Morgunblaðið - 22.12.1985, Blaðsíða 1
80 SIÐUR B
STOFNAÐ1913
290. tbl. 72. árg.
SUNNUDAGUR 22. DESEMBER 1985
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Sex ára átök í Afganistan:
10.000 Sovét-
menn fallnir
Wukiagtoa. 21. desember. AP.
FRÁ ÞVÍ Sovétmenn gerðu innrás í
árum hafa 10.000 sovézkir hermenn
sveitir og 20.000 hermenn særst, aö !
ráðuneytisins.
í skýrslu ráðuneytisins kemur
fram að sovézki innrásarherinn og
afganski stjórnarherinn hafi misst
á níunda hundrað flugvéla í bar-
dögunum, þar af 200 á þessu ári.
Arnold Raphel, talsmaður ráðu-
neytisins, segir að frelsissveitirnar
geti ekki sigrast á sovézka inn-
rásarliðinu, sem áætlað er að telji
118 þúsund hermenn, jafnvel þótt
þeir væru betur vopnum búnir en
áður og pólitísk eining væri meiri.
Átökin séu í raun komin í sjálf-
heldu og útilokað að annar aðilinn
geti knúið fram sigur, en hernað-
arstöðuna bæri samt að skoða sem
stórsigur frelsissveitanna.
Bandaríkin:
Afganistan um jólahelgina fyrir sex
fallið í átökum við afganskar frelsis-
sögn talsmanns bandaríska utanríkis-
Raphel sagði að viðræður, sem
haldnar væru að frumkvæði Sam-
einuðu þjóðanna, um stríðið í
Afganistan gæfu vissar vonir.
Innrásin í Afganistan og stríðið,
sem geisað hefur síðan, hefur rýrt
orðstír Sovétmanna í ríkjum mú-
hameðstrúarmanna. Vísbendingar
væru um að sovézkir ráðamenn
vildu bæta fyrir álitshnekkinn.
Raphel sagði Rússa hafa fjölgað
um 5.000 hermenn í innrásarliðinu
á árinu og aukið skotgetu þess. Þá
væri 30.000 manna herlið til taks
handan afgönsku landamæranna.
Shultz verður ekki
sendur í lygapróf
Italía:
Mikil sprenging
í olíubirgðastöð
Washinfpon, 21. desember. AP.
RONALD Reagan, Bandaríkjafor-
seti, lýsti yfir því í gær að George
P. Shultz, utanríkisráðherra, yrði
ekki látinn gangast undir próf um
trygglyndi sitt í lygamæli. Shultz
hafði sagt að hann myndi segja af
sér, frekar en að fara í slíkt próf.
Bandaríkin:
Prentari
kærður fyr-
ir njósnir
WashÍRgton. 21. desember. AP.
PRENTARI hjá prentsmiðju, sem
prentar fyrir hið opinbera, var hand-
tekinn í nótt og sakaður um njósnir
1 þágu Rússa. Er hann 11. Banda-
ríkjamaðurinn, sem handtekinn er á
þessu ári fyrir meintar njósnir.
Prentarinn, Randy Miles Jeffri-
es, sem er 26 ára, er sagður hafa
sankað að sér trúnaðarskjölum um
landvarnir Bandaríkjanna og
reynt að afhenda þau skrifstofu
sovézka hermálafulltrúans í
Washington.
Skömmu eftir að Reagan hitti
Shultz sagði hann við blaðamenn
að hvor.ugur þyrfti að gangast
undir próf í lygamæli. Blaðamenn
hrópuðu spurningar að forsetan-
um er hann yfirgaf Hvíta húsið á
leið til Camp David í Maryland,
þar sem hann mun dvelja um
helgina, og var m.a. spurt hvort
Reagan hefði fengið Shultz til að
skipta um skoðun á lygamælum:
„Nei,“ sagði Reagan, „ég skýrði
einfaldlega út fyrir honum að hann
ætti ekki að trúa öllu, sem hann
læsi í evrópskum dagblöðum."
Shultzer nýkominn úr Evrópuferð.
Shultz setti fram á fimmtudag
fyrstu opinberu afsagnarhótun
sína að talið er á 3xk árs ferli
sinum sem utanríkisráðherra.
Shultz kvaðst vera algerlega mót-
fallinn nýjum skipunum um að
nota lygamæli til að fletta ofan
af starfsmönnum, sem ekki væri
treystandi.
„Þegar mér, sem ráðherra, verð-
ur sagt að mér sé ekki treystandi,
þá geng ég út úr stjórninni," sagði
Shultz og bætti við, að það væri
trúa sín, að próf fyrir lygamæli
væru ekki áreiðanleg.
Napolí, 21. deseraber. AP.
MIKIL sprenging varð í olíubirgda-
stöð á iðnaðarsvæði í Napolí
skömmu fyrir dögun í morgun og
segja embættismenn að um 280
manns hafi slasast, nokkrir tugir
alvarlega. Fjölmiðlar segja að tveir
menn hafi látist í sprengingunni.
„Þetta var öflug sprenging,"
sagði Renato Profili, talsmaður
borgaryfirvalda í Napolí.
Mikill eldur braust út í spreng-
ingunni og kviknaði í nærliggjandi
byggingum. Ekki hafði enn tekist
að ráða niðurlögum eldsins á há-
degi í dag og var óttast að hann
breiddist út til olíuhreinsunar-
stöðvar í næsta nágrenni við olíu-
birgðastöðina. Profili kvað 30
manns liggja á sjúkrahúsi í Napolí
og hefðu 250 manns fengið læknis-
aðstoð við smávæglegum sárum.
1 útvarpi sagði að 50 manns
hefðu fengið alvarleg brunasár.
Talsmaður viðlagaráðuneytisins
í Róm sagði að tveggja starfs-
manna olíufélagsins Agip, sem er
í ríkiseigu, væri saknað. Þeir hefðu
verið að störfum i birgðastöðinni
þegar sprengingin varð.
Giuseppi Bossa, talsmaður Agip
í Napolí, sagði að olía og bensin
hefði verið geymt í birgðastöðinni
og 24 olíutankar hefðu gjöreyði-
lagst.
Óvíst er hvað olli sprengingunni
og ekki talið útilokað að hún hafi
verið af mannavöldum.
Rússi
synti
á vit
frelsis
KúAuhore. Kraliklandi. 21. desember. AP.
SOVÉZKUR sjómaður stakk sér til
sunds frá sovézka kornflutninga-
skipinu „Ivan Pokrovskiy", og synti
til lands þar sera hann bað um póli-
tískt hæli.
Sjómaðurinn naut aðstoðar við-
staddra er hann klifraði upp á
bryggju úr köldum sjónum. Ekki
var skýrt frá nafni hans né aldri.
Frönsk yfirvöld ihuga beiðni
mannsins, sem gaf sig fram við
lögreglu. Skip hans tók höfn í
borginni Rúðu í gær.
Indland:
Heilagar kýr ekki fluttar inn
Njju Oelhf, 21. desember. AP.
INDLANDSSTJÓRN hefur ákveð-
ið að hætta við áætlanir um að
flytja inn kýr til að bjarga þeim frá
válegum dauða í evrópskum slátur-
húsum, vegna þess að enginn
fékkst til að greiða fyrir flutning-
inn á skepnunum, að því er segir I
indversku dagblaði í dag.
í blaðinu sagði að samkvæmt
áætluninni hefði átt að flytja inn
um 100 þúsund kýr frá Vestur-
Þýskalandi, Danmörku, Hollandi
ogöðrum Evrópuríkjum.
Hindúum finnst jaðra við villi-
mennsku að drepa kú af efnahags-
legum ástæðum. Á Indlandi fá
kýrnar að valsa óhindrað um borg
og bý og kýrin er hindúum tákn
móðurinnar.
Trúarleiðtogar hindúa fengu þá
hugmynd að flytja inn kýr þegar
spurðist að Vestur-Þjóðverjar
ætluðu að farga kúm í þúsunda-
tali vegna offramleiðslu á mjólk-
urvörum innan Evrópubandalags-
ins.
Indlandsstjórn neitaði að
teggja fram fé til þessa innflutn-
ings úr ríkissjóði og indverskir
bændur kváðust ekki hafa bol-
magn til slíks. Það kostar um 50
þúsund krónur að flytja eina kú
frá Evrópu til Indlands.
Stjórn Vestur-Þýskalands hef-
ur samþykkt að láta kýrnar af
hendi til Indverja með því skilyrði
að þeir standi straum af flutn-
ingskostnaði og á það sama við
um önnur Evrópuríki. Og þar stóð
hnífurinn í kúnni.