Morgunblaðið - 10.04.1985, Qupperneq 7
Viktoría Mullova á
tónleikum Sinfóníu-
hljómsveitar íslands
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 10. APRÍL 1985
1 I ■....- - ■ ■ ' "■
Morgunblaöiö/Júlíus
Frá blaöamannafundi áhugamanna um úrbætur í húsnædismálum. Frá vinstri Baldur Gíslason, Ögmundur
Jónasson, Björn Olafsson, Sturla Þengilsson og Sigurgeir Þorgeirsson.
Áhugamenn um úrbætur í húsnæðismálum:
Leiðrétta þarf óréttmætar
umframgreiðslur hús-
byggjenda og íbúðakaupenda
Vuktoria Mullova, landflótta sov-
éskur flðluleikari, kemur hingað til
lands á næstunni og mun leika með
Sinfóníhljósveit íslands á tónleikum
hljómsveitarinnar 18. apríl og á tón-
leikum á vegum Tónlistafélagsins
20. aprfl nk.
Eins og kom fram í frétt í Mbl.
fyrir helgi hefur Mullova nýlega
eignast Stradivarius-fiðlu af
vandaðri gerð, fyrir tilstilli
ónefndra bandarískra samtaka.
Viktoría Mullova, flðluleikari.
VALUR Arnþórsson stjórnarformað-
ur Sambandsins hafði sambandi við
Morgunblaðið í gær, og óskaði eftir
að koma á framfæri athugasemd
vegna fréttar sem birtist í Morgun-
blaðinu þriðjudaginn 2. aprfl sl. Þar
var greint frá því að Sambandsstjórn
hefði á fundi sínum, þann 1. aprfl
kannað „hver hugur Vals væri til
starfs forstjóra Sambandsins, ef
stjórnin færi þess á leit við hann að
hann tæki að sér starfið". Jafnframt
var greint frá því að Valur hefði lýst
sig „reiðubúinn til þess að taka að
sér starflð ef hann væri beðinn um
það“.
Athugasemd Vals er svohljóð-
andi: „Eg hef ekki gefið yfirlýs-
Ekið á stúlku
á Flateyri
Halejrri, 9. apríl
EKIÐ var á stúlku á Flateyri síðast-
liðinn mánudag, 8. aprfl. Stúlkan er
mikið slösuð. Hún er mjaðmagrind-
arbrotin, eða þríbrotin eins og sagt
er.
Hún var flutt með sjúkrabfl í
sjúkrahúsið á ísafirði. Grunur
leikur á ölvun ökumanns sem var
að koma af dansleik. Mun þetta
hafa átt sér stað á milli klukkan 4
og 5 um morguninn. Lögreglan á
ísafirði óskar eftir að vitni að
slysinu gefi sig fram.
- BIH
Wterkurog
kJ hagkvæmur
auglýsingamióill!
Sína fyrstu tónleika hélt Mull-
ova tólf ára gömul og þá strax
komu hæfileikar hennar í ljós.
Hún stundaði tónlistarnám i
Moskvu hjá V. Bronin frá 1969 til
1978 og síðan í Tónlistarskóla
Moskvu hjá Leonid Kogan.
Hún vakti fyrst athygli á al-
þjóðavettvangi eftir að hún vann
til fyrstu verðlauna í Wieniawski,
samkeppninni í Varsjá 1975 og
einnig Sibelius samkeppnina í
Helsinki 1981.
Gullverðlaun fékk hún í Tchaik-
ovsky samkeppninni í Moskvu
1982 en notaði síðan tækifærið
þegar hún var á tónleikaferð um
Finnland í júlí 1983 og bað um
hæli, sem pólítískur flóttamaður.
Frá því Mullova flutti til Banda-
ríkjanna hefur hún meðal annars
komið fram, sem einleikari hjá
Berlínar fílharmoníunni undir
stjórn Seiji Ozawa, Konunglegu
filharmoníunni í London undir
stjórn Okko Kamu og Sinfóníu-
hljómsveit Lundúna undir stjórn
Maxim Shostakovich og hvarvetna
fengið góða dóma, sem einstakur
fiðluleikari.
Sjónvarpstöðvarnar BBC og
ABC, hafa látið gera heimildar-
kvikmynd um líf og tónlistarferil
Mullovu, sem sýnd hefur verið
viða um heim.
ingu um það að ég sé fús til að
taka þetta starf að mér. Að öðru
leyti er þetta ekki til umræðu á
opinberum vettvangi á þessu stigi.
Stjórn Sambandsins er að fjalla
um það hvernig best verði ráðstaf-
að forstjóraembættinu eftir að
Erlendur Einarsson lætur af
störfum. Það stefnir í mjög víð-
tæka samstöðu um lausn þessa
máls, og frá niðurstöðu verður
skýrt, þegar hún liggur fyrir.“
ÁHUGAMENN um úrbætur í hús-
næóismálum afhentu ríkisstjórn-
inni í gærmorgun ábendingu um
leió til lausnar þeim vanda sem
hefur skapast í húsnæóismálum
hér á landi á undanfórnum árum.
I greinargerð með tillögunum
segir að áhugamenn um úrbætur
í húsnæðismálum hafi ítrekað
bent á að vegna misgengis launa
og lánskjara hafa mörg hundruð
milljónir króna verið lagðar
aukalega á lántakendur á undan-
förnum árum og er með öllu
óréttlætanlegt að vísitölubinda
lánskjör en ekki laun.
Ennfremur segir að með stór-
hækkun vaxta hafi húsnæðis-
kaupendur verið neyddir til þess
að reiða af hendi mörg hundruð
milljónir króna umfram það sem
eðlilegt getur talist. Þá fara þeir
fram á að þær ráðstafanir sem
nú verður gripið til miði að því
að leiðrétta þessar óréttmætu
umframgreiðslur. Jafnframt
verði tryggt að misgengi af
þessu tagi skapist ekki í framtíð-
inni og að raunvextir af lánum
til húsnæðiskaupa verði aldrei
hærri en 2%.
Áhugamenn um úrbætur í
húsnæðismálum benda á leið til
lausnar þeim vanda sem þegar
hefur skapast og er hún á þessa
leið:
a) Leiðrétting á umfram-
greiðslum undanfarinna ára.
Veittur verði sérstakur
skattaafsláttur (verðtryggður)
þegar á þessu ári og á næstu ár-
um til að mæta þeim umfram-
greiðslum sem þegar hafa átt sér
stað. Afsláttur þessi geti komið
til útborgunar hjá tekjulágum
einstaklingum. Honum skal
jafna niður á jafnlangan tíma og
umframgreiðslur mynduðust hjá
viðkomandi einstaklingi. í lána-
kerfi Húsnæðisstofnunar væri
og möguleiki á að láta um-
framgreiðslur síðustu ára ganga
upp í greiðslur næstu ára.
b) Viðbótarlán frá Húsnæð-
isstofnun.
Gefinn verði kostur á viðbót-
arlánum á sömu kjörum og til
jafnlangs tíma og hagstæðustu
lán stofnunarinnar eru veitt, til
greiðslu lausaskulda vegna hús-
næðisöflunar, þ.e.a.s. skamm-
tímalána við banka, byggingar-
vöruverslanir, byggingarfyrir-
tæki og þ.h. svo og til að greiða
upp önnur óhagstæð lán sem
fólk hefur neyðst til að taka í
vandræðum sínum.
c) Skuldbreyting og lenging
lána.
Gefinn verði kostur á skuld-
breytingu lána til að minnsta
kosti 8 ára á hagstæðustu mögu-
legu lánskjörum og án lántöku-
kostnaðar. Fyrsti gjalddagi
þessara lána verði 6—10 mánuð-
um eftir skuldbreytingu, þannig
að fólki gefist svigrúm til að
greiða gjaldfallna heimilisreikn-
inga.
Að síðustu er lögð áhersla á
nauðsyn þess að endurskipu-
leggja allt húsnæðislánakerfið.
M.a. verði séð til þess að láns-
hlutfall hækki, kaupendur gam-
als og nýs húsnæðis sitji við
sama borð og endurgreiðslukerfi
taki mið af þróun kauptaxta.
Á fundi þar sem þessar tillög-
ur voru kynntar fréttamönnum
kom fram að hópnum hafi alls
staðar verið vel tekið. Hinsvegar
væri ljóst að húsbyggjendur og
íbúðakaupendur væru farnir að
ókyrrast.
Valin sumarhús í hjarta Miö-Evrópu
ÞYZKALAND
kvnnt
í kvölcfl
Okeypis feröahappdrætti.
Vinsamlegast tilkynniö þátttöku í síma 26611 og OK©ypÍS aögangur meöan hús-
20100.
rúm leyfir.
Okeypis feröafræösla Útsýnar í
ráöstefnusal Hótels Loftleiöa, miöviku-
daginn 10. apríl kl. 20.30.
Bernkastel-Kues í Mosel-
dalnum og Dorint Sporthotel & Ferien-
park í Bitburg.
Ása María Valdimarsdóttir farar-
stjóri og Ingiveig Gunnarsdóttir far-
arstjóri annast fræöslukvöldiö.
Feröaskrifstofan
ÚTSÝN
Athugasemd frá Val
Arnþórssyni stjórnarfor-
manni Sambandsins