Morgunblaðið - 04.12.1985, Page 58

Morgunblaðið - 04.12.1985, Page 58
58 félk í fréttum MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 4. DESEMBER1985 Julio farínn að þreytast? Julio Iglesias hefur eytt tíma sínum á Bahama-eyjunum að undanförnu, þar sem hann nýtur lífsins með kyrrlátum hætti. Julio sagði í viðtali nýlega að hann hefði orðið að stinga af um tíma því: „Ég skil ekki af hverju aðdáendur mínir uppgötvuðu mig ekki fyrr. Þegar ég var liðlega tvítugur gat ég sungið endalaust án þess að þreytast. En núna þegar árum fjölgar og hárið er tekið að grána, er ég orðinn úrvinda eftir aðeins tvö lög.“ Alls fórti 22.860 kubbar í bygging- una. Hallgrímskirkju á 14 dögum Stórt líkan af Hallgríms- kirkju, búið til úr Legokubb- um, blasti við viðskiptavinum Miklagarðs á dögunum. Líkanið af kirkjunni var byggt hjá Lego i Billund á Jótlandi haustið 1979 vegna vörusýningar í Laugardalshöllinni þá um haustið. Reykjalundur útvegaði þá teikn- ingar af kirkjunni og lét auk þess taka myndir af byggingunni eins og hún var þá. Dagný Hólm sem sést lengst til hægri á annarri myndinni er yfir- hönnuður hjá Lego og hefur staðið fyrir öllum þeim líkönum sem gerð hafa verið og sýnd eru í Legoland- garðinum í Billund. Hún og stúlkurnar sem aðstoð- uðu við kirkjubygginguna byggðu húsið úr hvorki meira né minna en 22.860 kubbum á 14 vinnudög- um, það er að segja á um það bil 112 klukkustundum. Kubbarnir eru límdir saman og báknið hið traustasta að gerð. Þess má geta að líkönin í garðinum í Billund standa úti allan ársins hring og hafa sum þeirra staðið úti frá opnun garðsins eða í ein 16 ár. Kirkjulíkanið er geymt á Reykjalundi uns verðugri staður finnst til að geyma það á. Kirkjan var reist árið 1979 og tók það um 112 klukkustundir að byggja báknið. Þær reistu Foreldrar Spánarkonungs gift í 50 ár Það var mikið um dýrðir i Prado- höllinni í Madrid í október sl. Foreldrar Juan Carlos konungs, Don Juan de Bourbon og Maria de las Mercedes, héldu upp á 50 ára brúðkaupsafmæli sitt með pomp og pragt. Hjónin hafa löngum verið búsett í Portúgal, þar sem Don Juan var aldrei konungur Spánar, einungis sonur hans i sem tók við. Franco leyfði aldrei að Don Juan byggi á Spáni, þó að hann léti sér lynda að Carlos erfðaprins fengi menntun sina í föður- landinu. Maria de las Mercedes móðir Juan í ’arlos Spánarkonungs. Don Juan faðir konungsins.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.