Morgunblaðið - 22.05.1985, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 22. MAÍ 1985
43
LITGREINING MEÐ
CROSFIELD
540
LASER
LYKILLINN AD VANDADRI
LITPRENTUN
AF STAÐ!
. . . í hverju?
Nýjum bíl frá Bílatorgi
Mikið úrvai góðra og notaðra bfla
„Neðst i Nóatúni OMM
eru viöskiptavinir okkar m M%Jm
efstir á blaði NÓATÚNI 2 • SlMI: 621033
Stjóm BSRB ræðir úrsögn KÍ á fimmtudag:
STJÓRN Bandalags starfsmanna ríkis og bsja (BSRB) mun á fundi sínum á
fimmtudaginn rsða fyrirsjáanlega úrsögn Kennarasambands íslands (KÍ) úr
bandalaginu frá og með 1. janúar á nssta ári. Fram hefur komið, að forysta
BSRB er ósátt við þá niðurstöðu fulltrúaráðs KÍ að taka ekki tillit til auðra
seðla úr allsherjaratkvsðagreiðslu sambandsins um úrsögn úr bandalaginu.
Kristján Thorlacius, formaður
BSRB, sagðist í samtali við blaða-
mann Mbl. vera ósáttur við máls-
meðferð fulltrúaráðsins. „Ég setti
fram þá hugmynd fyrir fulltrúa-
ráðsfundinn á laugardaginn að
gerðardómur lögfræðinga skæri úr
um það hvort telja ætti auðu seðl-
ana með en sú hugmynd fékk ekki
hljómgrunn," sagði Kristján.
„Skoðun mín er sú, og hana byggi
ég á áliti lögfræðinga okkar, að
auðu seðlana hefði átt að telja með
og að Kennarasambandið eigi að
vera áfram í okkar röðum."
Valgeir Gestsson, formaður Kl,
sagði að fulltrúaráðsfundurinn
hefði falið stjórn sambandsins að
hefja undirbúning að þvi að KÍ
starfaði utan BSRB og að eftir því
væri nú unnið. „Það er vitaskuld
ljóst að við verðum í BSRB til ára-
móta,“ sagði hann, „en þá munum
við væntanlega fara úr banda-
laginu."
Valgeir sagði að á fulltrúaráðsf-
undinum hefði komið fram tillaga
um að láta endurtaka allsherjar-
atkvæðagreiðsluna um úrsögn úr
BSRB en hún hefði verið felld með
17 atkvæðum gegn 8. Einnig hafi
komið fram tillaga um að láta
gerðardóm skera úr um hvort telja
bæri með auðu seðlana en sú til-
laga hefði ekki komið til atkvæða,
þar sem áður hefði verið búið að
samþykkja tillögu um að telja
auðu seðlana 151 ekki með.
Samþykkt fulltrúaráðsins á
laugardag, sem greint var frá í
sunnudagsblaði Mbl., var svohljóð-
andi:
„I allsherjaratkvæðagreiðslu 2.
og 3. maí sl. um aðild KI að BSRB
greiddu 68,6% þeirra, sem afstöðu
tóku, atkvæði með því að KÍ gengi
úr BSRB.
Fulltrúaráð KÍ telur að auðir
seðlar og ógildir geti ekki ráðið úr-
slitum um áframhaldandi aðild Kí
að BSRB og að úrslit allsherjar-
atkvæðagreiðslunnar feli í sér úr-
sögn, sbr. 7. gr. laga BSRB og því
verði Kennarasamband íslands
utan BSRB frá og með 1. janúar
1986.“
í fréttatilkynningu frá KÍ segir
meðal annars, að samkvæmt lög-
um BSRB megi taka ákvörðun um
úrsögn félags úr samtökunum ann-
að hvort á aðalfundi (fulltrúaþingi
landssambands) eða með allsherj-
aratkvæðagreiðslu meðal félags-
manna. KÍ hafi kosið þá lýðræðis-
legu leið að hafa allsherjarat-
kvæðagreiðslu um málið.
Á kjörskrá voru 3.244. Niður-
stöður talningar urðu þær, að af
2.291 gildu atkvæði sögðust 1.572
vilja ganga úr BSRB eða 68,62% en
719 eða 31,38% vildu vera áfram í
BSRB. Af þeim 3.244 sem voru á
kjörskrá vildu 48,46% ganga úr
BSRB, 22,16% vildu vera áfram,
auðir seðlar voru 4,65% og einn
seðill var ógildur, eða 0,03%. Alls
hafi 75,3% félaga tekið þátt í alls-
herjaratkvæðagreiðslunni og
70,62% tekið afstöðu.
Síðan segir: „Fulltrúaráð bendir
á, að í lögum BSRB er hvergi talað
um meðferð auðra seðla nema í
þingsköpum samtakanna en þar
segir í 19. grein, að auðir seðlar
skuli ekki teljast með þegar at-
kvæði eru talin og það reiknað út
hvort tilskilinn meirihluti sé fyrir
hendi.
Fulltrúaráð lítur svo á, að sá
sem skilar auðum seðli, taki ekki
afstöðu og sé því samþykkur
ákvörðun meirihlutans eins og
menn eigi að venjast í kosningum
til Alþingis."
Askriftarsímmn er 83033
Tillaga um nýja atkvæða-
greiðslu felld hjá KÍ
MYNDAMOT HF