Morgunblaðið - 09.06.1985, Síða 34
34
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 9. JÚNÍ 1985
Hiibner stenst
Kasparov
ekki snúning
Skák
Margeir Pétursson
Garj Kasparov, áskorandi heims-
meistarans í skík, er í frábæru
formi þessa dagana, ef marka má
einvígi hans og v-þýzka stór-
meistarans Roberts Hiibner sem
stendur yfir í Hamborg um þessar
mundir. Fjórum skákum af sex í ein-
víginu er lokið og hefur Kasparov
þegar tryggt sér sigur. Hann hefur
hlotið þrjá og hálfan vinning, en
H’ubner aðeins hálfan. Þar sem hér
er um æfingaeinvígi að ræða, sem
v-þýzka útgáfufyrirtækið Spiegel
stendur fyrir, má þó vænta þess að
einvíginu verði lokið og tvær síðustu
skákirnar tefidar.
Þessi mikli munur hefur komið
á óvart, þó langflestir hafi auðvit-
að spáð Kasporov sigri fyrirfram.
Hubner er langsterkasti skákmað-
ur V-Þjóðverja og hefur yfirleitt
staðið sig vel í einvígjum. Árið
► 1980 komst hann t.d. í úrslit
áskorendakeppninnar og veitti
Korchnoi harðvítugt viðnám í úr-
slitaeinvíginu. Því var talið að
hann yrði Kasparov erfiður, en
strax í fyrstu skákinni tókst Sov-
étmanninum að sigra með stór-
glæsilegri fléttutaflmennsku:
1. einvígisskákin:
Hvítt: Robert Hiibner
Svart- Gary Kasparov
Enski leikurinn
1. e4 — e5, 2. Rc3 — d6, 3. d4
Eftir 3. Rf3 - f5, 4. d4 - e4
hefur svartur oft náð hættulegu
mótspili, þannig að leikur Húbn-
ers er vinsælastur um þessar
mundir.
exd4, 4. Dxd4 — Rf6, 5. g3
Hér kemur 5. b3 einnig vel til
greina.
Rc6,6. Dd2 — Be6, 7. Rd5
Eftir 7. b3 — d5 hefur svartur
a.m.k. jafnað taflið.
Re5, 8. b3 — Re4 9. De3 — Rc5
9, — c6l? 10. Dxe4 — cxd4,11. cxd5
- Da5, 12. Bd2 - Dxd5 hefði
nægt til að jafna taflið, en að
venju teflir Kasparov upp á flækj-
ur.
10. Bb2
Traustara var að láta liðsskipan
á kóngsvæng ganga fyrir og leika
10. Bg2.
c6, 11. Rf4?
Nauðsynlegt var 11. Rc3 — Be7,
12. Bg2, en Húbner hefur yfirsézt
óvænt og glæsileg flétta.
Garry Kasparov
Re4Q
Þruma úr heiðskíru lofti. Ef nú
13. Dxe4 þá Da5e, 14. Kdl -
Rxf2+. Hvítur verður nú að gefa
peðið á f2 því 13. Rd3 er svarað
með 13.—f5, sem hótar 14.—c5 og
hvíta drottningin er innilokuð.
13. Bh3 — Da5+, 14. Kfl - Rgxf2,
15. Bxe6 — fxe6, 16. Rxe6 — Kd7,
17. Rh3 - Rxh3, 18. Dxe4 - He8,
19. Rc5+,
Og hvemig
stenour á þessum
belgísku glermeisturum
í Mosfellssveitinni ?
FRAMVEGIS FÆST HIÐ VIÐURKENNDA THERMOPANE GLER
unnið hérlcndis skv. framleiðslu- ___________
aðferðum og undir gæðaeftirliti
eigenda einkaleyfisins, Glaverbel
í Briissel, Belgíu.
10 ára ábyrgð á Thermopane
gleri.
The/unopu
G-Ierverksmiðjan Esja hf. Vöhjleigí 3.
SÍMI666160 /
p.s.
Viltu tvöfalt gler
sem einangrar
betur en þrefalt?
Það heitir
Thermoplus
Comfort. ,
TtiÆ/imofian*
á Islandi
270 MosfeDssveit.
EYKJAVlK
\
Robert Hiibner
Hvíta staðan er einnig töpuð eftir
19. Dg4 - Hxe6, 20. Dxh3 - Dd2.
— Dxc5, 20. Dg4+ — Kc7, 21. Dxh3
- Be7, 22. Bxg7
Hhf8+, 23. Bxf8 - Hxf8+, 24. Kel
— Df2+, 25. Kdl — Dd4+, 26. Kc2
— De4, 27. Kd2 — Bg5, 28. Kc3 —
De5+ og í þessari vonlausu stöðu
gafst Húbner upp.
Glæsileg taflmennska Kasp-
arovs í þessari skák minnir á þá
Morphy og Aljekin. Það var
Hreint ótrúlega mikið úrval
at massífum fulningahurðum
og rimahurðum í sumarbústaðinn,
eldhúsið, baðherbergið og
svefnherbergið.
Eik, fura, beyki og lerki,
allt eftir þínum óskum.
Yfir 26 staðlaðar stærðir auk þess
sem við smíðum eftir máli.
Margar mismunandi fulningar-
og lakk-áferðir.
Varanlegar - Fallegar - íslenskar
L Verksmiðjan Lerki hf.
=. Skeifunni 13
Simar 82866 og 82468
greinilega skynsamlegt af Karpov
að forðast flækjur í einvíginu i
vetur, en af þessari skák að dæma
verður það ekki létt verk fyrir
heimsmeistarann að verja titilinn
í nýja einvíginu sem hefst í
Moskvu þann 20. september 1
haust.
Nunn og Hiibner vilja ekki
í þunna loftið
Það er nú orðið ljóst að milli-
svæðamótið í Mende Taxco í Mex-
íkó, sem hefst í næstu viku, verður
mun ver skipað en hin millisvæða-
mótin tvö, því tveir af þremur
stigahæstu þátttakendunum, þeir
John Nunn, Englandi, og Robert
Húbner, V-Þýzkalandi hafa báðir
boðað forföll. Keppendur i Mende
Taxco verða þvi: Timman, Roman-
ishin, Tal, Spraggett, Nogueiras,
Pinter, Alburt, Speelman, Agde-
stein, Balashov, Cebalo, Sisniega,
Qi, D. Gurevich, Prandstetter og
Saeed. Til samanburðar má nefna
að átta stigahæstu keppendurnir i
Biel eru: Vaganjan, Polugajevsky,
Ljubojevic, Andersson, Sax, Seir-
awan, Sokolov og Torre, allt
heimskunnir skákmenn, en sama
verður ekki sagt um þá átta stiga-
hæstu á mótinu i Mexíkó.
Margir vestrænir skákblaða-
menn eru mjög óhressir með þessa
ákvörðun Nunns og Húbners og
benda á þá hættu að yfirgnæfandi
meirihluti hinna 16 þátttakenda á
kandidatamótinu i haust verði
sovézkir og þeir geti þá leikið
sama leikinn og Fischer sakaði þá
um að hafa gert á kandídatamót-
inu í Curacao 1962. Þ.e. að hag-
ræða innbyrðis úrslitum þannig
að einhverjir þeirra verði öiuggir
með efstu sætin.
Kork-o-Plast
Gólf-GIjái
Fyrir PVC-filmur, linoleum,
gúmmí, parket og steinflísar.
CC-Floor Polish 2000 gefur
endingargóða gljáhúð.
Notkun: Þvoið gólfið.
Berið CC-Floor Polish 2000
óþynnt á gólfið með svampi
eða rakri tusku.
Notið efnið sparlega en jafnt.
Látið þorna í 30 mín.
Á illa farið gólf þarf að bera
2—3svar á gólfið.
Til að viðhalda gljáanum er
nóg að setja í tappafylli af
CC-Floor Polish 2000 í venju-
lega vatnsfötu af volgu vatni.
Til að fjarlægja gljáann er
best að nota R-1000 þvotta-
efni frá sama framleiðanda.
Notið aldrei salmíak eða önn-
ur sterk sápuefni á Kork-o-
Plast.
Einkaumboö á ísland:
Þ. Þorgrímsson & Co.,
Ármúla 16, Reykjavík, s. 38640.
V- __________
fHttgmi'
í Kaupmannahöfn
FÆST
í BLADASÖLUNNI
A JÁRNBRAUTAR-
STÖOINNI
OG Á KASTRUP-
FLUGVELLI