Morgunblaðið - 21.05.1985, Blaðsíða 67
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 21. MAl 1985
67
Unnið hörðum höndum að uppsetningu sýningarbása í íþróttahúsinu. Ljósm.: Morgunbi./ólafur
Egilsstaðir:
Iðnsýning Austur-
lands opnuö 25. maí
- Yfir 70 iðnfyrirtæki kynna starfsemi sína
Egilastöðum, 14. maí.
í MORGUN var hafíst handa í íþróttahúsinu á Egilsstöðum við uppsetningu
sýningarbása fyrir Iðnsýningu Austurlands ’85 sem þar verður opnuð laugar-
daginn 25. þ.m.
Grunnflótur sýningarsvæðisins
innan- og utandyra verður vænt-
anlega um 12 ferm enda er fjöldi
þátttakenda í sýningunni um eða
yfir 70 iðnfyrirtæki víðs vegar af
Austurlandi, að sögn Bergsteins
Gunnarssonar, starfsmanns sýn-
ingarnefndar, en Iðnþróunarfélag
Austurlands stendur að þessari
umfangsmiklu iðnsýningu.
Undirbúningur að sýningunni er
að sjálfsögðu löngu hafinn og
væntu bjartsýnustu menn þátt-
töku 40—50 iðnfyrirtækja en
þátttökufjöldinn hefur sem sé far-
ið langt fram úr vonum þeirra.
„Vonandi verður fjöldi sýningar-
gesta í takt við þetta," sagði Berg-
steinn Gunnarsson.
Sýnendur eru bæði starfandi í
framleiðsluiðnaði hvers konar á
Austurlandi svo og þjónustuiðn-
aði. Þá mun Póstur og sími sýna
margs konar nýjungar í símabún-
aði.
Ýmislegt verður gert gestum til
skemmtunar sýningardagana, að
sögn Bergsteins. Björgunarsveitin
Gró á Héraði mun skemmta
yngstu borgurunum, kórar koma
fram og lúðrasveitir hvaðanæva
úr fjórðungnum auk leikara hinna
ýmsu leikfélaga innan fjórðungs.
Aðgöngumiði sýningarinnar, sem
mun kosta 100.-, kr. gildir jafn-
framt sem happdrættismiði og að
sögn eru vinningar ekki af verri
endanum.
Eins og fyrr segir verður Iðn-
sýning Austurlands ’85 opnuð
laugardaginn 25. maí kl. 14 og
verður opin þann dag til kl. 22:00
— og eins verður sýningin opin
sunnudag og mánudag. Fjórði sýn-
ingardagurinn verður föstudagur-
inn 31. maí og verður þá opnað
með lúðrablæstri kl. 17 og opið til
kl. 22.
Þann 1. júní verður efnt til al-
menns fundar um iðnaðarmál í
fjórðungnum í tengslum við sýn-
inguna. Þar munu þeir Theodór
Blöndal og Ingjaldur Hannibals-
son flytja erindi auk þess sem for-
ráðamenn sýningarinnar vænta
nærveru iðnaðarráðherra, Sverris
Hermannssonar, en vegna anna
ráðherra að undanförnu er enn
ekki vitað hvort af því getur orðið
sagði Bergsteinn.
Sýningarnefnd Iðnsýningar
Austurlands skipa: Einar Orri
Hrafnkelsson, Guðmundur Bene-
diktsson og Björn Kristleifsson.
— Ólafur
Tónlistarskóla Kefla-
víkur slitið í 27. sinn
Herbert H. Ágústsson skólastjóri lætur af störfum
Morgunblaðið/Einar Falur
Herbert H. Ágústsson, sem nú lætur af skólastjórn Tónlistarskóla Keflavík-
KefUrík, 16. Dal.
TÓNLISTARSKÓLA Kefíavíkur var
í gær slitið í 27. sinn. Þau tfmamót
eiga sér nú stað hjá skólanum að
Herbert H. Ágústsson lætur af störf-
um, en hann hefur verið skólastjóri
síðastliðin 9 ár og kennari við skól-
ann frá 1959.
Við skólaslitin léku nokkrir
nemendur og afhent voru verðlaun
fyrir bestan árangur í hinum
ýmsu greinum sem og prófskfr-
teini. Einnig var frumflutt stutt
verk fyrir strengjakvartett eftir
Kjartan M. Kjartansson kennara.
I vetur stunduðu um 170 nem-
endur nám við skólann í nokkrum
deildum. Kennt er á öll algengustu
hljóðfæri en fjölmennust er píanó-
deildin, en við hana kenndu í vetur
fjórir kennarar. Einnig eru kennd-
ar hinar ýmsu kjarnagreinar s.s.
tónfræði, hljómfræði, tónheyrn og
tónlistarsaga. Þeir nemendur sem
stunda nám við Fjölbrautaskóla
Suðurnesja fá nám við Tónlist-
arskólann metið til eininga. Mikil
áhersla er lögð á forskólanám og
geta börn byrjað í skólanum á
fimmta aldursári, en meiningin er
að þau séu þrjú ár í forskólanum.
Þau kynnast helstu hljóðfærum og
reyna að nota þau. Þessum for-
skóla lýkur svo með því að nem-
andinn sjálfur ákveður endanlega
það hljóðfæri sem hann hefur
mestan áhuga á. Einnig er starf-
rækt unglingalúðrasveit og er Jón-
as Dagbjartsson stjórnandi henn-
ar.
Tónlistarskólinn var stofnaður
1957. Fyrstu árin fór kennslan
fram á ýmsum stöðum í bænum
þar til hann að lokum fékk inni í
Æskulýðsheimilinu við Austur-
braut og þar fer kennslan fram í
dag. Fyrirhugað er að stækka hús-
næðið til muna á næstu árum.
Ragnar Björnsson var ráðinn
fyrsti skólastjóri skólans 1960.
Hann gegndi starfinu til 1976, en
þá tók Herbert H. Ágústsson við.
Herbert lætur nú af störfum eftir
tuttugu og sex ára starf við skól-
ann. Við skólaslitin voru honum
færðar gjafir og þakklæti frá
kennurum, nemendum, Tónlistar-
félagi Keflavíkur og Keflavík-
urbæ.
Ekki hefur enn verið ráðinn nýr
skólastjóri.
—EFI
Við getum nú afgreitt allar stærðir
af YAMAHA Enduro og götuhjólum
með 3—5 vikna fyrirvara.
Athugið að verð YAMAHA mótorhjóla
er nú sérlega hagstætt.
BÍLABORG HF
Smiðshöfða 23. S. 81299
Velkomin í
þjónustuver
IBM
Þjónusta okkar hjá IBM er ma.fólgin í því að
miðla sem bestum upplýsingum, leiðbeina
þeim sem ætla að nýta sér tækni tölvunnar
og auka einnig þekkingu þeirra sem þegar
hafa tileinkað sér þessa tækni.
Þessi fræðsla fer fram í þjónustuveri IBM að
Skaftahlíð 24. Hún er ókeypis og öllum opin.
í þjónustuverinu verður þú þess vlsari hvern-
ig standa skuli að tölvuvæðingu, hvenær og
hvað er unnt eða algengast að tölvuvæða.
Kynningar á
næstunni:
Miðvikudagur 22/5 kl. 09.00-13.00
IBM PC tölvugerðir
Fimmtudagur 23/5 kl. 09.00—13.00
S/36 kynning fyrir stjórnendur
Fimmtudagur 23/5 kl. 13.30—15.30
IBM PC tengd við S/36
Föstudagur 24/5 kl. 09.00—13.00
Nýtt ritvinnslukerfí fyrir S/36
Miðvikudagur 29/5 kl. 10.00-16.00
Tölvur og umhverfi þeirra
Þátttaka tilkynnist til móttöku IBM I síma 91-27700
ÞJÓNUSTUVER
Skaftahlið 24,105 Reykjavik.
Simi 91-27700.