Morgunblaðið - 07.06.1985, Síða 51
MORGUNBLAÐIÐ, FOSTUDAGUR 7. JUNl 1985
VELVAKANDi
SVARAR í SÍMA
10100 KL. 14—15
FRÁ MÁNUDEGI
TIL FÖSTUDAGS
;o/ UJh.. °JJ ff
Víkingar án laga
Z skrifar:
Hvers vegna ailan }>ennan
gauragang um bjór? Er ekki nægj-
anlegur bjór í landinu?
Flugliðar og farmenn, sem títt
fara á milli landa, fljóta í bjór, að
sögn. Landsmenn eru á sífelldu
flandri utan og út aftur, enda
verður að eyða öllu þe: su erlenda
sláttufé, sem streymir inn í iand-
ið. Ferðamenn koma hiaðnir bjór
út úr flughöfninni. Hvað varðar
þá um heimasitjandi?
Það fæst líka nægur bjór á
svörtum markaði. Það þarf enginn
að vera bjórlaus sem eftir leitar.
Svarti bjórinn er að vísu dýr. Enn
dýrari yrði hann þó ef seldur yrði
í ríkisverzlunum (ÁTVR).
Efni til ölgerðar fæst í annarri
hverri matvöruverzlun og „hollt er
heima hvat“. Ölkær maður lætur
sig ekki muna um svolitla fram-
takssemi.
„Bjórlíkhús" eru eino og mý á
mykjuskán. Bjórlíkið er aö vísu
ekki kóngafæða en svo illa byrstir
geta menn orðið að elíkt megi
hesthúsa.
Hvað höfum við líka að gera
með „löglegan" bjór? Ekki vilja
góðtemplarar slíkan drukk. Ekki
eigendur „bjórlíkhúsa" cem selja
þurfa þann görótta. Ekki niðjar
víkinganna. Þeir fara okki að lög-
um. Hver vill láta neyða sig til að
drekka „löglegan" bjór meðan nóg
er til af svörtum? Verður það ekki
hrútleiðinlegt að neyðast til að
drekka löglegan bjór, rétt eins og
einhver nöturlegur smáborgari?!
Sem betur fer ríður hræsnin og
hræðslan ekki við einteyming á
Alþingi. Þar fjalla svefngenglar
um bjórinn, eina ferðina enn, og
vakna ekki til veruleikans frekar
en fyrri daginn. Sá óli lokbrá, sem
hæst hrýtur í viðkomandi þing-
nefnd, má blunda fram á Jóns-
messu. „Víkingar fara ekki að lög-
um“. Þeir bjarga sér áfram án for-
sjá hinna verksmáu.
Niðjar víkinganna virðast sætta sig við bjórlfkið.
Stelpufótbolti
Ail. og H.H. skrifa:
Kæri Velvakandi.
Við erum hér tvær úr Árbænum
og okkur finnst mjög óréttlátt að
strákaf en ekki stelpur fái fót-
bolta, handbolta og allt það í
Fylki. Af hverju ekki? Það er ekki
einu sinni auglýst um fótboltann
þannig að ef hann ætti að byrja þá
veit enginn neitt og ef enginn
kemur, þá byrjar hvort eð er eng-
inn fótbolti fyrir stelpur. Er þetta
ekki ruglað?
Um sjoppur
007 skrifar:
Mig langar að biðja fólk um aö
hugsa um cftirfarandi begar það
fer að versla í söluturnum:
Ef á að versla fyrir gler og kom-
ið er með mikið af gierjum í poka,
þá vinsamlegast Iátið glerið
standa í pokanum og hafið ekkert
suil í flöskunum. Munið aö einnota
flöskur og brotnar eru einskis
virði.
Vinsamlegast komið ekki með
háar ávísanir í söluturna. T.d. ef
keypt er fyrir 200 krónur, >á á
ekki að skrifa 1000 króna ávísun.
Söluturnar eru ckki bankar. En
munið að sýna skilríki þegar borg-
aö er með ávísunum og muniö ííka
aö ávísun er ekki jafngildur gjald-
miðiil og peningar þannig að af-
greiðslufólk þarf ekki að taka við
ávísunum ef því list ekki á þær.
Vcriö ekki hissa á að þessi og
[jessi vara aé ekki til því að ef vara
er ckki til í versíun eða söluturni
er hún yfirleitt ekki til hjá heild-
verslurúnni eða fyrirtækinu sem
selur vöruna.
Verið í'.urteis þegar þið verslið í
söíuturnum og farið eftir röð. Þeg-
ar kemur aö ykkur : röðinni stand-
ið þá ekki aiveg á gati og vitið ekki
hvaö þið ætíiö aö íá. Verið svona
nokkurn veginn búin að ákveðna
hvað þið ætlið að fá því að þá
gengur allt betur fyrir sig. Af-
greiðslufólk á líka að vera kurteist
og liðlegt því að þá gengur allt
betur.
Hinn trfði flokkur aem skípar nveitina Dire Strmits.
Dire Straits
á Lístahátíð
Itólóttur Oire Straits-aðdáaudi í
Garðabæ, akrifar:
Kæri Ýelvakandi.
Eg cr vesæll, bólóttur táningur
og skrifa uér til Listahátfðar-
nefndar eins og allir hinír tán-
ingarnir. Ég ætla ekki aö biðja um
súkkulaðisæta dægurlagasöng-
vara eða þungarokkshljómsveit þó
hvort fyrir sig sé ágætt út af fyrir
sig. Þaö sem ég vil biðja um er
sígild hljómsveit — Dire Straits,
sem á traust en hljóðlátt fylgi
fólks á öllum aldri hér á landi.
Lýsir það best hljómlistinni
sjálfri. Þar skipar einn af bestu
lagasmiðum heims, Mark Knopfl-
er, stærstan sess.
Ég vona að Listahátíðarnefnd
taki þessa ósk mfna til greina og
fái þessa hljómsveit til landsins til
aö gieðja íslendinga.
Einstaklingar —fyrirtæki
á sviði heilsuræktar
Rafsegulsviösnuddtæki
— Biotherapy
til sölu
— góðir tekjumöguleikar
Kjöriö tækifæri fyrir þann sem vill skapa sér sjálf-
stæöa létta atvinnu eöa sem viöbót viö rekstur Ijósa-
stofu eöa heilsuræktarstöövar.
Tækiö gefur einstaklega góöa tekjumöguleika, því
fjölmargir hafa þegar reynt þaö meö mjög góöum
árangri.
Þessi góöa reynsla sem komin er á tækiö hér á
íslandi er í samræmi viö þær niðurstööur sem fengist
hafa erlendis.
Mælt er meö tækinu viö meöferð á margs konar
sjúkdómum ss. liöþófasliti, slitgigt, liöagigt, vööva-
bólgu, astma, beinkölkun, taugabólgu o.fl.
Tækiö hefur m.a. þau áhrif aö flýta fyrir gróanda í
sárum, beinbrotum o.fl.
Fasteignasalan Bústaðir,
s. 28911
ALLTAF Á LAUGARDÖGUM
LESB0K
Sigurjónshús á Laugarnestanga
Stofnað hefur veriö Listasafn Sigurjóns Ólafssonar
með 160 verkum hans, en opinberan stuðning vant-
ar. Rætt við ekkju Sigurjóns, Birgittu Spur.
Um dagbækur Þórbergs
Þðrbergur skildi eftir sig metrabreiöa stæöu af dag-
bókum, sem bregöa Ijósi á marga sérvizku hans. Örn
Ólafsson skrifar um dagbækurnar.
Allt orkar fvímælis þá gjört er
Birgir ísleifur Gunnarsson ræðir um þá áráttu Reyk-
víkinga aö þrátta og n'fast um allar stórbyggingar í
borginni fyrr og síöar.
Gottfried Böhm
Gein um einn af stórmeisturum í nútíma i)yggingar-
llst.
Vönduð og menningarleg helgarlesning