Morgunblaðið - 09.05.1985, Síða 44

Morgunblaðið - 09.05.1985, Síða 44
44 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR y. MAt 1985 \ > ^ 1 Kristján Hall vid nokkur verka sinna. Ljósmynd/Bjami Listamaðurinn er sterkur í mér — segir Kristján Hall, frístundamálari f ListamiAstöðinni við Hafnar- strsti stendur yfir einkasýning á málverkum eftir Kristján Hall. Kristján hefur málað í frístundum sínum allt frá árinu 1963. Fyrir nokkrum árum tók hann sér auk þess eins árs frí frá störfum, sem fjármálastjóri hjá Sól hf. og helg- aði sig myndlistinni. „Listamaðurinn er sterkur í mér,“ segir Kristján, þegar hann er spurður um tilurð myndanna. „Ég er algerlega sjálfmenntaður sem myndlistarmaður. Myndirnar sem ég mála hafa þróast með sjálfum mér. Apa ekki neitt eftir öðrum eða geri eins og aðrir segja að maður eigi að gera. Ég hef ákaflega gaman af ferða- lögum um landið og ferðast mikið allan ársins hring. Mála þá oftast myndirnar á staðnum undir þeim áhrifum sem ég verð fyrir úti í náttúrunni. Eins og sjá má eru mikil „veður" í myndunum eins og í raunveruleikanum. Ég hef gam- an af því að reyna að koma til skila á léreftið hvernig tilfinning það er að sitja fastur i skafli á Holtavörðuheiði og finna fyrir náttúrunni á hressilegan hátt. Myndirnar eru allar málaðar á síðustu tveimur árum og gaman væri ef sýningargestum líkaði við þær.“ Framkvæmdum lokið við Hitaveitu Gnúpverja: íbúar skiluðu 10 þús. vinnustundum við verkið Kaffisala Eyjakvenna KVENFÉLAGIÐ Heimaey 12. maí. heldur sína árlegu kaffisölu á Allur ágóöi sölunnar rennur Hótel Sögu á sunnudaginn, þ.e. til líknarmála. Líf og starfsorka er dýrmætasta eign hvers og eins, enda grundvöllur þeirra verðmæta sem standa undir þörfum einstaklinga og fjölskyldna. Eru þér ljós þau áhrif sem skyndilegt fráfall þitt myndi hafa á stöðu þinna nánustu? Verðtryggð líftrygging veitir fjölskyldu þinni vernd gegn fjár- hagslegum áföllum við óvænt fráfall þitt. Við bjóðum verðtryggingu allt tryggingartímabilið svo líftrygging- in heldur ætíð verðgildi sínu. Verðtryggða líftryggingu er hægt að taka annaðhvort sem einstaklingstryggingu, eða fyrir tvo eða fleiri aðila sem bera fjárhagslega ábyrgð sameiginlega. Hafðu samband við tryggingaráðgjafa okkar - þeir veita allar frekari upplýsingar. ^LÍFTRYGGíNG GAGNKVÍMi TRyGGINGAFUAG BRUNABÓTAFÉLAG ÍSLANDS Skrifstofur Laugavegur 103 105 Reykjavík Sími 91 26055 UMBOÐSMENN UM ALLT LANC Samkór Selfoss syng- ur í Langholtskirkju Selfossi, 7. maí. SAMKÓR Selfoss heldur tónleika í Langholtskirkju í Reykjavík 9. maí kl. 21.00 og þá gefst hófuðstaðarhúum kostur á ac hiýóa á song þessa agæta koru okkar Kórinn heí'us haldiö 8 tönleikti hér austan Hellisheióaí' oj-; ailtax' íyri*' í'ullu húsi. Á et’nisski-ánni es- fjöibreytv; iagp.val, hátíðasöngva; eftís' Bach, þjóðiög og síöar Iéttír sprettis' meö Litif, Sam skemmti- kraft' kórsins. ÞaÖ er óhætt aí hvetja höíuöborgarbúa ac ieggja leið sína í Langholtskirkju og eiga kvöldstund með kórnum. Sig. Jóns. Leiðrétting GREIh Guðjóns F. Teitssonar biaðinu gær misritaðisfc orðiö féð- urtiirauií (stóií *'öðurtiiraun}, og íl ðöruni staö stót'- „tí! stórru hags bóta : þessi. samtai'*’, þa.v áttí aö standa „1 þessu sambandi. — Biðsi blaðið velvirðíngar á bessun mís- tökum Selfossi, 3. maf. AÐ KVÖLDI 30. apríl sl. bauð Hita veita Gnúpverja til samsætis í Ár- nesi í tilefni af því að lokið er fram- kvæmdum við lagningu hitaveitu frá borholu í Þjórsárholti að 30 bæjum í miðsveitinni. Frí því haustið 1983 hafa 12 heimili í framhluta hrepps- ins, á frambæjunum, notið hitaveitu frá Reykjum á Skeiðum. Borhola hitaveitunnar í Þjórs- árholti var virkjuð 1980 og vatn þá lagt að félagsheimilinu Árnesi. Vatnið í holunni er 67 stiga heitt og vatnsmagnið um 40 sekúndu- lítrar. Hitaveita Gnúpverja er einstök að því leyti að vatnið í holunni er ekki heitara en raun ber vitni en samt er ráðist í umfangsmiklar framkvæmdir. Auk þess er hún sérstök vegna hinnar miklu fé- lagslegu samstöðu sem varð um verkið í hreppnum og mun örugg- lega verða litið til Gnúpverja sem fyrirmyndar hvað þetta varðar. Stofnfundur veitunnar var haldinn 1984 og þá gengu allir lög- býliseigendur á veitusvæðinu í fé- lagið, 30 samtals. í fyrstu stjórn veitunnar voru kosnir Páll Stein- arsson, Bjarni Einarsson og Bene- dikt Sigurðsson. Eignaskipting veitunnar er þannig að bændur eiga 60% og hreppurinn 40%. Stjórnin réð sér þrjá menn til ráðuneytis, Benedikt Blöndal lögfræðing, ólaf Bjarna- son verkfræðing, sem hannaði veituna, og Steinþór Gestsson sem var fjármálastjóri á meðan á framkvæmdum stóð. Framkvæmdir hófust í maí 1984 og lauk nú í vor. Framkvæmd verksins er einstök því verktakar voru ekki ráðnir nema í ákveðna verkþætti. Eigendum var gefinn kostur á að vinna við lagningu veitunnar upp í stofngjald. Það var Bjarni Einarsson á Hæli sem var framkvæmdastjóri verksins. f samsætinu flutti hann ávarp og í máli hans kom fram að ekki færri en 100 manns hefðu unnið við þau verk sem eigendur tóku að sér, samtals 10 þúsund vinnustundir sem samsvarar til 6 ársverka. Lagðir voru 30 km af lögnum og kostnaður við fram- kvæmdir tæpar 20 milljónir króna. Hitaveitan hlykkjast um sveitina líkt og krabbi, yfir gil og undir árbotna og um hana fara 18—20 sek.l af vatni. Hæsti punkt- ur lagnanna er 100 m yfir vatns- borði borholunnar í Þjórsárholti. Bjarni gat þess að fram- kvæmdamátinn hefði verið erfiður en örugglega farsælasta leiðin og mjög sterkt félagslega fyrir sveit- ina. „Það verður seinna sem sveit- in fer í eyði meðan vatnið rennur," sagði Bjarni. „Hönnunin er meiri- háttar afrek í okkar augum og ekki spillir að verkfræðingurinn er Árnesingur og allt efnið til veit- unnar er unnið innan sýslunnar. Bjarni þakkaði öllum sem unnu að framgangi málsins og sveitungum sinum góðs gengis með veituna. Meðal þeirra sem fluttu ávarp var Steinþór Gestsson fyrrv. al- þingismaður. Hann lýsti ánægju sinni með þessa framkvæmd og það framfaraspor sem stigið væri með henni. Til marks um það hvaða augum menn líta lagningu veitunnar má geta þess að einn ræðumanna stakk upp á því að hitaveitan stæði fyrir árlegu samsæti eða árshátíð á þessum árstíma til að minnast þessa afreks. Sig. Jóns.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.