þetta leyti sl. ár, að hún væri
barnshafandi. Læknar töldu mikla
áhættu fylgja meðgöngu og fæð-
ingu, en Betsy Sneyth sagðist ekki
láta það á sig fá, enda heilsaðist
henni prýðilega á meðgöngutím-
anum. Síðan barnið fæddist í sept-
ember 1984 hefur hún verið sögð
við bærilega heilsu.
AP fréttastofan telur ástæðu til
að taka fram að Betsy hafi ekki
verið gift.
Borgarastyrjöld í
aðsigi á Sri Lanka?
Nýju Delhí, 21. rebráar. AP
TAMILAR á Sri Lanka, sem berjast fyrir því að fá að stofna sjálfstætt ríki á
norðurhluta eyjarinnar, skýrðu frá því í dag, að þeir hefðu drepið 134
stjórnarhermenn og sjálfir misst sextán í meiri háttarátökum í fyrri viku.
Varnarmálaráðuneytið í Col-
ombo hafði áður sagt, að fjórir
hermenn og fjórtán skæruliðar
hefðu fallið. AP-fréttastofan segir
að mjög erfitt sé að fá fréttirnar
sannreyndar vegna þess að tals-
menn stjórnarinnar hafa lagt
bann við fréttaflutningi af átökum
milli hermanna og tamila.
Fréttamenn sem hafa verið á
Sri Lanka upp á síðkastið segja að
það sé afar flókið að fá réttar
hugmyndir um gang mála, og
hvorki ferðamenn né fréttamenn
fái að fara norður í landið. Þeir
segja, að flest bendi til að mikil
spenna sé þar, enda megi merkja
ólgu og ókyrrð sunnar í landinu og
það gæti verið tímaspurning hve-
nær allsherjar borgararstyrjöld
brytist út milli tamila og sinhal-
esa, þar sem ríkistjórnin þver-
skallist við að hefja samningavið-
ræður við tamila og sinhalesar séu
andvígir öllum tilslökunum við
minnihlutahóp tamila. Svo vont sé
ástandið nú að innan fjölskyldna,
þar sem blóðböndun hefur átt sér
stað, logi allt í illdeilum og bræöur
vegi hver annan.
Dýrasti kjúklingur-
inn gómaður í Kairó
Kairó. 21. febrúar. AP.
EGYPSK tollayfirvöld hafa hand-
samað dýrasta kjúkling í heimi, að
því er blaðð A1 Gomhuriya sagði
frá í morgun. Kjúklingurinn var
metinn á tíu þúsund dollara eða
um fjögur hundruð þúsund ís-
lenzkar krónur.
Kjúklingurinn var ekki sér-
stakur útlits og hafði verið
steiktur á venjulegan egypskan
hátt. Aftur á móti fundust í hon-
um tólf þúsund egypsk pund,
sem kona nokkur virðist hafa
ætlað að smygla úr landi. Leitað
var í faramrri ^cnur.r.ár^ — “0
fer mjög títt milli Kairó og
Saudi Arabiu. í handtösku henn-
ar fannst svo kjúklingurinn með
pundunum og smjörkrús væn,
sem reyndist hafa inni að halda
ótilgreinda upphæð seðla í er-
lendum gjaldmiðlum. Mjög hörð
viðurlög eru við því í Egypta-
landi að fara úr landi með þar-
lendan gjaldmiðil og að gefa ekki
upp nákvæma upphæð sem höfð
er meðferðis í öðrum gjaldmiðl-
um. Konan neitaði harðlega því
tilboði tollvarðanna að þeir
skyldu sleppa henni við kæru, ef
hún féllist á með góðu að af-
henda smérið oe kiöHð þcccr
þáð tókst ekki var allt gert upp-
tækt og konunni stungið snar-
lega í svartholið.
Kínverjar neita aðstoð
við afganska skæruliða
Peking, 21. febránr. AP.
DAGBLAÐ Alþýðunnar í Peking
segir, að það sé versti rógur að Kín-
verjar þjálfi afganska skæruliða og
sendi þeim vopn, eins og Sovétmenn
hafa staðhæft upp á síðkastið. Ríkis-
stjórn Babraks Karmal sem situr
með stuðningi innrásarliðs Sovét-
manna bar fyrir nokkru fram form-
leg mótmæli þessa efnis. Þar sagði,
að Kínverjar hefðu komið upp þjálf-
unarbúðum bæði í Pakistan og Vest-
ur Kína.
í fréttinni var ennfremur sagt
að kúgun Sovétmanna og yfir-
gangur í Afganistan hefði aukist
og þar sem baráttuþrek afganskra
frelsissinna hefði að sama skapi
eflst reyndu Sovétmenn og stjórn
Karmals að kenna öðrum um ófar-
ir sínar. Kínverjar hefðu ekki
blandað sér í málið og myndu ekki
gera það, en það breytti ekki því
að glæpsamleg innrás Sovét-
manna í Afganistan hefði vakið
reiði og viðbjóð í Kína.
V er kafallsmenn
í kröfugöngu
Aþenu, 21. febrúar. AP.
VERKAMENN í byggingariðnaði og leigubifreiðastjórar í Aþenu, sem eru í
verkfalli, fóru í dag í mótmælagöngu í miðborginni og kröfðust leiðréttinga
sinna mála. Þá samþykktu hankastarfsmenn að framlengja þriggja daga
verkfall sitt um einn sólarhring.
Um tíu þúsund bygginga-
verkamenn, sem hrópuðu „brauð,
atvinnu og ekkert atvinnuleysi"
heimsóttu fjármálaráðuneytið í
borginni. Þeir gera kröfu um að
eftirlaun miðist við 55 ára aldur,
vinnuvikan verði stytt í 35 stundir
og að ríkisstjórnin geri tafarlaus-
ar ráðstafanir til að fjölga störf-
um.
Um fimm þúsund leigubifreiða-
stjórar eru í sólarhringsverkfalli
og krefjast þeir þess að fá að
hækka fargjöld sín og að verð á
bensíni verði lækkað.
Raddgjafi Andrésar andar andaður
Burbank, Kalifornía, 21. febrúar. AP.
CLARENCE Nash, sem frægastur varð fyrir rödd Andrésar andar, lézt
í morgun úr hvítblæði. Hann varð áttræður að aldri. Nash réðst til Walt
Disney árið 1933 og tók þá að sér að tala hlutverk Andrésar andar í
myndum Walt Disney, og gat sér í því góðan orðstír. Hann flutti síðan
vísdóm og speki Andrésar andar i yfir 150 myndum, löngum sem
stuttum.
Þegar minnst var 50 ára afmælis Mikka músar fyrir tveimur árum
kom Nash að nýju fram í sviðsljósið eftir að hafa dregið sig í hlé löngu
áður. í tilefni sérstakrar myndar sem var gerð um Mikka fimmtugan
kom Andrés fram með rödd Nash í fyrsta skipti í áratugi. Nash hlaut
ýmis konar viðurkenningu á ferli sínum og hann lagði ekki aðeins rödd
sína að Andrési heldur ýmsum öðrum sögupersónum Disneylands.
Lazar í
Austurríkis-
heimsókn
Vínarborg, 21. febrúar. AP.
Forsætisráðherra Ungverjalands,
Gyorgy Lazar, kom í morgun í opin-
bera heimsókn til Austurríkis til að
ræða sameiginleg mál Austurríkis og
Ungverjalands og almennt um sam-
skipti við önnur ríki.
Málgagn ungversku ríkisstjórn-
arinnar í Búdapest sagði að við-
ræðurnar milli Sinowatz kanslara
Austurríkis og Lazars utanríkis-
ráðherra myndu vafalaust fara
fram í bróðerni og verða til þess
að styrkja enn vináttutengslin
milli þjóðanna.
Filippseyjar:
Fimm þúsund
heimilislausir
eftir eldsvoða
Mamla, 21. febrúar. AP.
FIMM þúsund fjölskyldur í þorpinu
Carbalogan á eynni Samar á Filipps-
eyjum eru heimilislausar, eftir að
heimili þeirra, timburkofar og bam-
bushýsi, brunnu til grunna í morgun.
Orsök eldsins er talin sú að tvö
börn höfðu verið að leika sér að
eldspýtum og hentu þeim logandi
frá sér. Talið er að tvö börn hafi
dáið í brunanum, sem læsti sig
með eldingshraða um rytjuleg
húsakynnin. Fimm manns
brenndust alvarlega.
AMSIRAD
Tölvukaupendur fá alltaf meira og meira fyrir peningana sína.
í þeirri þróun er AMSTRAD tvímælalaust toppurinn:
64K tölva, litaskjár og innbyggt segulband.
Frábær hönnun, afl og hraði, skýnandi litir,
gott hljóð og spennandi möguleikar
Niðurstöður neytendablaða á tölvumarkaði eru á einn veg:
„A very good price for a complete system, tape recorder included,
good graphics and sound. A very good buy.“
Computer Choice, september 1984.
„Extremly good value for money" _ ... , . , , . ..
Computing Today, oktober 1984. SÖlUUmbOO I RöykjSVIK.
TÖLVULAND
Umboðsmenn um allt land
Laugavegi 118 v/HlemmS: 29311 Lækjargötu2S:621133