Morgunblaðið - 21.05.1985, Page 5
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIDJUDAGUR 21. MAf 1985
5
Aheyrendur á „Degi ljóAsins" í Iðnó.
Morgunblaðid/Ól.K.M.
Ljóðið stendur traustum fótum
- segir Anton Helgi Jónsson
„Dagur Ijóðsins síðastliðinn laugardag tókst alveg stórkostlega vel.
Við fylltum Iðnó hér í Reykjavík og á Akureyri eru menn mjög ánægðir
með þær undirtektir sem þeir fengu,“ sagði Anton Helgi Jónsson,
Ijóðskáld og einn af þeim sem stóðu að undirbúningi dagsins. „Á
laugardaginn var opnun kvikmyndahátíðar í Reykjavík, í sjónvarpinu
var bein útsending frá knattspyrnuleik og tónleikar í Háskólabíói.
Þess vegna þótti okkur vel til takast að fylla Iðnó.
Þessi góða aðsókn gefur til
kynna að ljóðið standi traustum
fótum í dag þrátt fyrir margt
annað, sem „gargar" á torgum og
í fjölmiðlum og menn halda að
sé mikilvægt. Allir voru mjög
ánægðir, bæði skáldin og þeir
áheyrendur sem ég heyrði í eftir
upplesturinn, enda var mjög
góður andi í Iðnó, mikil stemmn-
ing. Við getum óskað þjóðinni til
hamingju með hvað vel tókst til,
nú höldum við áfram.
Stefnt er að því að ljóðalestur-
inn verði endurtekinn að ári og
þá í stærra húsnæði, bæði hér í
Reykjavík og á Akureyri. Nú í ár
var einnig farið og lesið upp á
Hrafnistu, Kleppsspitalanum og
Landspítalanum enda getur ljóð-
ið skotið upp kollinum hvar sem
er og það er aldrei að vita hvar
skáldin mæta næst.
Nú eru liðin tíu ár frá því
„Listaskáldin vondu“ lásu upp úr
ljóðum sínum i Háskólabíói og
áðn úr Vftr
má því segja að ljóðaupplestur-
inn á laugardaginn hafi veriö
tímabær. Ljóðaáhugi Islendinga
er mikill enda kom fram í les-
endakönnun, sem gerð var fyrir
nokkru, að mikill fjöldi fólks les
ljóð, en þar kom einnig fram að
ljóðabækur eru bækur sem menn
lána hvor öðrum í stað þess að
kaupa þær. Því hvöttum við bók-
sala og bókasöfn til að hafa
ljóðabækur frammi í tilefni af
„Degi Ijóðsins" og ég hef heyrt
að það hafi mælst mjög vel fyrir.
Á næsta ári höfum við hug á enn
frekara samstarfi við bóksala og
bókasöfn heldur en tími vannst
til að þessu sinni.
Fyrír alla þá, sem hafa áhuga
á ljóðum, vil ég benda á að á
dagskrá sjónvarpsins í kvöld
verður þáttur um stöðu ljóðsins í
dag. Og í haust mun Norræna
húsið gangast fyrir norrænni
hátíð ljóðskálda þar sem erlend
ljóðskáld munu koma og lesa
upp.“
„Slík viður-
kenning er
vissulega
mjög jákvæð“
- segir Hrafn Gunn-
laugsson um Hrafninn
flýgur
„ÞAÐ ER mikill heiður fyrir
myndina að hún skuli hafa verið
valin til sýningar í Kennedy Cent-
er í Washington og kemur manni
í gott skap,“ sagði Hrafn Gunn-
laugsson í samtali við Morgun-
blaðið. Eins og skýrt var frá hér í
blaðinu fyrir stuttu var kvikmynd
hans Hrafninn flýgur sýnd þar
ytra fyrir nokkru á vegum Ameri-
can Film Institute.
„Stofnunin velur á hverju ári
nokkrar erlendar kvikmyndir til
sýningar sem hún flokkar sem
úrvalsmyndir," sagði Hrafn.
„Mér var boðið að vera viðstadd-
ur sýninguna en komst ekki frá
vegna undirbúnings fyrir kvik-
myndahátíðina sem nú stendur
yfir i Reykjavík."
Aðspurður um það hvernig
American Film Institute hefði
fengið áhuga á myndinni sagði
Hrafn, að hún hefði verið sýnd í
New York síðasta haust og lík-
legast hefðu aðilar á vegum
stofnunarinnar séð myndina
þar. Sagði Hrafn að „Hrafninn
flýgur“ væri nú sýnd í kvik-
myndahúsinu Film Forum í New
York og einnig í Los Angeles.
Kvaðst hann geta verið mjög
sáttur við þær móttökur sem
myndin hefði fengið í bandarísk-
um fjölmiðlum.
Að endingu var Hrafn inntur
eftir því hvaða þýðingu þetta
myndi hafa fyrir myndina.
Kvaðst hann eiga mjög erfitt
með að átta sig á því þar sem
sænska kvikmyndastofnunin sæi
um alla dreifingu myndarinnar.
Þó væri slík viðurkennig vissu-
lega mjög jákvæð.
Þess má geta að lokum að
Hrafninn flýgur verður sýnd á
sjö-sýningu í Austurbæjarbíói í
sumar með enskum texta. Hefj-
ast sýningar strax aö lokinni
kvikinyndahátíð.
FERMSKRIFSTOFAN ÚRVAL
Fcröamátinn flug og bíll er fcröamáti athafnafólksins. Fólks. scm vill fara annaö.
ráöa sér sjálfl, komast lengra, kynnast fleiru. Þú ert nefnilega sjálf(ur) skipuleggjarinn,
fararstjórlnn, leiösögumaðurinn og bílstjórinn. t sumar bjóöum viö fastar, sérlega ódýr-
ar flug og bíl-ferðir, til sautján borga í tólf löndum.
Veröiö hér að neöan miöast viö að fjórir feröist saman í bíl í 1 viku.
Innifaliö er flug og bílaleigubíll með ótakmörkuðum akstri og aö sjálfsögðu elnnig
ábyrgöar- og kaskótryggingu og söluskatti.
I m) pr. mann trá kr. barnaatsl. 2—llára brollför á
Amsterdam 15.308.- 6.500,- fösludögum
Bergen 16.461.- 6.500,- laugardögum
Frankfurt 15.332.- 6.500.- mlövikudögum
Gautaborg 17.446.- 7.000,- laugardögum
Glasgow 13.960.- 5.500.- fimmludögum
Kaupmannahöfn 16.871.- 7.000,- laugardögum
London 15.067,- 6.500,- fösiudögum
Luxemborg 13.945,- 6.500,- fimmtud. og sunnudögum
Osló 16.461,- 6.500,- fimmtudögum
París 14.496,- 6.500.- sunnudögum
Salzburg 16.811,- 7.500,- miövikudögum
Stokkhólmur 19.496.- 8.000.- fimmludögum
Zíirich 18.540.- 8.000,- sunnudögum
Flug og bíll er sérgrein Úrvals.
Ferðaskrifstofan Úrval viö Austurvöll, sími (91)-26900.
OOTT PÓLK