Morgunblaðið - 09.08.1985, Síða 48

Morgunblaðið - 09.08.1985, Síða 48
 HIBQOJRIHBMSKEÐJU FOSTUDAGUR 9. AGUST 1985 VERÐ I LAUSASÖLU 35 KR. T Flugleiðir: Kaupir fyrirtækið sjálft hlutabréfin? MorjfunblaÖiö/ Júlíus LITASKRÚÐ í MIÐBORGINNI Á þriðja hundrað börn komu saman í miöbænum í gær og héldu hátíð. Tilefnið var að leikjanámskeiðum Æskulýðsráðs var að Ijúka eftir sumarlangt sUrf. Hópar frá sex félagsmiðstöðvum í Reykjavík tóku þátt í gleðinni og voru börnin í hinum ýmsu gervum. Björn Hallgrímur Kristinsson frá Bústöðum er reyndar íslenskur í húð og hár en boginn, einbeittur svipurinn og indjánabandið gefa fyrirmyndina glöggt til kynna. Trúðurinn, sem gægist yfir öxl hans, lét ekki sitt eftir liggja í að lífga upp á miðbæinn. Sjá fleiri myndir á miðsíöu. — Ekki rétt staðið að sölu hlutabréfanna, segir samgönguráðherra FORRAÐAMENN Flugleiða hf. íhuga nú að gera tilboð á vegum fé- lagsins sjálfs í hlutabréf ríkissjóðs í fyrirtækinu, skv. upplýsingum, sem Morgunblaðið hefur aflað sér. Má búast við því að ákvörðun um þetta verði tekin í dag. Birkir Baldvinsson hefur tilkynnt fjármálaráðherra að tilboð hans í bréfin standi þar til f kvöld. Birkir Baldvinsson og Albert Guðmundsson, fjármálaráðherra, hafa báðir skýrt frá því að í tilboði Birkis felist staðgreiðsla á 20% kaupverðs eða 12,6 millj. kr. Matthías Bjarnason samgöngu- ráðherra sagðist í gær telja að ekki væri rétt staðið að sölu hluta- bréfanna. Hann vildi ekki selja bréfin einum manni búsettum er- lendis, jafnvel þó íslenzkur væri. Umræddur maður hefði gert lítið úr stjórnarmönnum Flugleiða í yf- irlýsingum í fjölmiðlum. Ekki væri rétt að efna til nýrra væringa innan félagsins, nær væri að styðja við bakið á því í harðnandi samkeppni, sem það stæði frammi fyrir. Matthías sagðist hafa greint frá þessari skoðun sinni á ríkis- stjórnarfundi í gærmorgun og fleiri ráðherrar hefðu tjáð sig um málið. Að sínu mati væri æski- legast að samstaða væri innan ríkisstjórnarinnar um þetta mál. „Við fylgjumst með þessu máli og lokum engum möguleikum á meðan bréfin hafa ekki verið seld öðrum, ef til vil gerum við tilboð ef bréfin seljast ekki núna,“ sagði Helgi Thorvaldsson, formaður Starfsmannafélags Flugleiða, í samtali við Morgunblaðið. Hann sagði að verðið sem sett væri á bréfin réði Starfsmannafélagið ekki við og sagði að þetta mál hefði tekið allt aðra stefnu en Starfsmannafélagið hefði búist við miöað við fyrri yfirlýsingar fj ármálaráðherr a. Ljósmynd Snorri Snorrason í allt sumar hafa skipshafnir víða um land verið önnum kafnar við að ganga frá ísfiski í gáma, sem fara á markað í Bretlandi. bessi mynd var tekin nýlega þegar unnið var af krafti við að „gáma“ fisk á ísafirði. ísfiskútflutningur miðað við júlí 1984: Tvöföldun á magni og verð 25 % hærra ísfiskútflutningur á fiskmarkaði í Bretlandi rúmlega tvöfaldaðist að magni til í júlímánuði 1985, þegar mið er tekið af júlímánuði á síðasta ári. Þrátt fyrir þetta aukna magn fékkst 25% hærra verð fyrir fiskinn. Flutningar til varnar- liðsins verða boðnir út Tel að bandarísk yfirvöld hafi gert sig sek um lögbrot, segir Mark Young, stjórnarformaður Rainbow Navigation STJÓRNVÖLD í Bandaríkjunum hafa ákveöið að bjóða út flutninga fyrir varnarliðið á Keflavíkurflugvelli milli Bandaríkjanna og íslands. Sl. eitt og hálft ár hefur bandaríska skipafélagið Rainbow Navigation Inc. nær setið eitt að þessum flutningum í skjóli laga frá 1904, sem kveða á um að bandarísk fyrirtæki skuli njóta forgangs hvað varðar flutninga fyrir banda- rísk hernaðaryfirvöld. Forseti Bandaríkjanna hefur nýtt sér heimild í þessum lögum til að fela flotamálaráðuneytinu að bjóða flutningana út og má vænta þess að útboðsskilyrði verði tilbúin eftir einn til þrjá mánuði. Frá þessu var skýrt á fundi með fréttamönnum í gær, sem Geir Hallgrímsson utanríkisráðherra og Edward Derwinski, sérlegur ráðu- nautur bandaríska utanríkisráðu- neytisins, boðuðu til að loknum við- ræðum sínum síðustu tvo daga. í samtali við Morgunblaðið í gær sagði Mark Young, stjórnarfor- maður Rainbow Navigation, að hann teldi að bandarísk yfirvöld hefðu með þessu gert sig sek um lagabrot, en vildi að öðru leyti ekki tjá sig um hver viðbrögð skipafé- lagsins yrðu. Derwinski sagði að vegna þess hve farmgjöld Rainbow Navigation hafi verið há telji bandarísk yfir- völd sig hafa heimild til að bjóða flutningana út, enda væru þar bandarískir hagsmunir í húfi. Vís- aði hann í því sambandi til ákvæðis í lögunum frá 1904, sem veitir Bandaríkjaforseta heimild til að víkja frá þeim ef ákveðin skilyrði eru fyrir hendi, og þá fyrst og fremst ef óeðlilega hátt gjald er tekið fyrir þá þjónustu sem veitt er í skjóli laganna. Derwinski sagði að hugsanlega myndu einhverjir bandarískir aðil- ar leita til dómstóla til að reyna að | fá þessa ákvörðun bandari.sk ra stjórnvalda fellda úr gildi. Hann sagði, að þótt aldrei væri hægt að segja fyrir um lyktir slíkra mála- ferla, teldi hann málstað stjórnar- innar góðan og hún myndi beita sér af alefli fyrir því að ákvörðunin stæði. Sagði Derwinski að þessa ákvörðun bandarískra stjórnvalda mætti fyrst og fremst þakka góðu sambandi utanríkisráðherra land- anna, Geirs Hallgrímssonar og Shultz. Þetta mun reyndar vera í fyrsta sinn í sögunni, sem þessi Iagaheimild hefur verið notuð. Þegar Rainbow hóf flutningana fyrir varnarliðið á sínum tíma tóku þeir upp sama verð og Eimskipafé- lagið og Hafskip, sem þá höfðu með flutningana að gera. Geir Hall- grímsson var spurður hvort Rain- bow-skipafélagið hefði ekki góð og gild rök til að hnekkja þeim úr- skurði flotamálaráðuneytisins að verð þeirra væri of hátt. Geir svaraði því til að það væru hugsanlega aðrar viðmiðanir núna þar eð markaðurinn hefði breyst, auk þess sem verð íslensku skipafé- lagnna á sínum tíma kynni að hafa verið í hærra lagi. „Okkar markmið er ekki að haida verndarhendi yfir of háu verði til handa íslensku skipafélögunum, heldur stuðla að því að allir sitji við sama borð," sagði Geir. Ragnar Kjartansson, fram- kvæmdastjóri hjá Hafskip, svaraði sömu spurningu á þann veg, að þótt skráð verð væri hið sama, veitti Rainbow Navigation margfalt verri þjónustu, Forystumenn íslensku skipafé- laganna voru almennt ánægðir með þessa ákvörðun Bandaríkjastjórn- ar og sögðust að öllum líkindum bjóða í flutningana þegar þar að kæmi, svo fremi sem útboðsskil- málarnir væru sanngjarnir. Geir Hallgrímsson sagði aðspurður að hann myndi fylgjast grannt með því hvaða útboðsskilmálar yrðu settir Sjá nánar álit forstjóra íslensku skipafélaganna á bls. 2. reiknaö á föstu gengi. í ár voru samtals 6183 lestir seldar í Hull og Grimsby, 2918 lest- ir úr bátum og 3265 lestir úr gám- um. Samsvarandi tölur fyrir júlí- mánuð 1984 eru 1714 lestir úr bát- um og 1247 lestir úr gámum eða samtals 2961 lest. í þessari viku hafa verið seldar samtals 2420 lestir í Hull og Grimsby og hefur magnið ekki ver- ið jafn mikið áður. Þrátt fyrir þetta mikla framboð og tal um að verð hafi lækkað mikið á markaðn- um, er meðalverðið fyrir kílóið af fiski úr skipum aðeins 4‘/i% Iægra og 11% lægra fyrir fisk úr gámum. Þá er meðalverðið miðað við meðal- verð alls júlímánaðar í ár. Framangreindar upplýsingar fengust hjá Kristjáni Ragnarssyni, formanni Landssambands ís- lenskra útvegsmanna. Hann sagði að samtals hefði verið seld 2301 lest það sem af væri þessari viku. Verðið hefði samtals verið 86,2 milljónir króna og meðalverðið 37,50 krónur. 1260 tonn hefðu verið seld úr skipum, meðalverðið 38,56 kr., og 1041 lest úr gámum, meðal- verðið 36,16. Til samanburðar var meðalverðið í júlímánuði á fiski fluttum með skipum 40,31 kr. og á fiski úr gámum 40,52 krónur. „Við teljum þetta afskaplega vel sloppið, enda hjálpaði ýmislegt upp á sakirnar, eins og að kalt var í veðri í Bretlandi og bræla á miðum, þannig að minna var um framboð á afla heimabáta. Það breytir þó ekki þeirri staðreynd að markaðurinn stóðst þetta mikla framboð mjög vel og horfurnar góðar framundan, ekki síst í næstu viku, en þá er aðeins gert ráð fyrir að um 1200 lestir af íslandsfiski verði seldar á breskum fiskmörkuðum,“ sagði Kristján Ragnarsson.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.