Morgunblaðið - 21.05.1985, Side 50
50
MORGUNBLAÐID, ÞRIÐJUDAGUR 21. MAÍ 1985
Manuel Gutiérrez Aragón:
„Svolítið meira háð“
Frá útimarkaAi grunnskólanemenda.
Egilsstaðir:
Allan söluvarning höfÖu nem-
endur sjálfir búið til undanfarinn
hálfan mánuð { mynd- og hand-
menntatímum i skólanum og
heimilisfræðitímum. Þarna gátu
gestir og gangandi keypt málverk
á vægu verði, skúlptúr úr steinum,
hatta, stultur, kökur og sælgæti.
Ennfremur var boðið upp á pylsur
og ávaxtasafa.
Allur varningur seldist upp á
klukkutíma — en ágóðanum skal
Ljósm.: Mbl./ Ólafur
varið til kaupa á hljómflutnings-
tækjum fyrir skólann.
Kennarar, foreldrar og þeir
nemendur sem þarna lögðu hönd
að verki voru í hátíðarklæðum og
farðaðir vel — og þeim sem hafði
láðst að mála sig heima gafst
kostur á að bæta úr því á staðnum.
Skólahljómsveitin lék og farið
var í hvers kyns leiki.
— Ólafur.
— eftir Aitor Yraola
í kvikmyndinni „Feroz“ (villtur)
(1984) sem sýnd verður á kvik-
myndahátíðinni hér í ár leikur
„björn“ aðalhlutverkið. Leikstjóri
myndarinnar er Manuel Gutiérrez
Aragón, verðlaunahafi f Berlín,
Cannes, Chicago og San Sebastián
og tilheyrir yngri kynslóð kvik-
myndaleikstjóra á Spáni. í nýlegu
viötali segir M.G. Aragón: „Eg
vildi segja sögu, vegna þess að
uppbygging og lögmál sagna-
formsins hafa ávallt hrifið mig.
En ég vildi ekki að sagan hefði
neinn töfrablæ yfir sér, heldur að
hún væri raunsæ. Og svo raunsæ
varð hún að hún virðist oft á tíð-
um súrrealístísk."
Sérhvert atriði myndarinnar er
bæði súrrealístískt og skoplegt
(enda langaði hann helst til að kýr
léki aðalhlutverkið). Bangsi vinn-
ur við tölvu, fer á skrifstofuna á
morgnana, fær sér tebolla o.s.frv.
Samt er hvorki hægt að afgreiða
myndina sem ævintýra- og grín-
mynd, hún er einnig þroskasaga.
„Mig langaði til að setja svolítið
meira háð í myndina. Þá fannst
mér tilvalið að nota björn,“ segir
hann.
Manuel Gutiérrez Aragón fædd-
ist árið 1942 í skógi vöxnu héraði í
Santander þar sem úir og grúir af
goðsögnum enda eru myndir hans
magnaðar galdri. Hann tók há-
skólapróf í heimspeki og stundaði
síðan nám i „Escuela Oficial de
Cinematografía", sama skóla og
Berlanga og Saura höfðu gengið i.
Manuel Gutiérrez Aragón
Hann hefur leikstýrt átta kvik-
myndum, stjórnað sviðsetningu á
„Réttarhöldunum" eftir Kafka i
Madrid, verið verðlaunaður af
gagnrýnendum í Berlín árið 1974
og hlotið verðlaun sem besti leik-
stjórinn árið 1977 í sömu borg.
Fyrsta kvikmynd hans var
„Habla mudita" (Talaðu þögul,
1973) og hlaut hann fyrir hana
verðlaun gagnrýnenda i Berlín.
Framleiðandi myndarinnar var E.
Querejeta, sá sem oftast framleið-
ir kvikmyndir fyrir Saura. Myndin
fjallar um ungan mann sem býr
einn á fjöllum uppi. Hann kynnist
daufdumbri hirðingjastúlku i ná-
lægu þorpi og reynir að kenna
henni að tjá sig og hafa góða
framkomu. Fólk stingur saman
nefjum um þetta óvenjulega sam-
band og loks snýr ungi maðurinn í
siðmenninguna aftur. Efnistök
leikstjórans benda bæði til frum-
leika og þroska.
Önnur mynd hans, „Camada
negra“ (Svarta gengið, 1977),
hlaut Silfurbjörnin í Berlín fyrir
bestu leikstjórnina. Hún segir frá
leynilegum samtökum ungra fas-
ista sem stunda heræfingar á
laun. Myndin er ekki pólitísk né
tekur hún fasismann fyrir, heldur
fjallar á bókmennta- og goðsögu-
legan hátt um flokk þessara slags-
málahunda og æsingamanna sem
á tímum Francos réðust á „rauð-
ar“ bókaverslanir og námsmenn.
„Sonámbulos" (Svefngenglar,
1977) er sennilega hugmynda-
fræðilegasta kvikmynd Aragóns.
Hann var virkur félagi í Kommún-
istaflokknum til ársins 1976 og
kvikmynd þessi er eins konar
dæmisaga um hinn flókna neðan-
jarðarheim vinstri sinnaðra öfga-
manna þar sem inn er fléttað
áhrifamiklu atriði sem sýnir, líkt
og í draumi, árás Franco-lögregl-
unnar á Landsbókasafnið.
Kvikmyndin „el corazón del
bosque" (Skógarhjartað, 1978)
hefur verið sýnd í kvikmynda-
klúbbnum „Hispania" i Reykjavík.
Þar er sögð afar falleg styrjaldar-
saga sem lýsir þó tilgangsleysi og
dauða skæruliða i stjórnartíð
Francos að borgarastríðinu loknu.
Myndin er ekki eingöngu pólitísk
Grunnskólanemend-
ur bregða á leik
E(ita8tMum, 12. nui.
FORSKÓLANEMENDUR og nemendur 1.—6. bekkjar Egilsstaðaskéla
brugðu á leik í gær og efndu til útimarkaðar — þar sem hvers kyns
handunninn varningur var til sölu — auk þess sem efnt var tíl leikja og
lúðrasveit þeytti horn sín. Uppákoma þessi var með suðrænum blæ og
nokkuð í takt við svonefndar karnevalhátíðir.
Maxis húsgögn frá Axis, teiknuð af Pétri B. Lútherssyni.
Viktor, fjölnotastóllinn frá Víði, teiknaður af Pétri B. Lútherssyni.
Kaupmannahöfn:
Axis og Víðir sýna í Bella Center
JÓMhúsi, Kaupnunnabðfn, 11. mai.
TVÖ ÍSLENZK fyrirtæki sýna húsgögn á Norrænu húsgagnasýningunni á
Bella Center, sem lýkur á morgun. Eru það Axis og Víðir og vöktu vönduð
húsgögn þeirra og smekklegir sýningarbásar athygli gesta.
Forsætisráðherra Dana, Poul
Schlúter, opnaði hina árlegu hús-
gagnasýningu sl. miðvikudag. Að
þessu sinni sýna 522 aðilar frá 14
löndum i hinni rúmgóðu sýn-
ingarhöll og hefur aðsókn verið
geysimikil að venju.
Á opnunardaginn boðaði Einar
Ágústsson sendiherra og Út-
flutningsmiðstöð iðnaðarins til
blaðamannafundar i sýningar-
básum íslenzku fyrirtækjanna.
Komu þangao fjölmargir blaða-
menn innlendir sem erlendir.
Bauð sendiherra gestina vel-
komna með ávarpi og þágu þeir
veitingar. Spurðu blaðamenn
margs um hina íslenzku fram-
leiðslu, sem raunar lýsir gæðun-
um bezt sjálf.
Húsgögnin frá Axel Eyjólfs-
syni hf., Axis, heita Flexis og
Maxis. Flexis eru hinir þekktu
fataskápar fyrirtækisins, sem
svo auðvelt er að breyta og mikil
eftirspurn er eftir. En Maxis er
nafnið á hillu- og skápasam-
stæðu, sem býður upp á fjöl-
breytta upjpröðun, hvar sen. er i
íbúðinni. A sýningunni er- húr. í
ljósri hjónaherbergisinnréttingu
og einnig sem mjög fallegur
glasaskápur, sem nota má til að
skipta stofu og borðstofu og opna
frá báðum hliðum. Þá er til sýnis
frábærlega skemmtilega hannað
borð og stóll Péturs B. Lúthers-
sonar, sem raunar hefur einnig
teiknað hin húsgögn Axis, en
með einu handtaki má breyta
sófaborði í borðstofu- eða vinnu-
borð og hægindastól í borðstofu-
eða vinnustól. Snjöll hugmynd,
sem hentar vel í litlu húsnæði.
Eyjólfur Axelsson fram
kvæmdastjóri Axis sagði, að
mikilvægt væri fyrir íslenzk
fyrirtæk: að. taka þátt í þessari
sýningu ti! að fá sambönd, sem
seinna gætu þróast upp i við-
skipti og til að vekja athygli á
íslenzkum iðnaði. Nauðsynlegt
væri að kynna nýjar vörur og fá
álit þeirra aðila, sem lengri
reynslu hafa í húsgagnafram-
leiðslu og viðskiptum, safna upp-
lýsingum og þróa markaðsmögu-
leika. Fyrirtækið, sem Axel Eyj-
ólfsson, faðir Eyjólfs stofnaði, er
50 ára um þessar mundir og hef-
ur nú í þriðja sinn sýningarbás á
Bella Center.
Á sýningu Trésmiðjunnar Víð-
is hf. ern. hin stílhreinu Salix
húsgögr mest áberandi, en þar
eru sófasett, borðstofu- og vegg-
einlnga ao ræða, aö ógleymdum
barnaherbergishúsgögnum fyrir
tækisins sem eru teiknuð af
finnska hönnuðinum Ahti Task-
inen. Áklæði eru úr íslenzkri ull
frá Álafossi. Er hægt að raða
veggeiningunum og barnahús-
gögnunum á hinn fjölbreyti-
legasta hátt og eru Salix húsgögn
flutt út til Bandarikjanna og
einnig að nokkru til Sviss, eink-
um barnakojurnar, sem njóta
mikilla vinsælda. Nýjung þeirra
Víðismanna á sýningunni er
Viktors-stóllinn, fjölnotasæti,
sem Pétur B. Lúthersson hefur
hannað, og er hann bæði fallegur
og sérlega hentugur. Margir
fylgihlutir eru fáanlegir með
stólunum, t.d. skrifplata, skemill,
grind fyrir bækur og öskubakka,
númerakerfi o.m.fl. og er barna-
leikur að raða þeim upp í
geymslu og tengja í sætaröðum.
Víðir tekur nú þátt í húsgagna
sýningunni í sjötta sinr. og er
þetta fjórða árið í röð. Fyrirtæk-
ið stofnaði Guðmundur Guð-
mundsson, eins og flestum er