Morgunblaðið - 04.12.1985, Page 15
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 4. DESEMBER1985
15
Endurminningar Hall-
dórs E. Sigurðssonar
Bókaútgáfan Örn og Örlygur hefnr
gefið út fyrra bindi endurminninga
Halldórs E. Sigurðssonar fyrrver-
andi ráðherra.
I fréttatilkynningu útgefanda
segir: „í þessu fyrra bindi ævi-
minninga sinna lýsir Halldór fyrst
uppvexti sínum á Snæfellsnesi og
síðan skólavist í Reykholti, en þar
er að finna einhverja gleggstu lýs-
ingu sem rituð hefur verið af
heimavistarlífinu í héraðsskólun-
um eins og það var á fyrstu árum
þeirra.
Forvitnilegasti kafli bókarinnar
er þó líklega frásögn Halldórs af
fóstrinu sem hann naut hjá Jónasi
frá Hriflu rúmt misseri um tví-
tugsaldurinn, þegar hann var í eins
konar verknámi hjá Jónasi og í
matarvist hjá ýmsum framsóknar-
höfðingjum til skiptis. Lýsing
Halldórs á Jónasi og fjölskyldu
hans á árinu 1936 og kynnum við
hann þá og síðar er mikilvægt
framlag til skilnings og skilgrein-
ingar á gerð og lífsstarfi þessa
merkilega manns, og hæfir vel að
það komi fram á aldarafmæli
hans.
Þá segir Halldór eftirminnilega
frá búskap sínum á Staðarfelli og
er ekki síst fróðleg frásögn hans
af nýtingu hlunnindanna í eyjum
á Hvammsfirði. Og hann hefur
ýmislegt að segja frá samskiptum
Þingmanna-
fundi Norður-
landa send
ályktun gegn
kjarnorku-
vígbúnaði
EFTIRFARANDI ályktun var send
þingmannafundi Norðurlanda sem
haldinn var í Kristjánsborgarhöll
29. og 30. nóvember.
„Undirrituð samtök fagna því
að stjórnmálamenn Norðurlanda
fjalli um ógnir kjarnorkuvígbún-
aðarkapphlaupsins.
Það er skoðun okkar að það sé
siðferðilega rangt að sóa hugviti í
þróun gjöreyðingarvopna. Kjarn-
orkuvígbúnaðarkapphlaupið dreg-
ur einnig til sín fé sem sárlega
vantar til mannlegra nauðþurfta.
Við hvetjum þingmenn fundar-
ins til þess að beita sér gegn kjarn-
orkuvígbúnaði um heim allan."
Undir ályktunina rita Ásgeir
Haraldsson fyrir hönd Samtaka
íslenskra lækna gegn kjarnorkuvá,
Tómas Jóhannesson fyrir hönd
Samtaka íslenskra eðlisfræðinga
gegn kjarnorkuvá, Helga Bach-
mann fyrir hönd Friðarsamtaka
listamanna, Utyiur Jónsdóttir fyr-
ir hönd Friðarnóps fóstra, Gerður
Steinþórsdóttir fyrir hönd Friðar-
hreyfingar íslenskra kvenna og
biskupinn yfir íslandi, herra Pétur
Sigurgeirsson.
Víðir, áður
Aprfl farinn
á veiðar
TOGARINN Víðir HF 201, áður
Aprfl, er nú haldinn til veiða eftir
alllangt hlé. Togarinn er í eigu
Hvaleyrar hf. í Hafnarfirði, en var
áður í eigu Bæjarútgerðar Hafnar-
fjarðar.
Þorsteinn Baldvinsson, einn
eigenda Hvaleyrar, sagði í samtali
við Morgunblaðið, að togarinn
hefði að mestu legið við bryggju
síðan í ágúst á siðasta ári. Hann
hefði nú verið sendur til veiða,
þrátt fyrir að fyrirhugaðar við-
gerðir á skipinu hefðu enn ekki
verið unnar. Frystihúsið skorti
hráefni í desember og því hefði
skipið verið sent á veiðar. Vonir
stæðu til að hægt væri að halda
því úti fram á vor áður en að við-
gérðum kæmi.
ÍFÓSTKIÍU\JC>\VSI
HALLDOR E.
SKíl KDSSO\
rekar minníngar sínar
sínum við Dalamenn í félagslífi og
sambýli. Saga Húsmæðraskólans á
Staðarfelli er líka rakin að nokkru.
Fyrst og síðast er það þó hinn
ótrúlega mikli fjöldi fólks, sem
Halldór hefur kynnst, er verður
honum frásagnarefni í þessari
bók.“
í fóstri hjá Jónasi er sett og
prentuð í Prentstofu G. Benedikts-
sonar en bundin hjá Arnarfelli.
Kápu hannaði Sigurþór Jakobsson.
Jóhannes
Sveinsson
Kjarval
Ævisaga
eftir Indríða G.
Þorsteinsson
„ . . . bók Indriða um Kjarval fylgir í
flestum tilvikum hinni næstum sígildu
ævisagnaritun eða íslenskum bókum um
merkismenn. Og sem slík er hún líklega sú
besta sem ég hef lesið, ef ekki sú albesta.
Stíll bókarinnar er tilgerðarlaus, sléttur og
felldur . . . með einföldum orðum og
skrúðlausum . . . Slíkt litleysi sem gætir í
fari Indriða við gerð bókarinnar er afar
sjaldgæft meðal rithöfur.da. Því það er nú
einu sinni sú skoðun þeirra að þeim beri að
hafa vitfyriröðrum, líka sérfræðingum . . .
Margar prýðilegar ljósmyndir eru í bókinni
og ekki eru myndirnar af málverkunum
síðri. Umhyggja fyrir myndunum er
einstæð . . .“
(Guðbergur Bergsson í Helgarpóstinum
31. október 1985).
.....ég (kann) naumast annað en hrósyrði
að segja um þessa sögu Indriða G. Þorsteins-
sonar. Hann hefur gefið okkur frábærlega
vel skrifaða og glögga mannlýsingu á
mikilhæfum einstaklingi, og barmafulla af
smellnum frásögnum ( kaupbæti . . .“
(Dr. Eysteinn Sigurðsson í NT 15. okt. 1985)
„Það fer ekki milli mála að það er gífurlegur
fengur að lesa jafn vel ritaða ævisögu
Jóhannesar Sveinssonar Kjarvals . . .“
(Jóhann Hjálmarsson skáld í Morgunblaðinu
15. október 1985)
„Ég get . . . lýst því sem minni skoðun að
höfundurinn hafi unnið hér þrekvirki . . .“
(Kristján frá Djúpalæk skáld í Degi
15. okt. 1985)
BOK
AUÐVTTAÐ
AUSTURSTRÆTI 18 - SÍMI 25544