Morgunblaðið - 09.08.1985, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, FOSTUDAGUR 9. ÁGÚ3T 1985
Morgunblaðið/Sig.Sigm.
FERÐAST Á GAMLA MÁTANN
Nú eru flestar stórár brúaöar en fyrir kemur að hestamenn stytti sér leið og ríði jökulárnar þó að oft séu nokkuð
djúpar.
Á meðfylgjandi mynd, sem tekin var á dögunum, eru ungmenni að ríða yfir Hvítá í Árnessýslu þar sem hún
rennur á milli bæjanna Hvítárholts og Bræðratungu.
Heimsmeistaramót unglinga í skák:
Islendingar ætla ekki
að taka þátt í mótinu
SKÁKSAMBAND íslands hefur ákveðið að enginn íslenskur þátttakandi
verði sendur á Heimsmeistaramót unglinga í skák, sem haldið verður í
borginni Dubai í Sameinuðu arabísku furstadæmunum dagana 10.—27.
september næstkomandi. Ástæðan er sú að það liggur fyrir að fsraels-
mönnum verður meinuð þáttaka í mótinu.
Að sögn Þorsteins S. Þorsteins- hluta aðildarríkjanna, að mótið
sonar forseta Skáksambands ís-
lands hyggjast ráðamenn í Sam-
einuðu arabísku furstadæmunum
þannig styðja við bakið á skoðana-
bræðrum sínum í öðrum araba-
ríkjum, sem eiga í baráttu við
ísrael. Bandaríkjamenn hafa þeg-
ar mótmælt kröftuglega og einnig
Danir og gera má ráð fyrir að flest
skáksambönd í Vestur-Evrópu
fylgi í kjölfarið og sendi ekki
keppendur á mótið vegna þessa.
Ólympíuskákmótið á næsta ári
verður einnig haldið á sama stað
og má búast við að sagan endur-
taki sig og flestar V-Evrópuþjóðir
mæti ekki, verði ekki breyting á
afstöðunni tii ísraelsmanna.
„Við samþykktum að mótmæla
þessu við FIDE og senda ekki
keppanda á mótið. Það er ljóst að
við getum aldrei tekið þátt í þvi að
þjóð sé útilokuð frá skákmótum af
pólitískum ástæðum," sagði Þor-
steinn i samtali við Morgunblaðið.
Hann sagði að það væri Campo-
manes forseti FIDE sem hefði bar-
ið það í gegn með stuðningi meiri-
Fundir um upp-
sagnir heilsu-
gæzlulækna
„VIÐRÆÐUR eni hafnar og líklega
verður nýr fundur á morgun, en að
öðru leyti er ekkert hægt að segja
um málið að svo stöddu,“ sagði
Gunnar Ingi Gunnarsson, formaður
samninganefndar Læknafélags ís-
lands, í samtali við Morgunblaðið í
gærkveldi, að loknum fundi með
samninganefndinni og fulltrúum
heilbrigðis- og fjármálaráðuneytis-
ins. En sem kunnugt er koma upp-
sagnir um 70 heilsugæslulækna um
allt land til framkvæmda nk. sunnu-
dag.
„Hins vegar slitnaði upp úr
samningaviðræðum um lækna-
vaktina svokölluðu, sem annars
vegar er starfrækt fyrir Reykja-
vík, Seltjarnarnes og Kópavog og
hins vegar fyrir Garðabæ og
Hafnarfjörð, og fulltrúar Trygg-
ingastofnunar ríkisins sáu engan
tilgang i öðrum samningafundi.
Þetta þýðir, að öllu óbreyttu, að
læknavaktin fellur niður á öllu
þessu svæði aðfaranótt sunnu-
dagsins kl. 24,“ sagði Gunnar Ingi
Gunnarsson.
yrði haldið þarna, þrátt fyrir að
fyrirsjáanlegt hefði verið að vand-
ræði myndu skapast vegna þátt-
töku Israelsmanna.
„Ein fyrsta greinin í lögum
FIDE kveður á um það, að ekki
megi halda mót, þar sem frjáls að-
gangur allra þjóða sé ekki tryggð-
ur. Campomanes er því að brjóta
lög FIDE með stuðningi hluta að-
ildarríkjanna. Það eru ýmsar
getgátur uppi um það hvað búi
þarna að baki og á það verið bent
að þing FIDE er haldið jafnhliða
Ólympíuskákmótinu. Ef engin
V-Evrópuríki verða á mótinu eða
þinginu vegna þessa er næsta víst
að Campomanes verður endur-
kjörinn forseti FIDE,“ sagði Þor-
steinn ennfremur.
Aðspurður sagði Þorsteinn að ef
svo færi sem horfði að Vestur-
Evrópuríkjum væri gert ókleift að
taka þátt í Ólympiuskákmótinu
gæfi það vissulega hugmyndum
um sérstakt skáksamband V-Evr-
ópuríkja byr undir báða vængi.
Campomanes nýtur stuðnings
flestra ríkja Austur-Evrópu, sem
og þjóða frá Afríku og Asiu.
Helgarveðrið
FREMUR svalt verður um allt
land um helgina, 7—12 gráður lík-
legast. Einhver væta verður um
norðan- og austanvert landið.
Sunnan- og vestanlands verður
skýjað með köflum og að öllum
líkindum úrkomulaust.
Hyggst synda yfír Mý-
vatn áður en hún legg-
ur í Gíbraltarsundið
„Þegar ég kom til landsins kom til greina að synda yfir annaðhvort
Mývatn eða Þingvallavatn, en svo varð Mývatn fyrir valinu vegna þess
að ég hefði þurft lengri tíma en ég hef til umráða til þess að venja mig
við kuldann í Þingvallavatni," sagði bandaríska sundkonan Lynn Cox í
samtali við Morgunblaðið í gær.
Lynn kvaðst alltaf undirbúa sig
vel og rannsaka aðstæður vand-
lega áður en hún legðist til sunds,
enda væntanlega eins gott þegar
þess er gætt að margir þeirra
staða sem hún hefur lagt til at-
lögu við eru frægir fyrir að vera
erfiðir yfirferðar, ýmist sökum
stríðra strauma, hákarla eða
undiröldu. Eitt sinn kvaðst hún
til að mynda hafa sloppið naum-
lega undan stórum hákarli sem
lagði til atlögu við hana undan
Góðravonarhöfða í S-Afríku. Hún
kvaðst ekki kvíða Mývatnssund-
inu, sem hún ætlar að þreyta 13.,
14., eða 15. ágúst og sagðist vera
nýbúin að synda í vötnum í Chile,
þar sem hitastigið væri kringum
5 gráður.
Lynn Cox varð fræg þegar hún
setti hrað. .net á sundi yfir Erm-
arsundið, arið 1972, þá aðeins 15
ára gömul og yngst allra sem
synt hafa yfir Ermarsundið. Síð-
an hefur hún þreytt margt sundiö
yfir torfarnar sundleiðir og fræg
sund, ár og vötn víðs vegar um
heiminn. íslandsferð Lynn Cox er
liður i heimsreisu þar sem hún
mun halda uppteknum hætti.
Hyggst hún m.a. synda aftur yfir
Ermarsundið og yfir Bosborus-,
Gíbraltar- og Messínasundin.
„Island er þriðji viðkomustað-
urinn í þessari hnattferð," sagði
Lynn. „Eg hóf ferðina á þvi að
synda til lands í Los Angeles frá
farþegaskipinu Queen Mary, sem
var statt u.þ.b. tíu mílur frá
landi. Síðan synti ég svipaða
vegalengd eftir Potomac-ánni hjá
Washington DC og á morgun fer
ég svo norður að undirbúa mig
fyrir sundið yfir Mývatn. Síðan
liggur leiðin til Gíbraltar, sem
skilur að Evrópu og Afríku.“
„Mér finnst gaman að gera það
sem aldrei hefur verið gert áður,“
sagði Lynn er hún var spurð af
hverju hún legði í slíkar þrek-
raunir. „Lífið gengur út á að setja
sér takmörk og ná þeim.“
Morgunblaðið/ Árni Sæberg
„Lífíð gengur út á að setja sér takmörk og ná þeim síðan," sagði Lynn
Cox í gærkvöldi, en hún lét sig ekki muna um að stinga sér til sunds frá
Arnarnesinu fyrir Ijósmyndarann, enda minni líkur á að rekast á hákarl
þar en undan Góðravonarhöfða.
Forstjórar íslensku skipafélaganna:
Munum örugglega bjóða verði
útboðsskilmálarnir sanngjarnir
FORSTJÓRAR stærstu íslensku skipafélaganna lýstu almennt ánægju sinni
með þá ákvörðun bandarískra stjórnvalda, sem kynnt var í gær, að vöruflutn-
ingar fyrír varnarliðið milli Bandaríkjanna og Islands yrðu boðnir út, og
töldu víst að félög þeirra myndu gera tilboð í flutningana þegar þar að kæmi.
Með þeim fyrirvara þó að útboðsskilmálar yrðu sanngjarnir.
„Mér þykja þetta all nokkur tíð-
indi,“ sagði Hörður Sigurgestsson,
forstjóri Eimskips, „vegna þess að
þarna náðist þaö takmark is-
lenskra stjórnvalda og islenskra
skipafélaga að íslensk skipafélög
fái að sitja við sama borð og aðrir
varðandi þessa flutninga. Ég tel
að Geir Hallgrímsson utanrikis-
ráðherra hafi þarna náð umtals-
verðum árangri. Siðan er hitt
markmiðið eftir að ná þessum
flutningum aftur í íslenskar hend-
ur, eins og var áður um nærfellt 20
ára skeið. Flutningarnir fyrir
varnarliðið hafa verið íslenskum
skipafélögum mjög mikilvægir og
'O
INNLENT
það er eiginlega útilokað að hægt
sé að halda uppi tíðum siglingum
til og frá Bandarikjunum án
þeirra."
Hörður sagði að vafalaust
myndi Eimskipafélagið fjótlega
hefja undirbúning að því að bjóða
i flutningana, en það væri erfitt að
segja til um það hvaða möguleika
þeir hefðu í því sambandi þar eð
ekki lægi ljóst fyrir hvernig út-
boðinu yrði háttað.
Ragnar Kjartansson fram-
kvæmdastjóri hjá Hafskip fagnaði
því „að fyrir dyrum stæði að draga
úr þessari umdeildu siglingaeinok-
un“, eins og hann orðaði það.
„Hér er um grundvallaratriði að
ræða, þótt lausnin sé vart þakkar-
verð úr höndum boðbera frjáls-
ræðisins," sagði Ragnar. „Það hef-
ur verið gengið að þeirri megin-
kröfu islenskra stjórnvalda að
jafnrétti ríki milli islenskra og
bandarískra skipafélaga.
Hitt er annað, að lausn málsins
hefur dregist úr öllu hófi. Skaði
skipafélaganna er orðinn mjög
mikill og nemur milljónum banda-
ríkjadollara. Okkur finnst að
Bandaríkjamenn hafi sýnt litlum
afskekktum bandamanni sínum
lítinn skilning, að draga það i
þennan tima að finna lausn á deil-
unni.“
Ragnar sagðist telja fullvist að
Hafskip myndi bjóða í flutn-
ingana, og reyndar gengi hann að
þvi vísu að svo gilti um flest ís-
lensku skipafélögin. Hann var
ekki eins viss með erlend skipa-
félög;
„Erlend skipafélög sem eru með
skip á Atlantshafinu munu vafa-
laust skoða dæmið, en við verðum
að hafa það í huga að þessir flutn-
ingar eru ekki það miklir að það
taki því fyrir þau að leggja lykkju
á leið sína til að koma við á Is-
landi. Þvi finnst mér óliklegt að
erlend skipafélög bjóði í flutn-
ingana, en ég útiloka það ekki,“
sagði Ragnar.
Omar Jóhannsson, fram-
kvæmdastjóri skipadeildar Sam-
bandsins, sagði að Sambandið
myndi örugglega gera tilboð í
flutningana væru útboðsskilmál-
arnir heiðarlegir.
Þegar Rainbow Navigation Inc.
yfirtók flutningana fyrir um einu
og hálfu ári hafði Eimskip um
70% flutninganna og Hafskip var
með 30%. Sambandið stundaði þá
ekki vöruflutninga fyrir varnar-
liðið. ómar sagði hins vegar, að
það hefði legið ljóst fyrir þegar
Sambandið hóf siglingar með fisk
til Bandarikjanna fyrir nokkru á
nýju skipi sínu, að stefnt yrði að
því að flytja vörur til varnarlið-
sins i bakaleiðinni.
Fjallað um
umsókn
Arnarflugs
„UMSÓKN Arnarflugs er komin á
mitt borð og nú munu réttir aðilar
fjalla um hana. Fyrr en álit þeirra
liggur fyrir vil ég ekkert láta hafa
eftir mér um afstöðu mína til um-
sóknarinnar,“ sagði Matthías
Bjarnason samgönguráðherra að-
spurður í gær um umsókn Arnar-
flugs um leyfi til áætlunarflugs til
Hamborgar. Ráðherrann sagðist
ekki reikna með að ákvörðun lægi
fyrir á næstunni.