Morgunblaðið - 09.05.1985, Page 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMfUDAGUR 9. MAÍ1985
Sparisjóðurinn í Keflavík:
Stærsti spari-
sjóður landsins
SPARISJÖÐURINN í Keflavík var stærsti sparisjóður landsins á
síðasta ári með innstæður er námu 726 milljónum kr., en það er
annað árið í röð sem Sparisjóðurinn í Keflavík er stærstur sparisjóða.
Aukning innstæða í Sparisjóðnum í Keflavík á sl. ári varð 37% miðað
við árið á undan, sem er nokkru hærra en almennt gerðist á árinu.
Næststærsti sparisjóðurinn var Sparisjóður Reykjavíkur og nágrennis
með 614 milljónir kr. í innstæðum og varð aukning innstæða frá fyrra
ári 30% en Sparisjóður Hafnarfjarðar var þriðji stærsti sparisjóðurinn
með 560 milljóna kr. innstæður.
Magnús Haraidsson skrifstofustjóri, Tómas Tómasson sparisjóðsstjóri og Geirmundur Kristinsson aðstoðarspari-
sjóðsstjóri. Myndin er tekin í útibúinu Njarðvík.
Þeir Tómas Tómasson spari-
sjóðsstjóri, Geirmundur Kristins-
son aðstoðarsparisjóðsstjóri og
Magnús Haraldsson skrifstofu-
stjóri kynntu fréttaritara Morg-
unblaðsins rekstur Sparisjóðsins í
Keflavík sl. ár.
Það kom m.a. fram að eins og
áður jókst umfang og velta Spari-
sjóðsins allverulega umfram verð-
bólgustig. Á hinn bóginn dró
verulega úr verðbólgu á sl. ári
miðað við árið á undan þó þyngt
hafi nokkuö undir fæti aftur er
líða tók á síðari hluta ársins. Af
þessum sökum eru einstaka fjár-
hagsstærðir eðlilega nokkru lægri
nú en í árslok 1983, en á það fyrst
og fremst við um vaxtatekjur og
vaxtagjöld og niðurstöðutölur
rekstrarreiknings. Viðmiðun milli
ára er þó óraunhæf hvað þessa
þætti varðar.
Sú stefnubreyting sem varð í
vaxtamálum á sl. ári hefur auð-
vitað sett mjög svip sinn á starf-
semi Sparisjóðsins eins og ann-
arra innlánsstofnana. Samkeppni
um sparifé landsmanna harðnaði
í kjölfarið á auknu frelsi i vaxta-
málum. Ný innlánsform voru tek-
in upp, Sparisjóðurinn ásamt
nokkrum sparisjóðum tók upp
nýtt form innlána, „Trompreikn-
ing“. Ávöxtunarkjör þessa reikn-
ings eru með þeim hætti, að hann
hlaut strax vinsældir, og veru-
legur árangur náðist í samkeppni
um innlánsfé. í árslok voru
Trompreikningar orðnir 978 að
tölu og innstæður 159,0 milljónir
kr.
Rekstrarafkoma
Heildarrekstrartekjur Spari-
sjóðsins voru á árinu 178,0 millj-
ónir kr., svo sem niðurstöður
rekstrarreiknings segja til um.
Heildarvaxtatekjur voru 156,3
milljónir kr. og höfðu hækkað um
60,9 milljónir kr. eða 28%. Vaxta-
tekjur og verðbætur af útlánum
eru 120,7 milljónir kr. og höfðu
hækkaö um 21,8% milljónir kr.
frá fyrra ári, eða 15,3%. Vaxta-
tekjur og verðbætur af fjármun-
um í Seðlabanka urðu aðeins 35,6
milljónir kr. og höfðu stórlækkað
frá fyrra ári, um 39,0 milljónir
kr., eða um 52,3%. Þóknun, þjón-
ustutekjur og ýmsar aðar tekjur
voru 20,9 milljónir kr. og höfðu
aukist um 92,7%. í heild lækkuðu
tekjur um 28,5%.
Heildarútgjöld á árinu fyrir
utan afskriftir af fastafjármun-
um og framlag til afskriftareikn-
ings útlána eru 178,0 milljónir kr.,
eða nánast sama tala og heildar-
tekjur. Vaxtagjöld og verðbætur
af innstæðum voru 110,6 milljónir
kr. og höfðu lækkað um 44,9 millj-
ónir kr. eða um 28,9%. Vaxtagjöld
í Seðlabanka voru 6,9 milljónir kr.
og jukust um 4,2 milljónir kr. frá
fyrra ári.
Laun og launatengd gjöld voru
31,6 milljónir kr. og annar rekstr-
arkostnaður 21,5 milljónir kr.
Launakostnaður hækkaði frá
fyrra ári um 54,8% en sjálf launin
um 43,3%, og annar rekstrar-
kostnaður um 33,7%. Launa-
kostnaður er nú 16,9% af heild-
argjöldum. Á árinu voru 79
starfsmönnum greidd laun, en
starfsmannafjöldinn er 62. Af
fastafjármunum eru afskrifaðar
6,7 milljónir kr. og er það 4,1
milljón kr. meira en á fyrra ári.
Heildarútgjöld hafa lækkað um
12,5% frá fyrra ári.
Niðurstaða rekstrarreiknings
sýnir tap að upphæð 9,9 milljón-
um kr.
Gjaldfærsla v/verðbreytinga,
framlag til afskriftareiknings út-
lána og afskriftir af fastafjár-
munum er 16,2 milljónir kr.
Þróun inn- og útlána
Heildarinnlán f Sparisjóðnum í
árslok voru 726,4 milljónir kr. og
höfðu þau aukist um 196,0 millj-
ónir kr. frá fyrra ári, eða um 37%.
Spariinnlán námu 572,4 milljón-
um kr. en þar af voru innstæður á
gjaldeyrisreikningum 8,9 milljón-
ir kr. Hlutfallsleg aukning spari-
innlána var 34%. Aukning velti-
innlána varð hinsvegar 50,9 millj-
ónir kr. eða 49,3%. Veruleg rýrn-
un hefur orðið á verðtryggðum
innlánsreikningum, eða sem nem-
ur 19,2%. Síðari hluta ársins juk-
ust þó innlán á þessa reikninga
aftur, eða eftir að Trompreikn-
ingarnir voru teknir upp hinn 12.
október.
Innlánsaukning í Sparisjóðnum
var heldur meiri en meðalinnláns-
aukning í banka- og sparisjóða-
kerfinu, en hún varð 34,5%. Hlut-
deild Sparisjóðsins i heildarinn-
lánum þess kerfis er nú 3,42%.
Heildarútlán voru i árslok 535,1
milljón kr. (afskriftareikningur,
útlán ekki talin með) og höfðu þau
aukist um 170,4 milljónir kr. eða
AÐALFUNDUR Verkalýðsfclagsins
Einingar á Akureyri var haldinn
sunnudaginn 21. apríl sl.
í frétt frá Einingu segir að i
skýrslu formanns á fundinum hafi
m.a. komið fram að á siðasta ári
hafi mikil vinna farið í gerð nýrra
kjarasamninga, útgáfu þeirra og
daglegt eftirlit. Þá hafi verið gerð-
ur fjöldi sérkjarasamninga við
einstök fyrirtæki og stofnanir og
vegna einstakra starfshópa auk
aðalkjarasamnings.
um 46,7%. Verðtryggð útlán eru
enn sem árið áður stærsti einstaki
útlánaþátturinn, þó verulegur
samdráttur hafi orðið í þessum
útlánaþætti, eða um 17,8%. Af-
urða- og rekstrarlán til sjávarút-
vegs- og fiskverkunarfyrirtækja
hafa hins vegar aukist hlutfalls-
lega langmest á árinu, eða úr 12,5
milljónum kr. í 54,3 milljónir kr.
eða um 322,1%. Yfirdráttarlán og
lán í formi almennra skuldabréfa
hafa einnig aukist verulega.
Staða við Seðla-
banka íslands
Bundnar innstæður i Seðla-
Atvinnuleysi var talsvert á ár-
inu og námu greiddar bætur til
Einingarfélaga hátt í 20 milljónir
króna. Dagpeningar og styrkir frá
sjúkrasjóði félagsins voru 3,1
milljón króna.
Á síðustu tveimur árum hefur
verið unnið að framkvæmdum við
byggingu nýs verkalýðshúss við
Skipagötu 14 á Akureyri og munu
öll verkalýðsfélög bæjarins hafa
starfsemi þar í framtíðinni. Ein-
ing hafði lagt til byggingar húss-
ins samtals 15 milljónir króna.
banka fslands i árslok 1984 voru
207,5 milljónir kr. og hafa þær
aukist um 46,9 milljónir kr. eða
um 29,2% frá árinu áður. Inn-
stæða á viðskiptareikningi var
14,1 milljón kr. og á gjaldeyris-
reikningi kr. 3,4 milljónir.
Auk innstæða hjá Seðlabanka
íslands eru skyldukvaðir t.d. hjá
ríkissjóði og Framkvæmdasjóði
16,7 milljónir kr. Alls gerir bund-
ið fé í Seðlabanka Islands og
skuldbundin kaup rikisskulda-
bréfa 242,9 milljónir kr. eða
33,5% af heildarinnlánsfé hjá
Sparisjóðnum og er sama hlutfall
og á árinu 1983.
Eignastaðan
Niðurstöðutölur efnahagsreikn-
ings eru 914,5 milljónir kr. og er
aukning um 44,1% frá 1983. Eigið
fé Sparisjóðsins var í árslok 83,7
milljónir kr. (þ.e. eigið fé 77,8
milljónir kr. + afskriftareikningur
útiána 5,9 milljónir kr.) og hafði
aukist um 17,7%. Eiginfjárpró-
senta, þ.e. eigið fé sem hlutfall af
heildareign, er nú 9,15% og hefur
lækkað verulega frá fyrra ári (var
þá 11,21%) og er meginskýringar-
innar auðvitað að leita í lakari
afkomu.
VISA ísland og viðskipti
með erlendan gjaldeyri
Um áramót voru korthafar hjá
Sparisjóðnum 1108 talsins, en f
banka- og sparisjóðakerfinu f
heild 27.552. Veltuhlutfall Spari-
Nokkur félög hafa þegar flutt í
húsið og mun Eining líklega flytja
starfsemi sína þangað nú um
mánaðamótin.
Aðalfélagar í Verkalýðsfélaginu
Einingu eru nú 3.200 og hefur
þeim fækkað um rúmlega 100 frá
siðasta aðalfundi. Aukafélagar
eru 646 og hefur þeim fækkað um
yfir 200 frá í fyrra.
Góð nýting var á orlofshúsum
félagsins. Þá voru tvær ferðir
farnar á vegum ferðanefndar,
önnur um hálendið en hin á Snæ-
sjóðsins í VISA-viðskiptum er
3,48%. Viðskipti við korthafa
hafa gengið vel, en þó hefur því
miður borið á vanskilum á síðustu
mánuðum ársins.
Viðskipti með gjaldeyri, sem
hófust í ársbyrjun, þó í mjög
takmörkuðum mæli, hafa gengið
mjög vel og mælst vel fyrir hjá
viðskiptavinum Sparisjóðsins.
Heildarinnstæða á gjaldeyris-
reikningum í árslok var 8,9 millj-
ónir kr.
Af heildarinnlánum í spari-
sjóðakerfinu í landinu, sem er kr.
3.836 milljónir kr., eru í Spari-
sjóðnum i Keflavík um 19%, eða
726 milljónir kr. Af heildarsparifé
Suðurnesjamanna i bönkum og
sparisjóðum á Suðurnesjum, er
Sparisjóðurinn í Keflavik, ásamt
útibúunum Njarðvík og Garði,
með um 55%, en heildarspariféð
er 1.322 milljónir kr.
Húsnæðisskortur háir starf-
semi Sparisjóðsins i Keflavik, en
starfsemin fer fram á þremur
stöðum við Suðurgötuna. Að
Tjarnargötu 12 stendur yfir bygg-
ing fyrir Sparisjóðinn. Fram-
kvæmdir voru stöðvaðar á sl. ári
en framkvæmdum verður þokað
áfram eftir því sem efni og ástæð-
ur leyfa.
1 stjórn Sparisjóðsins i Kefla-
vík eru: Jón H. Jónsson formaður,
Jón Eysteinsson og Finnbogi
Björnsson.
Sparisjóðsstjórar eru Tómas
Tómasson og Páll Jónsson og að-
stoðarsparisjóðsstjóri Geirmund-
ur Kristinsson. E.G.
fellsnes. Að venju var farin eins
dags ferð með aldraða félags-
menn.
I aðalstjórn félagsins eru Jón
Helgason formaður, Sævar Frí-
mannsson varaformaður, Úlfhild-
ur Rögnvaldsdóttir ritari og Aðal-
heiður Þorleifsdóttir gjaldkeri.
Þau eru öll frá Akureyri. Með-
stjórnendur eru Björn Snæ-
björnsson, Akureyri, Guðrún
Skarphéðinsdóttir, Dalvik og
Matthildur Sigurjónsdóttir, Hrís-
ey.
SparLsjóðurinn í Keflavík við Suðurgötu.
HorgunblaðiA/E.G.
Aðalfundur Verkalýðsfélagsins Einingar:
Atvinnuleysisbætur til Einingar-
félaga hátt í 20 millj. á sfðasta ári