Morgunblaðið - 04.12.1985, Blaðsíða 6
6
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 4. DESEMBER1985
Svæðisútvarpið
Þeir hjá Ríkisútvarpinu láta
ekki deigan síga. í fyrradag,
nánar tiltekið klukkan 17:03 hóf
göngu sína svæðisútvarp er eink-
um er ætlað íbúum Stór-Reykja-
víkur og nálægra byggðarlaga. Nýr
og öflugur sendir varpar efni þess
reyndar alla leið upp í Borgarfjörð
að mér heyrðist en ýmsir hringdu
í umsjónarmennina Sverri Gauta
Diego og Ragnheiði Davíðsdóttur
og þar á meðal menn ofan úr
Borgarfirði er heyrðu prýðilega
það sem fram fór. Sjálfur get ég
borið vitni um að geislinn braust
af meira afli gegnum 30 sentí-
metra þykka steinveggi vinnustof-
unnar en eldri geislar gamla góða
Gufunessradíósins. Annars var
létt yfir þessari fyrstu útsendingu
svæðisstjóranna og á ég þá einkum
við tónlistina. En eins og vera ber
var náttúrulega fyrst rætt við út-
varpsstjóra í tilefni dagsins.
Ummœli útvarps-
stjóra
Markús Örn var hress að vanda
og lýsti því yfir að hann væri á
leið heim úr vinnu og fyndist
upplagt að menn spígsporuðu um
þularstofur svæðisútvarpsins til
dæmis á leiðinni heim úr vinnunni.
Svæðisútvarpið væri raunar svar
útvarpsins við nýjum straumum í
fjölmiðlun, því væri ætlað að létta
svolítið hinum ábúðarmikla stofn-
anablæ af Ríkisútvarpinu. Þá vék
útvarpsstjóri að svæðisútvarpinu
á Akureyri sem hann taldi hafa
komið til móts við Norðlendinga í
svo ríkum mæli að nú æsktu þeir
þess að útsendingartíminn yrði
lengdur um hálfa klukkustund.
Menntamálaráðherra
Menntamálaráðherra, Sverrir
Hermannsson, mætti næstur til
leiks. Sverrir var að vonum glaður
í bragði og ég held að allir þeir
er sátu ráðstefnu hans í Þjóðleik-
húsinu um varðveislu íslenskrar
tungu og bókmennta geti verið
honum sammála um að þar ríki
glaðbeittur sóknarhugur. Annars
fannst mér nú að viðtalið við
Sverri Hermannsson ætti fremur
heima á rás 1 eða 2 því það átti
svo sannarlega erindi til allra
landsmanna. Að mínu viti á svæð-
isútvarp fyrst og fremst að þjóna
því svæði er geisli þess spannar.
Það á að rabba við menn um mál-
efni er tengjast einvörðungu því
svæði er það tekur til og er því
ekki ósvipað landsmálablaði. Við-
talið við þriðja manninn, Júlíus
Sólnes formann Sveitarstjórnar-
samtaka höfuðborgarsvæðisins,
hitti að þessu leyti í mark. En þar
fjallaði Júlíus einkum um nauðsyn
þess að íbúar höfuðborgarsvæðis-
ins skiptu sér meira af skipulags-
málum svæðisins og taldi svæðis-
útvarpið kjörinn vettvang slíkrar
umræðu.
Nafngift
Ég vil nú ekki leggja neinn dóm
á þetta nýstofnaða svæðisútvarp
okkar er hér hírumst á suðvestur-
horninu en ég mun síðar víkja
nánar að dagskrá þess. Þó finnst
mér dálítið notaleg tilfinning
fylgja vissunni um að eiga að smá
skot í útvarpinu. Þið báðuð annars
hlustendur að finna nafn á af-
kvæmið. Um leið og ég óska ykkur
til hamingju með frumburðinn þá
vil ég ekki láta mitt eftir liggja.
Hvernig væri að nefna svæðisút-
varpið: Ingólfsbrunn, Við Tjörn-
ina, Kolbeinshaus eða Öndvegis-
súluna?
Ólafur M.
Jóhannesson
ÚTVARP/SJÓNVARP
„Fedgar
á ferð“
— ný miðdegissaga
Kristín Helgadóttir er fyrir mióju og henni til aóstoóar í þættinum eru þau Heiöveig
Helgadóttir og Pétur Snæland.
Barnaútvarpið
■■■■ í barnaútvarpi
-I n oo ' da8 kl- 17 00
X # — verður á dag-
skrá þjóðlagaþáttur. Leik-
in verður tónlist frá ýms-
um löndum. Þá verður 5.
lestur framhaldssögunnar
um Ivik bjarndýrsbana
eftir Pipaluk Freuchen.
Guðrún Guðlaugsdóttir
les.
Umsjónarmaður Barna-
útvarpsins er Kristín
Helgadóttir og henni til
aðstoðar eru þau Heiðveig
Helgadóttir og Pétur
Snæland.
Skólasaga
— um Skálholtsskóla
■i „Skólasaga —
3Q um Skálholts-
— skóla" nefnist
þáttur sem er á dagskrá
rásar 1 í kvöld kl. 21.30.
Guðmundur R. Guð-
mundsson tók saman og
er Kristján Sigfússon les-
ari.
í þættinum lýsir Guð-
mundur Skálholtsskóla,
skólastofu, svefnskála og
borðstofu. Sagt er frá
aðbúnaði skólapilta, fatn-
aði, sængurfötum og rúm-
stæðum. Umsjónarmaður
reynir að setja sig í spor
skólapilta á 18. öld og fylg-
ir námsskrá þeirra eina
viku.
Rætt verður um hið
lokaða skóiasamfélag með
sínu flókna embættis-
mannakerfi. Einnig verð-
ur fluttur hluti ljóðabálks
skólapilta á 18. öld um
fæðið í skólanum.
Ný miðdegis-
varpi, rás 1, í dag kl. 14.00
og ber hún heitið „Feðgar
á ferð“ eftir færeyska
höfundinn Heðin Brú.
Aðalsteinn Sigmundsson
þýddi. Björn Dúason byrj-
ar lesturinn.
Heðin Brú er höfundar-
nafn Hans Jakobs Jakob-
sen. Hann fæddist árið
1901 og ólst upp í byggð-
inni Skálavík á Sandoy.
Ungur var hann um skeið
á fiskveiðum á íslands-
miðum, en fór síðan til
Danmerkur til að læra
búfræði. Eftir það fór
hann aftur til Færeyja og
starfaði sem búnaðar-
ráðunautur þar til hann
lét af embætti vegna ald-
urs.
Heðin Brú vann sér
orðstir sem rithöfundur
með sögunni „Feðgar á
ferð“ sem út kom árið
1940. í sögunni er fjallað
um átök kynslóðanna.
Annars vegar er það eldri
kynslóðin sem lifir á
landsins gæðum og stend-
ur föstum fótum i siðgæð-
ishugmyndum gamla tím-
ans. Hins vegar eru þeir
yngri sem taka mið af
öðrum skoðunum og vilja
hagnast sem mest á út-
hafsveiðum. Sagan hefst
með skopi, en snýst upp í
harmleik þar sem föðurn-
um finnst sér ógnað vegna
skuldar sem hann lenti í
■■
HEÐIN BRÚ, höfundur
miðdegissögunnar „Feðgar
á ferö“.
þegar hann keypti hval í
fylliríi eftir grindadráp.
Heðin er einn af virt-
ustu höfundum Færeyja.
Hann hefur einnig hlotið
viðurkenningu erlendis og
sögur hans þýddar á all-
mörg Evrópumál. Sagan
kom út í íslenskri þýðingu
árið 1941. í útvarpi er
sagan alls 11 lestrar.
ÚTVARP
MIÐVIKUDAGUR
4. desember
7.00 Veöurfregnir. Fréttlr.
Bæn
7.15 Morgunvaktin
7.20 Morguntrimm
7.30 Fréttir. Tilkynningar.
8.00 Fréttir. Tilkynningar.
8.15 Veðurfregnir.
9.00 Fréttir.
9.05 Morgunstund barnanna:
„Elvis, Elvis" eftir Marlu
Gripe
Torfey Steinsdóttir þýddi.
Sigurlaug M. Jónasdóttir les
(6).
9X0 Morguntrimm. Tilkynn-
ingar. Tónleikar, pulur velur
og kynnir.
9X5 Þingfréttir
10.00 Fréttir.
10.05 Daglegtmál
Endurtekinn þáttur frá kvöld-
inu áður sem Sigurður G.
Tómasson flytur.
10.10 Veðurfregnir.
10.25 Lesið úr forystugreintW-
dagblaðanna.
10.40 Hin gömlu kynni
Valborg Bentsdóttir sér um
þáttinn.
11.10 Úr atvinnullfinu — Sjáv-
arútvegur og fiskvinnsla
Umsjón: Glsli Jón Kristjáns-
son.
11X0 Morguntónleikar
Þjóðlög frá ýmsum löndum. '
12.00 Dagskrá. Tilkynningar.
12X0 Fréttir.
12X5 Veðurfregnir. Tilkynning-
ar. Tónleikar.
13.30 ( dagsins ðnn — Frá
vettvangi skólans
Umsjón: Kristln H. Tryggva-
dóttir.
14.00 Miðdegissagan: „Feðgar
á ferð" eftir Heðin Brú
Aðalsteinn Sigmundsson
þýddi. Björn Dúason byrjar
lesturinn.
14.30 Óperettutónlist
a. „Delirien", vals op. 212
eftir Josef Strauss.
Cleveland-hljómsveitin leik-
ur. George Szell stjórnar.
b. „Schön ist die Welt" eftir
Franz Lehar.
Rudolf Schock og Sylvia
Geszty syngja atriði úr óper-
ettunni með Sinfónluhljóm-
sveit Berllnar. Werner
Schmidt-Boelcke stjórnar.
c. Polki og fúga úr
„Schwanda" eftir Jaromir
Weinberger.
Konunglega fílharmonlu-
sveitin i Lundúnum leikur.
Rudolf Kempe stjórnar.
15.15 Hvað finnst ykkur?
Umsjón: örn Ingi. (Frá Akur-
eyri).
19.00 Stundin okkar.
Endursýndur þáttur frá 1.
desember.
19.30 Aftanstund. Barnaþáttur
með innlendu og erlendu
efni. Söguhornið - Skjónl,
saga og myndir eftir Nlnu
Tryggvadóttur. Sögumaður
Jónína H. Jónsdóttir.
Sögur snáksins með fjaðra-
haminn - spænskur teikni-
myndaflokkur. Sðgumaöur
Sigurður Jónsson.
19.50 Fréttaágrip á táknmáli.
20.00 Fréttir og veður.
15.45 Tilkynningar. Tónleikar.
16.00 Fréttir. Dagskrá.
16.15 Veðurfregnir.
16X0 Slðdegistónleikar
a. Planókvintett op. 57 eftir
Dmitri Sjostakovitsj.
Lyubiv Edlina og Borodin-
kvarfettinn leika.
b. Svfta nr. 1 eftir Igor Strav-
inski.
Sinfónluhljómsveitin I Dallas
leikur. Eduard Mata stjórnar.
17.00 Barnaútvarpið
Meðal efnis: „Ivik bjarndýrs-
bani" eftir Pipaluk Freuchen.
Guðrún Guölaugsdóttir les
þýðingu Sigurðar Gunnars-
sonar (5).
Stjórnandi: Kristln Helga-
dóttir.
17X0 Tónleikar. Tilkynningar.
18X5 Veðurfregnir. Dagskrá
kvðldsins.
19.00 Fréttir.
20.30 Auglýsingar og dagskrá.
20.45 Maðurogjörð.
(A Planet for the Taking)
6. Leyndardómar llfs og
þroska.
Kanadlskur heimildamynda-
flokkur I átta þáttum um
tengsl mannsins við uppruna
sinn, náttúru og dýrallf og
firringu hans frá umhverfinu
á tækniöld. Umsjónarmaður
David Suzuki. Þýðandi og
þulur Öskar Ingimarsson.
21.50 Dallas.
Gildran
19.30 Tilkynningar.
19.45 Málræktarþáttur
Helgi J. Halldórsson flytur.
19.50 Eftir fréttir
Jón Asgeirsson fram-
kvæmdastjóri Rauða kross
Islands flytur þáttinn.
20.00 Hálftlminn
Elln Kristinsdóttir kynnir
popptónlist.
20.30 (þróttir
Umsjón: Ingólfur Hannes-
son.
20.50 Tónmál
Soffla Guðmundsdóttir
kynnir. (Frá Akureyri).
21.30 Skólasaga — Um Skál-
holtsskóla
Umsjón: Guölaugur R. Guð-
mundsson. Lesari: Kristján
Sigfússon.
22.00 Fréttir. Dagskrá morgun-
dagsins.
Bandariskur framhalds-
myndaflokkur. Þýðandi
Björn Baldursson.
22.45 Or safni Sjónvarpsins.
Söngur og hestar sýnast
mér. . .
Steinunn Sigurðardóttir
ræðir við Sigurð Ólafsson
söngvara og hestamann I
Laugarnesi.
Stjórn upptöku: Sigurður
Grlmsson. Þátturinn var áður
sýndur I Sjónvarpinu haustið
1984.
23.35 Fréttir I dagskrárlok.
22.15 Veðurfregnir. Orð kvölds-
ins.
22.25 Bókaþáttur
Umsjón: Njörður P. Njarðvlk.
23.05 A óperusviðinu
Leifur Þórarinsson kynnir
óperutónlist.
24.00 Fréttir. Dagskrárlok
MIÐVIKUDAGUR
4. desember
10.00—12.00 Morgunþáttur
Stjórnandi: Kristján Sigur-
jónsson.
Hlé.
14.00—15.00 Núerlag
Gömul og ný úrvalslög að
hætti hússins.
Stjórnandi: Gunnar Salvars-
son.
16.00—17.00 Dægurflugur
Nýjustu dægurlögin.
Stjórnandi: Leopold Sveins-
son.
17.00—18.00 Þræðir
Stjórnandi: Andrea Jóns-
dóttir.
Þriggja mlnútna fréttir sagð-
ar klukkan 11.00, 15.00,
16.00og 17.00.
17.00—18.00 Rlkisútvarpiö á
Akureyri — Svæöisútvarp.
SJÓNVARP
MIÐVIKUDAGUR
4. desember