Morgunblaðið - 09.05.1985, Page 60
60 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 9. MAÍ 1986
Stórsigur
Austurríkis
AUSTURRÍKI sigraöi Kýpur í
fimmta riöli undankeppni HM í
knattspyrnu 4—0, á þriöju-
dagskvöld. Austurríki ar nú í ööru
sæti í riölinum á eftir Ungverjum.
Leikurinn fór fram i Austurríki
aö viöstöddum 15.000 áhorfend-
um. Fyrsta mark heimamanna kom
á 2. mínútu leiksins. Þaö var Peter
Hristic sem skoraöi eftir auka-
spyrnu sem fyrirliöi Austurríkis,
Herbert Prohaska, tók.
Annaö mark Austurríkismanna
kom á 36. mín. og var þar aö verki
Anton Polster, og þannig var staö-
an í hálfleik.
Austurríkismenn sóttu mikið í
upphafi seinni hálfleiks og upp-
skáru mark á 54. mín. Þaö geröi
Walter Schachner. Kýpur átti aldr-
ei möguleika gegn Austurríkis-
mönnum sem bættu fjóröa mark-
inu viö á 73. mín. Markiö geröi
Gerald Wilfurth.
mark leiksins á sjöttu mínútu eftir
fyrirgjöf frá Simonsen. Laudrup
bætti síöan ööru marki viö á 21.
mín. og var þá séð hvert stefndi.
Staöan í hálfleik var því 2—0, fyrir
Dani.
John Lauridsen geröi þriöja
mark Dana og Klaus Berggreen
innsiglaöi sigurinn meö því aö
skora fjóröa markiö fyrir Dani.
Undir lok leiksins tókst Austur-
Þjóðverjum aö skora eitt mark.
Þar var aö verki Uwe Zoetzsche.
20.000 áhorfendur sáu leikinn á
Idtraetspark i gærkvöldi.
Danir eru nú aö undirbúa sig af
kappi fyrir leikinn gegn Sovét-
mönnum 5. júní nk. Sigur í þeim
leik gæti komiö þeim í efsta sæti í
riölinum, þar sem Svisslendingar
eru efstir meö 5 stig eftir fjóra leiki,
en Danir hafa fjögur stig eftir þrjá
leiki.
Sknamynd/AP
• Fyrsta mark leiksins er staöreynd. Þaö var Michel sem skoraöi þetta gullfallega mark, efst í bláhorniö.
Stielike er númer 4 og ungverski markvöröurinn gerir örvæntingarfulla tilraun til aö verja.
Síöasti leikurinn í þessum riöli
veröur 14. maí, þá leika Ungverjar
og Hollendingar í Budapest. Hol-
lendingar veröa aö sigra í þeim leik
til aö eiga möguleika á aö komast
í lokakeppnina í Mexíkó.
Staöan í riölinum er þessi:
Ungverjar 5 5 0 0 12—3 10
Austurríki 6 3 1 2 9—8 7
Holland 5 2 12 10—5 5
Kýpur 6 0 0 6 3—18 0
Stórsigur Dana
Danir unnu stórsigur á Austur-
Þjóöverjum, 4—1, í vináttuleik i
knattspyrnu í Kaupmannahöfn í
gærkvöldi. Þaö var svo sannarlega
vor í lofti í Danmörku, Allan Sim-
onsen spilaöi sinn 50. landsleik og
jafnframt sinn fyrsta landsleik síö-
an hann varö fyrir meiöslum í leik í
úrslitum Evrópukeppninnar 1984.
Þetta var svo sannarlega
„comeback" fyrir Simonsen, sem
átti góöan leik, þótt ekki tækist
honum aö skora aö þessu sinni.
Michael Laudrup skoraöi fyrsta
Real Madrid öruggt
með UEFA-bikarinn
— sigraöi Videoton 3.-0 á útivelli í fyrri úrslitaleiknum
REAL Madrid frá Spáni sigraöi
ungverska liöiö Videoton 0—3, í
fyrri úrslitaleik UEFA-keppninnar
í knattspyrnu sem fram fór í
Szekesfehervar í Ungverjalandi í
gærkvöldi.
Spánverjarnir voru mun betri í
þessum leik og yfirspiluóu leik-
menn Videoton oft.
Fyrsta mark leiksins kom á 31.
mínútu og var þar aö verki Miguel
Gonzales sem geröi gullfallegt
mark af 12 metra færi og þannig
var staöan í hálfleik.
Carlos Santillana geröi annaö
mark Real Madrid meö skalla á 76.
mínútu. Þaö var svo Jorge Vald-
ano, sem lék á Peter Disztl, mark-
vörð Videoton og skoraði einni
mínútu fyrir leikslok.
Uli Stielike var besti maöur Real
Madrid í þessum leik og komust
sóknarmenn lítiö áfram gegn þess-
um sterka varnarmanni sem braut
allar sóknaraögeröir þeirra á bak
aftur.
Videoton var án sinna tveggja
sterkustu manna j þessum leik.
Þeir Majer og Szabo voru báöir
meiddir og gátu ekki leikiö meö og
munaöi um minna fyrir liöiö, sem
svo skemmtilega hefur komiö á
óvart i þessari keppni.
Þaö ætti aö vera auöveldur sig-
ur hjá Real Madrid á heimavelli í
seinni leik þessara liöa og má
segja aö þeir séu nær öruggir meö
aö veröa UEFA-meistarar 1985.
Seinni leikurinn fer fram á Spáni
eftir tvær vikur.
Liðin sem léku i gærk völdi voru þannig sklp-
uö:
Videoton: Poter Disztl, Vegh, Laszlo Dlsztl,
Csuhay, Horvath. Burcsa, Borsany, Wlttmann,
Vadasz. Palkovics, Novath (48 Qyenti).
Real Migel Angei, Chendo, Stlellke, Sanchis,
Camacho, San Jose, Gallego, Michel, Butr-
agueno (79 Juanito), Santlllana, Valdano.
Dómari: Vautrot (Frakklandi).
Everton óstöðvandi
— vann West Ham örugglega í gær
NÝBAKAÐIR Englandsmeistarar
Everton gera þaö ekki enda-
sleppt. Þeir sigruóu West Ham
meö 3—0 á heimavelli sínum
Goodison Park í gærkvöldí.
Þessi leikur skipti ekki máli
fyrir liöiö, þar sem þaó tryggöi
sér sigur í deildinni um síöustu
helgi. En leikmenn liösins sýndu
þaö og sönnuöu aö þeir eru meö
besta liöiö í Englandi í dag og
lögöu West Ham auöveldlega aö
velli 3—0.
Andy Gray skoraöi sitt 13. mark
á keppnistímabilinu er hann geröi
fyrsta mark leiksins á 12. mínútu.
Derek Mountfield geröi annaö
markiö meö skalla eftir fyrirgjöf frá
lan Atkins. Atklns lék í staö fyrirlið-
ans, Kevins Ratcliffe, sem var
meiddur. Staöan í hálfleik var 2—0
fyrii Everton.
Derek Mountfield skoraöi síöan
ööru sinni og gulltryggöi góöan
sigur á West Ham 3—0, er 12 mín-
útur voru til leiksloka.
West Ham átti margar góöar til-
raunir, en markmaöur Everton,
Neville Southall, sem nýlega var
kjörinn knattspyrnumaöur Eng-
lands af fréttamönnum, stóö sig
vel í markinu og hélt hreinu, eins
og áöur í vetur.
Chelsea heldur enn i vonina um
að ná UEFA-sæti meö því aö vinna
Luton 2—0 í gærkvöldi. Marka-
kóngurinn Kerry Dixon skoraði sitt
36. mark í vetur fyrir Chelsea, er
hann geröi fyrra mark liðsins á 26.
mínútu. Þaö var svo Pat Nevin sem
tókst aö pota knettinum í netiö rétt
fyrir leikslok og tryggja sigur
Chelsea, 2—0.
Nokkrir ieikir fóru fram í ensku
knattspyrnunni á þriöjudagskvöld,
úrslit þeirra uröu þessi:
1. deild:
Watford — WBA 0—2
2. deild:
Charlton — Oxford 3—3
Grimsby — Brighton 2—4
TENNIS!
NRMSKEIti RB
TENNIS- OG
B ADMINTONFÉL AGIÐ
Gnodarvogi l - s. 82266
Símamyrtd/AP
• Kevin Ratcliffe hampar hér bikarnum sem fylgir því aö veröa Eng-
landsmeistarar í knattspyrnu. Fyrir leikinn í gærkvöldi gegn West Ham
voru verölaunin og bikarinn afhent á heímavelli meistaranna Everton,
Goodison Park.