Morgunblaðið - 04.12.1985, Síða 68
n&
^uglýsinga-
síminn er 2 24 80
MIÐVIKUDAGUR 4. DESEMBER 1985
VERÐ í LAUSASÖLU 40 KR.
f brií Sveinborgar var allt á tjá og tnndri
Morgunbladid/Sigurgeir
Mikið tjón á Sveinborgu SI 70:
Hyggjast ljúka
söluferðinni til
Englands
Vestmannaejjum, 3. desember.
MIKIÐ tjón varð i yfirbyggingu og tækjum í brú skuttogarans Svein-
borgar SI 70 fri Siglufirði þegar skipið fékk i sig brotsjó suður af
landinu um tvö-leytið aðfararnótt minudagsins. Skipstjórinn var einn
í brúnni þegar ólagið reið yfir bakborðsmegin, braut 6 rúður og fyllti
brúna af sjó sem sprengdi út dyr stjórnborðsmegin.
Ljóst er af ummerkjum í stjórnborðsmegin. Við þurftum
brúnni og lýsingu skipverja í að sækja sum tækin út í stjórn-
samtali við fréttaritara Morgun-
blaðsins að mesta mildi var að
skipstjórinn slapp óskaddaður úr
holskeflunni. Hjalti Bjðrnsson
skipstjóri vildi ekki tjá sig um
atburðinn.
Sveinborgin var á leið í sðlu-
ferð til Englands með um 115
tonn af fiski. Um borð voru 14
skipverjar og tvær konur. Páll
Gunnlaugsson stýrimaður sagði
í samtali við Morgunblaðið að
veður hefði verið slæmt þarna
um nóttina. „Hann var að ganga
út í suðaustrið. Mikill sjór og 10
vindstig. Við keyrðum á hálfri
ferð og það tók sig upp mikill
sjór sem skall á okkur bakborðs-
megin. Sex gluggar brotnuðu og
sjórinn fyllti brúna og fossaði
niður í ganga. Á kafla gekk brúin
inn og sjórinn braut út hurðina
borðsvænginn. Ég held að segja
megi að öll tækin séu gjörónýt,"
sagði Páll Gunnlaugsson.
Það var ljótt um að litast í
brúnni þegar skipið kom inn til
hafnar í Eyjum um hádegisbilið
í dag. Höfðu skipverjar þó
hreinsað til eins og hægt var, og
sett fyrir brotnu gluggana. Brúin
var dælduð og gengin inn á kafla
um á að giska 30 sentimetra.
Engu líkara en slegið hefði verið
á húsið með risasleggju. Þá var
rekkverkið brotið af á kafla fyrir
framan brúna.
í dag var unnið að viðgerðum
og að því að setja ný tæki í brúna
til bráðabirgða. Ætla skipverjar
síðan að halda ferðinni áfram og
selja afla sinn S Englandi síðar
í vikunni.
- hkj
Skiparekstur
íslenska skipafé-
lagsins að stöðvast
Skaftáin enn í Antwerpen og kröfurnar nálgast 50 milljónir króna
SKIPAREKSTUR íslenska skipaféjagsins er nú að stöðvast, þar sem
Útvegsbanki íslands hefur neitað íslenska skipafélaginu um rekstrar-
lán. Selá kom til Reykjavíkurhafnar í gærmorgun, og liggur nú við fest-
ar, Rangá er væntanleg til Reykjavíkur í dag, og mun sömuleiðis leggj-
ast við festar. Von er á Hofsá til landsins síðar í vikunni, en Skaftá er
enn í farbanni í Antwerpen, og ekkert sem bendir til þess að hún losni
þaðan í bráð.
Heimildir Morgunblaðsins
herma að erlendir kröfuhafar hafi
nú lagt fram kröfur á Skaftána
sem nemi um 1,2 milljónum doll-
ara, eða um 48 milljónum króna,
og er ekki talið að allar kröfurnar
séu fram komnar. Það er því ekki
talið líklegt að Sveinn Snorrason,
lögfræðingur Útvegsbankans, sem
nú er í Antwerpen til þess að leita
samninga við kröfuhafa á Hafskip
hafi þar erindi sem erfiði.
Ragnar Kjartansson, stjórnar-
formaður Hafskips var í gær
spurður álits á tilboði Eimskips í
eigur íslenska skipafélagsins: „Ég
hefði auðvitað kosið að sjá hærri
tölur þarna," sagði Ragnar. Hann
sagði að allt frá því snemma í júlí,
þegar ljóst hefði verið að Hafskip
stæði frammi fyrir vanda, hefði
það verið sett fram sem megin-
markmið að spila þannig úr málum
að hagsmunum Útvegsbanka ís-
lands yrði borgið. Hann sagði það
ekki hafa verið tilviljun að viðræð-
ur voru hafnar við Eimskipafélag-
ið en ekki önnur skipafélög. „Á
þessum tíma er það mín persónu-
lega hvatning til viðskiptamanna
Hafskips hf. að beina viðskiptum
sinum til Eimskipafélagsins, en
hika jafnframt ekki við að sýna
félaginu eðlilegt aðhald og gera
kröfu til málefnalegrar þjónustu.
Þeir vita sem er, félagar okkar
hjá Eimskip, að án þjónustunnar
má búast við nýju Hafskipi, og
vafamál er að þeir vilji ganga í
gegnum nýtt 27 ára tímabil af því
tagi,“ sagði Ragnar.
Fulltrúar Eimskips og Útvegs-
bankans ræddust við í gær, en
ekki var gengið frá neinu. Er málið
í biðstöðu á meðan reynt er að fá
niðurstöðu í Skaftármálinu, og því
með hvaða hætti kaup Eimskips á
eignum íslenska skipafélagsins
fara fram. Viðmælendur blaðsins
telja þó að niðurstaða fáist í mál-
inu í þessari viku.
„Lögfræðingur okkar talaði við
okkur í dag, og hann segir að þetta
sé bæði flókið mál og erfitt," sagði
Lárus Jónsson bankastjóri Útvegs-
bankans í gærkveldi. Lárus sagðist
óviss um það hver niðurstaðan af
för Sveins til Antwerpen yrði, en
hann sagði að Útvegsbankinn
myndi ekki leysa Skaftána út ef
kröfurnar á skipið væru orðnar 1,2
milljón doliara.
Sjá viðtal við Ragnar Kjartans-
son, stjórnarformann Hafskips á
bls. 4.
69 % hækkun á laxveiði-
leyfum í Elliðaánum
BORGARRÁÐ Reykjavíkur hefur
samþykkt 69% hækkun á laxveiði-
leyfum í Elliðaánum sumarið 1986.
Hálfur dagur í Elliðaánum kostaði
sl. sumar kr. 1.600 en hækkar í kr.
2.700 næsta sumar og gildir það út
ailt veiðitímabilið.
„Fyrir hver áramót fer fram
endurskoðun á samningi um veiði-
leyfi milli Reykjavíkurborgar og
Stangveiðifélags Reykjavíkur,"
sagði Haukur Pálmason, aðstoðar-
rafmagnsstjóri hjá Rafmagnsveit-
um Reykjavíkur, sem hefur með
samningana að gera. „í ár urðu
báðir aðilar sammála um að þörf
væri á aukinni öryggisgæslu við
árnar allan sólarhringinn. Hækk-
un veiðileyfa umfram almennt
verðlag, sem hækkaði um 35% á
síðasta ári, má því rekja til kostn-
aðar við aukna gæslu.“
Tíu ísfírðingar dæmdir í sektir fyrir ólöglegan útvarpsrekstur í BSRB-verkfallinu:
Ekki fallist á að neyðarréttur
hafi réttlætt útvarpssendingar
TÍU MENN á ísafirði voru í gær dæmdir í fésektir fyrir að hafa starfrækt
ólöglega útvarpsstöð þar í bænum í tvo daga í verkfalli BSRB í fyrrahaust.
Fimm þeirra, sem mynduðu „útvarpsráð“ stöðvarinnar, voru dæmdir í 5.000
króna sekt hver um sig en fimm aðrir, sem voru starfsmenn stöðvarinnar,
í 3.000 króna sekt hver. Til vara komi varðhald í fimm og þrjá daga. Líklegt
er að dóminum verði áfrýjað til Hæstaréttar, að sögn eins hinna sakfelldu
á ísafirði, Úlfars Agústssonar fréttaritara Morgunblaðsins.
Þetta er fyrsti dómurinn, sem
fellur í sjö málum er höfðuð voru
fyrr á þessu ári gegn aðstandend-
um ólöglegra útvarpsstöðva er
starfræktar voru á nokkrum stöð-
um á landinu í verkfalli BSRB.
Tíumenningarnir, sem dæmdir
voru fyrir brot á útvarps- og fjar-
skiptalögum, eru Árni Sigurðsson
ritstjóri, öskar Eggertsson fram-
kvæmdastjóri, Úlfar Ágústsson
framkvæmdastjóri, Yngvi Kjart-
ansson blaðamaður og Björn Her-
mannsson rafvirki, en þeir fimm
mynduðu „útvarpsráðið", og svo
þeir Magni Veturliðason rafeinda-
virkjanemi, Jónas Ágústsson sölu-
stjóri, Guðmundur Kristinsson
rafeindavirki, Bjarni Hákonarson
verslunarstjóri og Jakob Garðars-
son nemi, sem allir voru starfs-
menn stöðvarinnar. Sá síðast-
nefndi er 17 ára gamall og lék af
hljómplötum í útvarpinu í eina
klukkustund annan daginn, sem
sent var út, að sögn Úlfars Ágústs-
sonar. Tímenningarnir eru við-
riðnir fjölmiðlun á ísafirði og
nokkrir eru starfsmenn rafeinda-
fyrirtækisins Pólsins þar í bæ.
í niðurstöðum dómsins segir
meðal annars, að ekki sé fallist á
þá röksemd verjanda, að einkarétt-
ur ríkisvaldsins á útvarpi hafi
fallið niður við það að starfsmenn
Ríkisútvarpsins hafi lagt niður
störf sín og ekki er heldur fallist
á að réttlæta megi útvarpssend-
ingarnar með skirskotun til neyð-
arréttar. Dóminn kvað upp ólafur
K. Ólafsson fógetafulltrúi á
ísafirði. Verjandi tímenninganna
var Jón Steinar Gunnlaugsson hrl.
Sex önnur mál vegna sömu ætl-
uðu brota eru nú til meðferðar í
dómskerfinu, þrjú í Reykjavík, tvö
á Akureyri og eitt á Siglufirði.
Ákærur í þeim málum, sem nú eru
til meðferðar fyrir Sakadómi
Reykjavíkur, voru gefnar út í jan-
úar á þessu ári. Dómarar í tveimur
þeirra sögðust í gær eiga von á að
dómar gætu gengið í næsta mán-
uði, janúar 1986. Ákæra í málinu
á ísafirði var gefin út um miðjan
apríl á þessu ári, ákært var í mál-
unum á Akureyri í vor og í Siglu-
fjarðarmálinu síðari hluta ágúst-
mánaðar.
Sjá nánar á bls. 39
'—
Morjfunbladiö/Friöþjófur
Jólatréð
rísið á
Austurvelli
Oslóarjólatréð var reist á Austur-
velli í gær. Á sunnudaginn verða
Ijósin tendruð á trénu við hátíð-
lega athöfn að vanda.