Morgunblaðið - 10.04.1985, Blaðsíða 20
20
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 10. APRÍL 1985
MR getur annað
allri eftirspurn
eftir fiskafóðri
MR-fiskafóðrið 20—25 % ódýrara en innflutt
MJÓLKURFÉLAG Reykjavíkur hefur hafiö framleiðslu á fiska-
fóðri í fóðurverksmiðju sinni í Sundahófn. Framleiðir fyrirtækið
fóðrið eftir framleiðsluleyfi frá bandaríska fyrirtækinu Silver
cup og er það 20—25 % ódýrara en innflutt fiskafóður, að sögn
Sigurðar Eyjólfssonar, framkvæmdastjóra MR.
Fyrirtækið þurfti að bæta við
vélum í fóðurverksmiðjunni til
að geta hafið framleiðslu fiska-
fóðurs og er framleiðslugetan
16688
Sérbýli
nokkur þúsund tonn. Getur MR
annað allri þörf landsmanna
fyrir fiskafóður, að sögn Sigurð-
ar. Á síðastliðnu ári voru flutt
inn um 400 tonn af fiskafóðri og
áætlað er að þörfin verði 6—700
tonn á þessu ári og fari sífellt
vaxandi með aukningu í fiskeldi
hérlendis. Sagði Sigurður þó að
þrátt fyrir lægra verð innlenda
Morgunblaftið/Árni Sæberg
Guðmundur Leifsson verksmidjustjóri í fóðurverksmiðju MR að sekkja í
einn af fyrstu pokunum af fiskafóðri sem MR hefur hafið framleiðslu á.
fóðursins væri nokkuð víst að
einhver eldisfyrirtæki haldi
áfram að kaupa innflutt fóður.
Sigurður sagði að framleiðsla
MR ætti að vera nákvæmlega
jafn góð og innflutta fóðrið en
sagði að verðmismunurinn fæl-
ist í því að uppistaðan í fóðrinu
væri innlent hráefni, það er
loðnu- og síldarmjöl. MR keypti
þetta mjöl frá Akureyri og kost-
aði flutningur þess til Reykja-
víkur að sjálfsögðu minna en
flutningur þess á milli landa
eins og væri með innflutta
fiskafóðrið. Fiskimjöl er um
50% hráefnisins í fiskafóðrið og
lýsi, sem einnig er innlent hrá-
efni, er 10—15%. Önnur efni
þarf áfram að flytja inn. Sagði
Sigurður að rækjumjöl yrði not-
að í framleiðsluna þegar það
fengist hér innanlands og væri
þá innlenda hráefnið orðið yfir
70% í fiskafóðrinu.
Framleiðsla MR á fiskafóðri
hófst 29. mars sl. Að sögn Sig-
urðar er framleitt laxafóður og
silungafóður, hvorutveggja með
mismunandi kornastærðum.
Fóðrið er framleitt undir merki
MR en er eins og áður segir
framleitt með framleiðsluleyfi
frá Silver cup eftir þeirra upp-
skriftum.
Grafarvogur - parhús
Rúmlega 230 fm vel byggt
timburhús með bílsk. við
Logafold. Verö 2850 þús.
Langageröi - einbýli
Mjög gott 200 fm einbýli. 40 fm
bilskúr. Verð 4,9 millj.
Kópavogsbraut - parhús
Gott parhús á 2 hæðum. 130 fm.
30 fm bílsk. Verð 2,5 millj.
Brekkubyggð - raöhús
Fallegt litiö endaraöhús með
vönduðum innr. Bílskúr. Tilboö.
Miötún - einbýli
Einbýli á tveim hæðum. Bilskúr.
Góður garður. Verð: tilboö.
Selás - einbýli
Mjög fallegt ca. 180 fm á einní
hæð. 40 fm bilskúr.
Heiöarás - eínbýli
Ca. 280 fm á tveim hæöum. Verð
4,5 millj.
Viö Sundin - parhús
Nýtt 240 fm hús. Mögul. á sérib.
í kj. Verö 3,8 millj.
Stærri íbúðir
Sigtún - sérhæö
Mjög falleg sérh. m. bílsk. á
fegursta staö viö Sigtún. Verð
tilboð.
Ártúnsholt - penthouse
150 fm á tveimur hæðum.
Nánast tilb. Verö 3,1 millj.
Búöargeröi - 4ra herb.
Falleg ib. á 1. hæö. Ný teppi.
Góö sameign. Verö 2,2 millj.
Engihjalli
Góð 120 fm 4ra herb. ib. við
Engihjalla. Verð 2,2 millj.
Lindarsel - 3ja herb.
Falleg 100 fm hæö viö Lindarsel.
Verö 1800 þús.
Vesturberg - 4ra herb.
110 fm falleg ib. á 4. hæö. Góðar
innr. Gott útsýni. Verð 1950 þús.
Minni íbúöir
Krummahólar
Óvenju falleg ca. 100 fm á 1.
hæð. Sérgaröur. Bilskýli. Verð
2,1 millj.
Engihjalli - 2ja herb.
Mjög falleg 2ja herb. ib. i 2ja
hæða blokk. Verð: tilboö.
Hlíóar - 3ja herb.
Mjög falleg mikiö endurn. á 1.
hæð. Skipti á stærri eign. Verð
1800 þús.
Sólvallagata - 2ja herb.
60 fm vönduð ib. á 1. hæö i nýl.
húsi. Verö: tilboð.
Stýrimannastígur
65 fm falleg jaröhæö i steinhúsi.
Góö ib. i góðu umhverfi. Verö
1450 þús.
Lóö • Álftanesi
Ca. 1.000 fm. Öll gjöld greidd.
Sjávarlóð. Verð 500-600 þús.
LAUGAVEGUR »7 2.M*0
16688 — 13837
Htukur Biarnaton, M/.
-
Vesturberg — 2ja herbergja íbúö
Til söfu er 2ja herb. Ibúö i ha*ö i 3ja hœöa húsi vlö Vesturberg Sérþvottahús innal
eldhúsi Góöar innréttingar. Stutt I öil sameiginleg þaaglndi svo sem verslanir, skóla
o.ft. Einkamala.
Laxakvísl — fokhelt hús
TH sölu er á góöum staö fokhelt raðhús á 2 hæöum ca. 200 fm ásamt 38,5 fm bllsk
Vandaö litaö þakefni er komiö á þakiö. Arinn i stofu. Afhandist atrax. Teikning til
sýnis. Einkasala. Skipti koma til greina.
Kleppsvegur viö Sundin
Tit sölu er 4ra herb. ib. á 3. hæö (efstu hæö) 16 ibúöa stlgahúsi vlö Sundln. Er i ágætu
standi. Miklar Innréttlngar. Gott útsýnl. Mjög góöur ataöur I borginni.
Eskihlíó — 6 herb. — Laus fljótlega
Var að fá i sðlu 6 herb. ib. á 1. hæö (2 samliggjandi stofur. 4 svefnherb.) Mlklir
akápar. Mjög góður ataöur Elnkaaala.
Rauöalækur — Laus fljótlega
Var aö fá i sölu 6 Iterb. ib. á 4. hæö i 4ra Ib. húsi (2 samliggjandi góöar stotur og 4
herb. þar af 1 forstofuherb ). Nýtt verksmiöjugler. Mikiö útsýnl. Agætur staöur.
Möguleiki aö taka minni fb. i lyftuhúsi eöa á 1. aöa 2. hæö uppl kaupin, en
aöeins fyrir vestan Elliöaár.
íbúö vantar — Mjög góö og hröö útborgun
Hef mjög góöan kaupanda aö stórrl hæð i lyftuhúsi eöa á 1. eöa 2. hæö I húsi tyrir
vestan Elliöaár Vinaamlegaat hrlngiö atrax.
íbúöir óskast til sölu
Hef kaupendur aö fiestum stæröum og geröum ibúöa og húsa. Sklptl oft möguleg.
Einkum vantar 2ja og 3ja herb. ib. Vinsamlegaat hafiö aamband atrax eöa aem fyrst.
Árni Stefánsson hrl.
MwrgMu4LSM 14314.
KeMMmi 34X31.
Félag
íslenskra iönrekenda
Háskóli
íslands
Vöruþróun og
markaðsmál
Raddir úr
atvinnulífinu
Félag íslenskra iðnrekenda og Háskóli íslands hafa
ákveðið að skipuleggja fyrirlestra nú á vormisseri
undir yfirskriftinni „Vöruþróun og markaðsmár.
Fyrirlesarar eru allir starfandi framkvæmdastjórar í
íslenskum iönfyrirtækjum.
Með þessu vilja FÍI og Háskóli Islands leggja sítt af
mörkum til þess aö auka tengsl Háskólans viö at-
vinnulífið í landinu.
Veröur þriöji fyrirlesturinn haldinn miðvikudaginn 10.
april nk. kl. 17.00.
Staóur: Hugvísindahús Háskóla íslands stofa H101.
Efni: Vöruþróun og markaössetning í sjávarútvegi.
Fyrirlesari: Magnús Gústafsson framkvæmdastjóri
hjá Coldwater Seafood Corporation í Bandaríkjun-
um, dótturfyrirtækis Sölumiöstöövar hraöfrystihús-
anna.
Fyrirlesturinn er öllum opinn.
Skagafjörður:
Lífríkiö sýnist
í góðri framför
Höráaströnd.». xpril.
KULDAKAST kom hér nokkra daga
og dálítill snjór, sem nú er að hverfa
aftur, því að hiti er nú 4—8 griður
dagiega. En um nætur er þó um núll
gráður og niður í tvær gráður.
Nýlega hætti Karl Antonsson,
póst- og símstjóri á Hofsósi, og
tók við símstjórastörfum á ólafs-
firði. Við sáum eftir Karli, því
hann reyndist okkur vel. Póst- og
símstjóri hér er mér sagt að verði
Einar Jóhannsson, Hofsósi. Hann
er fæddur og uppalinn hér og öll-
um að góðu kunnur. Fylgja honum
og Ernu Geirmundsdóttur konu
hans góðar óskir frá okkur öllum.
Eins og ég hef áður sagt frá
virðist sjórinn líflegri en undan-
farin ár hér inná Skagafirði. í
mars var sjór tveggja gráða heitur
en mjög oft áður á sama tíma hef-
ur hann verið í núlli. Líklegast eru
það loðnutorfur, sem sjást með
landi, og lífríkið á Skagafirði sýn-
ist mér mjög í framför. Fuglmergð
er mikil, sem situr og étur loðnu.
Þorskgengd virðist vera í norðan-
verðum firðinum og er fiskur út-
troðinn af loðnu. í síðustu umvitj-
unum grásleppunetabáts frá
Hofsósi hefur verið dágóður afli,
eða um 400—700 stykki í vitjun. í
þau net fékkst þá einnig nokkuð af
þorski.
Silungsveiði virðist aukast tölu-
vert í vötnum Skagafjarðar.
Mér finnst vorið vera að koma.
Lengra sólfar, hlýr sjór, allt gefur
þetta góðar vonir.
— Björn í Bæ
Alþingi:
Tölvuvæðing að hefjast
ALÞINGI hefur óskað tilboða vegna
tölvukaupa, sem verða fyrsti áfang-
inn í tölvuvæóingu skrifstofu þings-
ins.
Friðrik ólafsson, skrifstofu-
stjóri Alþingis, sagði að í þessum
fyrsta áfanga yrðu keyptar tölvur
til ritvinnslu. „Með því að nota
tölvur við ritun þingtíðinda er
hægt að spara setningarkostnað-
inn,“ sagði hann. „Nú eru allar
umræður og þingskjöl vélrituð,
síðan lesa prófarkalesarar það yf-
ir og loks fer allt i setningu í
prentsmiðju. Tölvurnar auðvelda
og flýta fyrir allri vinnslu, t.d. er
fljótgert að leita upplýsinga með
þeirra aðstoð, varðandi tillögur,
umræður og fleira. Einnig er hægt
að veita upplýsingar um hvar mál-
in eru stödd, hvort þau séu í efri
deild eða neðri, eða hvort þau eru í
nefnd.“
Friðrik sagði að 12—14 tölvur
yrðu keyptar núna, en það ætti að
fara rólega af stað. Starfsfólk
þingsins þyrfti að fara i þjálfun og
áhersla væri lögð á að taka eitt
skref í einu en ekki stórt stökk,
svo reynslan gæti sýnt hvernig
best beri að haga tölvuvæðing-
unni.
S621600
Holtsgata
Til sölu 3ja-4ra herb. sérlega glæsileg rishæö. Parket á
öllum gólfum. Viöarklædd loft. Skjólgóðar suöursvalir.
Eign i sérflokki.
S621600
Borgartun 29
Ragnar Tomiuon hdl
útHUSAKAUP
Áskriftcirsíminn er 83033