Morgunblaðið - 22.05.1985, Page 55
MORGUNBLADID, MIÐVIKUDAGUR 22. MAÍ1985
55
Fjallað
um kæru-
málið
í GÆRKVÖLDI var fjallað um
kærumál Þróttar á hendur
KR-ingum fyrir ad hafa not-
að ólöglegan leikmann aó
þeirra mati. Aganefnd KSÍ
tók á móti gögnum í málinu í
gær og fjallaði um það en
síðan var fundi frestaö og
málið verður tekið fyrir síð-
ar.
Anderlecht
með mikla
yfirburði
ANDERLECHT, sem nú þeg-
ar er oröið belgískur meist-
ari í knattspyrnu, vann ör-
uggan sigur á Racing Jet,
4—0, á sunnudag í næstsíð-
ustu umferö f 1. deildar-
keppninni í knattspyrnu þar
í landi. Liöið hefur aöeins
tapað einum leik á öllu
keppnistímabilinu og gert
sjö jafntefli, sem veröur að
teljast frábær árangur.
Úradit leikja á Hunnuda; uröu þeni:
FC Meehlin — Lokeren 1—3
Waregem — Standard Liege 2—2
Beernrhot — Beveren 1—1
FC Iáege — Cerele Brttgge 4—1
PC Briigge — Lierse 7—0
Sint Niklaan — FC Antwerpen 1—3
Waterachei — VC Kortrijk 0—0
AA Gbent — iX’ Seraing 2—0
Anderlecht — Racing Jet 4—0
Staöan er nú þannig eftir 33 omferöin
Anderlecht
FC Briigge
Waregem
FCLiege
Beveren
AA Gbent
ÍX’ Antwerpen
Standard Liege
Lokeren
Wnterecbei
Cerele Brogge
iX’ Mechlin
FC Kortrijk
FC Seraing
Lierae
Beerecbot
Sint Niklaas
Kacing Jet
25 7 1 96:22 57
19 10 4 79:44 48
19 7 7 63:36 45
17 11 5 63:35 45
16 7 10 64J1 39
14 11 8 61:35 39
12 13 8 42:45 37
9 13 11 41:43 31
10 10 13 52:55 30
8 14 II 26:37 30
10 8 15 33:51 28
9 10 14 37:53 28
8 11 14 40*0 27
9 8 16 42:61 26
7 10 16 25*7 24
7 9 17 38*0 23
5 9 19 38:77 19
5 8 20 37:75 18
Horgunblaðii/FViðþjófur
• Sveinbjörn Hákonarson skorar hér fyrsta mark leiksins. Jakob Pótursson og Stefán, markvörður, koma engum vörnum viö.
KR-INGAR HEPPNIR
Halldór
sprækur
INNANFÉLAGSMÓT Skíðafélags
Reykjavíkur í skíöagöngu fór
fram fyrir nokkru. Gangan fór
fram í Bláfjöllum í blíðskapar-
veðri. Mótstjóri var Einar Ólafs-
son.
Úrslit:
Karlaflokkur, 8 km: mín.
Halldór Matthíasson 28,44
40 ára og eldri karlar,
4 km:
Guöni Stefánsson 15,33
Kvennaflokkur 40 ára og eldri,
4 km:
Svanhildur Árnadóttir 23,06
Unglingaflokkur 15 ára og yngri,
4 km:
Sveinn Andrésson 23,06
oÞETTA kallast að henda frá sér
tveimur stigum," sagði Höröur
Helgason, þjálfari Akurnesinga,
eftir aö KR-ingar höfðu skorað
jöfnunarmarkiö á síðustu mínútu
leiksins úr vítaspyrnu. Já, það
sýndi sig í leiknum í gær að allt
getur gerst og ekkert er öruggt
fyrr en flautað hefur verið til
leiksloka. Akranes og KR geröu
jafntefli, 1—1, ( 1. deildarkeppn-
inni í knattspyrnu á KR-vellinum
við Frostaskjól í gærkvöldi.
Fyrri hálfleikur byrjaði mjög
fjörlega og voru Akurnesingar
mjög aögangsharöir viö mark
KR-inga. Strax á 2. mín. komst
Höröur Jóhannesson innfyrir vörn
KR og skaut góöu skoti sem
stefndi í autt markiö, en á síöustu
stundu tókst Ágústi Jónssyni, aö
bjarga á linu. Einni mínútu síöar
— jöfnuðu úr víti
brenndi Höröur af í dauöafæri fyrir
opnu marki.
Markiö lá í loftinu og á níundu
mínútu skoraöi Sveinbjörn Hákon-
arson. Hann átti þetta mark sjálfur
sólaöi einn varnarmann, rakti bolt-
ann fyrir framan vítateig og skaut
síöan föstu skoti niöur viö stöng,
óverjandi fyrir Stefán markvörö
KR-inga. Um miöjan fyrri hálfleik
átti Árni Sveinsson skot í slá og
yfir, úr aukaspyrnu.
Þegar líöa tók á hálfleikinn fóru
KR-ingar aö komast meira inn í
leikinn og voru nærri búnir aö
jafna á 28. mínútu er Ásbjörn
Björnsson átti lúmskt skot í hlið-
arnetiö. Fjórum mínútum síöar var
svo Gunnar Gislason meö hörku-
skot rétt utan vítateigs en Stefán
og Birkir varöi vel.
Á 43. mín. átti Sveinbjörn gott
skot aö marki KR-inga sem Stefán
varöi naumlega.
Einni mínútu síöar voru
KR-ingar klaufar aö skora ekki.
Skot frá Ágúst haföi komiö á
markið og Birkir varöi, en hélt ekki
knettinum og elti hann út í teiginn,
þar náöi Björn Rafnsson boltanum
og skaut aö mannlausu marki Ák-
urnesinga, en hitti ekki.
Staöan því 1—0 fyrir (A í hálf-
leik.
Seinni hálfleikur byrjaöi eins og
sá fyrri, meö mikilli pressu frá Ak-
urnesingum. Höröur átti skalla á
fyrstu mínútum hálfleiksins sem
Stefán varöi vel. Karl var ekki langt
frá því aö koma knettinum í netlö
nokkrum mínútum síöar, en var
aöeins of seinn.
Á 53. mínútu bjargar Karl Þórö-
arson á línu skoti frá Ágústi Jóns-
syni. Uppúr því komast Akurnes-
ingar í hraöaupphlaup og Svein-
björn skýtur yfir í góðu færi.
Fimm mínútum síöar munaöi
á síðustu mínútu
KR — ÍA
1:1
Texti: Valur B. Jónatansson
Mynd: Friðþjófur Helgason
hársbreidd aö Skagamenn skor-
uöuöu. Árni Sveinsson átti þá fal-
lega fyrirgjöf fyrir mark KR og þar
var Höröur á auöum sjó og náöi
hörku skalla, þar sem knötturinn
lenti í stöng.
Skömmu síðar kemst Karl einn í
gegn, en Stefán nær aö hiröa bolt-
ann af tánum á honum.
Á 20, mínútu var Sæbjörn í
dauöafæri, einn fyrir opnu marki,
en hitti boltann illa.
Jakob Pétursson KR-ingur var
rekinn af velli, er hann sparkaöi i
Júlíus Ingólfsson. Þetta var Ijótt
brot og veröskuldaöi útafrekstur.
KR-ingar voru því einum færri
þaö sem eftir var leiksins og virtust
þeir eflast viö þaö. Þegar leiktim-
inn var aö renna út og allir voru
farnir aö bóka sigur Skagamanna,
var dæmt víti á Sigurö Lárusson er
hann handlék knöttinn í eígin vita-
teig. Björn Rafnsson skoraöi síöan
af miklu öryggi jöfnunarmark leiks-
ins á síöustu stundu.
Leikurinn var mjög opinn og
skemmtilegur og mörg færi á báöa
bóga, þó voru færi Skagamanna
hættulegri. Allt sem vantaöi í leik-
inn voru mörkin, þau létu á sér
standa. Basöi liöin léku sóknar-
knattspyrnu. KR-ingar höföu
heppnina meö sér.
i stuttu máll:
KR-völlur 1. delld.
KR — ÍA 1—1(0—1)
Mark ÍA: Svelnbjörn Hákonarson á 9. min.
Mark KR: Bjðm Rafnsson á 90. min. (vitl).
Rautt spjald: Jakob Pétursson, KR.
Gult spjakt: Július Ingótfsson, IA.
Ahorfendur: 1391.
Oómari: Ragnar Örn Pétursson og dsemdi
hann vel
Einkunnagjöfin:
KR: Stefán Jóhannsson 3, Jakob Pétursson 1,
Hálfdán Örlygsson 3, Jóstefnn Einarsson 2,
Hannes Johannsson 3, Agúst Már Jónsson 4,
Willum Þórsson 3, Bjöm Rafnsson 3, Sssbjöm
Guömundsson 2, Július Þorfinnsson 1 (vm),
Asbjöm Björnsson 1, Gunnar Gislason 3,
Sævar Leifsson lék of stutt.
lA: Blrkir Kristlnsson 3, Heimir Guómundsson
3, Olafur Þórðarson 3, Siguróur Lárusson 3,
Guójón Þóróarson 3, Aml Sveinsson 3, Jón
Askeisson 2. Július Ingótfsson 2, Kart Þóróar-
son 3, Hðróur Jóhannesson 4, Sveinbjörn Há-
konarson 3, Lúövik Bergvinsson lék of stutt.
Njarðvík og
KA áfram
NJARÐVÍk sígraði Selfoss i bik-
arkeppni KSI, 2—1, f Njarðvfk f
gærkvöldi.
Mörk Njarðvfkur skoruðu
Haukur Jóhannsson og Unnar
Stefánsson. Mark Selfoss gerði
hinn gamalkunni Sumarliöi Guð-
bjartsson. öll mörkin voru gerð (
fyrri hálfleik. Njarövíkingar höföu
undirtökin í leiknum.
Á Akureyri spiluðu KA og
Magni einnig í bikarkeppninni og
sigraöi KA með einu marki gegn
engu. Mark KA geröi Tryggvi
Gunnarsson.
Opna „Kasco“-mótið
í golfi á
Á morgun, fimmtudag, fer fram
opna „Kasco“-mótið f fyrsta sinn
hérlendis. Leikiö er á Grafar-
holtsvelli, 18 holu punktakeppni
með forgjöf.
Hæsta gefin forgjöf veröur 24,
þannig aö kylfingar meö forgjöf
19-24 fá 2 högg í forgjöf á sumar
holurnar. Ræst veröur út frá kl.
13.00 til 18.40. Skráning fer fram í
Golfskálanum í símum 82815 og
84735.
Bakhjarl þessa móts er Selfell,
sem hefur umboð fyrir Kasco-vör-
urnar á íslandi. Kasco-golfboltar
og hanskar eru tiltölulega nýjar
vörur á golfmarkaönum meö sífellt
stærri hlutdeild í honum. Höfuö-
stöövar fyrirtækisins eru i Japan
morgun
og er Kasco nú þegar oröiö stærst
í heiminum í framleiöslu hanska
fyrir kylfinga, ársframleiöslan 5
milljónir.
Öll verðlaun í mótinu eru gefin
af Selfelli. Veittir veröa verölauna-
bikarar fyrir 3 efstu sætin, svo og
bikar fyrir besta skor. Auk þess fá
allir verðlaunahafar golfbolta og
hanska, 3 tyiftir bolta fyrir 1. sæti,
2 fyrir 2. sæti og fyrir besta skor
og 1 tylft fyrir 3. sæti. Aukaverö-
laun veröa fyrir aö vera næstur
holu á öllum stuttu holum vailarins,
1 tylft bolta og hanski.
Þá er rétt aö geta þess, aö allir
þátttakendur i keppninni fá gefins
Kasco-golfbolta.
(Fféttalllkynning)