Morgunblaðið - 10.04.1985, Blaðsíða 32
32
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 10. APRÍL 1985
Kína:
Bábilja að trúar-
brögðin séu bara
„ópíum fólksinsu
Peking, 9. apríl. AP.
VIRTUR, kínverskur frædimaöur hefur opinberlega mælt í
mót þeirri gömlu kenningu marxista, að trúarbrögðin séu
„ópíum fólksins“, og segir hann, að miklu skipti fyrir framtíð-
arþróun þjóðarinnar, að þessari bábilju sé varpað fyrir róða.
Zhao Fusan, sem sæti á í póli-
tísku ráðgjafarþingi Kínverska al-
þýðulýðveldisins, lét þessi orð
falla í ræðu, sem hann hélt fyrir
þingiheimi sl. mánudag, en hann
var áður aðstoðarframkvæmda-
stjóri félagsvísindaakademíunnar,
þeirrar deildar hennar, sem fjall-
ar um trúarbrögð.
„Trúarbrögðin eru samofin and-
legri menningu allra þjóða,“ sagði
Frá síðustu heræfingu Varsjárbandalagsins í Tékkóslóvakíu.
Tillagan gerð til að njörva
niður yfirburði Sovétmanna
— segir talsmaður Bandaríkjastjórnar um tillögu Gorbache vs
Zhao, „og þess vegna er nauðsyn-
legt að líta þau raunsæjum aug-
um. Bókmennir allra þjóða, listir,
byggingarlist, heimspeki, siðir og
lífshættir endurspegla trúarlega
reynslu á einn eða annan hátt. Sú
skoðun, að trúin sé aðeins andlegt
ópinm er því bæði óvísindaleg og
frumstæð."
Frá því var skýrt um páskana,
að heimssamband biblíufélaga
hefði verið beðið um að hjálpa til
við prentun biblía og annarra
kristilegra rita fyrir kristna Kín-
verja. Var samið um þetta í Hong
Kong í mars sl. að sögn Han
Wenzao, framkvæmdastjóra Sam-
bands kristinna safnaða í Kína.
Verður komið upp prentsmiðju í
Nanking, sem prentað getur hálfa
milljón biblía á ári. Mikið hefur
verið um, að biblíum hafi verið
smyglað til Kína því að þær hafa
löngum verið bannaðar í landinu.
SuU Barbara, Washinifton. London. 9. april. AP.
BANDARÍKJASTJÓRN sagði í gær um þá ákvörðun Sovét-
stjórnarinnar að hætta í bili uppsetningu meðaldrægra eld-
flauga í Austur-Evrópu að hún væri „ófullnægjandi“ og til
þess eins gerð að „staðfesta“
hvað varðaði kjarnorkuvopn.
í viðtali við Gorbachev, leiðtoga
Sovétmanna, sem TASS-frétta-
stofan greindi frá, kvaðst hann
vilja finna Reagan, Bandaríkja-
forseta, að máli og að hann hefði
einnig ákveðið að ekki yrði komið
fyrir fleiri meðaldrægum eld-
flaugum í Austur-Evrópu þar til í
nóvember nk. Sagði hann fram-
haldið ráðast af því hvort Banda-
ríkjastjórn færi að dæmi Sovét-
manna og hætti uppsetningu
samskonar eldflauga í Vestur-
Evrópu.
Larry Speakes, talsmaður Hvíta
hússins, sagði á fundi með frétta-
mönnum í gær, mánudag, að yfir-
burðir Sovétmanna væru nú þeir,
að þeir hefðu 10 eldflaugar á móti
hverri einni, sem Vesturveldin
réðu yfir, og að þess vegna virtist
tillaga Gorbachevs ekki vera ann-
að en tilraun til að njörva þessa
yfirburði niður. Því kæmi ekki til
mála, að Bandaríkjamenn féllu frá
ákvörðun Atlantshafsbandalags-
ins um að koma upp 572 meðal-
drægum eldflaugum í Vestur-
algera yfirburði Sovétmanna
Evrópu.
Viðbrögðin í Vestur-Evrópu
hafa verið með ýmsu móti. Flestir
þjóðarleiðtogar hafa enn ekkert
um tillögu Gorbachevs sagt en
Margaret Thatcher sagði um
hana, að hún væri fáránleg og til
þess eins fallin að ákveða að Sov-
étmenn ættu að bera höfuð og
herðar yfir vestræn ríki í vopna-
búnaði. Denis Healey, talsmaður
Verkamannaflokksins breska,
fagnaði hins vegar tillögunni.
Stjórnmálaskýrendur margir
telja tillögu Gorbachevs gerða til
að reka fleyg á milli Bandaríkja-
manna og bandamanna þeirra í
Vestur-Evrópu. Var raunar búist
við tilraunum i þá átt samfara
viðræðum stórveldanna í Genf en
bandarískir embættismenn telja.a
ð Sovétmenn þykist aðeins eiga
eitt erindi í þessar viðræður og
það er að koma í veg fyrir geim-
varnaráætlanir Bandaríkjastjórn-
ar. Til að ná því markmiði hyggist
þeir sýna sveigjanleika í samning-
um um meðaldrægu flaugamar að
Grikkland:
Harðskeytt kosninga-
barátta fer í hönd
AþeDU, 6.—9. mpr. AP.
STJÓRNMÁLASÉRFR/EÐINGAR spá því, að í hönd fari mjög harðskeytt
kosningabarátta í Grikklandi, eftir fjölmennan útifund Nýja Lýðræðisflokks-
ins á Syntamagtorgi í Aþenu á föstudag. Konstantin Mitsotakis, formaður
flokksins, gerði þar harða hríð að Adreas Papandreou, forsætisráðherra,
fordæmdi óstjórn hans á kjörtímabilinu, hringl og vingulshátt í utanríkis-
málum og síðast en ekki sízt lögleysu við forsetakosningarnar á dögunum.
Papandreou hafði í miðri síð-
ustu viku óskað eftir því við Zartz-
etakis forseta, að hann ryfi þing
svo að hægt væri að boða til kosn-
inga í júní eða um það bil 4 mán-
uðum fyrr en áætlaö hafði verið.
Búizt hafði verið við því að Pap-
andreou tæki ákvöruðun um að
flýta kosningum, eftir það sem á
undan var gengið. Þegar þetta er
ritað hefur kosningadagur ekki
verið ákveðinn, en samkvæmt
óstaðfestum heimildum segir að
líklegast sé að kosningarnar verði
2. eða 9. júní.
AP-fréttastofan segir að óhætt
sé að fullyrða að mikill hiti sé í
mönnum í upphafi kosningabar-
áttu og þar sem Mitsotakis for-
maður Nýja lýðræðisflokksins,
njóti vaxandi fylgis geti orðið
mjótt á mununum.
því marki, að Vestur-Evrópuþjóð-
irnar leggi að Bandaríkjastjórn að
semja um geimvarnirnar.
Tillaga Gorbachevs kemur mán-
uði áður en Reagan og aðrir leið-
togar vestrænna þjóða hittast á
árlegum fundi í Bonn í Vestur-
Þýskalandi og minnir um sumt á
„friðarsókn" Sovétmanna árið
1983, sem hafði það að markmiði
að hindra uppsetningu meðal-
drægu eldflauganna. Var þá ekki
síst höfðað til friðarhreyfinganna,
sem eru margar fjölmennar á
Vesturlöndum en bannaðar aust-
antjalds. Þegar þessi áætlun Sov-
étmanna fór út um þúfur hættu
þeir viðræðunum um kjarnorku-
vopnin.
Tillaga Gorbachevs nú er ekki
síður en fyrr stíluð til friðarhreyf-
inganna og viðbrögð forystu-
manna hennar hafa ekki látið á
sér standa. Hafa þeir skorað á
Bandaríkjastjórn að ganga að til-
lögu Gorbachevs.
Japanir boða nýjar
efnahagsráðstafanir
Tókýó, 9. »prfl. AP.
YASUHIRO Nakasone, forsætisráð-
berra Japans, skoraði á Japani í dag
að vinna með stjórnvöldum að fram-
gangi nýrrar þriggja ára áætlunar,
sem miðar að því að opna japanskan
heimamarkað meira fyrir erlendum
framleiðsluvörum, með því að kaupa
meira af innfluttri vöru.
Áætlunin var kynnt fyrr í dag
og samkvæmt henni verða gerðar
ýmsar ráðstafanir í viðskiptamál-
um til að koma til móts við kröfur
Bandaríkjamanna og annarra
helztu viðskiptaþjóða Japana.
Það sýnir hve mikla þýðingu
japanska stjórnin telur þetta mál
hafa að Nakasone kynnti áætlun-
ina í ræðu, sem var sjónvarpað, og
á blaðamannafundi.
Hann skoraði á viðskiptaþjóðir
Japana að falla ekki í þá freistni
að taka upp verndarstefnu og hét
því að hrinda hinni nýju við-
skiptaáætlun í framkvæmd án taf-
ar.
Við Japani sagði hann: „Ég bið
ykkur alla að vera opnir fyrir er-
lendum vörutegundum til þess að
bæta afkomu ykkar."
Hann lét einnig í ljós þá von að
kaupsýslumenn gerðu sér grein
fyrir því að útflutningur einn gæti
ekki leitt til stöðugt aukinna
viðskipta og snurðulausra sam-
skipta við aðrar þjóðir á sviði
efnahagsmála og að þeir reyndu
að auka innflutning á fullunninni
framleiðsluvöru.
Nakasone minnti á að Japanir
hefðu hagnazt mikið á frjálsri
verzlun eftir síðari heimsstyrjöld-
ina. Hann sagði að tæknibreyt-
ingar væru að færa heiminn inn á
„nýtt þróunarstig" og að vernd-
arstefna fæli í sér þá hættu að
Japanir misstu af tækifærum, sem
gætu leitt til slíkrar nýrrar þróun-
Banel, Svíhh, 8. aprfl. AP.
FRAMLEIÐENDUR tveggja gigtar-
lyfja tilkynntu í dag, að hætt yrði
sölu þeirra vegna gruns um, að lyfin
geti valdið ýmsum óæskilegum
aukaverkunum. Talið er, að um 200
milljónir manna víða um heim noti
þessi lyf, sem heita Butazolidin og
Tanderil.
Talsmenn svissneska lyfjafyr-
irtækisins Ciba-Geigy skýrðu frá
því í dag, að framleiðslu og sölu
Hann sagði að nýja áætlunin
kæmi ekki aðeins Bandaríkja-
mönnum til góða, heldur þjóðum
um allan heim. Þetta er sjöunda
áætlun Japana af þessu tagi síðan
1981.
Hin nýja áætlun bendir til þess
að Japanir hafi gengið að nokkr-
um kröfum Bandaríkjamanna um
aukinn aðgang að miklum fjar-
skiptamarkaði Japans. Ekki er
gert ráð fyrir nýjum tollalækkun-
um, en sagt að þeim verði komið á
síðar á þessu ári.
þessara lyfja yrði hætt en víða en
einkum þó f Bandaríkjunum og
Svíþjóð hefur verið varað við þeim
og því haldið fram, að þau hafi
valdið dauða allt að 10.000 manna.
Talsmenn fyrirtækisins lögðu þó
áherslu á, að engin hætta væri á
ferðum fyrir gigtarsjúklinga, sem
nota þessi lyf, og bentu á, að þau
hefðu verið notuð um áratuga-
skeið.
Framleiðsla tveggja
gigtarlyfja stöðvuð