Morgunblaðið - 22.05.1985, Blaðsíða 26
26
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 22. MAl 1985
AP/Símamynd
Óvelkomnir útlendingar
Enn er verið að flytja ólöglega innflytjendur í Nígeríu á brott frá landinu og eru til þess notuð alls kyns
farartæki, sem ekki eru öll vel til mannflutninga fallin. Þessi mynd var tekin í Lagos þegar verið var að flytja
Ghanabúa til landamæranna en eins og sjá má getur varla farið mjög vel um fólkið á bílnum. Það er ekki meira,
en svo, að það komist fyrir á bflpallinum.
Sovétríkin:
Vilja tvöfalda
pepsidrykkjuna
Moskvu, 21. mmf. AP.
PEPSICO-fyrirtækið bandaríska og
samning um að tvöfalda framleiðslu
næstu flmm árum.
Samningurinn gildir fram til
ársins 1990 og er annars vegar um
framleiðslu og sölu Pepsi-Cola í
Sovétríkjunum og hins vegar um
sölu sovésks vodka, Stolichnaya, í
Bandarikjunum. Pepsi-Cola er nú
selt árlega í Sovétríkjunum fyrir
200 milljónir dollara og Stolichn-
aya í Bandaríkjunum fyrir 100
milljónir að því er Donald M.
Kendall, framkvæmdastjóri
Pepsico, segir í tilkynningu frá
fyrirtækinu. Sagði þar, að pepsi
væri sú útlend neysluvara, sem
seldist mest í Sovétríkjunum.
Coca-Cola-fyrirtækið er einnig
komið inn á sovéska markaðinn en
í janúar sl. var um það samið, að
kókin yrði seld í gjaldeyrisversl-
ununum svokölluðu í Sovétríkjun-
Forseti Grikklands:
sovésk stjórnvöld undirrituðu í dag
og sölu Pepsi-Cola í Sovétríkjunum á
um. Auk þess framleiðir Coca-
Cola Fanta-drykkinn, sem er í
heimssölu í þriðja sæti á eftir kók-
inni og pepsíinu, og hefur hann
fengist ásamt pepsi í sovéskum
matvöruverslunum frá 1979.
Pepsi-Cola er nú framleitt í 14
verksmiðjum í Sovétríkjunum og
selst hver flaska, 0,36 1, fyrir 35
kópeka, um 17 kr. ísl.
Kambódía:
Haldið upp
á „dag
hatursins
Hyggst sitja áfram þótt
stjórnarandstaðan sigri
Aþenu, 21. mai. AP.
CHRISTOS Sartzetakis, nýkjörinn forseti Grikklands, segir í yfirlýsingu, sem hann sendi frá sér í dag,
að hann hafl ekki „undir neinum kringumstæðum“ í hyggju að segja af sér embætti, enda þótt
stjórnarandstæðingur vinni sigur í þingkosningunum í landinu 2. júní nk.
Yfirlýsing forsetans kom í Nýja lýðræðisflokksins, sem er sjálfsögðu segja af sér“ ef ríkis-
kjölfar þeirra ummæla Const- höfuðflokkur stjórnarandstðð- stjórnin missti meirihluta sinn.
antine Mitsotakis, formanns unnar, að forsetinn mundi „að Mistotakis lét þessi orð falla á
Kreisky varaður
yið morðtilræði
— og hætti við ísraelsför
Vfn, 21. maí. AP.
BRUNO Kreisky, fyrrum kanslari Austurríkis, sem átti þátt í að semja
um skiptin á ísraelsku og palestínsku Tóngunum, sagði í dag, að hann
hefði hætt við fyrirhugaða ferð til ísraels eftir að hann hafði verið
varaður við hugsanlegu morðtilræði.
Kreisky ætlaði að leggja í dag
upp í átta daga ferð um Tsrael en
í henni stóð m.a. til, að hann
flytti ræðu í háskólanum í Tel
Aviv og Jerúsalem og hitti að
máli Shimon Peres, forsætisráð-
herra. Hafði hann einnig ráðgert
að fara á Vesturbakkann og til
Gaza til fundar við „palestínska
vini“.
Bruno Kreisky er gyðingur en
hefur ekki lagt neina rækt við
trúna. Þau 13 ár, sem hann
gegndi kanslaraembættinu, hafði
hann mikil samskipti við ýmsa
leiðtoga Araba og var oft gagn-
rýninn á stefnu israelskra stjórn-
valda. Átti hann nokkurn þátt í
fangaskiptunum fyrir nokkrum
dögum þegar Israelar höfðu
skipti á 1.500 Palestínumönnum
og þremur ísraelskum hermönn-
um en í ísrael er því haldið fram,
að í hópi Palestínumannanna
hafi verið nokkrir alræmdir
hryðjuverkamenn. Kreisky segist
hins vegar engin afskipti hafa
haft af því hverjum var sleppt,
aðeins hve mörgum.
Kreisky segist hafa hætt við
ferðina þegar starfsmenn ísra-
elsku stofnunarinnar, sem bauð
honum til landsins, Alþjóðlegu
friðarrannsóknastofnunarinnar í
Miðausturlöndum, hefðu varað
hann við og sagt, að hætta væri á,
að reynt yrði að ráða hann af
dögum ef hann kæmi til landsins.
Bruno Kreisky, fyrrv. kanslari.
blaðamannafundi í gær, sem var
sjónvarpað beint.
Forseti Grikklands er, sam-
kvæmt stjórnarskránni, kjörinn
af hinu 300 manna þingi lands-
ins til fimm ára í senn. Bendir
Sartzetakis forseti á það í yfir-
lýsingu sinni, að hann hafi verið
kosinn með lögmætum hætti og
hlotið tilskildan meirihluta at-
kvæða. Stjórnarandstæðingar
halda því hins vegar fram, að
Sarzetakis hafi verið kosinn
ólögmætri kosningu og hafa
neitað að viðurkenna kjör hans.
Sartzetakis, sem er 56 ára að
aldri, var kjörinn forseti í mars
sl. með 180 atkvæðum, og réð at-
kvæði þingforsetans, Ioannisar
Alverasar, sem þá var jafnframt
settur forseti landsins, úrslitum.
Halda stjórnarandstæðingar því
fram, að hann hafi ekki haft rétt
til að greiða atkvæði. Sérfræð-
ingar um túlkun stjórnarskrár-
innar eru ósammála um þetta
atriði, og hallast sumir á sveif
með stjórnarandstöðunni, en
aðrir styðja túlkun ríkisstjórn-
arinnar.
U
Baagkok, 20. maí. AP.
RÍKISSTJÓRNIN í Kambódíu hélt í
dag upp á svokallaðan „hatursdag"
til minningar um að ógnarstjórn
rauðu khmeranna leið undir lok
fyrir tilstilli Víetnama árið 1979 eftir
að hafa drottnað síðan árið 1975.
Stjórnvöld segja rauðu khmerana
hafa drepið 3 milljónir Kambódíu-
manna og á hinum árlega hatursdegi
eru landsmenn hvattir til að rifja
upp hryðjuverk liðinna ára og
gleyma þeim ekki, heldur koma í
veg fyrir að slíkt endurtaki sig með
því að sýna stjórnvöldum hollustu.
Um 4000 manns voru saman
komnir þar sem ýmsir stjórnmála-
menn héldu tölur, þar á meðal for-
setinn Heng Samrin, sem Víet-
namska setuliðið kom til valda og
stendur á bak við, og forsætisráð-
herrann Hun Sen. Samrin ásakaði
Bandaríkin, Kína og Thailand um
að ausa fé til rauða khmeranna til
þess að þeir gætu haldið uppi öfl-
ugum skæruhernaði gegn „vinum
okkar Víetnömum". Rauðu khmer-
arnir berjast gegn Samrin-stjórn-
inni ásamt khmerum og stuðnings-
mönnum Shianouks prins, en hann
veitir forsæti útlagastjórnar sem
víðast hvar er viðurkennd sem hin
réttmæta stjórn Kambódíu.
Leyniútvarpsstöðvar stjórnar-
andstöðuhópanna voru með út-
sendingar í tilefni dagsins og
minntu þær Kambódíumenn á, að
fjöldi embættismanna stjórnarinn-
ar i Phnom Penh, þar á meðal
Heng Samrin og Hun Sen, væru
fyrrverandi embættismenn úr
stjórn rauðu khmeranna sem gáfu
sig á vald Víetnama er þeir gerðu
innrás i landið. Þykir þaö skjóta
heldur skökku við og mikill stuðn-
ingur er við andspyrnuöflin i land-
inu.
Evrópubandalagið:
Undirrita samninginn við
Spán og Portúgal 12. júní
Bnixw-I, 20. maí. AP.
Samningurinn um inngöngu Spánar og Portúgals í Evrópubandalagið verð-
ur formlega undirritaður við sérstaka athöfn, sem fram fer í Madrid og
Lissabon 12. júní nk., að því er talsmaður bandalagsins sagði í dag.
Samkomulag um aðild landanna
á Pýreneaskaga náðist 29. mars sl.
og höfðu undirbúningsviðræður
um stækkun bandalagsins þá stað-
ið í átta ár, en aðildarlöndunum
hefur ekki fjölgað síðan Grikkland
gekk í bandalagið árið 1981.
Danmörk:
Læknar beittu LSD-
lyfinu af handahófi
Kaupmannahofn, 20. maí. AP.
UM HELGINA jókst mjög þrýstingur á dönsku stjórnina um að láta fara
fram rannsókn á örlögum geðsjúklinga, sem gefin voru LSD-lyf á 7.
áratugnum og lifa enn við stöðuga ofskynjunarmartröð.
Það var heimildaþáttur í
danska sjónvarpinu á laugar-
dagskvöld, sem vakti þessi við-
brögð. Var hann hápunktur
rannsókna, sem fjölmiðlar hafa
innt af hendi um þetta mál til að
upplýsa, hvernig nokkrir danskir
geðlæknar notuðu LSD, áður en
lyfið var bannað árið 1974.
í þættinum fordæmdu nokkrir
helstu geðlæknar landsins þaö
sem þeir vildu ekki nefna með-
ferð, heldur eingöngu tilraunir
með LSD, sem enga hliðstæðu
hefðu átt í nokkru öðru landi.
Gagnrýnin beindist aðallega
að fyrrverandi yfirlækni við
spítala í Kaupmannahöfn, en
hann hafði gefið um 400 sjúkl-
ingum lyfið af algjöru handahófi
um nokkurt skeið án nokkurrar
meðferðar á undan eða eftir, og
skrifað síðan um þessar lyfja-
gjafir í opinber vísindablöð.
í þættinum báru nokkrir
sjúklingar vitni um, hversu líf
þeirra hafði verið lagt í rúst, er
þeir voru plataðir eða þvingaðir
til að gangast undir handahófs-
kennda LSD-lyfjameðferð.
Sögðu þeir lyfjagjafirnar ber-
sýnilega hafa þjónað þeim til-
gangi einum að kanna áhrif efn-
isins á mannshugann.
Hingað til hafa innanríkis-
ráðuneytið og yfirstjórn geðheil-
brigðismála vísað öllum kvört-
unum fyrrum LSD-sjúklinga á
bug, og vildu þessir aðilar ekkert
um málið segja á sunnudag.