Morgunblaðið - 22.02.1985, Page 35
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 22. FEBRÚAR 1985
35
Ályktun aðalfundar stórkaupmanna:
Frjáls verðmyndun hefur
leitt til lægra vöruverðs
Á AÐALFUNDI Félags íslenskra
stórkaupmanna sem haldinn var í
síöustu viku voru eftirfarandi
ályktanir samþykktar:
Frjáls verömyndun. Aðalfundur
FÍS fagnar þeim skrefum, sem
stigin hafa verið í átt til aukins
frjálsræðis í verslun og viðskiptum
á liðnu ári. Opinberar tölur hafa
staðfest að þessi mikilvægu skref í
átt til frjálsrar verðmyndunar
leiddu á árinu til harðnandi sam-
keppni og lægra vöruverðs, og er
það í samræmi við langa reynslu
nágrannaþjóða. Reynslan hefur
enn einu sinni sýnt að ótti við aukið
frjálsræði í viðskiptum hefur jafn-
an verið ástæðulaus og að afnám
hafta og skömmtunar hefur orðið
til góðs fyrir almenning í landinu.
Aðalfundurinn hvetur stjórnvöld
til áframhaldandi starfa á þessari
braut.
Skattamál. Nýleg könnun bendir
til þess að verslunarkostnaður á ís-
landi sé hóflegur miðað við önnur
Norðurlönd, enda ástæður fyrir
háu vöruverði hérlendis að finna í
öðrum þáttum verðmyndunar.
Stefna íslenskra stjórnvalda við
skattlagningu verslunar bitnar
fyrst og fremst á neytendum, þar
sem hún kemur óhjákvæmilega
fram í vöruverði.
Tollamál. Mikilvægt framfara-
spor hefur verið stigið með því að
taka upp einfaldari tollmeðferð á
vörum, en Félag ísl. stórkaup-
manna situr nú enn einn aðalfund
sinn án þess að frumvarp til laga
hafi séð dagsins ljós. í slíku frum-
varpi þarf að kveða á um sann-
gjarnari og jafnari tolla en nú tíð-
kast, svo og tollkrit, afnám banka-
stimplunar, FOB-tolla í stað CIF
og algjöra niðurfellingu á gjöldum
af aðföngum til samkeppnisiðn-
aðar. Þá má benda á ótvírætt hag-
ræði þess, jafnt fyrir tollheimtu
sem innflytjendur, að heimila
greiðslu tollgjalda í bönkum, spari-
sjóðum og pósthúsum.
Kjaramál. Hörmulegt er að til-
raunir til að gera raunhæfa kjara-
samninga á sl. hausti mistókust.
Stöðugt verðlag á fyrri hluta ársins
1984 náði langt í að endurheimta
verðskyn meðal neytenda og nýjar
innkaupavenjur voru farnar að
mótast af því. Grundvöllur var far-
inn að myndast undir skipulegri
innkaup og betri viðskiptakjör í
kjölfarið. Þessu var því miður
varpað fyrir róða að verulegu leyti
og óvissa ríkir nú um framhaldið.
Verðlagsþróun fram að kjarasamn-
ingunum sannaði svo ekki verður
um villst, að stöðugt verðlag er ein
megin forsenda þessa að innflutn-
ingsverslunin geti nýtt aðstöðu
sína til að bæta þjóðarhag.
Aðalfundurinn minnir á að frjáis
verslun er ekki einasta ein helsta
forsenda efnahagslegrar velferðar
þjóðarinnar heldur einn af horn-
steinum sjálfstæðis.
Ályktun um peningamál
Aðalfundur FÍS 1985 varar við
þeirri þróun að þrengja stöðugt að
útlánámöguleikum banka og spari-
sjóða með skyldubindingu sparifjár
og óraunhæfum yfirboðum ríkis-
sjóðs á innlendum peningamark-
aði. Eðlilegt framboð fjármagns á
frjálsum markaði er ein forsenda
verðmætasköpunar í þjóðfélaginu,
en hvers konar lögþvingaðar milli-
færslur og ófrjáls ráðstöfun fjár-
magns er hindrun í vegi þess.
Fundurinn hvetur til að ríkið haldi
áfram að minnka umsvif sín í at-
vinnulífinu, selji hluti sína í
atvinnufyrirtækjum og feli öðrum
verkefni, sem eru betur komin í
höndum einstaklinga en ríkisstofn-
ana.
Ályktun um skipulags-
mál heildverslunar
Aðalfundur FÍS 1985 skorar á
borgaryfirvöld að láta gera úttekt á
þörfum heildverslunar fyrir land-
svæði til starfsemi sinnar áður en
meira landi verður ráðstafað í
grennd við Sundahöfn. Fundurinn
felur stjórn FÍS að gera könnun á
því meðal félagsmanna, hvort tíma-
bært sé að reisa nýja heildsölu-
miðstöð á hafnarsvæðinu.
Kirkjur
á landsbyggðinni
Messur á
sunnudag
EGILSSTAÐAKIRKJA: Sunnu-
dagaskóli kl. 11. Messa kl. 14.
Sóknarprestur.
KIRKJUHVOLSPRESTAKALL:
Guðsþjónusta í Lundi á sunnu-
dag kl. 10.30 með kirkjukór
Hábæjarkirkju og Sigurbjarti
Guðjónssyni organista. Guðs-
þjónusta í Hábæjarkirkju kl.
14. Auður Eir Vilhjálmsdóttir.
SEYÐISFJARÐARKIRKJA:
Kirkjuskóli á morgun, laugar-
dag, kl. 11. Organisti Sigur-
björg Helgadóttir. Sr. Magnús
Björnsson.
STÓRÓLFSHVOLSKIRKJA:
Guðsþjónusta sunnudag kl. 14.
Sr. Stefán Lárusson.
VÍKURPRESTAKALL: Kirkju-
skólinn í Vík á morgun, laug-
ardag, kl. 11. Fjölskylduguðs-
þjónusta í Skeiðflatarkirkju á
sunnudag kl. 14. Sóknarprestur.
| smáauglýsingar —- smáauglýsingar — smáauglýsingar
smáauglýsingar I
. ...........I
VEROBWerAMARKAOUR
HUSI VERaUUNARINNAR 0.HAEÐ
KAUPOG SAIA VHSKUlMBatfA
SlMATfMI KL10-12 OO 16-17
Rafmagnsþjónustan
Dyrasimaþjónustan. Kristján,
rafv.meistari, sími 44430.
Dyrasímar — raflagnir
Gestur rafvirKjam., s. 19637.
IOOF 12 = 1662228 'A = 9.II
SAMTÖK
ÁHUCAMANNA
UM HEIMSPEKI
PÓSTHÓLF 4407-124 RVK.
Almennur
samrœðufundur
(borðfundur) veröur haldinn i
Geröubergi laugardaginn 2.
mars. Fundartími frá kl.
14—17.30. Fundarefni er tvi-
skipt:
1. Hugmyndir um himnafööur
og alfööur. Gestur fundarsins
er séra Gunnar Kristjánsson.
2. Frumspeki Leibnitz. Gestur
fundarins er dr. Eyjólfur Kjal-
ar Emilsson.
Kaffihlé er á milli funda. Þátt-
tökugjald er kr. 100 (kaffl Innifal-
iö). Fundarefni næstu funda eru:
Andleg framtíö mannsins. —
Hvaö er sál? — Einar Bene-
diktsson skáld. — Völvuspá.
Vegna takmörkunar á borörými
þarf aö tilkynna þátttöku fyrir-
fram. Símar 79393 og 686408.
Frá Guöspeki-
fólaginu
Áskriftsrsími
Ganglera er
39573.
i kvöld kl. 21.00 veröur sagt frá
Sai Baba — Öllum opiö.
FERDAFÉLAG
ÍSLANDS
ÖLDUGÖTU3
SÍMAR11798 og 19533.
Dagsferöir sunnudag-
inn 24. febrúar
1. Kl. 13. Þorlákshöfn — Hafn-
arnes — Flesjar. Lótt ganga
meö ströndinni. Verö kr.
400,00.
2. Kl. 13. Skiöaganga úr Blé-
fjöllum um Heiöinahá aö
Geitafelli. Verö kr. 400,00.
Brottför frá Umferöarmiöstöö-
inni. austanmegin. Farmiöar viö
bil. Fritt tyrir börn i fylgd tullorð-
inna
Helgarterö i Þórsmörk 8,—10.
marz. Gist í Skagfjörösskála.
Notaleg gistiaOstaöa, miöstööv-
arhitun, svefnpláss fyrir fjóra í
herb. og rumgóö setustofa.
Gönguferöir um Mörkina og
einnig á gönguskíöum ef aö-
stæöur leyfa.
Upplýsingar á skrifstotunni,
Öldugötu 3.
Feröafélag íslands.
Dagskrá fyrir
stórsvigsmót Ármanns
sem verður haldió helgina 23.-24.
febrúar '85.
Laugardagur:
1. Brautarskoóun karlar/konur kl.
9.30. Keppni hefst kl. 10.30.
2. Brautarskoöun 13-14 ára kl.
13.20. Keppni hefst kl. 14.15.
3. Verölaunaafhending.
Sunnudagur:
1. Brautarskoóun 9-10 ára og 8
ára og yngri kl. 11.00. Keppni
hetst tyrir 9-10 ára kl. 11.40 og
fyrir 8 ára og yngri kl. 12.20.
2. Brautarskoóun 11-12 ára kl.
14.30. Keppni hefst kl. 15.10.
3. Verólaunaafhending.
Ath.: Þátttökugjöld fyrir 13 ára
og eidri er kr. 180 og fyrir 12 ára
og yngri kr. 90.
Stjórnin.
Hafnarfjörður
Sniöa- og saumanámskeiö hefst
26. febr. Innritun i s: 25058,
51504, 53982.
| raðauglýsingar — raðauglýsingar — raðauglýsingar
húsnæöi i boöi
Við Ármúla - Leiga
180 fm salur til leigu, hentar undir verslun,
skrifstofur eða léttan iðnað. Gengið inn af
jarðhæð.
Tilboö sendist augld. Mbl. merkt: „Leiga -
3916.“
Fiskiskip
Til sölu 200 lesta yfirbyggt fiskiskip, smiðaár
1964. Aðalvél er 1000 hestöfl, árg. 1981.
Upplýsingar i sima 53283 og 92-8086.
Sjálfstæðiskvennafélagið
Vörn
Fundur veröur haldinn laugardaginn 23. febrúar kl. 14.00 i Kaupvangi
viö Mýrarveg. Gestur fundarlns veröur Halldóra J. Rafnar formaóur
Landssambands sjálfstæðiskvenna. Kosnir veröa fulltrúar á lands-
fund. Skemmtiatriói. Boðiö upp á veitingar.
Félagskonur fjölmenniö og takiö meó ykkur gesti.
Stjórnin.
Akranes
Almennur stjórnmálafundur veröur haldinn
i Sjálfstæóishúsinu mánudaginn 25. febrúar
kl. 20.30. Alberl Guömundsson fjármálaráö-
herra ræóir sförf og stefnu rikisstjórnarinnar
og svarar fyrirspurnum. Þingmenn Sjálf-
stæóisftokksins i Vesturlandskjördæmi
Friöjón Þórðarson og Valdimar Indriöason
mæfa á fundinn. Allir velkomnir.
Fulltrúaráö sjálfstæðistélaganna Akranesi.
Seltirningar
FUS Baldur og Sjálfstæöisfólag Seltirninga halda almennan fund um
bæjarmáiefni mánudaginn 25. febrúar kl. 20.30 i Sjálfstæóishúsinu
að Austurströnd 3.
Bæjarfulltrúar flokksins halda framsögu og sitja fyrir svörum.
Bæjarbúar fjölmennum og fræöumst um rekstur og framtiöaráform í
bænum okkar.
Léttar veitingar.
Stjómin.
TýrKópavogi
Uppsagnir framhaldsskólakennara
Ragnhildur Helgadóttir menntamálaráö-
herra veröur gestur á rabbfundi Týs F.U.S.
Kópavogi laugardaginn 23. febrúar kl. 15.00
i Sjálfstæóishúsinu aö Hamraborg 1, 3.
hæö. Framhaldsskólanemendur og kennar-
ar eru hvattir til aó koma og taka þátt í
umræöum og þiggja kaffiveitingar viö
vægu verói.
Stjórn Týs.
Árnessýsla - Selfoss
Aöalfundur fuiltrúaráós sjálfstæóisfélaganna i Arnessýslu veröur
haldinn i Sjálfstæöishúsinu aó Tryggvagötu 8. Selfossi, þriöjudaginn
26. þ.m. kl. 21.00.
Dagskrá: Aðalfundarstörf. «...
Jón Magnússson lögfræöingur
Hann kemur i kjaliara Valhallar Háaleitisbraut 1, föstudaginn 22.
febrúar kl. 21.00 og ræöir þaö sem efst er á baugi i þjóömálum.
Er Jón Magnússon i stjórnarandstöóu?
Neytendamál: Er S.I.S. eitthvaó ofan á brauó?
Heimdellingar mætum timanlega og fjölmennum á áhugavekjandi
.rabbkvöld“.
Ath.: Léttar veitingar.
Sjálfstæðiskvennafélagið
Vorboði — Hafnarfirði
Almennur tundur veröur haldinn
mánudaginn 25. febrúar nk. kl. 20.30 i
Sjálfstæóishúsinu vió Strandgötu.
Fundarefni:
Kosning sex viðbotarfulltrua i fulltrúaráó
v/breytinga á lögum þess.
Gestur fundarins veröur Þorsteinn Pálsson
formaöur flokksins. Kaffiveitingar.
Mætiö stundvislega og takiö meö ykkur
gesti.
Stjórnin.