Morgunblaðið - 04.12.1985, Síða 28
28
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 4. DESEMBER1985
Portúgal
AF ERLENDUM
VETTVANGI
eftir JÓHÖNNU KRISTJÓNSDÓTTUR
Eanes hefur lýst stuðn-
ingi við Salgado Zenha
í forsetakosningum
Enn yirðist do Amaral hafa mest fylgi
Vaxandi spenna hefur færst í undirbúning forsetakosninganna
í Portúgal eftir að einn fyrrverandi stuðningsmaður Mario
Soares og náinn samstarfsmaður, Fransisco Salgado Zenha
hefur ákveðið að bjóða sig fram. Eru þá frambjóðendur orðnir fimm
talsins og sigurlíkur Mario Soares eru nú taldar litlar sem engar.
Þegar fyrst var rætt um að Mario Soares hygði á forsetaframboð mun
áreiðanlega fæsta hafa grunað að þróun mála yrði á þann veg, sem
síðar hefur orðið.
Salgado Zenha var sem fyrr
segir náinn vinur og samstarfs-
maður Mario Soares. Heita
sumarið 1975 þegar kommúnist-
ar virtust allsráðandi í Portúgal
og menn óttuðust að yfirvofandi
væri alræði þeirra, skipulögðu
þeir Soares og Zenha mikla
fundaherferð um Portúgal þvert
og endilangt. Þeir reyndu að
stappa stálinu í fólk og hvöttu
til einingar og samstöðu gegn
yfirgangi kommúnista og MFA
— innsta hrings hersins sem var
allur á bandi kommúnista. Ekki
er neinn vafi á því að táplegur
atbeini þeirra félaga varð til að
snúa dæminu við og beina Port-
úgal inn á þær brautir lýðræðis,
sem að hafði væntanlega verið
stefnt með byltingunni árið áður.
Mönnum ber ekki saman um,
hvort sletzt hafi síðar á leiðinni
upp á vináttu og samstarf þeirra
Soares og Zenha. í Economist
segir að Zehna hafi mislíkað
ofríki Soares og það svo að hann
hafi dregið sig út úr öllum sam-
skiptum við hann. Samkvæmt
heimildum Mbl. í Lissabon var
um ágreining milli þeirra að
ræða, en ekki svo djúpstæðan,
að Zenha fari í þetta framboð
beinlínis til að klekkja á Mario
Soares.
En hvað sem því nú líður kom
framboð Salgado Zenha nánast
eins og þruma úr heiðskíru lofti
nú á dögunum. Og hann hafði
varla lokið við að kiinngera þjóð-
inni tíðindin, þegar portúgölsk
blöð birtu opið bréf frá Ramalho
Eanes, forseta þar sem hann lýsti
yfir eindregnum stuðningi hins
nýja flokks síns Lýðræðislega
endurnýjunarflokksins, við Zen-
ha. Eins og kunnugt er fékk RDP
— flokkur Eanes — hvorki meira
né minna en 17 prósent atkvæða
í kosningunum í haust og munar
því um þennan stuðning ef hann
skilar sér. Þá mun Zenha sópa
til sín fylgi úr vinstri armi PS,
Sósíalistaflokksins og loks er allt
útlit fyrir að kommúnistaflokk-
urinn PCP, sem hefur um 14%
atkvæða ætli að styðja hann.
Kommúnistar bjóða að vísu
fram sinn mann Angelo Velosa
en því er spáð, að nokkru fyrir
kosningar muni hann draga sig
í hlé og hvetja menn til að kjósa
Zenha. Það er í því undarleg
kaldhæðni, að annar þeirra
tveggja manna sem fyrir tíu
árum barðist hvað hörkulegast
gegn áhrifum kommúnista,
stefni nú í forsetastól með hjálp
sömu afla.
Enn hefur frambjóðandi Mið-
demókrata CDS, Freitos do
Amaral þó mest fylgi samkvæmt
skoðanakönnun Gallups nú í
vikunni. Fyrir nokkru lýsti for-
sætisráðherrann Anibal Cavaco
Silva því yfir að Sósíaldemó-
krataflokkur sinn PSD, mundi
styðja do Amaral. Skili þau at-
kvæði sér svo og þingfylgi Mið-
demókrata ætti do Amaral að
geta fengið um 43 prósent at-
kvæða.
Áður en Zenha ákvað að gefa
kost á sér var Maria Pintassilgo,
einn af mörgum fyrrverandi
forsætisráðherrum talin hafa
möguleika á að verða í öðru sæti
og komast þannig í seinni umferð
kosninganna. Að vísu var mjótt
á mununum með henni og Mario
Soares. Pintassilgo býður sig
fram án fulltingis ákveðins
Freitos do Amaral
stjórnmálaflokks en vitað var að
vinstri öfl í Sósíalistaflokknum
og jafnvel Kommúnistaflokknum
myndu trúlega veita henni drjúg-
an stuðning. Nú hefur það snögg-
breytzt með ákvörðun Zenha.
Fransisco Salgado Zenha er
62ja ára gamall, lögfræðingur að
mennt, ættaður frá Oporto.
Hann er maður lágvaxinn og
geðfelldur í útliti, mælskumaður
og nýtur virðingar og vinsældar,
ekki sízt vegna fortíðar hans.
Fæstir telja að hrein úrslit
fáist í fyrri umferð, enda verður
forsetaframbjóðandi að fá meiri-
hluta svo sem tíðkast í lýðræðis-
ríkjum. Veðjað er á að do Amaral
verði númer eitt og nú er sem
sagt spáin sú að Zenha verði þar
næstur á eftir og þeir tveir takist
svo á í annarri umferð.
Enn er langt til kosninga, góð-
ur mánuður eða vel það og við-
búið að margt eigi eftir að breyt-
ast á þeim vikum. Mario Soares
hefur ekki látið hugfallast þrátt
fyrir framboð Zenha og heldur
sínu striki, Pintassilgo er sigur-
glöð og telur að hinar öru hreyf-
ingar á fylgi flokkanna við síð-
ustu þingkosningar muni koma
sér til góða. Freitos do Armal
hefur vegnað mjög vel og hann
og forsætisráðherrann hafa get-
að bent á það og mjög réttilega
að nauðsynlegt sé að trúnaður
sé milli forseta og forsætisráð-
Maria Pintassilgo
Salgado Zenha
herra. Eftir reynslu þá sem
Portúgalir hafa af forsetatíð
Eanes — hversu mikilla vin-
sælda sem hann nýtur nú — eru
þau orð ekki mælt út í bláinn.
Menn eru minnugir samskipta
hans við forsætisráðherra PSD
Fransisco Sa Carneiro, sem að
vísu lézt áður en niðurstaða
fékkst í ágreiningsmáli þeirra.
Samskipti Eanes og Soares hafa
ekki síður verið stirð að ekki sé
meira sagt.
En samt er varlegt að spá
neinu að svo stöddu. En kosn-
ingaslagurin í Portúgal er hafinn
eina ferðina enn.
Séra Árni Pálsson, séra Ágúst Sigurðsson, sendiráðsprestur, og Lárus
Ágústsson, meðhjálpari. Myndin er tekin eftir messuna í St. Pálskirkju 26.
nóvember.
Prédikaði í St. Páls-
kirkju í Kaupmannahöfn
Jónshúsi, 26. nóvember.
Við íslensku guðsþjónustuna í St. Pálskirkju sl. sunnudag predikaði séra
Árni Pálsson, sóknarprestur í Kópavogi, og þjónaði fyrir altari ásamt sendi-
ráðsprestinum. Fjölmenni var við athöfnina.
Séra Árni og frú Rósa Björk
Þorbjarnardóttir, kona hans, hafa
dvalið hér í Kaupmannahöfn í
námsleyfi undanfarna 3 mánuði,
en halda nú heim á leið eftir
uppbyggjandi nám og starf og góð
kynni í íslensku nýlendunni hér.
Að aflokinni messu var safnað-
arfundur á heimili prestshjónanna
í Jónshúsi og urðu þar nokkrar
umræður um skipulagsmál safnað-
arins. Af 6 sóknarnefndarmönnum
höfðu 4 flutt heim á árinu og skipa
nú safnaðarstjórn Ragnhildur 01-
afsdóttir, Jón Helgason og Árni
Björnsson, og til vara Sigríður
Helga Þorsteinsdóttir, Sesselja
Karlsdóttir og Þórður Kristjáns-
son, sem er safnaðarfulltrúi. Mun
eftir því leitað á næstunni til
hvaða prófastsdæmis á íslandi
söfnuðurinn skuli teljast, en það
er eitt þeirra skipulagsmála, sem
nauðsynlegt þykir, að komið sé á
fastan grundvöll.
—G.LÁsg.