Morgunblaðið - 21.05.1985, Side 32
32
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 21. MAÍ 1985
Mannskæðar aðgerðir IRA:
Fjórir lögreglumenn
biðu bana í sprengingu
Belfast, 20. maí. AP.
Lögreglubifreið gereyðilagðist
í dag, er hún ók yfir jarð-
sprengju rétt við bæinn Newry á
Norður-írlandi. Fjórir lögreglu-
menn, sem í bifreiðinni voru,
biðu allir bana og fimm vegfar-
endur, sem stóðu nærri bifreið-
inni er sprengingin varð, særð-
ust.
I hópi lögreglumannanna voru
þrír karlmenn og ein kona. Óku
þau í skotheldri bifreið og voru
stödd rétt fyrir utan Newry, sem
stendur nærri landamærunum við
írska lýðveldið. Samkvæmt frá-
sögn talsmanns lögreglunnar eyði-
lagðist lögreglubíllinn gersamlega
og flaug brak úr honum yfir stórt
svæði í sprengingunni.
írski lýðveldisherinn (IRA) hef-
ur Iýst yfir ábyrgð sinni á spreng-
ingunni. í tilkynningu frá IRA
sagði: „Þessi aðgerð fór fram á
svæði, þar sem varðgæzla er mikil.
Verknaðurinn ætti því að verða
lögreglumönnum stjórnvalda mik-
il viðvörun."
Aðgerðir IRA hafa að undan-
förnu einkum beinzt gegn brezk-
um hermönnum á Norður-írlandi
og lögreglumönnum þar, en í lög-
regluliði Norður-írlands eru aðal-
lega mótmælendur en fáir kaþ-
ólskir menn.
Sprengingin í dag fól í sér
mannskæðustu aðgerðir IRA síð-
an í febrúar sl., er liðsmenn IRA
skutu sprengikúlum á lögreglu-
stöðina í Newry. Níu lögreglum-
enn biðu þar bana, en alls hafa 32
menn misst lífið í innanlandsátök-
Sækir um hæli
í Sovétríkjunum
Nancy, Frakklandi, 20. maí. AP.
ATVINNULAUS ítali í Frakklandi hefur sótt um að fá pólitískt hæli
í Sovétríkjunum. Heldur hann þvf fram, að útilokað sé fyrir sig að fá
atvinnu á Vesturlöndum.
Frönsk blöð skýrðu frá þessu í
dag. Hafa þau það eftir mannin-
um, Michael Paradiso, sem er 46
Býflugur
spilltu
brúðkaupi
lAindúnum, 20. maí. AP.
BRÚÐKAUP í Higham í Kent á
sunnudaginn hlaut heldur
óskemmtilegan endi, garðveisla stóð
sem hæst í góða veðrinu, þegar bý-
flugnager fyllti garðinn skyndilega
og létu einstakar flugur ófriðlega.
Gestirnir þustu í skjól hver um ann-
an þveran og urðu margir fyrir
stungum í írafárinu sem greip um
sig.
15 kílómetra í burtu, í Sidcup,
nokkrum mínútum síðar, réðst bý-
flugnagerið á 77 ára gamla konu
sem sat með tebolla úti í garðinum
heima hjá sér. Stungu óðar flugur
hana um allan líkamann og hlaut
hún bana af. Talsverð hræðsla
hefur gripið um sig í Englandi
vegna þessa, enginn veit hvar
flugnakófið muni staldra við næst
og hafa lögregluyfirvöld eindregið
hvatt fólk til að vera á varðbergi.
unum á Norður-Irlandi, það sem
af er þessu ári, þar af 17 lögreglu-
Afhroð
skæruliða
Uu, Perá, 20. maí. AP.
SKÆRULIÐUM Maoista og
stjórnarhermönnum laust sam-
an í norðanverðu Perú um helg-
ina og fóru hinir fyrrnefndu hall-
oka. Mikið mannfall var í röðum
Maoista sem kalla samtök sín
„skínandi troðningur".
Þannig var mál með vexti, að
um 100 skæruliðar náðu á sitt
vald tveimur samliggjandi þorp-
um, settu upp gerviréttarhöld yf-
ir bæjarfulltrúum og dæmdu þá
til dauða, skutu þá síðan aila á
torgum úti í augsýn bæjarbúa.
Bjuggu þeir um sig í umræddum
bæjum, en stjórnarherinn komst
á snoðir um aðgerðir þeirra og lét
til skarar skríða. Féllu um 40
skæruliðar í áhlaupi stjórnar-
hersins, en hinir tvístruðust um
allar jarðir.
ára gamall, að hann hafi sótt um
pólitískt hæli í Sovétríkjunum
hjá sovézka sendiráðinu í París
og kvaðst hann hafa fengið þau
svör þar, að verið væri að kanna
mál hans og mætti hann búast ------------------
við svari einhvern næstu daga.
Paradiso fluttist til Frakk- Indland:
lands á sjötta áratugnum. Hann
segist vera vörubílstjóri að at-
vinnu, en hafi aðeins fengið
íhlaupavinnu af ýmsu tagi allan
tímann síðan hann kom til
Frakklands. Hefði hann aldrei
fengið borið meira úr býtum en
lágmarkslaun.
AP/Símamynd
Ali á Kínamúrnum
Múhameð Ali, „The greatest" eins og hann kallaði sig, fyrrum heims-
meistari í hnefaleikum, er um þessar mundir staddur í Kína og er það
önnur heimsókn hans til þess lands. Á myndinni er hann ásamt eigin-
konu sinni, Veronicu, staddur á Kínamúrnum víðfræga ásamt fríðu foru-
neyti.
Er hann var spurður um
hvernig hann liti á frelsið á Vest-
urlöndum í samanburði við það,
sem hann mætti búast við í Sov-
étríkjunum, svaraði hann: „Þið
talið um frelsi. Hvað hef ég með
frelsi að gera í Frakklandi, ef ég
á ekki krónu til þess að fara út,
ferðast eða kaupa bækur eða
aðra hluti.“
„Þið kallið það frelsi. Án pen-
inga, án vinnu, er ekkert frelsi
til.“
Sovézka sendiráðið í París hef-
ur að svo komnu ekkert viljað
segja um mál mannsins.
Aukin efnahagssam-
vinna við Sovétmenn
Nýju Delhí, 20. maí. AP.
RAJIV Gandhi, forsætisráðherra
Indlands, hyggst undirrita
samninga um mikla samvinnu í
efnahagsmálum í ferð sinni til
Sovétríkjanna, sem hefst á
morgun, þriðjudag.
Gandhi mun eiga viðræður við
Gorbachev og er búist við að þá
verði undirritaðir samningar um
mikla aðstoð Sovétmanna við olíu-
og kolavinnslu Indverja og við
orkuöflun þeirra og vélafram-
leiðslu. Einnig er talið, að Gandhi
muni fara fram á veruleg lán til
ýmissa þróunarverkefna. Stjórn-
málaskýrendur segja, að Gandhi
leiki hugur á að endurvekja sterk
tengsl Indverja og Sovétmanna,
sem heldur hefur dofnað yfir að
undanförnu. Er þar ekki síst um
að kenna umfangsmiklum njósn-
um Sovétmanna á Indlandi, en
samkvæmt opinberri skýrslu hafa
a.m.k. átta sovéskir sendiráðs-
rnenn, sem nú eru farnir frá land-
inu, verið mikilvirkir njósnarar.
Sl. föstudag var undirritaður
samningur milli Indverja og
Bandaríkjamanna, sem kveður á
um aðgang hinna fyrrnefndu að
Bretland:
Kolanámumenn fengu lífs-
tíðardóma fyrir morðið
Khymney, Wales, 20. maí. AP.
RÚMLEGA 1000 námuverkamenn í borginni Rhymney tóku un
helgina þátt í mótmælagöngu þar sem lífstíðardómum yfir tveimu
starfsbræðrum þeirra var mótmælt harðlega. Dómana 'engu félag
arnir fyrir að hafa myrt leigubflstjóra meðan á verkfalli kolanámu
manna stóð.
Dómstóll í Cardiff kvað upp
dómana á föstudaginn yfir Russel
Shankland og Dean Hancock. 10 af
12 kviðdómendum voru sammála
um að dæma mennina í lífstíðar-
fangelsi og kom dómurinn tölu-
vert á óvart í heimabæ þeirra þar
sem frekar var reiknað með því að
þeir yrðu dæmdir fyrir manndráp
af gáleysi en fyrir morð að yfir-
lögðu ráði. Þeir Shankland og Ha-
ncock vörpuðu 20 kg steypubita
fram af umferðarbrú er leigubif-
reiðin ók undir hana. Farþeginn í
bigreiðinni var námuverkamaður
sem gekk í berhögg við verkfallið
og var á leið til vinnu. Ted Row-
lands, þingmaður Verkamanna-
flokksins, ávarpaði göngumennina
í Rhymney og sagði, að þrátt fyrir
að það fyndu allir til með aðstand-
endum hins látna, þá væru þeir
Shankland og Hancock engir
morðingjar og dómurinn yfir þeim
hefði verið „hrylliiegur".
Þriðji maðurinn sem réttað var
yfir, Anthony Williams, var sýkn-
aður af morðákæru og látinn laus.
Hann tók þátt í göngunni og sagði
í samtali við fréttamenn að hann
væri enn að reyna að fá aftur
vinnu sína. „Það vita allir, að það
sem gerðist var hræðilegt slys sem
enginn vildi að yrði,“ sagði Willi-
ams.
bandarískri tækniþekkingu og í
næsta mánuði er Gandhi væntan-
legur til Bandaríkjanna í opinbera
heimsókn.
Austur-Þýskaland:
Maður veginn
við múrinn
Berlín, 20. nuí. AP.
AUSTUR-þýskir landamæraverðir
skutu óþekktan flóttamann sem
freistaði þess að komast til Vestur-
Þýskaland.s nærri Spandau-hverfinu
á sunnudaginn. Borgarar heyrðu
byssugnýinn og kölluðu á lögreglu.
Kom hún í tíma til að sjá landa-
mæraverði hlaupa að liggjandi
manni, sveipa hann laki og bera á
brott. Virtist maðurinn vera látinn.
Maðurinn sást liggjandi á auðu
svæði milli hindrana, en vélbyssu-
turnar Austur-Þjóðverja gnæfa
þar yfir allt og þetta mun vera
einhver best varði hluti járn-
tjaldsins. Síðast var flóttamaður
skotinn á þessum slóðum 1. des-
ember síðastliðinn.
Stjórnvöld í Vestur-Þýskajandi
voru fljót að fordæma harðlega
aðgerðir landamæravarðanna.
Peter Bönisch, talsmaður stjórn-
arinnar í Bonn, hvatti stjórnvöld í
Austur-Þýskalandi til þess að
hætta í eitt skipti fyrir öll að beita
skotvopnum gegn fólki sem vildi
aðeins njóta frelsis til athafna og
ferða. Stjórnvöld fyrir austan
múra og víggirðingar létu ekkert
frá sér heyra vegna þessa máls.