Morgunblaðið - 21.05.1985, Síða 13
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 21. MAÍ 1985
13
Kvikmyndahátíð 1985
sett í Austurbæjarbíói
Kvikmyndahátíð 1985 var form-
lega sett í Austurbæjarbíói sl. laug-
ardag.
Borgarstjóri, Davíð Oddsson,
flutti setningarræðuna og afhenti
þvínæst Gunnari Smára Helga-
syni, hljóðupptökumanni, viður-
kenningu Kvikmyndahátíðar. Að
sögn Hrafns Gunnlaugssonar,
formanns Framkvæmdastjórnar
Listahátíðar 1986, hlaut Gunnar
Smári viðurkenninguna fyrir að
hafa öðrum fremur gert hljóð í ís-
lenskum kvikmyndum áheyrilegt.
Meðal kvikmynda sem hann hefur
gert hljóð við eru „Með allt á
hreinu", „Gullsandur" og „Hrafn-
inn flýgur".
Að afhendingunni lokinni voru
gestir kvikmyndahátíðar kynntir.
Þeir eru sænski rithöfundurinn
Astrid Lindgren, sænski leikstjór-
inn Tage Danielsson sem gerði
myndina „Ronja ræningjadóttir"
eftir samnefndri sögu Astrid
Lindgren og þýski leikstjórinn
Hark Bohm en mynd hans „Eigi
skal gráta" er meðal myndanna á
kvikmyndahátíðinni. Þá var sýnd
opnunarmynd kvikmyndahátíðar
1985, sænska myndin „Ronja ræn-
ingjadóttir" sem getið var um hér
að framan.
Hrafn Gunnlaugsson sagði að
kvikmyndahátíðin hefði farið vel
af stað því á fyrstu tveimur dög-
unum hefðu komið yfir þrjú þús-
und gestir. Gat Hrafn þess enn-
fremur að von væri á einum er-
lendum gesti enn, franska leik-
stjóranum Jean-Luc Godard.
Dagskrá kvikmyndáhátíðar í
dag er sem hér segir:
Salur 1: Suður-ameríska mynd-
in „Gammurinn" sýnd kl. 15 og 17;
breska myndin „Gullgrafararnir"
Borgarstjóri, Davíð Oddsson, ásamt eiginkonu sinni, Ástríði Thorarensen, og
Salvöni Nordal, framkvæmdastjóra Listahátíðar, lengst til hægri.
sýnd kl. 19 og 21; þýska myndin
„Þar sem grænu maurana dreym-
ir“ sýnd kl. 23.
Salur 2: Bandaríska myndin
„Harðsnúna gengið" sýnd kl. 15,17
og 19; ítalska myndin „Nótt San
Lorenzo" sýnd kl. 21 og 23.10.
Salur 3: Þýska myndin „Eigi
skal gráta" sýnd kl. 15 og 17;
spænska myndin „Býflugnabúið"
sýnd kl. 19 og 21.
Til sölu glæsileg
NÝLENDUVÖRU
VERZLUN
Þar er gott eldhús til framleiöslu á heitum mat.
Aöstaöa fyrir kvöldsölu og videóleigu.
Hugsanlegur bygaingarréttur fyrir ca. 6—800 fm
skrifstofu eöa hótelhaeö.
Hægt aö fá húsnæöiö keypt aö hluta eöa í einu lagi,
en rekstur þess er fastur í sessi
í grónu hverfi í austurhluta borgarinnar.
S621600
Borgartún 29
Ragnar Tómawon hdl
Menntamálaráðherra, Ragnhildur Helgadóttir, heilsar sænska rithöfundin-
um Astrid Lindgren, sem er meðal gesta kvikmyndahátíðar.
Morgunbiaöið/Ævar Audbjörnsson
Votabergið frá Eskifirði kom með um 10 tonn til Siglufjarðar en í
liðinni viku kom skipið með góðan afla til Eskifjarðar og er myndin
tekin við löndun þar.
Rússar meö 300 tonn afrækju
SighifirAi, 20. msí.
RÚSSNESKT rækjuskip kom
hingað í dag með um 300 tonn af
rækju sem hér verður unnin
fyrir enskt fyrirtæki og síðan
seld á Bandaríkjamarkað. Hofs-
jökull kom hingað síðdegis og
komst ekki að bryggju fyrir
Rússanum. Þá kom Votabergið
hingað í dag með um 10 tonn af
rækju og á morgun er Þórður
Jónasson væntanlegur með um
12 tonn. Þá kom Skjöldur inn í
dag með hátt í 60 lestir af 'blönd-
uðum afla.
Hér hefur verið himnesk veð-
urblíða undanfarið.
—mj.
Húsnæöi fyrir teiknistofur
Til sölu 70 fm húsnæöi á götuhæö í Þingholtunum
meö sér inng. og sér hita. Húsnæöiö er í góöu
ástandi ný teppalagt og veggfóörað. Lofthæö 3
metrar. Húsnæöiö hentar vel fyrir teiknistofur eöa
sem skrifstofuhúsnæði.
Séreign,
Baldursgötu 12,
sími 29077.
Garðabær
raðhús
m
35300
35301
Vorum aö fá í sölu þessi glæsi-
legu raöhús við Löngumýri í
Garðabæ. Húsin eru aö
grunnfleti 100 fm á tveim hæð-
um eða samtals 200 fm auk
bílskúrs. Húsin seljast fokheld
og eru til afhendingar í sumar.
Byggingaraðili Kristjánssynir
hf. Teikningar og nánari upp-
lýsingar á skrifstofunni.
[7R FASTEIGNA
LHlJ höllin
FASTEIGNAVIÐSKIPTI
MIOBÆR - HÁALEmSBRAUT 58-60
SÍMAR 35300 & 35301
m
Agnar Olafsson,
Arnar Sigurðsson
og Hreinn Svavarsson.