Morgunblaðið - 04.12.1985, Síða 5
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 4. DESEMBER1985
Sigurður Steinar Ketilsson, stýrimaður, við skerminn þar sem hann fylgist með því sem myndavélin góða
festir á fílmu.
Innrauða myndavélin sem fest er
á bakborðshlið þyrlunnar.
Bylting í útbúnaði
björgunarþyrlu hérlendis
— segir forstjóri Landhelgisgæzlunnar um innrauða
myndavél í nýju þyrlunni, TF-SIF, sem kynnt var í gær
HIN NÝJA þyrla Landhelgisgæzl-
unnar, TF-SIF, var í gær kynnt
blaðamönnum, forráðamönnum
hinna ýmsu björgunarsveita, yfír-
mönnum flugmála í landinu og
fleiri gestum. Gafst mönnum kost-
ur á að fljúga með þyrlunni og sáu
þá með eigin augum hvernig inn-
rauð myndavél, sem í vélinni er,
og er „bylting í útbúnaði björgun-
arþyrlu hérlendis“, eins og Gunn-
ar Bergsteinsson, forstjóri Land-
helgisgæzlunnar, orðaði þa j í gær,
virkar. Þyrlan er af ge.ðinni SA
365 N Dauphin II. Hún er frönsk,
frá Aerospatiale. Þess má geta að
bandaríska strandgæslan hefur nú
tekið í notkun 96 þyrlur eins og
þessa.
Nefnd innrauð myndavél
skynjar af mikilli nákvæmni
mismunandi hitaútgeislun hluta
og gerir þar með áhöfn þyrlunnar
mögulegt að greina ýmsa hluti
þótt í myrkri eða slæmu skyggni
sé. Sem dæmi má nefna að í 500
feta hæð á að vera hægt að sjá
mann í sjónum hálfa sjómílu á
hvert borð og % sjómílu fram-
undan hvort sem er að nóttu eða
degi.
Hin nýja þyrla, TF-SIF, á flugi í gær. Morgunblaftið/Árni Sæberg
Gunnar Bergsteinsson sagði
m.a. er hann kynnti vélina:
„TF-SIF er tæknilega mjög full-
komin. í stað málma er notað
mikið af trefjaefnum sem gera
hana léttari, sterkari og auðveld-
ari í viðhaldi. Hönnun stélhluta
hennar, sem er talsvert frá-
brugðin því sem gerist á þyrlum
yfirleitt, gerir flugmanni kleift
að hafa fulla stjórn á þyrlunni
þótt stélskrúfa bili ef flughraða
er haldið ofan við visst lágmark
og má þá jafnvel lenda henni á
flugbraut eins og venjulegri flug-
vél.“
í máli Gunnars kom ennfrem-
ur fram að hámarksþungi þyrl-
unnar er 4.000 kg. en lyftigeta
1.600 kg. Þyrlan er knúin tveimur
700 hestafla hreyflum, sem gefa
hámarkshraða 320 km á klst., en
hagkvæmasti hraði er um 250
km á klst. Flugþol á hagkvæm-
asta hraða er 4 klukkustundir
og 15 mínútur.
f almennu farþegaflugi flytur
þessi gerð af þyrlum 12-13 far-
þega en í útfærslu Landhelgis-
gæzlunnar getur hún flutt átta
farþega eða fjórar sjúkrabörur
ásamt lækni. Annar sjúkrabún-
aður er súrefnistæki, hitakassi
fyrir ófullburða börn og skyndi-
hjálpartaska, sem er gjöf Rauða
kross íslands, en Borgarspítali
mun annast viðhald hennar.
Slysavarnafélagið færði Gæzl-
unni í gær súrefnistösku að gjöf,
sem vera á í vélinni. í áhöfn
þyrlunnar eru 3-4 menn eftir
atvikum. Þeir sem flugu í gær
voru Páll Halldórsson, yfirflug-
stjóri Landhelgisgæzlunnar, og
Benoný Ásgrímsson, flugstjóri.
Auk þeirra var í áhöfninni Sig-
urður Steinar Ketilsson, stýri-
maður, sem stjórnaði myndavél-
inni góðu.
Á þyrlunni er björgunarspil,
vörukrókur og neyðarflot. Ef
nauðsyn krefur er hægt að losa
eldsneyti á flugi til að létta
þyrluna.
Gunnar sagði þyrluna útbúna
venjulegum flugleiðsögutækjum,
mjög fullkomnu Loran-C stað-
setningartæki og radar með lita-
skjá, þar sem kalla má fram
ýmsar upplýsingar auk radar-
myndar. „Doppler-tæki gerir
flugmönnum þyrlunnar kleift að
halda henni stöðugri yfir ákveðn-
um stað án viðmiðunar við um-
hverfið. Frá þyrlunni er einnig
hægt að skjóta upp blysum á
flugi til þess að lýsa upp björgun-
arsvæði eða lendingarstað,"
sagðiforstjórinn.
Það var 22. júní í fyrra sem
dómsmálaráðherra, Jón Helga-
son, og Albert Guðmundsson,
þáverandi fjármálaráðherra,
undirrituðu kaupsamning að
þyrlunni. Afgreiðslutími var
áætlaður 14 mánuðir, en af-
hendingu þyrlunnar seinkaði
vegna erfiðleika við að losna við
truflanir, sem fram komu á
miðunartækjum, þegar gengið
var frá öðrum radíóbúnaði. Þyrl-
an var afhent 7. nóvember sl. í
Marignane í Suður-Frakklandi.
Tólf dögum síðar kom hún til
Reykjavíkur og var þá strax
hafist handa við að koma fyrir
þeim útbúnaði, sem úr henni
hafði verið tekinn áður en lagt
var upp í flugið til íslands. Þyrl-
an hefur nú þegar farið í eitt
sjúkraflug.
i
í
k
|
n
NÝBÝLAVEGI 16 • P.O. BOX 397* 202 KÓPAVOGUR • SÍMI 641222
SUNNUHLlÐ, AKUREYRI, SlMI 96-25004
Margt smátt gerir eitt stórt
fyrir PC einkatölvur
á aðeins kr. 15.300.—
Multifunction card
Okkar þekking í þína þágu
GÍSLI J. JOHNSEN SE
Innifalið í verði:
★ Minnisstækkun í 640 K
★ 2 hliðtengi (Parallel)
★ 1 raðtengi (Serial)
★ Klukka
Gefur möguleika á:
★ P SPOOL
★ Ramdisk
ísetning ef óskað er
f
I