Morgunblaðið - 04.12.1985, Page 48
48
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 4. DESEMBER1985
HOLLUSTUBYLTINGIN / Jón Óttar Ragnarsson
Næring fyrir beinin
Brothætt bein og fljúgandi
hálka fara ekki vel saman. Þó
eru þetta hvort tveggja eins
konar séreinkenni á íslensku
landi ogþjóð.
Þrátt fyrir það halda flestir
íslendingar án efa að beinin séu
óumbreytanlegur vefur og átta
sig ekki á því að jafnvel á fullorð-
insárum eru þau í stöðugri
ummyndun.
Við þurfum því að huga að
næringu fyrir beinin á nákvæm-
lega sama hátt og við þurfum
næringu fyrir heilann ekki að-
eins í uppvextinum, heldur ævi-
langt.
Bein og næring
í grófum dráttum getum við
litið á beinin sem netju (um 30%)
úr hvítu (og fjölsykrum) sem
kristallar (um 70%) úr kalki og
öðrum steinefnum setjast síðan
í.
Til þess að búa til bein, bæði
fyrir netju og kristalla, og eins
til að halda þeim við þurfum við
ýmis bætiefni, nánar tiltekið
a.m.k. 14 mismunandi gerðir.
Þessi bætiefni eru talin upp í
töflunni hér á síðunni. Eins og
sjá má eru þetta hvíta (prótein),
3 vítamin og a.m.k. 10 mismun-
andi steinefni.
Bætiefni fyrir beinin
Hlutverk beinanna, fyrir utan
að bera líkamann og framleiða
blóðkorn (imergnum) er einmitt
að vera banki fyrir ýmis stein-
efni, þ.á.m. kalk.
Hvernig myndast
bein?
Enda þótt beinin virðist óum-
breytanleg eru þau í stöðugri
endurmótun. Losnar t.d. um hér
um bil fimmtung alls kalks í
beinum fullorðins manns á ári
aðjafnaði.
tvenns konar fruma. Eru það
beinætur sem brjóta netjuna
niður (m.a. með aðstoð A-vítam-
íns) og beinmyndarar sem byggja
hana upp.
Beinið sem myndast er harðast
yst, en meyrnar eftir sem innan
dregur (einkum í endum) og
verður þá frauðkennt. Innst (í
leggnum miðjum) er svo bein-
mergurinn.
Um frauðbeinið hríslast hár-
æðar (og taugar) sem sjá um að
líkaminn geti flutt steinefnin (og
önnur bætiefni), þ.á.m. kalkið
frá kristöllum beinanna út í blóð
ogöfugt.
Kalk
Kalk gegnir mörgum hlutverk-
um f líkama okkar. Það er m.a.
(ásamt magníum) afar mikil-
vægt fyrir hjartað og taugakerf-
ið.
En 99% af öllu kalki líkamans
(jafngildir um helmingi allra
steinefna líkamans), um það bil
1,2 kg samanlagt, er að finna í
kristöllum beina og tanna.
Kalk er auk þess eitt þeirra
næringarefna sem einna helst er
af skornum skammti í fæðinu og
er beinþynning nú að hluta til
rakin til ónógrar kalkneyslu.
Fosfór og D-vítamín
í líkama okkar er um það bii
0,6 kg af fosfór þannig að hlut-
fallið á milli kalks og fosfórs er
um það bil 2:1.
öfugt við kalk er litil hætta á
að við þjáumst af fosfórskorti.
Þvert á móti eru talsverðar líkur
á því að við fáum of mikið af
þessu efni í matnum.
öðru máli gegnir um D-vítam-
ín sem er nauðsynlegt bæði til
að likaminn geti nýtt kalk og
fosfór úr fæðunni og einnig fyrir
kölkun (kristöllun) beinanna.
Þetta vítamín fá flestir jarðar-
búar í nægum mæli fyrir áhrif
sólarljóss sem umbreytir undan-
fara D-vítamíns í húðinni í þetta
mikilvæga efni.
En hinir kappklæddu og sólar-
sveltu íslendingar verða að fá
talsvert af þessu efni úr fæðu.
Því miður vill oft verða umtals-
verður misbrestur á þvl.
Hafa rannsóknir nú leitt í ljos
að ýmsar þjóðir norðurhjarans
fá of lítið D-vítamín í fæði, ekki
síst eldra fólk. Eru Islendingar
vafalaust í þeim hópi.
Flúor og tennur
Annað mikilvægt efni er flúor
sem herðir kristallana í tönnum
(og beinum) svo þær leysast síður
í sýrum. Nægur flúor á vaxtar-
skeiði verndar tennurnar ævi-
langt.
Vegna þess hve drykkjarvatnið
og fæði íslendinga er flúorsnautt
og sykurneyslan mikil eru fs-
lendingar hrjáðari af tann-
skemmdum en flestar ef ekki
allar aðrar þjóðir.
Undantekningar eru þeir sem
kom frá bæjum, t.d. í Borgarfirði,
þar sem vatn er flúorríkt frá
náttúrunnar hendi. Þarf nú að
gera nýtt átak í flúormálum
þjóðarinnar.
Beinþynning
En það er ekki nóg að fá kalk,
flúor og önnur bætiefni f upp-
vextinum. Við verðum líka að fá
þessi efni ævilangt. Ef ekki úr-
kalkast beinin og þynnast með
tímanum.
Þessi hrörnunrsjúkdómur
kallast því beinþynning og veldur
því að beinin verða brothætt,
brotna gjarnan þegar viðkom-
andi dettur t.d. í hálku og gróa
seint eða ekki.
Úrkölkun beinanna stendur í
nánu sambandi við framleiðslu
kynhormóna (estrógena) og fær-
ist því mjög í aukana eftir tíða-
hvörf hjákonum.
Almennt séð virðast um 9 af
hverjum 10 fullorðnum, hvítum
Vesturlandakonum vera með
einhver merki beinþynningar og
ein af hverjum fimm beinbrotna
af sömu sökum.
Ein leið til þess að sporna gegn
sjúkdóminum er að gefa konum
þessa hormóna. Er talsvert af
því gert og hefur þessi meðferð
borið nokkurn árangur.
En eðlilegri aðferð er að vinna
gegn þessum sjúkdómi með
bættu mataræði, og þá fyrst og
fremst aukinni kalkneyslu, svo
og með reglubundinni líkams-
rækt.
Beinþynning á íslandi
Rannsóknir dr. Gunnars Sig-
urðssonar, læknis, benda til að
beinbrot vegna beinþynningar
séu sérlega algeng á í slandi.
Líklegasta skýringin á hárri
tiðni slíkra beinbrota hér er
hálkan alkunna, sólarleysið,
ónóg lýsisneysla og ónóg mjólk-
urmatarneysla fullorðinna, ekki
sístkvenna.
En auk þess eru kyrrsetur —
einmitt einnig vegna loftslags-
ins, sérlega algengar hér, en þær
eru jafnframt einn helsti
áhættuþáttur beinþynningar.
LokaorÖ
Beinkröm og beinmeyra (eink-
um vegna D-vítaminsskorts) eru
að visu ekki iengur vandamál, en
beinþynning er orðin mjög al-
gengur hrörnunarsjúkdómur hér
á landi.
Besta leiðin til að fyrirbyggja
þennan sjúkdóm er án efa að
neyta kalkríkra afurða, sérstak-
lega mjólkurmatar og leggja
stund á stöðuga likamsrækt ...
ævilangt.
Til þess að sporna gegn bein-
þynningu íhuga sérfræðingar nú
að mæla með aukinni kalkneyslu,
einkum meðal kvenna og e.t.v.
að hækka RDS fyrir þær úr 0,8
g á dag í 1,5 g á dag!
Stafar þetta af starfsemi
Eins gott að beinin fái næringuH
Bætiefni Hlutverk
HvíU Aðalbyggingarefni netju
Kalk Aðalbyggingarefni krisUlla
Foafór Byggingarefni krisUlla nr. 2
D-víUmín Stjórnar kristöllun (kölkun) beina
A-vítamín Fyrir niðurbrot netju
C-víUmín/zink Fyrir myndun netju
Mangan/kopar Fyrir myndun netju
Magníum/natríum Hluti krisUlla
Kísill/vanadíum Fyrir netjumyndun eða kristöllum
Flúor Herðir krisUlla í tönnum og beinum
Morgunblaöiö/Skapti
Kanadíski togarinn Cape Sambro í dráttarbraut Slippstöðvarinnar á Akur-
eyri.
Annar kanadískur
togari kominn til
Akureyrar í slipp
SKUTTOGARI frá Kanada, Cape Sambro, befur verið í slipp í Slippstöðinni
á Akureyri að undanförnu. Nú er annar togarí frá Kanada kominn til höfuð-
staðar Norðurlands og er þegar byrjað að vinna í honum.
„Það er farið að sjá fyrir endann
á þeim fyrri,“ sagði Gunnar Ragn-
ars, forstjóri Slippstöðvarinnar, f
samtali við Morgunblaðið í gær.
Cape Sambro verður tekinn niður
úr dráttarbrautinni um helgina —
og strax eftir helgi verður hinn
tekinn á land.
Verkefni Slippstöðvarinnar er
að lengja togarana og innrétta
lestar þeirra fyrir fiskikassa, auk
þess sem Cape Sambro var styrkt-
ur; „tekið var úr honum smá belti,
frá stefni og aftur á mitt skip, og
sett þykkra stál í hann,“ sagði
Gunnar. Er það gert til styrktar
vegna siglinga í ís.
Slippstöðin hefur þegar samið
um frekari verkefni við Kanada-
menn — eftir áramót koma tveir
togarar til viðbótar, sá fyrri um
miðjan janúár og sá síðari í lok
febrúar.
Hiti sjávarins
yfir meðallagi
NIÐURSTÖÐUR sjórannsókna i
nóvembermánuði í vetur sýna, að
enn ríkir hlýsjórinn á norður- og
austurmiðum eins og verið hefur
meira eða minna síðan í sama mán-
uði 1983 og gera má ráð fyrir að
áhrifa hans gæti næstu mánuði.
Áætlaðar rannsóknir Hafrannsókna-
stofnunar í febrúar á næsta ári
munu svo aftur gefa vísbendingu
um framhaldið.
Þessar upplýsingar koma fram
í frétt frá Hafrannsóknastofnun,
sem að venju kannaði ástand sjáv-
ar umhverfis landið í nóvember-
mánuði. Helztu niðurstöður könn-
unarinnar voru, að í heita sjónum
fyrir Suður- og Vesturlandi hefði
hiti verið 7 til 8 gráður, sem er í
meðallagi fyrir þennan árstíma og
út af Vestfjörðum hefði hitastig
sjávar verið 5 til 7 gráður. Hlýsjór-
inn hefði einnig verið fyrir öllu
Norðurlandi með hitastigi yfir 5
gráðum og allt austur fyrir land
með hitastigi vel yfir 4 gráðum,
sem er allt að 1 gráðu yfir meðal-
lagi áranna 1971 til 1983. Þar fyrir
sunnan, í Lónsbugt hefði svo aftur
verið komið í heita sjóinn eða
Atlantshafssjóinn. Skilin milli
hlýsjávar og kaldsjávar út af
Norðurlandi hefðu verið tiltölu-
lega norðarlega og hitastig í Aust-
ur-íslandsstraumi hefði verið 0,5
til 1 gráða, sem er talsvert hærra
en í meðallagi fyrir árstímann.
Leiðangurinn var farinn á rann-
sóknarskipinu Bjarna Sæmunds-
syni undir stjórn Jóns ólafssonar,
haffræðings. Skipstjóri var Sig-
urður Árnason.
Nýr formað-
ur í Einingu
SÆVAR Frímannsson tók við formennsku í verkalýðsfélaginu Einingu á
Akureyri á föstudagskvöldið þegar stjórn félagsins veitti Jóni Helgasyni
lausn frá störfum. Sævar hefur verið varaformaður Einingar í hartnær ára-
tug, eða nærrí jafn lengi og Jón var I
„Ég hef verið lengur en ég ætlaði
mér í f^rstu en þessi langa seta
mín helgast að mestu af því, að ég
vildi sjá fyrir endann á byggingu
svokallaðrar Verkalýðshallar hér
á Akureyri, sem ég átti þátt í að
koma af stað á sínum tíma,“ sagði
Jón Helgason í samtali við blaða-
mann Morgunblaðsins. „Nú finnst
mér rétt að nýir menn og yngri fái
tækifæri — enda vil ég afsanna
það, að forystumenn í verkalýðs-
hreyfingunni séu svo gráðugir, að
þeir vilji ekki með nokkru móti
standa upp úr stólunum. Mín
reynsla er miklu frekar sú, að
menn séu ekkert of fúsir til að
taka við.“
— En er það mjög lýðræðis-
legt, Jón, að þú veljir þér sjálfur
eftirmann með þessum hætti?
„Það er augljóst mál, að varafor-
maður í félagi tekur við þegar
formaður fer frá. Það er því ekkert
ólýðræðislegt við þetta hér hjá
okkur enda fer alltaf fram alls-
maóur í félaginu.
herjaratkvæðagreiðsla um for-
mann og aðra stjórnarmenn þegar
kemur að aðalfundi. Hann verður
væntanlega haldinn í febrúar eða
mars og þá segja félagsmenn álit
sitt. Sjálfur efast ég ekkert um að
Sævar er vel að þessu kominn og
verður góður formaður. Hann fær
nú dálítinn tíma til að setja sig inn
i málin og mun auk þess hafa
forystu fyrir félagið í komandi
samningalotu."
Jón Helgason hefur verið for-
maður Einingar í nær tólf ár og
starfsmaður verkalýðsfélaganna á
Akureyri í 21 ár. Hann var áður
varaformaður Sjómannafélags
Akureyrar og stundaði sjó þar í
hálfan annan áratug. En þótt hann
hafi nú látið af formennsku í
Einingu verður hann áfram virkur
í starfi verkalýðsfélaganna á
Akureyri — hann hefur um árabil
verið framkvæmdastjóri lífeyris-
sjóðsins þar og verður áfram „ef
mér verður þá ekki sagt upp!“ sagði
hann.