Morgunblaðið - 21.05.1985, Side 56
56
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 21. MAÍ 1985
fclk í
fréttum
Jackie
orðin
leið
á naggi
Rithöfundurinn Jackie
Collins, systir Joan,
er sífellt að kvarta undan
því að fólk sé að gagnrýna
sig fyrir „subbubók-
menntir". Meðal verka
Jackie má nefna „Holly-
wood wives“ og „The
world is full of married
men“. Titlarnir bera efnið
með sér, þetta eru
spennusögur kryddaðar
ótæpilega með kynlífi og
þá einkum í formi fram-
hjáhalds og fleiru af líku
tagi. En þetta selst eins og
• heitar iummur og sjón-
varpsþáttaröð hefur verið
gerð eftir bókinni fyrr-
nefndu. Jackie hefur átt
velgengni að fagna.
„Fólk er alltaf að klifa á
því hvort ég ætli ekki að
fara að skrifa „betri bæk-
ur“ og þá þykist ég vita að
efni bóka minna fari fyrir
brjóstið á þessu fólki.
Svarið er einfaldlega nei.
Hví skyldi ég gera það, ég
hef gaman af minni vinnu
og henni er vel tekið með
þessum undantekningum
þó. Þetta er eins og þegar
ég var barn og táningur.
Ég hafði alltaf gaman af
því að hlusta á blús- og
rokktónlist og fólk var
alltaf að suða: Farðu nú
að hlusta á klassíska tón-
líst, þegar þú eldist muntu
taka hana fram yfir. Það
hefur ekki gerst, blúsinn
og rokkið en enn mín tón-
list og ég bið engan afsök-
unar á því,“ segir Jackie.
Skrautlegur
gestur Natössju
Nýjustu kvikmynd Natössju Kinski hefur verið
hleypt af stokkunum, frumsýningin var fyrir
skemmstu og bauð ungfrúin miklu fjölmenni til
gleðskapar í tilefni af því. Meðal þeirra sem tróðu
upp var formaður kvikmyndaeftirlitsins í Mið-
Austurlöndum. Lét hann á sér bera eins og mynd-
in ber með sér og gerði hann sig líklegan til að
„klippa" einhver atriði úr myndinni sem ber heitið
„Harem“, eða kvennabúr ...
Jay Aston
Rod Stewart
Nick Kershaw
Rose McDowell
Hill komst
til Wembley
— en ekki fyrr en knatt-
spyrnuferlinum var lokið
Eitt frægasta nafnið í breska
íþróttaheiminum er nafn
Jimmy Hill, hins síbrosandi
fréttamanns BBC, en er hann sté
upp í blaðamannastúkuna á
Wembley-leikvanginum á laug-
ardaginn til þess að lýsa beint
úrslitaleiknum í ensku bikar-
keppninni milli Everton og
Manchester Utd., var hann að
endurtaka það í 20. skiptið. Sjálf-
ur var Jimmy knattspyrnumaður
í eina tíð, hann lék yfir 400 leiki
með Fulham og Bremtford í 1. og
2. deild, alls 12 keppnistímabil og
hann upplifði þrátt fyrir það
aldrei þann stóra draum flestra
knattspyrnumanna á Bretlands-
eyjum, að leika um bikarinn á
Wembley.
„Það munaði samt mjóu í eitt
skiptið, það var árið 1958 og ég
var þá hjá Fulham. Við komumst
í undanúrslit og mættum þar
Manchester Utd. Seint í leiknum
leit vel út fyrir okkur, staðan var
2—1 fyrir Fulham og ég skoraði
annað markanna. En þeir hjá
United eyðilögðu allt saman með
því að jafna undir lokin og í
framlengingunni gerðu þeir svo
út um leikinn. Það er annars
hræðilegt að leika ekki knatt-
spyrnu. Ég lék að vísu aldrei
landsleik og var aldrei stjarna,
en ég hafði alltaf ástríðu til
knattspyrnunnar," segir Hill.
Hvað gera stórstjörnur
í fríinu sínu?
Hvert fara stjörnurnar þegar
þær eiga frí? Svörin eru
trúlega jafn mörg og stjörnurn-
ar sjálfar eru, sitt sýnist hverj-
um í þessum efnum sem öðrum.
Það væri þó ekki úr vegi að hlýða
á hvað nokkrar þeirra leggja til
málanna þegar þær eru spurðar
þessarar spurningar:
Eddy Grant: „Líf mitt hefur
verið eitt allsherjar sumarfrí
síðustu tíu árin eða eftir að ég
fluttist til Barbados. Þar bý ég á
fallegasta búgarði eyjanna.
Skyggni er jafnan 10 kílómetrar
og ég sé hvergi til annarra
mannabústaða. Þarna hef ég allt
sem ég þarf og má nefna tenn-
isvelli og sundlaugar. Ég hef
ekki þörf fyrir frí í skilningi þess
orðs eins og staðan er hjá mér.“
Jay Aston: „Ég dái og dýrka
ísrael og vonast til að geta ein-
hvern tímann farið þangað í al-
vörufrí. Ég hef bara komið þang-
að nokkrum sinnum í stuttar
ferðir með „Bucks Fizz“. Strend-
urnar eru stórkostlegar, fólkiö
vingjarnlegt og landið fallegt.
Þá er ekki síður ánægjulegt að
ferðast þar þar eð Bucks Fizz eru
ekki sérlega þekkt hljómsveit
þar í landi og þá fær maður
meiri frið.“
Rose McDowell, söngkona í
Strawberry Switchblade: „Spánn
er minn eftirlætis sumarfrís-
staður. í fyrra var það ógleym-
anlegt, ég sat eina nóttina ásamt
vini mínum niðri á strönd og allt
í einu skall á ofsalegt þrumuveð-
ur. Við sátum heilluð og horfð-
um á það þangað til við vorum
gegnvot. Það var geysilega róm-
antískt."
Nick Kershaw: „Ég hef enn
ekki komið á minn draumastað,
sem er Disneyland í Bandaríkj-
unum. Walt Disney var aðalhetj-
an mín í barnæsku. Næst þegar
ég fer í hljómleikaferðalag til
Bandaríkjanna ætla ég ekki að
Iáta það bregðast að fara til
Disneylands."
Rod Stewart: „Ég fór síðast í
frí í febrúar og það var sannar-
lega eitt af betri fríunum. Ég fór
í „safaríferð" í Afríku og það var
stórkostleg reynsla að sjá öll
þessi villidýr sem þar eru í ná-
lægð og í eðlilegu umhverfi. Það
væri gaman að endurtaka ferð-
ina, en annars er ég einn af þeim
sem vill breyta til, gera eitthvað
ólíkt og fara annað næst þegar
ég tek frí.“