Morgunblaðið - 03.07.1985, Page 24

Morgunblaðið - 03.07.1985, Page 24
24 MORGUNBLADIÐ, MIÐVIKUDAGUR 3. JÚLÍ 1985 Garri Kasparov Anatoli Karpov Kasparov hótar að tefla ekki við Karpov Bclpad. I.jnlí. AP. GARRI Kasparov, áskorandi um heimsmeistaratitilinn í skák, hótaði um helgina að taka ekki þátt í ein- vígi því sem er fyrirhugað í septem- Dollarinn hækkar London, 2. júlí AP. Bandaríkjadollar hækkaði gagn- vart flestum gjaldmiðlum Evrópu f dag og var það talið eiga rót sína að rekja til vaxandi vörupantana í Bandaríkjunum. Dollarinn hækkaði gagnvart sterlingspundinu, þannig að síð- degis í dag kostaði það 1,3042 doll- ara (1,3090). Gengi dollarans var að öðru leyti þannig, að fyrir hann fengust 3,0455 vestur-þýzk mörk (3,0365), 2,5480 svissneskir frankar (2,5482), 9,2775 franskir frankar (9,2550), 3,4350 hollenzk gyllini (3,4225), 1.947,50 ítalskar lírur (1.934,50), 1,3573 kanadískir dollar- ar (1,3570) og 248,40 jen (248,25). Gull lækkaði og var verð þess 309,50 dollarar hver únsa (313,30). ber gegn Karpov heimsmeistara. Astæðan er sú að Campomanes for- seti FIDE hefur skipað sömu dóm- ara og dæmdu einvígið í Moskvu og umdeilt varð. Kasparov sagði að hann væri fyrst og fremst gramur yfir því að Gligoric hefði verið útnefndur að- aldómari einvígisins. Hann sagði að skipun GLigoric væri gerræðis- ákvörðun af hálfu forseta FIDE. „Ég fullyrði að ég mun ekki heyja einvígið ef staðið verður við að Gligoric verði aðaldómari," hefur AP-fréttastofan eftir skákmeistar- anum. Margnefnt einvígi á að fara fram í Moskvu í september. f hinu fyrra hafði Karpov náð 5—0, en Kasp- arov tókst að minnka forskotið í 5—3 og fyrirskipaði Campomanes þá að einvíginu skyldi hætt og keppendur ættu að heyja nýtt á haustnóttum. „Ég er á móti þeim dómurum sem styðja Campomanes í ákvörðun sinni um að slíta fyrra einvíginu. Sú ákvörðun gekk í ber- högg við anda þessarar íþróttar," sagði Kasparov í viðtali við Tanj- ug-fréttastofuna. Forstjóri indverska flugfélagsins: Telur sprengíngu líklegustu orsökína FORSTJÓRI Indverska flugfélagsins vísaði á bug fréttum þess efnis að tæknilegir gaUar á stjórnbúnaði indversku farþegaþotunnar, sem fórst und- an ströndum írlands, eða yfirsjón flugmannanna hafí valdið slysinu. Forstjórinn, Dhruba Bose, sagði að „líklega" hefði verið um skemmdarverk að ræða. Hann sagði ennfremur að sennilegasta skýringin á því hvers vegna flug- stjórinn hefði ekki sent út neyð- arkall væri sú að sprenging hefði orðið í þotunni. Því hefði flugvélin ekki lent í sjónum í heilu lagi, heldur sprungið í loftinu. Einnig hefði sést á líkum farþeganna að skyndileg breyting hefði orðið á loftþýstingi vélarinnar. Nú eru minni líkur taldar á því að unnt verði að ná flugrita þot- unnar upp úr sjónum. írska stjórnin skýrði frá því sl. föstudag að hljóðmerki hefðu heyrst nálægt þeim stað þar sem þotan féll i sjó- inn. Talsmenn breska varnar- málaráðuneytisins sögðu hins veg- ar í dag að ekki hefði enn tekist að ákvarða staðsetningu flugritans, enda hefðu engin hljóðmerki bor- ist síðan á föstudag. Noregur: Börn starfsmanna í olíu- iðnaðinum sæta aðkasti Osló, 1. júlí. Prá fréttariUra MorKunblaAsins, J.K. Laure. BÖRN þeirra manna, sem starfa við olíuiðnaðinn í Norðursjó, sæta að- kasti. Kemur þetta fram í rannsókn, sem fram hefur farið á vegum sam- taka starfsmannanna. Börnin eru ofsótt bæði í skóla og i nágrenni við heimili sín sökum þess að feður þeirra vinna við olíu- iðnaðinn og þau fá að heyra, að feður þeirra séu „verkfallsóðir glæpamenn", sem tilheyri launa- aðli Noregs. Verkföll í Norðursjó eru orðin að vandamáli fyrir efnahagslíf þar í landi. Þegar starfsmenn í olíuiðnaðinum fara í verkfall, tap- ar ríkið m.a. miklum skattatekj- um, sem reiknað hafði verið með í fjárhagsáætlun ríkisins. Það er þessi verkfallsgleði, sem börnin eru látin gjalda fyrir. Suöur-Afríka; Tvö svertingjabörn drepin Jóhannesarborg, 2. jnll. AP. TVÖ svertingjabörn voru drepin í Tembisa, fyrir austan Jóhannesarborg í Suður-Afríku, er handsprengju var varpað inn á heimili þeirra í gær. Faðir þeirra særðist alvarlega. Alls hafa yfir 400 svertingjar ver- ið drepnir síðan mótmælaaðgerðir gegn aðskilnaðarstefnunni hófust fyrir 10 mánuðum í hverfum svert- ingja. Flestir þeirra hafa dáið í átök- um við lögreglu. Samtök olíustarfsmannanna vísa því alfarið á bug, að þeir hafi lúxuslaun, en viðurkenna samt, að margir úr þeirra hópi gorti af há- um launum sínum. Iðnaðarmaður með 9 ára starfsferil hafi í árslaun um 210.000 n. kr. (tæpa eina millj. ísl. kr.) og það sé ekki meira en margir hafa í landi. Nokkrir hinna 735 mannn sem fsraelsmenn hnepptu í varðhald í Suður-Líbanon og hafðir eru f haldi í Atlit fangabúðunum í ísrael. Flugræningjar bandarísku vélarinnar kröfðust þess að fangarnir yrðu leystir úr haldi til að gíslunum 39 yrði slkeppt. Líbanir mótmæla aðgerðum Bandaríkjamanna: Hóta gagnaðgerðum ef flugvöllurinn lokast Beirót. Líbuon, 2. júlí. AP. KRI8TN1R menn og múhameðstrúarmenn í I.íbanon, sem átt hafa í strfði um árabil, sameinuðust í dag til að mótmæla þeirri hótun bandarískra stjórn- valda að loka flugvellinum í Beirút til að hefna gíslatökunnar þar. Suleiman Franjieh, fyrrverandi forseti landsins, hvatti til þess að öllum samskiptum við Washington yrði slitið. Leiðtogar beggja deiluaðila i Líbanon fordæmdu þær ráðstaf- anir sem Ronaid Reagan Banda- ríkjaforseti hefur gert til að fá flugvellinum í Beirút lokað fyrir millilandaflugi. „Líbanon getur ekki tekið slíkri kúgun þegjandi og hljóðalaust og við munum grípa til gagnaðgerða," sagði Rashid Karami, forsætisráö- herra Líbanons, í yfirlýsingu sem útvarpað var í dag. Karami skil- greindi ekki frekar aðgerðirnar sem stjórn hans hyggur á. Yfirmaður í utanríkisráðuneyti Líbanons sagði hins vegar að sendiherra landsins í Washington hefði verið skipað að bera fram formleg mótmæli við utanríkis- ráðuneyti Bandaríkjanna gegn að- gerðum stjórnarinnar. „Hvers vegna ætti alþjóðaflug- völlurinn í Beirút að gjalda fyrir flugrán sem hófst í Aþenu?“ spurði Karami i yfirlýsingu sinni. Bretar hafa gefið í skyn að þeir styðji Bandaríkjamenn í þessum efnum. I yfirlýsingu frá breska utanríkisráðuneytinu segir að Bretar vilji að gripið sé til skjótra aðgerða til að koma í veg fyrir að Beirút-flugvöllur verði notaður sem stökkpallur fyrir árásir hryðjuverkamanna á svæði utan við Líbanon. Gíslarnir komnir til Washington Frankfurt, 2. júlí. AP. ÞRJÁTÍU Bandaríkjamenn sem haldið var gíslum í Líbanon, komu í kvöld til Washington frá Frankfurt í Vestur-Þýskalandi. Var það loka- áfanginn í ævintýralegri og langri ferð heim sem hófst í Aþenu 14. júní sl. Meðal þeirra sem tóku á móti gíslunum í Washington var Ron- ald Reagan, Bandaríkjaforseti, og fyrirhugaðir eru miklir fagn- aðarfundir í heimaborgum gísl- anna fyrrverandi víðs vegar um Bandaríkin á fimmtudag, sem er þjóðarhátíðardagur þar í landi. Mikill mannfjöldi fylgdi gísl- unum fyrrverandi síðdegis á herflugvöllinn rétt fyrir utan Frankfurt og kvaddi þá með litl- um veifum, lófataki og góðum óskum. Níu manns úr gíslahópn- um fóru ekki með heim til Bandaríkjanna og ætluðu sumir að dveljast í Evrópu eitthvað áfram. „Þjófar, aumingj- ar og morðingjar“ — segir Peter Hill, einn gíslanna, um flugræningjana Wienbaden, Vestur-Pýskalandi, 2. jnli. AP. PETER Hill, einn gíslanna fyrrverandi •' Beirút, ægist enga samúð hafa með shítunum sem rændu flugvél TWA i vpenu og her amal- shítum, því þeir séu ekkert annað en „þjófar, aumingjar og morðingj- ar“ sem reyna að réttlæta gerðir sína“. Hill sagði ennfremur að ræn- ingjarnir hefðu reynt að heila- þvo gíslana með myndbanda- sýningum, fyrirlestrum og rök- ræðum seint á kvöldin. Hann sagði að ræningjarnir hefðu vakið gíslana upp um miðjar nætur til halda yfir þeim fyrirlestra og mikið af gíslunum hefði trúað þeim. „Þið verðið að skilja að margt af þessu fólki (gíslunum) gat ekki einu sinni fundið Líb- anon á landakorti fyrir þremur vikum síðan. Svo eina vitneskj- an sem þeir hafa um landið er sínar með „tómu kjaftæði um trú það sem þeir heyrðu frá ræn- ingjunum og ég álasa þeim ekki fyrir það.“ Hill álasaði aftur á móti bandarískum stjórnvöldum og fjölmiðlum fyrir að gera flug- ránið að slíku fréttaefni. „Nú hafa amal-shítar fengið allt sem þeir óskuðu eftir. Þeir eru núna þekktir um allan heim og ég held að það eigi eftir að skapa fleiri vandamál. Þetta gefur þeim auk þess viðurkenn- ingu sem þeir eiga ekki skilið, því þeir eru ekkert nema þjóf- ar, aumingjar og morðingjar — allir upp til hópa,“ sagði Hill.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.