Morgunblaðið - 21.05.1985, Page 51

Morgunblaðið - 21.05.1985, Page 51
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIDJUDAGUR 21. MAÍ 1985 né lætur hún staðar numið við hina stórfenglegu skóga og fjöll á Norður-Spáni (fæðingarstað leik- stjórans) heldur er tilgangurinn einnig að svipta ljómanum af stríðshetjunum og stríðinu öllu, líkt og liðsforinginn Williard P. Coppola var látinn gera í „Acopal- ypse Now“. „Demonios en el jardín" (Djöfl- ar í garðinum, 1982) hlaut fimm verðlaun gagnrýnenda í New York og var að auki valin besta kvik- myndin á hátíð kvikmyndafram- leiðenda í Cannes árið 1983. Hún segir frá dreng og þeirri spennu sem ríkir á heimili hans á 6. ára- tugnum þegar svartamarkaðurinn blómstraði og opinber áróður óð yfir landið. Leikstjórinn M.G. Aragón, sem hæðist að sjálfum sér og hóf feril sinn með expressjónístísku mynd- inni „Habla mudita", segist hafa áhuga á að segja sögur með að- ferðum sem eiga lítt skylt við bókmenntasköpun. Samkvæmt Luis Megino, fram- leiðanda mynda hans, eru verk Aragóns „full af duldum merking- um og hrífandi myndamáli og sannkallaður hafsjór af sögum". „Til eru frábærir leikstjórar sem byggja verk sín á þeim til- finningum sem hrærast innra með okkur öllum. Ég hef aftur á móti stöðuga tilhneigingu til að beita afhjúpandi háði. í „Feroz" leynist mikið háð þrátt fyrir að myndin segi sögu sem endar vel.“ Höfundur er lekíor í spænsku við Iláskóla íslands. kunnugt, 1945, en áður hafði hann uunið sjálfstætt við hús- gagnagerð í 15 ár. Haukur Björnsson forstjóri lét vel af undirtektum gesta þegar þennan fyrsta dag og sagði, að takmarkið með sýningaraðild væri einkum upplýsingaöflun og markaðs- starf, sem ekki mætti vanmeta. Hingað koma geysimargir inn- kaupaaðilar og er mikilvægt að bera saman útlit, gæði og verð og þróa markaðsmöguleika. Sýning- in er gluggi út að hinum stóra viðskiptaheimi, sagði Haukur og lagði áherzLu á að ekki mætti vanmeta markaðsstarfsemi, sem ekki lyki, fyrr en varan væri komin í hendur ánægðs kaup- anda. Nafn Péturs B. Lútherssonar húsgagnahönnuðar kemur svo oft fyrir í umræðunni um ís- lenzku sýningarbásana, að rétt er að ræða ögn við hann. Pétur stundaði nám hér í Danmörku og hefur átt mjög annríkt við hönn- un húsgagna síðan. Lætur hann vel af sýningunni og segir nauð- synlegt að byggja upp íslenzkan útflutning á iðnaðarvörum. Framleiðsluleyfi á Lobastac-stól hans hefur verið selt hingað til Labofa-fyrirtækisins í Skælskor. Jens Pétur Hjaltested sér um íslenzku þátttökuna fyrir Ot- flutningsmiðstöð iðnaðarins, bæði á fatnaði og húsgögnum, þriðja árið í röð. Hin árin voru íslenzku fyrirtækin þrjú, sem sýndu húsgögn, en þá voru Ingv- ar og Gylfi með. Rómar hann mjög alla aðstöðu og framkvæmd á Bella Center og segir stjórn og starfsfólk sýna mikla lipurð og alúð við störf sín og sama fólkið vinni þar ár eftir ár. Hefur Út- flutningsmiðstöin hið bezta sam- band við B.C. og er alltaf jafn ánægjulegt að koma þangað og sjá íslenzka fánann við hún, sagði Jens Pétur. — Geta má þess í lokin að blómin, sem prýða sýningarbásana, sendir Jens Pét- ur Hjaltested í sýningarlok til fé- lagsheimilisins í Jónshúsi og er það líka til fyrirmyndar. G.L. Ásg. Samur við sig sá gamli Hljómplðtur Siguröur Sverrisson John Fogerty Canterfield Warner Brothers/Steinar Það munaði minnstu að ég skellti upp úr þegar ég fór að spila þessa plötu Johns Fogerty. Karlinn hefur ekki breyst hætis hót þau 15 ár sem liðin eru frá því Creedence Clearwater Revi- val var á toppnum en Fogerty var einmitt driffjöður þeirrar sveitar. Hvernig Fogerty hefur tekist að sleppa við að verða fyrir nokkrum áhrifum af einu eða neinu tagi á heilum áratug er mér hulin ráðgáta en það er þó alltént gaman til þess að vita að enn séu til menn, sem gefa skít i tískubólur. Þrátt fyrir að lagasmiðar Fogertys séu rétt eins og þær hafa alltaf verið get ég ekki leynt því að ég hafði mjög gam- an af sumu á þessari plötu. Oðru var ég ekki eins spenntur fyrir. Þegar Fogerty tekst best upp — vel að merkja, allur hljóðfæra- leikur er i höndum hans sjálfs og textar og lög sömuleiðis eftir hann — er hann skrambi góður, annars bara þokkalegur. Tilþrif- in í hljóðfæraleik eru lítil, ein- faldleikin ræður i flestum tilvik- um ríkjum. „Pródúsjón" sömu- leiðis blátt áfram, rétt eins og tónlistin. Bestu lög finnast mér vera Old Man Down the Road, Rock and Roll Girls og I Saw It onTV. Það munu nú liðin 9 ár frá þvi siðast heyrðist til Fogerty á hljómplötu. Orsakanna má m.a. leita í málaferlum sem hann lenti í og tóku óheyrilegan tíma. Stóðu þau á milli hans og for- stjóra plötufyrirtækisins, sem hann var áður samningsbund- inn. Tveir textanna á Center- field gætu hæglega átt við um- ræddan forstjóra, Mr. Greed og Wanz Kant Danz, og núna er mér sagt að Fogerty eigi yfir höfði sér aðra málshöfðun, að þessu sinni fyrir meiðyrði. NYTT A ISLANDI NU.SLEPPA ÞEIR STORU EKKI Sjálflysandi sökka frá HAMLET sem þarf aðeins að vera 15 sekundur i dagsljósi og er þa sjálflysandi i myrkum sjónum i 15-20 minutur. Lögun sökkunnar tryggir að hun sekkur hratt til botns. jafnvel i sterkum straumi. þangað sem stóru fiskarnir halda sig og lýsingin fra henni laðar þa að. Þessi utbunaður er laus við bly- og fosforsmitun og er viðurkenndur af norskum sjomannasamtökum. I Sökkurnar eru til i mörgum stærðum: 20 g. 40 g. 60 g. 100 g. 150 g. 200 g. 250 g og 300 g. í HAMLET PRODUKTER EINKAUMBOÐ A ISLANDI. GRÆNLANDI OG I FÆREYJUM: TRONUHRAUNI 6 ■ PO BOX 205 222 HAFNARFJÖROUR SIMAR 91-651100. 651101 EASYLINK NUMER 19008885 TELEX: 946240 CWEASY G. REF 19008885 Söluumboð: i:» Landssamband ísl. utvegsmanna. simi 91-29500. Vöruafgreiöslan Austurbakka. simi 91-17028 (bein lina) Ananaustum, simi 91-28855. Vörusendingar. sími 91-14605 (bein lina). ÍL

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.