Morgunblaðið - 21.05.1985, Side 26

Morgunblaðið - 21.05.1985, Side 26
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 21. MAf 1985 Upplýsingar um lyf og heilbrigði - eftir Óttar Guðmundsson íslendingar eru dugleg þjóð og vinnusöm. Flestir vinnufærir ein- staklingar eru sífellt á höttunum eftir vel launaðri yfirvinnu til að borga með nauðþurftir og verð- tryggðu lánin sem alla sliga. En það kostar klof að ríða röftum og vinnuálag sem hér tiðkast krefst hestaheilsu, svo veikindadagarnir verði sem fæstir og afköstin sem mest. Sem læknir verður maður áþreifanlega var við þetta. Fólk má ekki vera að því að vera veikt. Fái einhver hor í nös og kvef, vill sá hinn sami samdægurs fá ein- hver hylki „til að rífa þetta úr sér“; fái einhver vöðvaverki af vinnuþrælkun og spennu, heimtar viðkomandi „góða vöðvabólgu- belgi". Svefnleysi á að lækna taf- arlaust með svefnlyfjum, munn- angur með mixtúru og magabólg- ur með einhverjum krassandi magabólgutöflum. Lyfin eru þann- ig í mörgum tilfellum notuð til að minnka eða deyfa sjúkdómsein- kenni, en orsakir sjúkdóma oft vanræktar. Einfalt dæmi um þetta eru magabólgur og magasár, sem sennilega stafa að einhverju leyti af streitu, reykingum og kaffidrykkju. Allir þessir í>ættir eru algengir í íslensku þjóðfélagi og þar með magabólgur. Flestir þeirra sem eru haldnir kvillanum kjósa þó heldur að eiga í eldhússkápnum einhverjar töflur og taka þær eftir þörfum og halda svo áfram reykingum og ómældri kaffidrykkju eftir sem áður. Það er forvitnilegt að bera saman af- stöðu fslendinga og Svía til lyfja. í Svíþjóð hefur um langt skeið verið rekinn mikill áróður gegn of mik- illi lyfjanotkun og reynt að fræða almenning um hættur samfara gjöf ákveðinna lyfja. Þar þurfa læknar oft að telja fólk á að nota ákveðin lyf, en hérlendis krefst fólk lyfja, svo hlutverk lækna verður oft að reyna að sannfæra fólk um að margir sjúkdómar læknist af sjálfu sér án lyfja. Þetta hugarfar íslendinga gagn- vart lyfjum á sennilegast rót sína að rekja til óþolinmæði þjóðarinn- ar, allt þarf að gerast í dag, hvort heldur redda þarf víxli eða lækn- Dr. Óttar Guðmundsson ast af einhverjum vírusnum. Hvað varðar sjúkdóma og heilsufræði, þá virðist manni að skólarnir hafi brugðist hlutverki sínu á liðnum árum hvað snertir fræðslu á þessu sviði. Fólk er fákunnandi um eigin líkama og leggur ofurtrú á sér- fræðinginn í líkamsfræðum, þ.e. lækninn. Þessi ofurtrú sjúkl- inganna brenglar svo sjálfsmat læknisins og leiðir til að þeir reyna að hafa á hraðbergi skýr- ingu og lausn (þ.e. lyf) á hverjum þeim vanda sem fram kemur. Al- menningur getur á hinn bóginn ekki gert sér grein fyrir því, hvort bati stafaði af viðkomandi lyfi, eða hvort um sjálfslækningu var að ræða. Sakir þessa efast fólk sjaldan um óskeikulleika læknis- ins eða um lækningamátt lyfj- anna. Mér er það mikið fagnaðarefni, að íslenskir læknar hafa nú ráðist í að skrifa bók fyrir almenning um lyf og lyfjafræði, en nú er komin út á íslensku aðgengileg bók um lyf, verkanir þeirra og aukaverk- anir, skammtastærðir og áhrif. Hér á ég við bókina íslenska lyfja- bókin eftir Helga Kristbjarnarson lækni, Magnús Jóhannsson lækni og Bessa Gíslason lyfjafræðing. í bók þessari er hægt að lesa sér til um öll íslensk lyf og meta gildi þeirra og verkunarsvið. Sjúklingnum gefst kostur á að kynna sér helstu aukaverkanir og getur þannig metið alvöru þeirra og umfang í samanburði við mögulega gagnsemi lyfsins á sjúkdóminn, sem verið er að með- höndla. Því miður er staðreyndin sú, að hluti þeirra lyfja sem lækn- ar ávísa gegn ýmsum kvillum, er gjörsamlega gagnslaus gegn sjúkdómnum, en lyfið sjálft getur haft aukaverkanir sem eru mun alvarlegri ef upp koma en sjálfur sjúkdómurinn sem verið er að lækna. Þannig eru öll fúkkalyf yf- irleitt gágnslaus gegn vírus- sjúkdómum eins og kvefi, en hafa á hinn bóginn ýmsar aukaverkan- ir, svo sem ofnæmi og niðurgang, „Nú er komin út á ís- lensku aðgengileg bók um lyf, verkanir þeirra og aukaverkanir, skammtastærðir og áhrif. Hér á ég við bók- ina „íslenska lyfjabók- in“ eftir Helga Krist- bjarnarson lækni, Magnús Jóhannesson lækni og Bessa Gíslason lyfjafræðing.“ sem reynst geta skeinuhættari en sjálft kvefið. Flestallar hósta- mixtúrur eru sennilegast gagn- slausar, en geta haft ýmsar miður æskilegar aukaverkanir. Vöðvabólgulyf sem notuð eru við vöðvaspennu eru gagnslítil, en geta haft alvarlega slævandi áhrif. Á síðari árum hefur á Norð- urlöndum verið varað við of mik- illi notkun ýmissa gigtarlyfja sem geta haft alvarlegar afleiðingar á beinmerg og blóðmyndun og auk þess valdið magablæðingum og ofnæmi. Bæði læknar og sjúkl- ingar þar hafa reynt að minnka Nokkur orð um bjór - eftir Jósep Ó. Blöndal Bjórfrumvarpið er enn einu sinni til meðferðar á Alþingi, guð- irnir vita í hvaða útgáfu. Ef marka má blaðaskrif, mun það að þessu sinni verða samþykkt, og verður þá þrashljómkviða skammdegisins íslenzka ófáum tónunum fátækari. Sá, er þessar línur ritar, hefur um fjórtán ára skeið verið búsett- ur erlendis og því lítt getað fylgzt með umræðunum. En sjö þessara ára liðu við nárn og störf og stund- um glaum og gleði í Kaupmanna- höfn, og stofnað var til kynna við bjórinn frá ýmsum hliðum. I um- ræðum um bjór á íslandi er iðu- lega vitnað til reynslu Dana i þessum efnum, og þá einkum af hálfu þeirra, sem telja að ölið megi verða Mörlandanum til ein- hverrar sáluhjálpar. Er því ekki úr vegi að skýra stuttlega frá ein- um þætti reynslu minnar af Dön- um og bjórdrykkju. Árið 1971—1974 var ég viðloð- andi stærstu meðferðarstofnun Danmerkur, Alkoambulatoriet pá Forchhammersvej í Kaupmanna- höfn, og var í fullu starfi við hlið- arstofnun hennar, Overforsterga- arden í Gentofte í rúmt hálft ár, 1973, sem geðlæknir. Stofnanir þessar annast meðhöndlun þús- unda sjúklinga, enda var þá, að mati yfirlæknanna, Jens Haslund og Egil Jensen, tíundi hver karl- maður yfir 15 ára aldri áfengis- sjúklingur. 1 slíku starfi skapast allnáin kynni við þá, sem hjálpar leita og smám saman verður til meira eða minna ljós mynd af ferli hins „dæmigerða" danska áfengis- sjúklings. Ekki ætla ég að tíunda sögu hans, en þegar hann leitar hjálpar — oftast knúinn af fjöl- skyldunni, vinnufélögum, yfir- mönnum eða félagsmálastofnun — þá hefur drykkjuskapur hans verið að smá-þróast í 15—20 ár og neyzlan aukizt úr þetta 4—6 flösk- um (sem er meðalneyzla „vísitölu- mannsins" danska) í yfir 30 flösk- ur af 3,2—3,6% sterku öli á dag. Yfirleitt eru möguleikarnir að hressa upp á heilsufar hans all- sæmilegir, og ef félagsráðgjafar, hjúkrunarfræðingar, sálfræðingar og læknar leggja sig fram, er ven- julega hægt að gera hann sæmi- lega „ökufæran" á nokkrum mán- uðum, koma fjárhagnum í viðun- andi horf, ná samkomulagi við eiginkonu og atvinnurekanda o.s.frv. En möguleikar mannsins á að halda sér þurrum — svo ekki sé minnzt á hófdrykkju — þegar hann hverfur undan verndarvæng stofnunarinnar, eru hverfandi, því bjórinn er alls staðar — á vinnu- stöðum, heimilum, götunni, í skemmtigörðum og guðirnir vita hvar, því bjórinn er ómissandi þáttur hins danska hversdags- leika, og langflestir falla fyrir freistingunni að fá sér „en bajer sammen med kammeraterne" og þá fer hringekjan af stað aftur með enn meiri hraða en áður. Um þrennt er ferill hins danska áfengissjúklings frábrugðinn ferli hins íslenzka þjáningabróður hans: hann drekkur svo til ein- göngu bjór, drykkjuskapur hans hefst og þróast á vinnustaðnum, og erfiðleikar hans við að halda sér þurrum eftir meðferð eru miklu meiri vegna hins gífurlega framboðs á þessari lúmskustu teg- und áfengra drykkja. Drykkja á vinnustöðum (þ.e. bjórdrykkja) þykir í Danmörku eðlileg og sjálfsögðu jafnvel sjúkrahús eru ekki undanskilin. Til marks um þetta nefni ég til sögunnar mann einn á fertugsaldri, sem hafði átt sér dæmigerðan þróunarferil fyrir danskan alkóhólista. Hann hafði verið meira eða minna undir áhrifum í 17 ár. Hann þurfti 3—4 „Elefant" (sterkur bjór) til að komast fram úr rúminu á morgn- ana, þegar hér var komið sögu, og neyzla hans samsvaraði um 30 flöskum af miðlungsöli á dag. Sterkan bjór þorði hann ekki að drekka um miðjan daginn vegna starfs síns, hélt sig sem sé við miðlungsölið í vinnunni. Þessi maður hafði í öll þessi 17 ár verið fastráðinn sjúkrabílstjóri í Kaup- mannahöfn. Þetta vandamál — drykkju- skapur á vinnustöðum — er óveru- legt hér á landi, en getur nokkur svarið af sér óttann við, að með bjórnum væri því boðin heim? Svo sem fyrr hefur verið getið ná kynni mín af umræðum Islend- inga um bjórmálið einungis fram til 1970. I vetur hefi ég hins vegar ekki hjá því komizt að veita at- hygli ýmsum röksemdum, sem færðar hafa verið með og á móti, og staldraði síðast við þingfréttir Morgunblaðsins 7. maí (bls. 38). Þar eru rakin ýmis atriði, sem formælandi nefndarálits meiri- hluta allsherjarnefndar telur „Hér er á ferðinni mál, sem ekki snertir öryggi ríkisins, sem ekki getur haft utanríkispólitískar afleiðingar, og obbinn af atkvæðabærum landsmönnum hlýtur að hafa á því skoðun eftir áratuga þjálfun í að ríf- ast um það, því er það afar vel til þjóðarat- kvæðagreiðslu fallið.“ mæla með samþykkt frumvarps- ins. Leyfi ég mér að fara um þessi atriði nokkrum orðum, svo sem þau eru höfð eftir í frétt í Mbl.: A: Þingmaður telur, að tvískinn- ungur ríki í málum þessum, þar eð 1) farmenn, flugliðar, og ferða- menn megi flytja bjór inn í landið, aðrir ekki, 2) bjór sé smyglað inn í landið í stórum stíl, 3) vandkvæði við að fá bjór á svörtum markaði séu sögð hverfandi, 4) leyft sé að selja ölgerðarefni og 5) bjórlíki fá- ist á veitingahúsum. Athugasemdir: 1) Telur þingmað- urinn þessi hlunnindi ákveðinna stétta og ferðamanna vera svo hróplegt óréttlæti, að það réttlæti bjórinnflutning og sölu til al- mennings? Er það stjórnvöldum ofviða að takmarka þennan inn- flutning enn frekar eða jafnvel banna hann, svo að millimetra- réttlætið sé í heiðri haft? 2) og 3) Marijuana/kannabis/- hassi er smyglað inn í landið í stórum stíl, og vandkvæðin við að fá þessi efni á svörtum markaði eru hverfandi. Telur þingmaður þetta tvennt mæla með þvf, að innflutningur þessara efna verði hafinn á löglegan hátt og sala lát- in fara fram hjá ÁTVR? 4) og 5) Ekki get ég varizt þeirri hugsun, að sala bruggefna og bjórlíkis eigi tilkomu sína að þakka framtakssemi þeirra, sem vilja með öllum ráðum koma frumvarpinu í gegn, og þetta á sennilega við um heimildina til ferðamanna einnig. Virðist mér liggja í augum uppi, að megintil- gangur leyfisveitinga stjórnvalda til þessarar sölu hafi einmitt verið sá að nota hana síðarmeir til að auðvelda framgang frumvarpsins. í Ijósi þess, telur þingmaðurinn atriði 4) og 5) gjaldgeng í rök- semdafærslu með frumvarpinu? B: Þingmaðurinn telur ávinning við samþykkt frumvarpsins marg- þættan: 1) bjór muni fást eftir löglegum leiðum með þröngum skilyrðum, 2) smygl muni hverfa, 3) svartur markaður muni hverfa, 4) bjórlíkið muni hverfa, 5) allir þegnar muni hafa sömu aðstöðu til bjórkaupa, 6) ríkið græði, 7) tvískinnungur verði úr sögunni, 8) komið verði til móts við neyzlu- venjur ferðamanna og 9) tekjur muni fást til fræðslu um skaðsemi áfengis almennt. Athugasemdir: 1) og 5) út af fyrir sig engar athugasemdir. Sjá loka- kafla þessarar greinar. 2) Hvarf áfengissmygls í land- inu með tilkomu áfengisverzlana ríkisins? Er ekki smyglað mynd- bandstækjum, myndböndum, hljómflutningstækjum, talstöðv- um, skartgripum, pelsum og guð- irnir vita hverju, þrátt fyrir það, að löglegt framboð á þessum varn- ingi er mikið og verðlag oft vel sambærilegt við verð í nágranna- löndunum? Er ekki jafnvel mögu- legt, að smygl aukist þegar bjór- flöskurnar verða orðnar dagleg sjón og ekki hægt að greina á færi, að um smyglvarning sé að ræða — og fólk þar að auki „komið á bragðið"? 3) Er ekki allt ofannefnt dót og miku meira til selt á svörtum markaði? Er svartamarkaðssalan á bjór svo óþolandi þáttur í ís- lenzku þjóðlífi að hún réttlæti samþykkt bjórfrumvarpsins? 4) Eina blessunin með tilkomu bjórsins yrði sennilega hvarf þess- ara ósmekklegu og ódrekkandi blöndu pilsners og brenndra drykkja. En er það „ávinningur" miðað við þá hættu sem innflutn- ingur og sala bjórs til almennings gætu haft í för með sér? Telur þingmaðurinn, vel á minnzt, að bjórlíkið hafi bætt „vínmenningu" íslendinga? 6) og 9) Er þingmanninum ekki kunnugt um, að allar kannanir, sem gerðar hafa verið á áhrifum áfengissölu á fjárhag ríkisins í nágrannalöndunum, benda ein- dregið til þess, að ríkið tapi á viðskiptunum? Telur hann, að það væri frjálsri skotvopnasölu Bandaríkjamanna til málsbóta, ef hluta ágóðans væri varið til fræðslustarfsemi um skaðsemi skotvopna almennt? 7) Tvískinnung er víða að finna, og sá tvískinnungur, sem þing- maðurinn vill koma fyrir kattar- nef með samþykkt frumvarpsins, er að mínu mati tittlingaskítur samanborið við ýmsan annan, svo sem þann, er tíðkast meðal lýð- ræðislega kjörinna stjórnmála- manna. 8) Telur þingmaðurinn í alvöru, að það geti fælt erlenda ferða- menn frá þessum gimsteini At- lantshafsins, að ekki fáist hér bjór? Ef svo er, telur hann þá upp á slíka ferðamenn púkkandi? Röksemdafærsla formælandans er vægast sagt fátækleg, og væru forsendur samþykktar frumvarps- ins ekki beysnari en þetta, hlyti það að kolfalla. En réttur ein- staklingsins til að kaupa og neyta þess, sem hann/hún vill, vegur hér þungt á metunum og er reyndar eina „röksemdin" sem eitthvert vit er í. Ég skrifa „röksemdin" innan gæsalappa, því mat á slíkum rétti er einstaklingsbundið og að veru- legu leyti á tilfinningum byggt. Hér er ekki um að ræða rétt eða frelsi einstaklingsins til að verða sér úti um lífsnauðsynjar eða nauðsynjar yfirleitt, heldur hvort sala bjórs til almennings hér á landi muni verða til að bæta lífsg- æði hans — og hér á ég ekki við hin efnislegu lífsgæði — „stuðla að fegurra mannlífi, svo notuð sé klisja. Afstaða hvers og eins hlýt- ur því mestanpart að mótast af tilfinningum — og reyndar ber samtíningur þingmannsins þess glögg merki að vera tutlaður til í kjölfarið á tilfinningalegri ákvarðanatöku. Því hlýtur hin eina rökrétta afgreiðsla bjór- frumvarpsins að vera fólgin í þjóðaratkvæðagreiðslu. Hér er á ferðinni mál, sem ekki snertir ör- yggi ríkisins, ekki getur haft utan- ríkispólitískar afleiðingar, og obbinn af atkvæðabærum lands- mönnum hlýtur að hafa skoðun eftir áratuga þjálfun í að rífast um það, því er það afar vel til þjóðaratkvæðagreiðslu fall- ið. Komi til þjóðaratkvæðagreiðslu, veit ég ekki, hvorum megin at- kvæði mitt mundi lenda. Afar erf- itt er að gera sér grein fyrir af- leiðingum bjórsölu á almennum markaði hér á landi á t.d. drykkj- uskap á vinnustöðum, drykkju- skap unglinga og drykkjuskap þeirra, sem þegar drekka. Eitt er víst, að þau kynni, sem ég hefi haft af bjórneyzlu nágrannaþjóða okkar á sjö árum í Danmörku og öðrum sjö meðal Svía, munu ekki stuðla að því, að ég greiði atkvæði með frumvarpinu. Höfundur er læknir á Patreksfirði.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.