Morgunblaðið - 22.02.1985, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 22. FEBRÚAR 1985
31
MorKunbladiö/Bæring Ceciisson
Þ«r eru ekki háar í loftinu þessar hnátur, en vildu þó ólmar fá að hjálpa
til. I*ær eru að hreinsa skelfiskinn áður en hann fer í pakkalinn.
Gnmdarfjörður:
Gáfu tæplega
300.000
í orgelsjóð
NÝLEGA gáfu áhafnir þriggja báta
Soffaníasar Cecilssonar rúm 14
tonn af skelfiski í Orgelsjóð
Grundarfjarðarkirkju. Það voru
bátarnir Fanney SH 24, Grundfirð-
ingur SH 12, og Grundfirðingur
SH 124, sem veiddu en 12 sjálf-
boðaliðar voru á bátunum.
Þegar fiskurinn var kominn í
land tóku sig til 35 sjálfboðaliðar
og unnu aflann í landi. Er upp
var staðið var andvirði aflans
metið á 297.260 krónur.
LÍÚ telur
samþykktina
ólögmæta
MORGUNBLAÐINU hefur borizt
eftirfarandi samþykkt frá Lands-
sambandi íslenzkra útvegsmanna:
Samninganefnd LÍÚ mótmælir
harðlega, sem ólögmætri, þeirri
sameiginlegu samþykkt samn-
inganefnda FFSÍ og SSÍ, er gerð
var þriðjudaginn 19. febrúar sl.
1 áðurnefndri samþykkt beina
samninganefndir FFSÍ og SSÍ
því til skipstjóra og áhafna fiski-
skipa að veiðum verði hætt og
skipin sigli til hafnar. Hafa nú
fjölmargir skipstjórar tekið
þessari áskorun og siglt skipum
sínum til hafnar.
Með framangreindu hafa
heildarsamtök sjómanna átt
frumkvæðið að því að brotið er
sameiginlegt ákvæði í kjara-
samningum aðila um veiðar í
verkföllum, sem heimilar skipum
að ljúka veiðiferð þeirri, er þau
voru komin í, er verkfallið hófst.
Öllum ásökunum í garð út-
gerðarmanna að þeir beiti sér
fyrir verkfallsbrotum og hafi
verið með „undirróður og þrýst-
ing“ við sjómenn, er mótmælt
sem staðhæfulausum.
LÍÚ áskilur sér allan rétt fyrir
sig og félagsmenn sína vegna
þessara ólögmætu aðgerða, sem
valdið hafa útgerðarmönnum
gífurlegu fjártjóni og spillt veru-
lega fyrir friðsamlegri lausn á
yfirstandandi kjaradeilu.
Sædýrasafn-
ið enn opið
— ÞAÐ ER útbreiddur misskilning-
ur að Sædýrasafnið sé hætt starfs-
emi, það verður opið í tvo mánuði til
viðbótar, sagði Jón Gunnarsson, for-
stöðumaður, í samtali við blm. Mbl.
í gær.
— Við verðum með háhyrn-
ingana hjá okkur í tvo mánuði til
viðbotar og ætlum að hafa safnið
opið þann tíma. Við höfum opið
milli 10 og 19 alla daga, sagði Jón.
Röng nöfn
í myndatexta í grein um fyrir-
tækið Texta hf. á fimmtudag mis-
ritaðist nafn Vilhjálms Magnús-
sonar tæknifræðings hjá fyrir-
tækinu.
Þá misritaðist nafn Hervarar
Guðjónsdóttur f miðvikudagsblað-
inu, þegar sagt var frá 25 ára af-
mæli Félags heyrnarlausra.
Beðist er velvirðingar á þessum
mistökum.
COROLLA1300
Ný Corolla - ný viðmiðun.
Hin nýja Corolla 1300 er hönnuð
til að vera fremst meðal jafningja og
gæðaflokki ofar en verðið segir til um. Léttbyggð og sparneytin 1,3 lítra, 12 ventla vélin
er kraftmikil, enda nýjasta framlag Toyota til betrumbóta — sumir segja byltingar — á bíl
vélum. Aksturseiginleikar gerast vart betri. Framhjóladrif og 1. flokks fjöðrunar-og stýris
búnaður skapa mikinn stöðugleika og rásfestu. Farþega-og farangursrýmið stenst allan
samanburð hvað varðar nýtingu, þægindi og hagkvæmni.
Þú getur treyst Toyota Corolla — því ánægðum eigendum fjölgar stöðugt um allan heim.
TOYOTA
Nybylavegt 8 200 Kopavogi S. 91-44144