Morgunblaðið - 04.12.1985, Síða 25
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 4. DESEMBER1985
25
Morgunblaðið/Sig. Jóns.
Atli Jónsson með ævintýraheftið.
Sjö ára og sendir
frá sér bók
Solfossi, 1. desember.
ATLI Jónsson, 7 ára strákur sem
á heima á Vorsabæjarhóii í Gaul-
verjabæjarhreppi, samdi í haust
sjö ævintýri sem gefín hafa verið
út í hefti og eru á jólabókamark-
aðnum.
„Við vorum nokkra daga að
gera þetta," sagði Atli þegar ég
heimsótti hann í tilefni bókar-
innar. Honum til aðstoðar við
gerð hennar var Kristinn Sæ-
mundsson sem skráði sögurnar
og útbjó þær í hefti, en Kristinn
var við vinnu á Vorsabæjarhóli
sl. haust.
„Mér finnst ósýnilegi strákur-
inn skemmtilegasta sagan",
sagði Atli, ánægður yfir því að
bókin er komin út. Hún var
reyndar hernaðarleyndarmál hjá
þeim Kristni og kom heimilis-
fólkinu í opna skjöldu. Það vissi
ekkert fyrr en lesið var upp úr
bókinni í útvarpinu.
Atli myndskreytti bókina og
sýna myndirnar atburði úr sög-
unum. En hvað ætlar hann að
gera við peninga ef bókin selst
vel? „Ég ætla að setja peningana
í banka,“ svarði ungi rithöfund-
urinn á Vorsabæjarhóli.
Sig. Jóns.
Vinnum eftir
útvarpslögum
— svæðisútvarpi ekki beint gegn
frjálsum útvarpsrekstri, segir Markús
Örn Antonsson útvarpsstjóri
„VIÐ ERUM að tala um ný útvarpslög, sem Alþingi hefur samþykkt og
eiga að koma til framkvæmda um næstu áramót. Þar er beinlínis gert ráð
fyrir því, að Ríkisútvarpið reki svæðisútvarpsstöðvar. Það er ákvæði í lögun-
um um það, að stefna beri að því að koma upp svæðisútvarpi í öllum lands-
hlutum og aðstöðu til dagskrárgerðar," sagði Markús Örn Antonsson, út-
varpsstjóri, í samtali við Morgunblaðið.
„Þetta er þegar komið í gang á
Akureyri og í Reykjavík og vísi að
aðstöðu til dagskrárgerðar hefur
verið komið upp á Egilsstöðum.
Stefnt er að því að hefja útsending-
ar svæðisútvarps fyrir austan með
hverjum hætti sem það verður
fyrst í stað. Þá höfum við mikinn
áhuga á því að auka tengsl okkar
við þá landshluta, sem fjærst
okkur liggja og horfum meðal
annars til Vestfjarða í því tilliti
og að fljótlega verði fenginn
starfsmaður fyrir okkur þar með
svipað verksvið og er fyrir austan.
Það getur hver sem er, félagasam-
tök og einstaklingar, stundað út-
varpsrekstur hér á höfuðborgar-
svæðinu allan sólarhringinn burt
séð frá þessu. Þetta svæðisútvarp
hér í Reykjavík, sem sendir út í
eina klukkustund á dag, segir lítið
í samkeppni þeirri, sem tekur við
með frjálsum útvarpsrekstri.
Svæðisútvarp getur engan veginn
skoðast sem aðgerð til að koma í
veg fyrir annan útvarpsrekstur.
Þetta er afskaplega lítil aðgerð og
ekki hægt að túlka sem slíka,"
sagði Markús Örn Antonsson.
Lýst eftir eiganda rauðblesótts hross
ÞANN 26. nóvember síðastliðinn
drápust þrjú hross, sem ekið var á
við Gljúfurárholt. Þeirra á meðal
var rauðblesóttur, ómerktur ungur
hestur.
Lögreglan á Selfossi lýsir eftir
eiganda hestsins. „Við erum
óánægðir með fjölda hrossa á þjóð-
vegum á Suðurlandi. f lok nóvem-
ber drápust fimm hross í Ölfusi á
tveimur sólarhringum. Menn
verða að gæta hrossa sinna betur,“
sagði Jón Guðmundsson, yfirlög-
regluþjónn á Selfossi, í samtali við
Morgunblaðið.
Skelvinnslan rekin með tapi
— frá 1983 hefur afuröaverð hækkað um 15% en hráefnisverð um 90%
VINNSLA á hörpuskelfiski hér á
landi er nú víðast hvar rekin með
tapi vegna lágs afurðaverðs. Meðal
verð á markaðnum ( Bandaríkjun-
um hefur hækkað um 15% á sama
tíma og hráefnisverð upp úr sjó
hefur hækkað um 90%
■ Guðmundur Stefán Maríasson,
framkvæmarstjóri Félags rækju-
og hörpudiskframleiðenda, sagði 1
samtali við Morgunblaðið, að
sæmilegt ástand væri á mörkuðun-
um eftir verðhrun síðasta vetur.
Skelveiðar frá Florida hefðu
brugðizt í haust og eftirspurn eftir
íslenzkum hörpudiski því aukizt.
Framhald þessa væri þó óljóst
vegna þess, að skelveiðar Perú-
manna væru að hefjast og kæmi
skelin frá þeim inn á bandaríska
markaðinn eftir áramótin. Eftir-
spurn og verð réðist mikið af því,
hve mikið veiddist í Perú.
Guðmundur sagði verð nú vera
um 310 krónur á kílóið og hefði
það hækkað um 15% frá því árið
1983. Verð á hörpuskel upp úr sjó
hefði hins vegar hækkað um 90%
á sama tíma og staðan hér heima
því víðast mjög erfið og vinnslan
rekin með tapi allt þetta ár.
TROSKMAÐURINN
Hermann Másson
„Skemmtileg lesning”
Árni Bergmann, Pjóöviljinn
Hvað getur froskmaður gert þegar
hann hittir hafmeyju sem heimtar að
hann yfirgefi konu og börn og taki
saman viö sig. Að öðrum kosti muni
hún leggja sjávarútveginn í rúst. Er
hafin neöansjávarbylting hér á landi?
Uppreisn hafsins gegn rányrkju stjóm-
málablesanna?
Leiftrandi saga ungs froskmanns sem
kafaö hefur djúpt i djúp samtímans.
Vist er aö Hermann Másson mun
synda með heiöur íslands viða um
heim.
Verö kr. 850.00.
“NÓTT í LÍFIKLÖRU SIGT”
Stefanía Þorgrímsdóttir
—Hver er Klara Sig?
Glæsileg kona—gift öndvegismanni í
góöri stööu — býður karlmanni með
sér heim af balli. Ljúft helgarævintýri
er í vændum.En speglarnir, sem Klara
skoðar sig í, brotna og hún stendur
vamarlaus frammi fyrir nóttinni.
Af skarpskyggni hins þroskaöa lista-
manns lýsir Stefanía ótta og einsemd
þess sem reist hefur hús sitt á sandi.
Verö kr. 850.00.
"GÖNGIN
Ernesto Sabato
—Óhugnanleg og spennandi
morðsaga
En þaö er hún aöeins á yfirborðinu.
Undir niðri er Göngin saga um mann-
lega einsemd og örvæntingu þess
sem ferðast einn um sín eigin dimmu
göng.
Ernesto Sabato, hinn heimsfrægi
argentínski rithöfundur, hlaut á sið-
asta ári Cervantesverölaunin, virtustu
bókmenntaverölaun spænskumælandi
þjóða.
Guðbergur Bergsson þýöir verkiö og
ritar itarlegan eftirmála.
Verö kr. 981.00.
FORLAGIÐ
RVKKASriG 6A. SIMh 91-25188
4)