Morgunblaðið - 20.08.1985, Page 42

Morgunblaðið - 20.08.1985, Page 42
42 fclk í fréttum MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 20. ÁGÚST 1985 BIRNA EINARSDÓTTIR FRAMKVÆMDASTJÓRIÍSLENSKRA GETRAUNA „Ég fíktaði aðeins við þetta í skólanum“ Mér líkar afskaplega vel hérna og þetta er vinna þar sem ég ræð mér sjálf að miklu leyti," sagði Birna Einarsdóttir 24 ára nýútskrifaður viðskipta- fræðingur sem nýlega tók við stöðu framkvæmdastjóra hjá ís- lenskum getraunum. „Það er að vísu oft erfitt að taka ákvarðanir en þetta kemur allt með tímanum." — Tókstu þátt í getraununum J áður en þú byrjaðir í þessu starfi? „Ekki get ég beint sagt það. Ég var að fikta við þetta af og til þegar strákarnir í skólanum voru að selja miða. En ég hef ekki gert þetta reglulega. Það eru einmitt margir mjög hissa þegar þeir uppgötva að framkvæmdastjóri Getraunanna er ekki á kafi í þessu sjálfur. Ég hef fylgst með íslenskum fótbolta en held ekki með neinu sérstöku liði íslensku eða er- lendu." — í hverju er starfið þitt fólg- ið? „Ég hef yfirumsjón með starfseminni og það eru 11 manns sem vinna hérna ann- aðhvort í fullu starfi eða hluta- starfi. Ég er í sambandi við aug- lýsendur, umboðsmenn um land allt og sé almennt um daglegan rekstur. Á næstunni ætlum við af stað með mikla auglýsingaherferð svo það er nóg að gera í því sam- bandi. Þetta er reyndar mikill annatími hjá okkur því fyrsta leikvikan hefst núna 24. ágúst. Að sjálfsögðu er margt sem ég er ekki komin inn í ennþá en hér Birna Einarsdóttir Morgunbladið/Bjarni er fullt af góðu fólki í kringum mig sem hægt er að fá hjálp og stuðning frá.“ — Ertu strax farin að sjá eitt- hvað sem þú vilt breyta? „Ég er ekki komin nógu vel inn í þetta allt til að geta farið að skipuleggja breytingar. Það eina sem ég sé strax að má gera meira af er að auglýsa." t Stúlkurnar stældu hárgreiðslu og klæðaburð Líklega kannast unga fólkið ekkert við þessa konu, en þeir sem eru komnir um eða yfir fimmtugt kynnu að fá glampa í augu og minnast þeirra stunda þegar þessi kona hafði lík áhrif og frægir popparar í samtímanum. Fyrsta myndin hennar í USA var „Roman Holiday" 1953 þar sem hún lék á móti Gregory Peck. Eftir það stældu stúlkurnar hár- greiðslu hennar og klæðaburð og hver myndin rak aðra. Brúðkaup ársins? AUDREY HEPBURN Audrey upp á sitt besta 1953. Leikstjórinn sem „skapaði" þessa stjörnu var William Wyler. Liðlega 30 árum síðar lítur Audr- ey Hepburn til baka og segir: Ég vissi lítið hvað ég var að gera í fyrstu myndunum og tók þetta eins og spennandi leik. En leik- stjórinn nýlátinn, William Wyler sem nú er verið að gera heimilda- mynd um, kom í upphafi auga á þokkan í sakleysi hennar sem gerði hana fræga. Hún minnist hans með mikilli hlýju og segir hann hafa varðveitt sig á föður- legan hátt þegar mest þurfti við er unglingsstúlka var allt í einu hrif- in inn í frægð, frama og lífsmáta Hollywood á glæsiárunum. Yasmin Khan, dóttir Ali Khan og Ritu Hayworth, gekk að altarinu fyrir stuttu með Basil Embericos, syni bandarísks verksmiðjueiganda. Það var í París sem athöfnin og veislan voru haldin og vígslan fór fram í gríðarstórri grískor- þodoskri kirkju en brúðguminn tilheyrir þeirri kirkjudeild. Fað- ir Yasmin er látinn en móðir hennar er haldin sjúkleika og gat ekki verið viðstödd. Þrátt fyrir það var margt um manninn og brúðhjónin ljómuðu af ham- ingju eins og vera ber. Kirk Dougte og frú maettu alla leið fri Bandaríkjunum. Hin hamingjusömu hjón, Basil Emberico og Yasmin Khan. Hún er 35 ára en hann er 36. Veislan var haldin á Ritz í París. Fyrrverandi konungshjón í Hellas, Konstantin og Anne Marie. Karim núverandi. Aga Khan mætti í brúðkaupið þrátt fyrir að hann sé múslimi að trú.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.