Morgunblaðið - 22.02.1985, Qupperneq 29

Morgunblaðið - 22.02.1985, Qupperneq 29
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 22. FEBRÚAR 1985 29 Hörður Sigurgestsson mæla þetta hlutfall, en út í það skal ekki farið. í nokkrum næstu nágrannalöndum okkar leikur þetta hlutfall atvinnufyrirtækj- anna á bilinu 39—57%. Öllu athyglisverðara er að skoða hvar rannsókna- og þróunarstarf- semi fer fram, þ.e. hvaða stofnanir annast hana. Er þá aftur miðað við árið 1981 og er skiptingin þessi: Fjöldi Hlutfall 1. Atvinnufyrirtæki 72 9.6% 2. Rannsóknastofnanir atvinnuveganna 251 33,7% 3. Æöri menntastofnanir 238 32,0% 4. Aörar opinberar stofnanir 150 20,2% 5. Aðrir aöilar 33 4.5% 744 100,0% Þetta þarfnast nokkurra skýr- inga. Rannsóknastofnanir at- vinnuveganna eru hinar hefð- bundnu rannsóknastofnanir, sem starfa samkvæmt lögum frá 1965 og tengjast Rannsóknaráði. Til æðri menntastofnana teljast Há- skóli íslands og stofnanir hans ásamt Kennaraháskóla íslands og Bændaskólanum að Hvanneyri. Undir Háskóla íslands og stofnan- ir hans falla margar stofnanir, sem tengjast Háskólanum með ýmsu móti, t.d. Raunvfsindastofn- un háskólans, Verkfræðistofnun háskólans og Tilraunastöð háskól- ans að Keldum. Þetta yfirlit segir okkur að það eru einkum tveir aðilar, sem stunda rannsókna- og þróunar- starfsemi hér á landi. Eru það hinar hefðbundnu rannsókna- stofnanir atvinnuveganna og Há- skóli íslands. Það verður að segj- ast eins og er, að mér kom á óvart hve hlutur Háskólans var hér stór. Alþekktur er fekstur hinna hefðbundnu rannsóknastofnana í sjávarútvegi, iðnaði og landbún- aði. Síður þekkt er sú rannsókna- og þjónustustarfsemi, sem unnin er við Háskólann. Fram kom i máli háskólamanna að í Háskól- anum séu rannsóknir í þágu at- vinnuveganna stundaðar í vaxandi mæli, án þess að um sé að ræða tvítekningu í starfi annarra stofn- ana. Virðist sem Háskólinn hafi ar þeim er lokið, verður fjallað um samtengjandi verkefni, svo sem horfur um þróun atvinnuvega og vinnumarkaðar. Auk þess verður byggt á starfi annarra og má f þvi sambandi nefna starfshópa Rann- sóknaráðs um tölvuvæðingu og líftækni. Fyrirhugað er að ljúka framtíðarkönnuninni um mitt næsta ár. Hér á eftir fara yfirskriftir verkþáttanna fimmtán ásamt nöfnum formanna starfshópanna: 1. Fólksfjöldi á íslandi í upphafi næstu aldar/ Hallgrímur Snorra- son, hagstofustjóri, 2. Auðlindir sjávar og nýting þeirra næsta ald- arfjórðung/ Jakob Jakobsson, for- stjóri Hafrannsóknastofnunar, 3. Landkostir og landnýting næsta aldarfjórðung/ Vilhjálmur Lúð- víksson, framkvæmdastjóri Rann- sóknaráðs, 4. Orkubúskapur næsta aldarfjórðung/ Jakob G. Björns- son, orkumálastjóri, 5. Heimsbú- skapur og milliríkjaviðskipti næsta aldarfjórðung frá íslensk- um sjónarhóli/ Jón Sigurðsson, forstjóri Þjóðhagsstofnunar, 6. ís- land og umheimurinn næsta ald- valið sér verkefni, sem eru á nýj- um sviðum atvinnulífs, sem síður falla undir starfsramma rann- sóknastofnana atvinnuveganna. Tímamót Ég gat þess hér að framan, að ég teldi þennan ársfund Rannsókna- ráðs ríkisins marka hér nokkur tímamót. Ég tel það felast í því að þarna komu saman hópar manna innan og utan rannsóknastarf- seminnar, sem eiga ólíkra hags- muna að gæta, en sneru bökum saman og ræddu af mikilli ein- drægi, hvernig rannsóknir og þróunarstarfsemi gætu komið ís- lensku atvinnulífi að auknum not- um. Umræðurnar voru jákvæðar og beindust í einn farveg, þótt fjarri sé að þátttakendur yrðu sammála í öllum atriðum. Ræddar voru ýmsar leiðir, sem gætu orðið til að auka rannsóknastarfsemi frekar. Var m.a. rætt um skipulag, fjármögnun, stjórnun, markaðs- setningu og alþjóðahyggju. Ég sá niðurstöður fundarins með eftir- farandi hætti: 1. Áhugi er á að gera rannsókna- stofnanir sjálfstæðari en nú er til að freista að auka virkni þeirra og afköst. Rætt var um að þessu markmiði mætti m.a. ná með því að gera rannsóknastofnanir að sjáifseignastofnunum. 2. Aukin áhersla verði lögð á rann- sóknavinnu á verkefnagrundvelli. Rannsóknastofnanir tækju í vax- andi mæli að sér verkefni fyrir at- vinnulifið. Rannsóknastofnanir hefðu meira frumkvæði um að út- vega verkefni og finna fjármagn til þeirra. Rætt var um breytta fjármögnun, þar sem aðeins hluti fjármagnsins til rannsóknastofn- ana kæmi beint á fjárlögum, en að öðru leyti úr rannsóknasjóðum og frá atvinnurekstrinum. 3. Mjög jákvæður áhugi fundar- gesta kom fram um aukið sam- starf atvinnufyrirtækja og rann- sóknastofnana um ný verkefni. 4. Hefjast má handa strax um aukið samstarf rannsóknastofn- ana og atvinnufyrirtækja án laga- breytinga. 5. Upplýsingamiðlun á milli rann- sóknastofnana og atvinnufyrir- tækja er mjög ábótavant. Færni og þekking fara nú forgörðum vegna bágra tengsla þessara aðila. Rannsóknastofnanir þurfa að stórauka kynningu á starfsemi sinni og getu. Fyrirtæki þurfa á móti að skilgreina þarfir sínar og viðfangsefni og leita eftir aðstoð við úrlausn þeirra. Frékar verður þetta ekki tfund- að. Sannfæring mín er, að sé rétt á haldið munum við á þeim vett- vangi, sem hér að frsman hefur verið gerður að umtalsefni, finna þýðingarmikinn vaxtarbrodd nýsköpunar hér á landi og þýð- ingarmikinn grundvöll áfram- haidandi velmegunar. Tækifærin kaila á okkur. Hördur Sigurgestsson er forstjóri Eimskipafélags íslands hf. arfjórðung/ Magnús Torfi Óiafs- son, fv. ráðherra, 7. íslensk menn- ing og erlendir menningarstraum- ar næsta aldarfjórðung/ Gylfi Þ. Gíslason, fv. ráðherra, 8. Tækni- breytingar og áhrif þeirra næsta aldarfjórðung/ Ingjaldur Hanni- balsson, forstjóri Iðntækni- stofnunar, 9. Menntun og skóla- kerfi næsta aldarfjórðung/ Björn Bjarnason, aðstoðarritstjóri Morgunblaðsins, 10. Horfur um hagvöxt næsta aldarfjórðung/ Jón Sigurðsson, forstjóri Þjóðhags- stofnunar, 11. Byggð og umhverfi næsta aldarfjórðung/ Guðrún Jónsdóttir, arkitekt, 12. Lífshættir og heilbrigðismál næsta aldar- fjórðung/ Bjarni Þjóðleifsson, læknir, 13. Fjárhagur hins opin- bera næsta aldarfjórðung/ Magn- ús Pétursson, hagsýslustjóri, 14. Fjármögnun framfara næsta ald- arfjórðung — Myndun og miðlun fjármagns/ Tryggvi Pálsson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Landsbanka íslands og 15. Stjórn- skipun og stjórnarfar í upphafi nýrrar aldar/ Sigurður Líndal, prófessor." AF ERLENDUM VETTVANGI eftir ARNE OLAV BRUNDTLAND Bodström og sænsk hlutleysisstefna Mál lænnarts Bodström utanríkisráðherra hefur vakið upp miklar deilur um stefnu Svfa í öryggismálum. Svo sem kunnugt er af fréttum höfðu sex sænskir blaðamenn eftir Bodström, að engar sannanir lægju fyrir um að sovéskir kafbátar hefðu rofið landhelgi Svía. Lennart Bodström fullyrðir, að blaðamennirnir hafi ekki haft rétt eftir sér og um sé að ræða aðför að persónu sinni. Þar sem Bodström neitar að kannast við þær yfirlýsingar, sem hafðar voru eftir honum, og kveðst ekki sammála efni þeirra hefði mátt ætla, að málið væri úr sögunni. Svo var þó ekki. Stjórnar- andstaða borgaraflokkanna bar fram vantrauststillögu á Bodström. Höfuðtilgangur til- iögunnar var ekki sá að knýja fram breytta stefnu stjórnarinn- ar því henni kveðst stjórnar- andstaðan vera sammála. Hins vegar taldi stjórnarandstaðan ráðlegast að Svíar losuðu sig við utanríkisráðherrann, sem væri óhæfur og kynni ekki að um- gangast blaðamenn. í stjórn- málasögu Svía finnast þess fá dæmi, að flutt hafi verið van- trauststillaga á starfandi utan- ríkisráðherra. Því hlýtur mál Bodströms að vekja mikla at- hygli. Ljóst er að með vantrauststil- iögunni var stjórnarandstaðan ekki eingöngu að beina spjótum sínum gegn Bodström heldur einnig gegn utanríkisstefnu rik- isstjórnarinnar. Stjórnarand- staðan hefur sagt, að tvískinn- ungs gæti i meðhöndlun ríkis- stjórnarinnar á landhelgisbrot- um sovésku kafbátanna. Ekki vanti harðorðar yfirlýsingar, en að þeim slepptum einkenni hik og linkind framgöngu stjórnar- innar í þessu máli. Ummælin sem blaðamennirnir höfðu eftir Bodström eru höfð til marks um þetta. Lennart Bodström utanríkisráð- herra Svía forgangs á sviði utanríkismála. Hér eru engar nýjungar á ferðinni. Undanfarin ár hafa Sviar fundið fyrir vaxandi ör- yggisleysi. Það hefur síðan ein- kennt umræðuna um öryggismál og leitt til þess að framlög til variiarmála hafa verið aukin. Stjórnvöld i Svíþjóð hafa lagt meiri áherslu á stefnuna i örygg- ismálum bæði heima fyrir og á alþjóðavettvangi. Afstaðan til Hlutleysisstefnan í hættu? Þegar þessi gagnrýni stjórnar- andstöðunnar kom fram f sænska þinginu, Riksdagen, brást Olof Palme forsætisráð- herra hinn versti við henni. Hann fullyrti að stjórnarand- stöðunni gengi það eitt til, að vekja upp deilur um stefnuna í utanríkismálum og myndi það verða til að minnka tiltrú ann- arra þjóða á hlutleysisstefnu Svía. Þá lýsti Palme þeirri skoð- un sinni, að færi svo að borgara- legu öflin sigruðu i næstu þing- kosningum, sem verða i haust, og mynduðu stjórn fæli það í sér, að í fyrsta skipti í 170 ár yrði öryggi Svía ógnað. Þessi ummæli forsætisráðherrans vekja at- hygli víðar en í Svíþjóð. Það er vissulega mikil alvara á ferðum, ef einhugur Svia um hlutleys- isstefnuna heyrir brátt sögunni til og friðurinn kemst í hættu. Þess ber að geta, að Palme tók til baka ummæli sín um hættuna sem steðja myndi að örygginu. Hins vegar hélt hann fast við þá skoðun sína að hlutleysisstefnan væri í hættu. Eftir nokkra umhugsun lýsti Miðflokkurinn yfir fullum stuðn- ingi við hina hefðbundnu hlut- leysisstefnu Svía en gagnrýndi jafnframt framkvæmd hennar undir stjórn Lennart Bodström. Meðal hægrimanna (Moderat- arna) var svipað uppi á teningn- um. Þeir sögðust fylgjandi óbreyttri hlutleysisstefnu en kváðust ósammála þeim atriðum sem stjórnin teldi að njóta ættu Sovétmanna Þótt einhugur hafi hingað til rikt um öryggismálin er þó stefna jafnaOarmanna ag haegri- manna ólík að þessu leyti. Hægrimenn leggja meiri áherslu á varnir landsins og telja að þær eigi að vera hlutfallslega jafn öflugar og á sjötta áratugnum. Flokkarnir hafa einnig nokkuð ólíka afstöðu gagnvart Sovét- ríkjunum. Hægrimenn vilja að Svíar sýni meiri hörku. Jafnað- armenn telja að einhver sveigj- anleiki sé vænlegri til árangurs þó svo að þeir séu algjörlega frá- hverfir því að Svíar auðsýni und- irlægjuhátt gagnvart risaveld- inu í austri. Svo virðist sem hug- sjónir móti að verulegu leyti stefnu jafnaðarmanna í afvopn- unarmálum og alþjóðlegum mál- efnum, sem tekin eru fyrir á vettvangi Sameinuðu þjóðanna. Aftur á móti vilja hægrimenn að stefna þeirra beri vott um raunsæi. Hafa þeir m.a. lýst yfir efasemdum um að hugmyndin um frystingu kjarnorkuvopna sé í raun framkvæmanleg. Miðjuflokkarnir í sænskum stjórnmálum, og þá einkum Miðflokkurinn, hafa um margt svipaða utanríkisstefnu og jafn- aðarmenn. Því vekur athygli að þeir skyldu eiga aðild að van- trauststillögunni á Bodström utanríkisráðherra. Deilt á Palme Framkvæmd utanríkisstefn- unnar er ekki síður mikilvæg. Vegna hennar hefur Bodström áður verið gagnrýndur m.a. vegna ræðu sem hann hélt hjá Sameinuðu þjóðunum þar sem hann þótti vega hart að Banda- ríkjamönnum. Stjórnarandstað- an hefur einnig kastað hnútum í Palme forsætisráðherra, og þá aðallega vegna tveggja mála. Þvi hefur verið haldið fram að vestur-þýski jafnaöarmaðurinn Egon Bahr hafi aðstoöað við að semja sænska álitsgerð um Palme-hólfið svokallaða við landamæri austurs og vesturs í Mið-Evrópu, en í hólfinu vill Palme ekki hafa kjarnorkuvopn. Þá á Palme að hafa haft sam- band við sovéska fræðimanninn Juri Arbatov fyrir milligöngu Anders Ferm sendiherra Svia hjá Sameinuðu þjóðunum. Þetta tvennt er Palme sakaður um að hafa gert, án þess að ráðfæra sig við utanríkisnefnd sænska þingsins. Það voru hægrimenn sem gagnrýndu Palme hvað harðast. Palme hefur gefið i skyn að hann telji hægrimenn ekki búa yfir þeirri hugarró, sem nauðsynleg sé til þess að Svíum megi auðnast að reka sjálfstæða utanríkisstefnu. Palme hefur einnig sakað hægrimenn um ómaklegar aðfarir að rikis- stjórninni, sem gætu haft hætt- ur i för með sér á óvissutímum. Hægrimenn segja að í Iýðræðis- þjóðfélagi sé nauðsynlegt að umræður geti farið fram, án þess að til komi slíkt bannfær- ingarta! eins og hafi einkennt orðræðu forsætisráðherrans um hlutleysisstefnuna. Svíar verði sjálfir að ákveða hvernig hún verði best framkvæmd. Þverrandi samstaða Öryggismálaumræðurnar í Svíþjóð má að mörgu leyti bera saman við ástand þessara mála í Noregi. Vegna erfiðrar stöðu i alþjóðamálum hafa Norðmenn lagt stöðugt meiri áherslu á stefnuna í öryggismálum. Deilur um hipa tvíþættu ákvörðun Atl- antshafsbandalagsins um Evr- ópueldflaugarnar kostuðu það, að sú samstaða, sem rikt hafði allt frá fimmta áratugnum, fór þverrandi. í raun hafa deilurnar í Noregi snúist um fleiri hliðar kjarnorku- og afvopnunarmála. Það hefur jafnvel verið reynt að láta þær ná til aðildarinnar að Atlantshafsbandalaginu. í Nor- egi og Svíþjóð hefur jafnan verið t.alið æskilegt að sem mest sam- staða ríkti um stefnuna í utan- ríkis- og varnarmálum. Ríkis- stjórnir þessara landa hafa síð- an talið það í sínum verkahring að annast framkvæmd stefnunn- ar á hverjum tima. Þótt Bodström hafi staðið af sér vantrauststillöguna er hún óvenju skýrt dæmi um þá óein- ingu, sem nú ríkir um stefnu Svía í öryggismálum og einkum um framkvæmd hennar. Vita- skuld eru þessar deilur mál Svía einna og ástæðulaust fyrir aðrar þjóðir að ætla að vænta megi stórbreytinga á stefnu þeirra. Fari hins vegar svo, að öryggi Svíþjóðar verði ógnað og friður- inn rofni er ekki lengur um einkamál Svía að ræða. Arne Olar Brundtland er sérfraeó- ingur í öryggis- og afvopnunarmál- um vid norsku utanrikisstofnun ina. Hann er ritstjóri tímaritsins Internasjonal Politikk.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.