Morgunblaðið - 22.05.1985, Blaðsíða 45
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 22. MAl 1985
45
Hann lét
það ekkert
á sig fá
Þessi neyðarlega uppákoma
varð í krikketleik í
Bournemouth fyrir skömmu,
Ned Heeley, leikmaður heima-
bæjarliðsins var að leggja sig
allan fram er óhappið gerðist,
saumarnir sviptust upp og það
glitti í bert holdið. En Ned lét
þetta ekkert á sig fá þó hann
vissi að töluverður hópur
áhorfenda væri til staðar,
heldur lagði sig enn meira
fram til þess að leikurinn yrði
meira spennandi en sú sjón
sem við áhorfendum blasti er
hann sneri baki við þeim ...
Fyrri eiginkona
Frances Tomelty.
í kvikmyndinni
Dune sem útsend-
ari hins illa.
STING
„Erí raun
hræðilega
venjulegur
maðura
Margir virðast álíta að ég sé
skuggasækinn og sérvitur
auðkýfingur sem engin leið sé að
ræða við eða nálgast á neinn
hátt. Ég botna varla í því hvern-
ig á því stendur, því sannast
sagna er ég hræðilega venju-
legur maður í alla staði," segir
hinn frægi Sting, söngvari rokk-
hljómsveitarinnar Police og lið-
tækur leikari í seinni tíð.
Sting hefur vakið athygli fyrir
frammistöðu sína á hvíta tjald-
inu. íslendingar sáu hann sfðast
í ævintýramyndinni Dune og þó
hlutverk Stingsins væri ekki gíf-
urlega stórt, var hann þó þar
réttur maður á réttum stað. En
er Sting hættur afskiptum af
tónlist? „Það má enginn túlka
tilvist mína í kvikmyndum á þá
leið að ég sé hættur í tónlistinni.
Ég hætti því aldrei og Police
verða í deiglunni áður en langt
um líður. Eg gæti aldrei slitið
mig frá tónlist, hún er í raun
mitt tjáningarform. Hins vegar
finnst mér gaman að leika i
kvikmyndum og meðan vel geng-
ur gef ég mig að hvoru tveggja,"
segir Sting.
Þær sögur fara hátt að einka-
líf Stings trufli hann ekkert, þar
sé allt eins og blómstrið eina.
Eftir hjónaband með Frances
Tomelty, sem gekk vel allt þar
til velgengni Sting og Police fór
að verða veruleg, þá slitnaði upp
úr sambúðinni, lét Sting þau orð
Með núverandi
sambýliskonu,
Trudie Styler.
Sting í öllu sínu veldi.
falla að hann myndi ekki gifta
sig aftur í bráð. Nú er hann
fylgisveinn Trudie Styler og er
annað barn þeirra nýlega komið
í heiminn. Sting er ánægður og
segir allt með felldu. Hann sé
samt enn harðákveðinn í því að
gifta sig ekki. „Hjónaband á ekki
við mig, ég held að ég sé búinn
að læra það þótt seint sé,“ segir
Stingurinn.
VINNINGAIl DREGNIR ÚT 3. JÚNÍ
OG AFTUR
500
VINNINGAR 10. JÚNÍ.
AÐALVINNINGAR DREGNIR UT 17. JUNI.
BÍLLÁRSINS, OPEL KADETT,
HLAUT EINNIG VIÐURKENNINGUNA
„GULLNA STÝRIÐ 1985“
ÍIBÍLAR
9 OPEL KADETT GL
5 DR„ 1,3 L, 60 HA.
OG
2 OPEL KADETT GSI
SEM AÐ AUKI HLAUT ORYGGISVERÐLAUN
AFPA: „PRIX DE LA SÉCURITÉ,‘.