Morgunblaðið - 21.05.1985, Qupperneq 68
ÞRIÐJUDAGUR 21. MAÍ 1985
VERÐ í LAUSASÖLU 25 KR.
MorRunblaðið/Júlíus
Brugðið á leik að vorverkum loknum
íbúar í Stekkja- og Bakkahverfi í Breiðholti tóku saman höndum á sunnudag og hreinsuðu rækilega til í
hverfinu. 180 tonnum af rusli var ekið á haugana að þessum vorhreingerningum loknum. íbúarnir gerðu
sér glaðan dag í verklok, leikin var knattspyrna, Breiðholtshlaup IR fór fram, lambaskrokkar voru
steiktir á teini og lögreglu- og slökkviliðsmenn komu í heimsókn á tækjum sínum. Þessir ungu Breiðhylt-
ingar fengu að reyna hjól lögregluþjónsins og kunnu vel að meta. Sjá n»n»r bls. 39.
Agreiningur í ASI um samningamálin:
VMSÍ andvígt
samningum til
skamms tíma
- sem stöðva átti frekari kaupmáttarrýrnun til hausts
SVO VIRÐIST sem hugmyndir
miðstjórnar Alþýðusambands ís-
lands um að ná skammtímasamn-
ingum við Vinnuveitendasam-
bandið nú í vor tii að stöðva fyrir-
sjáanlegt áframhaldandi kaup-
máttarrýrnun séu runnar út í
sandinn. A formannaráðstefnu
ASÍ í gær lögðust fulltrúar Verka-
mannasambands íslands gegn
þessari hugmynd — gegn því að
samið yrði fyrir 15. júní og fram
yfir næstu áramót, eins og Guð-
mundur J. Guðmundsson, formað-
ur VMSÍ, sagði í samtali við blaða-
mann Mbl. Önnur aðildarsam-
bönd ASÍ voru fylgjandi hugmynd-
inni um að reynt yrði að ná.
skammtímasamningum nú en allti
virðist í óvissu um hvert framhaldl
málsins verður.
Ásmundur Stefánsson, forseti
ASf, sagði í gær að ætlunin
hefði verið að reyna að koma í
veg fyrir áframhaldandi kaup-
máttarhrap, sem til hausts yrði
líklega um 4% til viðbótar því,
sem orðið hefði á undanförnum
misserum. „Það er ljóst að í Al-
þýðusambandinu er ákveðinn
ágreiningur, sem ekki verður
leystur á einni nóttu," sagði
hann.
Magnús L. Sveinsson, formað-
ur Verslunarmannafélags
Reykjavíkur, sagði í gær að
hann teldi það ábyrgðarleysi að
láta ekki reyna á það nú, hvort
hægt yrði að stöðva fyrirsjáan-
legt kaupmáttarhrap í sumar.
Karvel Pálmason alþingis-
maður, formaður Verkalýðs- og
sjómannafélags Bolungarvíkur,
sem á aðild að Verkamannasam-
bandinu, sagðist í gær vera and-
vígur þessari afstöðu Verka-
mannasambandsins. „Ég taldi
rétt, að láta reyna strax á hvort
hægt væri að ná bráðabirgða-
Rætt er um aukna skatt-
heimtu vegna húsnæðislána
- hugmyndum um erlenda lántöku hafnað
FJÁRHAGSVANDI húsnæðislánakerfis ríkisins er stærsta óleysta vandamálió
vegna afgreiöslu á fnimvarpi til lánsfjárlaga ársins 1985. í síðustu viku voru
uppi hugmyndir um að taka 300 milljóna kr. erlcnt lán til að brúa bilið að
þessu leyti. Þeim hefur nú verið hafnað og hafa fulltrúar stjórnarflokkanna
samþykkt að ganga til viðræðna við stjórnarandstöðuna um lausn málsins, en
í tillögum hennar felst meðal annars að kannaðar verði leiðir til nýrrar
innlendrar tekjuöflunar. Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins er því talið
líklegt, að skattahækkanir komi til álita á þessum viðræðum.
I hugmyndinni um að afla 300
milljóna kr. til húsnæðislánakerf-
isins umfram þær 1,790 millj. kr.
sem nú eru í frumvarpinu til
lánsfjárlaga felst, að 200 milljón-
um yrði varið til sérstakra lána
vegna greiðsluerfiðleika en 100
milljónum vegna greiðslujöfnunar,
hvort tveggja vegna eldri lána.
Væri þessi leið farin fengjust 200
milljónir til þess að lána til húsa
eða íbúða sem fokheldar yrðu á
þessu ári. Sérfræðingar Húsnæð-
isstofnunar ríkisins eru hins vegar
þeirrar skoðunar, að 750 milljónir
kr. kunni að vanta til nýlána í ár.
Hvorugur stjórnarflokkanna tel-
ur unnt að afla 750 milljóna kr.
umfram það sem nú segir í frum-
varpinu. Ekki er talið liklegt að
samkomulag takist um, að verja
aðeins 200 milljónum til nýlána.
Innan þingflokks sjálfstæðismanna
hefur komið fram gagnrýni á það,
að Alexander Stefánsson, félags-
málaráðherra, skuli gefa fyrirheit
um rýmkaðar útlánareglur Hús-
næðisstofnunar á sama tíma og
ekki hefur tekist að afla fjár til að
standa við núverandi skuldbind-
ingar.
Samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins hafa menn ekki komið sér
niður á það, hvernig staðið skili að
skattahækkunum, ef til þeirra
verði gripið. Stjórnarandstöðu-
flokkarnir hafa gagnrýnt ýmsar
skattalækkanir ríkisstjórnarinnar,
svo sem á ferðamannagjaldeyri á
sínum tíma. Jón Baldvin Hanni-
balsson, formaður Alþýðuflokks-
ins, hefur meðal annars lagt til að
undanþágur undan söluskatti verði
afnumdar. Stjórnarflokkarnir hafa
heitið lækkun tekjuskatts á þessu
ári og beint skattheimtu inn á
braut óbeinna skatta svo sem með
hækkun söluskatts.
Fjáröflun vegna húsnæðislána-
kerfisins er aðeins eitt þeirra
óleystu mála sem stjórnmálaflokk-
arnir glíma við vegna afgreiðslu
frumvarps til lánsfjárlaga. Sam-
kvæmt heimildum Morgunblaðsins
er líklegt að beiðnum um fjáröflun
til annarra þátta en húsnæðislána
verði almennt hafnað.
Sjá nánar um húsnæðismálin á
bls. 2, 39 og 64.
samningi við Vinnuveitenda-
sambandið til að tryggja þann
kaupmátt, sem samið var um
síðastliðið haust," sagði hann. „í
september næstkomandi verður
kaupmáttur orðinn lægri en
hann var fyrir samningana í
fyrra. Ég tel það fyrir neðan all-
ar hellur, að af hálfu stjórnar
Verkamannasambandsins lágu
engin drög fyrir formannafundi
þess á sunnudaginn, þar sem
innan við 30 manns af um 70
voru mættir. Þeir sem réðu ferð-
inni á þeim fundi töluðu um að
fá 30% kauphækkun strax í
haust — rétt eins og gert var í
fyrrahaust."
Karvel sagði að þessi afstaða
VMSÍ hefði orðið til þess, að
ekki hefði verið mótuð stefna
ASÍ í komandi samningum, eins
og reiknað hefði verið með.
„Þess i stað er óbreytt ástand,
kaupmáttur heldur áfram að
falla og menn halda að sér
höndum," sagði hann.
Sjá nánar um formannafund ASÍ á
blaðsíðu 36.
Keflavík:
• •
Olvaður
ók á þrí-
tugan mann
Á sunnudagskvöldið var ekið
á liðlega þrítugan mann á
Hringbraut í Keflavík, fyrir
utan hús íþróttavallarins. Mað-
urinn var á leið frá íþróttavell-
inum og gekk aftur fyrir bifreið
sína, þegar japanskri fólksbif-
reið var ekið suður Hringbraut.
Ökumaður missti stjórn á bif-
reið sinni og lenti á manninum
og bifreið hans.
Maðurinn kastaðist um 12
metra vegalengd og skarst
mikið á höfði og andliti auk
annarra áverka, sem hann
hlaut. Ökumaður fólksbif-
reiðarinnar ók af slysstað, en
náðist skömmu síðar. Hann
var ölvaður og hafði skömmu
áður ekið utan í aðra bifreið
á Hringbraut.
84 bátar á
humarvertíð
HUMARVERTÍÐ er hafin og hafa
84 bátar leyfi til veiða í ár, nokkru
færri en í fyrra. Aflakvóti á ver-
tíðinni er 2.370 tonn, sem er held-
ur minna en í fyrra. Þá var kvót-
inn 2.600 tonn. Bátar hafa fengið
aflakvóta i samræmi við afla und-
anfarin ár. Kvótinn á hvern bát er
nánast hinn sami og í fyrra, sem
helgast af því að færri verða að
veiðum.