Morgunblaðið - 09.05.1985, Qupperneq 52
52
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 9. MAl 1985
fclk í
fréttum
Sitt hvað kallast prakkara-
strik hjá kóngafjölskyldunni
Hinir ungu og konungbornu
eiga æ meira hug og hjörtu
breskrar alþýðu og þótt víðar væri
leitað. Þetta er yfir höfuð fallegt
og vel gefið fólk og það er fylgst
náið með því, hvert fótmál þess er
rannsakað og ljósmyndað af
fréttamönnum sem margir hverjir
helga sig eltingarleiknum við
kóngafólkið og að ná sem bestum
myndum af því, eða sem bestum
fréttum, því það er það sem selur
blaðið. Og þegar sú staðreynd er
skoðuð nánar, þá skýrist það, að
næstum hvað sem þetta fólk tekur
sér fyrir hendur verður að frétt-
um í meðförum umræddra frétta-
manna. í einu af mörgum blöðum,
sem gera sér mat úr kóngafólkinu
unga, var annars skemmtileg
samantekt um helstu óknytti
þessa kóngafólks, hvað það hefur
helst gert til að hrekkja orðstír
konunglegu fjölskyldunnar. Allt
er það saklaust í raun og veru og
undirstrikar ekkert annað en að
hér er um mannlegt fólk að ræða
og satt best að segja ber það sig
ótrúlega vel miðað við að athygli
samfélagsins víkur aldrei frá því.
Lítum á prakkarastrikin:
David Viscount Linley:
Þessi piltur er lærður trésmiður
og álitinn góður drengur og
hrekklaus þótt hann þyki ívið
ókurteis við kvenþjóðina. Hann er
þó ekki hnökralaus, það komst
upp fyrir skömmu að honum þykir
ótrúlega gaman að aka á miklum
hraða á splunkunýrri Ford Esc-
ort-bifreið sinni. Nýlega var hann
gómaður af lögreglunni þar sem
hann þaut eins og kólfur á 150
kílómetra hraða á klukkustund.
Hann var beðinn um ökuskírteini,
en því hafði hann gleymt heima.
Linley var þar með kominn á skrá
lögreglunnar.
Lady Sarah Armstrong Jones:
Þessi broshýra lafði er sögð
uppáhald flestra þeirra sem kynn-
ast kóngafólkinu. Frændi hennar
og drottningarljósmyndari,
Lichfield lávarður, segir það ger-
samlega útilokað annað en kunna
vel við hana. Það hefur ekki sann-
ast á hana einn einasti hrekkur
enn sem komið er.
Charles Edward Morris Spenc-
er
Hann er sagður sólginn í
kampavín og þar af leiðandi
gjarnan kallaður „Kampavíns-
Kalli“ eins og reyndar einnig kunn
knattspyrnustjarna hjá Arsenal í
Lundúnum, Charlie Nicholas.
Charles er bróðir Díönu og sagður
hændur að henni og trúr. En hann
er litríkur fastagestur í næturlífi
Lundúna, m.a. í Hippodrómi Ís-
landsvinarins Stringfellow. Karl
hefur viðurkennt í rabbþætti í
sjónvarpi að hann dreymi um að
taka þátt í kynsvalli á rómverska
vísu. Hann fær ekki að ganga að
ónefndum næturklúbbi í Oxford
eftir að hafa neitað að greiða fyrir
kampavínsflösku og hann hefur
einnig sést á fatafelluknæpum hér
og þar. Hann hefur ótal góða
punkta að auki. Þannig elti hann
eitt sinn langar leiðir mann sem
hann taldi hafa komið fyrir
sprengju í stórversluninni Harr-
ods. Eftir að hafa þreytt manninn,
stokkið á hann og snúið niður,
kom í ljós að um búðarhnuplara
var að ræða, en allur var varinn
góður.
Edward Anthony Richard Lou-
is:
Bróðir Karls verðandi kóngs.
Hann er rólyndispiltur og hefur
David Viscount Linley
('harles Spencer skemmtir sér
ekki oft stigið yfir strikið ef svo
mætti að orði komast. Hann hefur
þó lýst yfir að hann hafi ímugust
á fréttamannahafinu sem flæðir á
eftir honum eins og stórstraumur.
Örsjaldan sýnir hann það þó. Við
getum þó nefnt dæmi: Einu sinni
var Edward á akurhænuveiðum og
er hann laumaðist að einni hæn-
unni gerðust ljósmyndarar svo
ágengir, að þeir fældu hænuna. Þá
reiddist prinsinn og skaut úr
haglabyssu sinni rétt yfir höfuð
blaðamanna þannig að þeir hörf-
uðu og leyfðu prinsinum að veiða í
friði.
Lady Helen Windsor:
Ssrah Armstrong Jones
Helen Windsor
Hún er bæði falleg og eftirsótt,
en enginn sérstakur hrekkjalóm-
ur, því þó hún stundi skemmtana-
lífið grimmt hafa foreldrar henn-
ar lýst henni sem hinni „full-
komnu dóttur“. Samt sem áður
hafa fjölmiðlarnir „nappað" hana
við hitt og þetta sem ekki þykir
meira en miðlungi boðlegt af kon-
ungbornu fólki. Þannig hefur hún
náðst á filmu með vindling í
munni við opinber tækifæri. Einn-
ig hafa lúmskir ljósmyndarar sem
hafa falið sig vel náð af henni
myndum brjóstaberri á sólar-
ströndinni. Alvarlegra hefur það
ekki verið ...
HLÝÐNISKÓLI
400 hundar
hafa tekið próf
„Eins og prófskrekkur
gerði vart við sig“
Hundaræktarfélag íslands hef-
ur á snærum sínum hlýðniskóla.
Við skólann eru fjórir kennarar
starfandi í sjálfboðavinnu og hef-
ur hann nú á 2V4 ári útskrifað um
400 hunda. Einn góðviðrisdaginn
lögðu blm. og ljósmyndari leið
sína i Garðabæ, fylgdust með því
sem fram fór, og tóku kennara og
tvo hundaeigendur tali, fyrst þær
Emelíu Sigursteinsdóttur og Þór-
hildi Bjartmars kennara.
— Hvernig er þessum nám-
skeiðum háttað?
„Við tökum í mesta lagi 6—8
hunda í hvern hóp og inntökuskil-
yrðið er að þeir séu orðnir sex til
átta mánaða gamlir. Ástæðan
fyrir því að þeir eru ekki teknir
inn yngri er að þeir eru að þrosk-
ast þangað til, missa hvolpatenn-
urnar, fá vald á hreyfingum, ná
kynþroska og það má eiginlega
segja að þeir séu á gelgjuskeiðinu
fram að þessum tíma. Við reynum
svo að raða hundunum niður eftir
aldri og tegund.
Enn sem komið er bjóðum við
upp á tvö námskeið þ.e.a.s. fyrsta
og annað stig. Á fyrra námskeið-
inu læra hundarnir að ganga í ól
við hæl eða vinstri fót. Þeim er
kennt að sitja, bíða, hlýða nafni,
standa samkvæmt skipun þó eig-
andi fari, stökkva yfir hindrun,
liggja þétt saman í hóp á meðan
eigandinn fer í burtu, o.s.frv. Á
seinna námskeiðinu eru hundarnir
alltaf lausir og í lokin eiga þeir að
geta legið allir saman í hóp á með-
an eigendurnir láta sig hverfa í
þrjár mínútur. Ef þeim tekst vel
til með þetta lokaverkefni þá eru
þeir orðnir mjög hlýðnir.
Á næstunni hyggjumst við bæta
við þriðja stigi og einnig sérstöku
námskeiði fyrir hvolpaeigendur.
Þá koma þeir sem ætla að fá sér
hvolpa eða eiga þá og fá fræðslu
um fóðrun, umhirðu, byggingu
hundsins, þroskastig o.s.frv."
— Ef hundarnir láta nú ekki að
stjórn á þessum námskeiðum,
koma þá eigendurnir aftur með
þá?
„Það er ekki oft sem sú aðstaða
hefur komið upp, en í sumum til-
vikum hefur það gerst og það er
vissulega virðingarvert að eigend-
urnir skuli leggja það á sig að
koma tvisvar."
— Er einhver tegund af hund-
um sem kemur afgerandi mest til
ykkar?
„f vetur hafa Golden Retriever-
-hundar og Labradorar verið í
meirihluta hjá okkur.
Vigdís Magnúsdóttir, eigandi
Sindra sem er 14 mánaða gamall
Golden Retriever.
— Hvernig hefur hundinum
þínum gengið í hlýðniskólanum?
„Mjög vel og ég vildi alls ekki að
hann hefði misst af þessu. Það
hefur myndast náið samband á
milli okkar og það er líka mjög
mikilvægt fyrir hundaeigendur að
hafa stjórn á hundum sínum sér-
staklega þegar þeir búa í borg.“
— Honum hefur alveg samið við
hina hundana?
„Já, það er nú kannski vegna
þess að við erum með hesta og
hann er vanur að umgangast þá og
hunda í því sambandi."
Vignir Sigurðsson, eigandi
Tryggs sem er fjögurra ára hund-
ur af Collie-tegund.