Morgunblaðið - 09.08.1985, Qupperneq 39
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 9. ÁGÚST1985
39
Regnboginn:
„Hernaðar-
leyndar-
mál“ tekin
til sýninga
REGNBOGINN hefur hafið sýn-
ingar á nýrri bandarískri kvik-
mynd, Hernaðarleyndarmálinu
sem Jim Abrahams, David Zucker
og Jerry Zucker leikstýra.
Myndin fjallar um rokk-
stjörnuna Nick Rivers sem boðið
er til Austur-Þýskalands til að
taka þátt í tónlistarhátíð þar.
Hann lendir í ýmsum ævintýr-
um, kemst meðal annars á snoð-
ir um áætlun Austur-Þjóðverja
um að granda öllum skipaflota
NATO með nýju leynivopni.
Einnig kynnist hann þarlendri
stúlku sem hann ákveður að
hjálpa til þess að geta bjargað
föður hennar úr landi, en hann
er mikilsvirtur vísindamaður
sem hnepptur hefur verið í fang-
elsi.
Meðal leikara í myndinni eru
Omar Sharif, Jeremy Kemp og
Lucy Gutteridge.
Félag
skipulagsfræðinga:
Vill stuðla að
faglegum
vinnubrögðum
FÉLAG skipulagsfræðinga hélt
stofnfund sinn nú nýlega. Sig-
urður Guðmundsson var kjörinn
formaður félagsins, en aðrir í
stjórn eru Birgir H. Sigurðsson,
Bjarni Jóhannesson og Stefán
Thors.
Markmið félagsins er að
stuðla að faglegum vinnubrögð-
um í byggðaskipulagi og vinna
að framgangi skipulagsfræðinn-
ar sem sjálfstæðrar fræðigrein-
ar hérlendis.
(ÍJr rrétutilkynningu.)
tHSKO-KRÁ
Opið frá
kl. 18—03.
„Sumargleöin“ leggur á ráöin
fyrir sveiflu ársins í Sjallanum.
Allra síöasta Sumargleöin á
Norðurlandi í sumar og auövitaö
urrandi hlátur.
Karnival + fjölbreytt skemmti-
atriöi + söngur + grín og svellandi
Sumargleöi.
Föstud.: Sjallinn kl. 21.00, skemmtun + dansleikur.
Laugard.: Sjallinn kl. 21.00, skemmtun + dansleikur.
Sunnud.: Ásbyrgi Miöfirði kl. 21.00, fjölskyldu-
skemmtun.
í fullu fjöri á fleygiferö —
Sjallanum,
helgina
Dæmigerð Sumargleðimynd
Skjólbrekka „SKALF“ af stemmningu og stuöi um
síðustu helgi.
Verslunarmanna-Helgi, 3. frá vinstri í
fjóröu röö mætir auðvitað í Sjallann.
Sumargieöin hefur slegið í gegn í Sjallanum í
sumar (þessum eina og sanna) sem og annars staðar.
Nú þökkum við Norðlendingum frábærar móttökur
með dúndrandi Sumargleöistæl.
Mætum öll með hlátrasköll.
FjÖr og frískleiki í fyrirrúmi — geggjuð gleði og nú
verður lífið tekið létt, svo segja strákarnir: Raggi
Bjarna — Ómar R. — Bessi — Maggi —
Hemmi og hljómsveitin hressa.